Morgunblaðið - 24.08.1997, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 1997 25
Vöruverð lækkar
Benedikt segir að beinn inn-
flutningur Vöruvals hafi hjálpað
til að lækka vöruverð. j,Það eru
alltof margir milliliðir. Á Isafirði
eru til dæmis tvær heildsölur. Til
hvers? Neytendur krefjast þess að
fá vörur á sambærilegu verði og í
Reykjavík og þá hefur engin
verslun efni á því að greiða milli-
liðum.“
Hann telur að matvöruverð á
Isafirði sé orðið sambærilegt við
verð í stórmörkuðum í Reykjavík.
Þjónusta og vöruval sé með því
besta sem þekkist og síst lakara en
í Reykjavík. „Við búum við þær að-
stæður að við verðum að hafa gott
vöruúrval, viðskiptavinurinn krefst
þess. Ekki þýðir fyrir okkur að
segja honum að hann verði að
kaupa ákveðið merki, við verðum
að vera með alla flóruna. Eg vitna
stundum í minn gamla lærimeistara
hér í Bolungarvík, Jónatan Einars-
son. „Fólk á geta fengið það heima
sem það fær í Reykjavík,“ sagði
hann stundum. Ég tel að verslun
okkar standi undir þessu.
Það er heldur ekki sanngjamt að
bera vöruverðið saman við það sem
þekkist í afsláttarverslunum í
Reykjavík eða póstverslunum. Ef
fólk sniðgengur verslanirnar á
staðnum og kaupir inn á þennan
hátt þá þrífast engar verslanir hér
og heldur ekkert mannlíf.“
Kominn tími til að hægja á
Benedikt Kristjánsson hefur
helgað líf sitt uppbyggingu fyrir-
tækisins í áratug. Nú finnst honum
kominn tími til að minnka við sig
með því að deila ábyrgðinni með
nýjum meðeigendum. „Það fylgir
því mikil vinna og álag að byggja
upp og reka fjórar verslanir á
þremur stöðum. Ég þarf að þeytast
milli ísafjarðar og Bolungarvíkur
oft á dag, núna var ég til dæmis að
koma úr fimmtu ferðinni til ísa-
fjarðar í dag. Ég hef ákveðið að
minnka við mig vinnu og fengið
Fylgstu meb í
Kaupmannahöfn
Morgunblabib
fœst á Kastrupflugvelli
og Rábhústorginu
-kjami málsins!
unga menn inn í reksturinn á ísa-
firði. Annar þeirra er Haukur
Benediktsson sem verið hefur
verslunarstjóri hjá mér frá upphafi
og mun þessi aðgerð styrkja stoðir
rekstrarins."
Fyrirtækinu verður skipt meira
upp. Þannig mun Vöruval hf. á Isa-
firði reka verslunina á Skeiði og
Björnsbúð en Vöruval í Bolungar-
vík mun reka verslanirnar þar og í
Hnífsdal. Nýju hluthafarnir kaupa í
upphafi 30% hlut í ísafjarðarfyrir-
tækinu en Benedikt segir að því
stefnt að síðar eignist þeir meiri-
hlutann. Hann er áfram fram-
kvæmdastjóri beggja fyrirtækj-
anna.
Sjálfur ætlar kaupmaðurinn að
leggja vinnu í að hífa upp verslun-
ina í Bolungarvík. „Ég hef ekki ver-
ið nógu sáttur við ganginn hér. Bol-
ungarvík er 1.100 manna byggð og
góður grundvöllur á að vera fyrir
verslun. Ég ber ábyrgð á þessum
rekstri og það stendur engum nær
að leysa þau mál sem hér þarf að
leysa.“
„Nei, það er af og frá,“ segir
Benedikt þegar hann er spurður að
því hvort salan á hlut í Vöravali
sýni að fyrirtækið sé að láta undan
síga í samkeppninni. „Hlutirnar
hafa hins vegar æxlast þannig að
ný og ný verkefni hafa komið upp í
hendurnar á mér án þess að ég hafi
sóst eftir þeim. Og nú er kominn
tími til að minnka álagið.“ Þessu til
staðfestingar nefnir hann að á síð-
asta ári hafi velta fyrirtækisins ver-
ið 370 milljónir sem er meira en
nokkru sinni áður og á fyrri hluta
þessa árs sé enn aukning. „Að vfsu
hefur Björnsbúð bæst við og þar af
leiðandi meiri kostnaður. En þetta
sýnir þó að viðskiptavinirnir hafa
ekki gleymt okkur þótt fleiri mögu-
leikar séu fyrir hendi.“
Allt helst í hendur
Bylting varð í samgöngumálum
þegar Vestfjarðagöngin voru opn-
uð. Þau stækkuðu verslunarmark-
aðinn á Isafirði. Benedikt segist
verða mikið var við fólk frá Suður-
eyri, Flatejrri og Þingeyri í verslun-
um sínum og segir ánægjulegt að
geta þjónað því. Á móti komi, og þá
er hann kannski að hugsa sem for-
maður Kaupmannasamtakanna og
baráttumaður fyrir hagsmunum
landsbyggðarverslunar, ótrygg
staða verslana á þessum minni
stöðum. „Ekki er hægt að gera þær
kröfur til verslunar á Flateyri að
hún selji vörur á sama verði og
Bónus í Reykjavík. Nauðsynlegt er
fyrir fólkið að hafa þessar verslanir
en þær þrífast ekki nema hafa við-
skipti fólksins. Búast má við að
þetta endi með því að sjoppur olíu-
félaganna verði einu verslanirnar á
minni stöðunum," segir Benedikt.
Stöðug fólksfækkun er á Vest-
fjörðum og þess sér stað í verslun-
inni eins og öðru. „Hver einasta
fjölskylda sem flyst til Reykjavíkur
er mikil blóðtaka fyrir þetta samfé-
lag og hefur slæm áhrif. Allt helst
þetta í hendur við útgerð og fisk-
vinnslu sem við byggjum afkomu
okkar á. Hér þarf að vera arðvæn-
legt að vinna fisk. Svo virðist ekki
vera í dag því aflinn er fluttur suð-
ur á land í flutningabflum jafnóðum
og hann berst á land. Ef við höfum
ekki fisk til að vinna þrífst engin
önnur atvinna hér. Vonandi leiðir
sú endurskipulagning sem nú
stendur yfir á sjávarútvegsfyrir-
tækjum hér til þess að hægt verði
að stunda fiskverkun með hagnaði
og þá mun það hafa keðjuverkandi
áhrif á verslun eins og annan at-
vinnurekstur á þessu svæði,“ segir
Benedikt Kristjánsson.
Stalór sófar ogf stólar
15-20%*
Sj áðu keimiliá
Glæsileg g’jafavara
15-50%*
ÖII gJös á 15-20% afslœtti
í nyju ijosi
Heimsljós fagnar 10 ara afmœli í nýju glœsilegu húsnœÓi
Heimsljós heldur nú upp
á 10 ára afmœli sitt
með veglegum hœtti.
Til 6. septemher gefst hostur á
veglegum afmœlistilhoðum. Kynnið
ykkur máJin, komið við hjá okkur
að Suðurlandshraut 12.
Matar- ogf kaffistell
15-20%*
Matar- og kaffistell í öllum
tilhrigðum eru á 15-20%
afmœlisafslœtti nœsta hálfa
mánuðinn. Auk foess 6 manna
matar- og kaffistell á rifegum
afmœlisafslœtti.
frá lcr.
2.950,-
Þýsk ar Eldiro hitak önnur.
Hnífaparasett,
6 sett í kassa
jrá kr.
4.750.-
Sudu^-JsUul
■
Heimsljós H
McDonalds
Suðurlandsbraut 54 (Bláu húsin)
sími 568 9511
Glœsileg húsgögn frá hinum heimsfekkta framleiðanda
Lexington. Nú fœst í Heimsljósi úrval húsgagna í fessum
fallega stfl.