Morgunblaðið - 24.08.1997, Blaðsíða 24
24 SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Þorkell
BENEDIKT Kristjánsson kaupmaður í Vöruvali fyrir framan verslunina í Bolungarvík sem hann ætlar að helga krafta sína í náinni framtíð.
SAMKEPPNIN
ER VEKJANDI
vmanpn/ArviNNUUF
Á SUNNUDEGI
► Benedikt Kristjánsson, kaupmaður í Vöruvali, er 45 ára Bol-
víkingur. Hann lærði kjötiðn í íðnskólanum og hjá Sláturfélagi
Suðurlands, vann sem kjötiðnaðarmaður hjá Einari Guðflnnssyni
og var svo ráðinn verslunarsljóri Vöruvals á ísafirði. Hann keypti
Vöruval árið 1987 og rekur nú fjórar verslanir undir því nafni, á
ísafirði, í Hnífsdal og Bolungarvík. Benedikt hefur verið formaður
Kaupmannasamtaka Islands í tvö ár og þetta árið er hann jafn-
framt formaður verslunarsamtakanna Þín verslun. Hann er kvænt-
ur Kristínu Gunnarsdóttur úr Bolungarvík og eiga þau þijú börn,
á aldrinum 24, 20 og 2 ára.
ISFIRSKIR neytendur krefjast þess að vöruúrval só gott.
eftir Helgo Bjarnoson
Ð LOKNU kjötiðnaðar-
námi fór Benedikt Krist-
jánsson að vinna í kjöti í
verslun Einars Guðfínns-
sonar heima í Bolungarvík. Hann
var fyrsti kjötiðnaðarmaðurinn sem
kom til starfa í bænum og byggði
upp kjötvinnslu fyrirtækisins.
„Þegar ég var búinn að vera í kjöt-
inu í rúman áratug vildi ég breyta
til og sótti um starf á Isafirði. Sem
betur fer, segi ég nú, fékk ég ekki
starfið því í staðinn bauð Heiðar
Sigurðsson kaupmaður í Vöruvali á
ísafirði mér starf verslunarstjóra.
Eg er hræddur um að líf mitt hefði
þróast á annan hátt ef ég hefði
fengið starfið sem ég sótti um,“
segir Benedikt Kristjánsson. Hann
er nú aðaleigandi og framkvæmda-
stjóri Vöruvals sem rekur fjórar
verslanir, í Bolungarvík, Hnífsdal
og tvær á Isafirði.
Eigin verslunarrekstur
Heiðar Sigurðsson byggði versl-
unarmiðstöðina Ljónið á Skeiði á
ísafirði og rak þar mat- og ný-
lenduvöruverslunina Vöruval sem
var vísir að stórmarkaði. Þegar
Benedikt hafði unnið í versluninni í
hálft annað ár keypti hann verslun-
ina og tók húsnæðið á leigu af Heið-
ari. Fyrirtæki Benedikts, Vöruval
hf., tók til starfa 1. febrúar 1987.
„Ég fórnaði mér fyrir starfið og
okkur tókst að rífa reksturinn
upp,“ segir Benedikt. Kona hans og
eldri böm hafa alla tíð unnið mikið
við fyrirtækið. Samkvæmt samn-
ingnum við Heiðar mátti hann skila
versluninni eftir ár í nákvæmlega
sama horfi og hann tók við henni.
„Þegar árið var liðið fannst mér of
stuttur tími liðinn og ekki nægileg
reynsla kominn á reksturinn. Ég
fann að við vorum á réttri braut og
að við gætum látið hlutina ganga
upp. Þrátt fyrir alla vinnuna fannst
mér þetta gaman og vildi halda
áfram.“
Þegar Benedikt tók við verslun-
inni fór hann í stutta kynnisferð til
Danmerkur og kom heim með hug-
myndir um það hvernig ætti að
raða í svona verslun. „Við snerum
öllu við, skipulögðum verslunina
upp á nýtt. Vöruúrval var aukið,
sérstaklega ferskar vörur. Við
reyndum að kaupa allar vörur beint
frá framleiðendum og innflytjend-
um, framhjá milliliðum, og hófum
síðar beinan innflutning. Dönsku
búðimar voru að taka í notkun
tölvukassa og strikamerkingar og
ég ákvað að taka þessa tækni í
mína þjónustu strax og mögulegt
væri. Vöruval varð svo þriðja versl-
unin hér á landi til að taka upp
strikamerkingar, á eftir Bónus og
Nóatúni."
„Fólk fékk trú á því sem við vor-
um að gera og verslunin jókst. Á
þessum tíu árum höfum við lifað af
ýmsa keppinauta. Kaupfélag ísfirð-
inga var lengst af okkar helsti
keppinautur. Samkeppninsaðstað-
an var alltaf ójöfn þeim í hag og
kom það vel í ljós þegar kaupfélag-
ið hætti og varð gjaldþrota. Það
hafði safnað miklum skuldum og
vestfirskir bændur fóru verst út úr
því. Við gátum ekki leyft okkur að
safna skuldum hjá viðskiptamönn-
um, eins og bændum, enda verða
þeir að fá kaupið sitt greitt eins og
aðrir.“
Kominn heim aftur
Þegar Vöruval hafði starfað í sex
ár var lítilli verslun í Hnífsdal lokað
en hún var eina verslunin í dalnum.
Vöruval opnaði þarna verslun í apr-
íl 1993 og á síðasta ári var verslunin
öll endumýjuð. Verslunin er lítil og
fólkinu í Hnífsdal hefur fækkað
veralega. „Þessi verslun hefur
aldrei verið baggi á fyrirtækinu
þrátt fyrir smæðina en að visu hef-
ur nú heldur þrengt að. Við erum
aðeins með einn starfsmann í búð-
inni og skertan opnunartíma og
henni er þjónað frá aðalverslun
okkar á ísafirði.“
Tæpu ári síðar bættist þriðja
verslunin við. Eftir endurskipu-
lagningu fyrirtækja Einars Guð-
finnssonar hf. í Bolungarvík var
stofnað sérstakt fyrirtæki um
verslun, bakarí og kjötvinnslu.
Undir lok ársins 1993 var ákveðið
að hætta rekstrinum. Benedikt
keypti búðina og stofnaði um hana
fyrirtækið Vöraval Bolungam'k hf.
Énn var ráðist í endumýjun inn-
réttinga og nýja uppröðun enda
segir Benedikt að tími hafi verið til
þess kominn, búðin hafi haldist lítið
breytt í 25 ár.
„Þótt ég væri í verslunarrekstr-
inum á Isafirði bjuggum við alla tíð
hér í Bolungarvík og þvi má segja
að ég hafi verið kominn heim aftur
þegar ég keypti verslunina. Það var
skrítin tilfinning að ganga um
verslunina eftir að hafa alist þar
upp sem verslunarmaður. Það
hvarflaði aldrei að mér að ég ætti
eftir að versla hér en örlögin hög-
uðu því þannig."
Keypti elstu verslunina
Fyrir ári, eftir að Kaupfélag Is-
firðinga lokaði verslun sinni á Eyr-
inni á Isafirði, hófst mikið kapp-
hlaup um verslunarplássið. Aðal-
keppnin var á milli Kaupfélags Suð-
urnesja og Verslunar Björns Guð-
mundssonar sem rak Björnsbúð
skammt frá kaupfélaginu. Suður-
nesjamennirnir urðu hlutskarpari
og opnuðu Samkaup í desember. Þá
vildu þeir sem ráku Bjömsbúð
hætta verslun og úr varð að Vöra-
val tók yfir reksturinn 1. febrúar
síðastliðinn. Björnsbúð er elsta
verslunin á ísafirði, var rekin þar af
sömu fjölskyldunni í rúma öld, og
Benedikt segist stoltur reka hana
áfram undir þessu nafni.
„Við erum svolítið útúr með okk-
ar stóru verslun inni í Firði. Hún er
ekki í göngufæri við stærstu íbúð-
arhverfin. Það er því nauðsynlegt
að vera einnig með verslun á Eyr-
inni. Þegar Samkaup kom lengdist
opnunartíminn, þeir tóku verslun-
arsiði Suðurnesjanna með sér vest-
ur og við urðum að svara því. Allt of
dýrt er að lengja opnunartímann í
versluninni á Skeiði en við sáum
'möguleika að gera það í Björnsbúð.
Það var alla tíð ljóst að það myndi
kosta töluvert að bæta við verslun
en á móti kemur aukin velta,“ segir
Benedikt. Björnsbúð hefur verið
opin til klukkan 9 virka daga og 6
um helgar en nú er búið að stytta
opnunartímann um klukkutíma
virku dagana.
„f raun og vera er engin þörf á
þessum langa opnunartíma og hér
hefur verið góð sátt um að fólk gæti
gert innkaup sín til klukkan 6 virka
daga og 7 á föstudögum svo versl-
unarfólkið ætti frí á kvöldin og um
helgar eins og aðrir íbúar bæjarins.
Þessi langi opnunartími eykur
óhjákvæmilega kostnaðinn í búðun-
um. í ljós hefur komið að engin
þörf er á þessu, það er til dæmis
ekkert að gera milli klukkan 8 og 9
og enginn hefur kvartað yfir því að
við erum farnir að loka Bjömsbúð
klukkan 8.“
Ný vinnubrögð í verslun
Kaupfélagið átti erfitt tímabil
áður en það lokaði endanlega. Með
tilkomu Samkaupa jókst sam-
keppnin á ný og er nú töluvert
hörð. „Þegar þeir komu voru tekin
upp alveg ný vinnubrögð í verslun
á svæðinu. Áður var hver að vinna
í sínu horni, í sátt og samlyndi við
aðra kaupmenn á svæðinu. Nú
fylgjast menn grannt með vöru-
verði hvers annars. Þeir skrifa upp
verðið hjá mér og ég fer reglulega
í Samkaup til að gera mínar
verðkannanir. Það er ekkert nema
gott um þetta að segja, samkeppn-
in heldur manni vakandi."
Vöruverð á ísafirði hefur lækk-
að, að sögn Benedikts. „Verslun í
dag gengur út á verð og verðsam-
keppni. En verðið helst ekki lágt
til frambúðar nema menn taki til í
sínum rekstri því fyrirtækin verða
að standa undir sér. Við höfum
dregið úr kostnaði og þurft að
minnka vöruúrval og fækka starfs-
fólki. Meira er flutt beint inn og
aðild að verslunarsamtökunum Þín
verslun hefur veitt okkur betri við-
skiptakjör. Sameiginleg samnings-
gerð þessara verslana við birgja
hefur leitt til lækkunar innkaups-
verðs.
Við höfum þurft að hugsa alla
hluti upp á nýtt með það að leiðar-
ljósi að taka á móti samkeppninni ai
fullu afli. Reyna að verða betri en
keppinauturinn og ég tel að það hafi
tekist. Við eram með bestu búðina é
ísafirði."