Morgunblaðið - 24.08.1997, Blaðsíða 40
10 SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 1997
MORGUNBLAÐIÐ
HUGVEKJA
IDAG
„Nýtt boðorð
gefégyður“
Hann, sem er einka-
sonur Guðs, gefur líf
sitt til lausnargjalds
fyrir marga, segir sr.
Heimir Steinsson,
og við það gjald er
kristinn náungakær-
leikur miðaður.
í DAG er 13. sunnudagur eftir
Þrenningarhátíð. Guðspjall
dagsins samkvæmt þriðju texta-
röð er að fínna hjá guðspjalla-
manninum Jóhannesi, 13. kapít-
ula, versunum 34 til 35. Það
hljóðar á þessa leið:
„Nýtt boðorð gef ég yður, að
þér elskið hver annan. Eins og
ég hef elskað yður, skuluð þér
einnig elska hver annan. Á því
munu allir þekkja, að þér eruð
mínir lærisveinar, ef þér berið
elsku hvertil annars.“
Textar þessa Drottinsdags
eru sérstaklega helgaðir elsk-
unni, kærleikanum. í framanrit-
uðu gxiðspjalli gjörir Jesús svo
mikið úr sérleik kristilegs kær-
leika, að hann kennir þann kær-
leika við „nýtt boðorð". Sá sem
í Jesú nafni ber í bijósti elsku
til náunga síns hefur hlýðnast
þessu nýja boðorði og haldið það
í heiðri. Hann gjörir nokkuð,
sem enginn gjörði fyrir daga
Jesú.
Fróðlegt er að bera þessi orð
Jóhannesarguðspjalls saman við
ummæli Matteusar um „hið
æðsta og fremsta boðorð" (Matt.
22:38) og framhald þeirrar
málsgreinar: „Þú skalt elska
náunga þinn eins og sjálfan
þig.“ Þar tekur Jesús orð beint
upp í 3. Mósebók 19:18. Sýnir
sá eldforni ritningarstáður, að
hugmyndin um elskuna til ná-
ungans var komin fram löngu
fyrir daga Jesú. Fróðlegt væri
því að vita, hvað Jesús á við,
þegar hann í Jóhannesarguð-
spjalli talar um „nýtt boðorð".
líf sitttil
lausnargjalds...“
Guðspjall dagsins eftir ann-
arri textaröð er að finna í 20.
kapítula Matteusar guðspjalls,
versunum 20 til 28. Þar getur
m.a. að líta orð Jesú um þjón-
ustuna. Sá sem vill verða mik-
ill, skal verða allra þjónn, —
„eins og Mannssonurinn er ekki
kominn til þess að láta þjóna
sér, heldur til að þjóna og gefa
líf sitt til lausnargjalds fyrir
marga".
Hér getur að líta þann veru-
leika, sem Jesús Kristur flytur
með sér, inn í þennan heim:
Hann, sem er einkasonur Guðs,
gefur líf sitt til lausnargjalds
fyrir marga. Við það gjald er
kristinn náungakærleikur mið-
aður. Fórn Krists á krossinum
er andvirði kristilegs kærleika.
Boðorðið, sem byggt er á skír-
skotun til þess veruleika, er þar
af leiðandi „nýtt boðorð“. Það á
sér vissulega fyrirmyndir í fom-
um fræðum ísraels. En að inni-
haldinu til er það öldungis nýtt.
Með krossdauða sínum og upp-
risu gjörir Kristur „alla hluti
nýja“ (Op. 21:5) ogþarmeð
einnig þetta föma boðorð.
Miskunnsami Samverjinn
Guðspjall dagsins eftir fyrstu
textaröð er saga Jesú um mis-
kunnsama Samveijann (Lúkas
10:23-37). Þessa sögu þekkja
allir. Þar getur að líta kristinn
kærleika í verki, lifandi þjónustu
í elsku til náungans. Vér munum
öll manninn, sem féll í hendur
ræningjum, er flettu hann klæð-
um og börðu hann, hurfu brott
síðan og létu hann eftir dauð-
vona. Þeir hverfa oss ekki úr
minni, presturinn og levítinn,
sem sveigðu framhjá hinum illa
leikna manni. Loks geymum vér
alla daga í huga Samveijann,
er kenndi í brjósti um þann, sem
sætt hafði misþyrmingunni,
gekk til hans, batt um sár hans,
setti hann á sinn eigin eyk, flutti
hann til gistihúss og lét sér annt
um hann.
Tilefni þessarar sögu var
spurning, sem lögvitringur
nokkur lagði fyrir Jesúm: „Hver
er þá náungi minn?“ í sögulok
snýr Jesús spurningunni við og
spyr lögvitringinn. „Hver þess-
ara þriggja sýnist þér hafa
reynzt náungi þeim manni sem
féll í hendur ræningjum?" Lög-
vitringurinn mælti: „Sá, sem
miskunnarverkið gjörði á hon-
um.“ Jesús sagði þá við hann:
„Far þú og gjör hið sama.“
„... en þeirra er
kærleikurinn mestur“
Þessa helgi höldum vér í raun
og veru hátíð kærleikans. Það
er í góðu samræmi við annað
Guðsorð dagsins, að síðari ritn-
ingarlestrarnir eftir annarri og
þriðju textaröð skuli vera Ijóð
Páls postula um kærleikann,
þ.e.a.s. allur þrettándi kapítuli
fyrra Korintubréfs. Hann hefst
á þessum óviðjafnanlegu orðum:
„Þótt ég tali tungum manna
og engla, en hefði ekki kær-
leika, væri ég hljómandi málmur
eða hvellandi bjalla. Og þótt ég
hefði spádómsgáfu og vissi alla
leyndardóma og ætti alla þekk-
ing, og þótt ég hefði svo tak-
markalausa trú, að færa mætti
fjöll úr stað, en hefði ekki kær-
leika, væri ég ekki neitt.“
Þetta ljóð er lifandi útlegging
á þeim orðum Jesú úr Jóhannes-
arguðspjalli, sem hér var vitnað
til í inngangi og reyndar eru
höfð að yfirskrift þessarar hug-
leiðingar: „Nýtt boðorð gef ég
yður.“ Hvergi í samanlögðum
heimsbókmenntunum er önnur
eins ljóðmæli um kærleikann að
finna, elskuna, hinn nýja veru-
leika, sem Kristur keypti oss,
er hann gaf „líf sitt til lausnar-
gjalds fyrir marga“.
„Er nú varir trú, von og kær-
leikur, þetta þrennt, en þeirra
er kærleikurinn mestur." Þannig
lýkur postulinn ljóði sínu og með
þeim orðum hæfir að fella þetta
tal í dag — á hátíð elskunnar.
JIJtrgpittM&Míi
- kjarni málsins!
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-13 frá mánudegi til föstudags
Óskilakettir í
Kattholti
HRINGT var frá Kattholti
og sagt að skjaldan hafi
verið jafnmikið af óskila-
köttum þar eins og nú.
Þeir eru úr öllum áttum og
af öllum gerðum.
Eigendur eru vinsam-
lega beðnir að hafa sam-
band og vitja dýra sinna.
Afram Valur
MIG langar að vekja at-
hygli því hvað Valur á frá-
bæra fótboltamenn í 2.
flokki. Ég fór á frábæran
leik í gærkvöldi þar sem
Valur lék á móti Ákumes-
ingum og vann Valur 5:0.
Maður furðar sig á því
að Valur skuli ekki reyna
að nota eitthvað af þessum
strákum úr 2. flokki til að
hressa upp á meistara-
flokkinn. 2. flokkur Vals
er efstur í sínum flokki, en
maður sér aldrei orð um
þetta í blöðunum, bara um
meistaraflokkinn. Það virk-
ar hins vegar mjög hvetj-
andi ef minnst er á þessa
leiki líka_.
Áhugasöm amma
Verkin tala
ÉG VIL hvetja Hlöðver
Kristjánsson til að kynna
sér verk Guðmundar Hall-
varðssonar á Hrafnistu-
heimilunum í Reykjavík og
Hafnarfírði, þar sem hann
hefur gegnt forystuhlut-
verki undanfarin ár og von-
andi um ókomin ár og
ræktað starf af mikilli reisn
og hefur haft hag aldraðra
að leiðarljósi.
Þá vil ég benda Hlöðveri
að lesa greinar eftir mig
18. janúar og 8. febrúar
1997.
Með baráttukveðu til
þeirra er minna mega sín.
Skúli Einarsson
Fyrirspurn
MIG langar að vita hvers
vegna Reykjavíkurmara-
þonið var fært til um eina
viku á milli ára. Gott væri
að fá svar á þessum stað.
Sigrún Jónsdóttir
Inn um annað,
út um hitt
MIG langar að þakka
stjórnendum þáttanna „Inn
um annað og út um hitt.
En ég gat samt ekki verið
sátt við þýðingu á setning-
unni „The rain in Spain
stays mainly on the plain".
Þessi setning kom ein-
mitt fyrir þegar ég var að
byija að læra ensku og
Oxford-lærður kennari
minn þýddi þessa setningu
svona: „Á Spáni rignir að-
allega á gresjunum"; „slétt-
unum“; enska orðið „plain“
þýðir einnig „sléttur";
„steppur"; „sléttur flötur"
en getur þýtt margt fleira
eftir ákveðnum sambönd-
um, en flugvél er „airo-
plane“ á ensku, ekki „pla-
in“. „Alfa“ og „omega“
táknar upphaf og endi.
Kristín
Tapað/fundið
Símabók tapaðist
RAUÐ símabók með kín-
versku munstri, merkt
Brynju, tapaðist á Stór-
Reykjavíkursvæðinu 6. júlí.
Finnandi vinsamlega hringi
í síma 552 9050 eða
553 6406.
Teppi o g leðuról
töpuðust
SAMANRULLAÐ teppi
með glitrandi þræði frá
Alþingishátíðinni, með
gamalli, slitinni leðuról
utan um hvarf úr bíi eina
nótt við Sólvallagötu fyrir
tæplega tveimur vikum.
Þessir munir hafa mikið
tilfinningalegt gildi fyrir
eigandann, en geta ekki
verið mjög verðmætir fyrir
aðra. Geti einhver gefið
upplýsingar um hvar þessir
munir eru þeir vinsamlega
beðnir að hafa samband í
síma 551 3077.
Úr fannst
TÖLVUÚR fannst sl.
mánudag í Heiðmörk. Upp-
lýsingar í síma 551 0073.
Gleraugu töpuðust
KVENGLERAUGU með
litum gleijum töpuðust í
Grasagarðinum í Laugar-
dal sl. miðvikudag.
Finnandi vinsamlega hringi
í síma 568-0582.
Gæludýr
Kettlingar
TVÆR litlar kassavanar
læður, fæddar 17. júní,
óska eftir góðu heimili.
Önnur er yijótt en hinn grá
og bleik. Þær eru báðar
mannelskar og snyrtilegar.
Upplýsingar í síma
555 4806.
Köttur fæst gefins
BRÖNDÓTTUR tveggja
ára fressköttur fæst gefíns
á gott heimili. Upplýsingar
í síma 564 3141.
HVÍTUR leikur og vinnur
SKÁK
Umsjón Margeir
Pétursson
STAÐAN kom upp í skák
tveggja Svía á alþjóðlega
mótinu í Stokkhólmi sem
lauk um síðustu helgi. Pet-
er Laveryd (2.440) var
með hvítt og átti leik, en
Johan Hultin (2.355) hafði
svart. Það er ekki heiglum
hent að finna eina vinnings-
leikinn í stöðunni. Laveryd
lék þeim næstbesta:
53. Hxf3? - Hxg4 54.
Hf8+? (Skárra var-54. Dd5!
en eftir Bc8! bjargar svart-
ur sér) 54. — Kg7 55. Df3
- Be6 56. Hf7+ - Kg6
57. Hf6+ - Dxf6 58.
Dxf6n— Kxf6 59. hxg4 —
Bxg4 60. b4 - Bdl 61. c3
og eftir mikinn tímahraks-
barning náði svartur
að vinna endataflið.
Hvítur gat hins veg-
ar unnið með því að
53. Dd4!! - Bxg4
54. Hxf3! - Dh5
(Eða 54. - Dh6 55.
Hf8+ - Kh7 56.
De4+ — Hg6 57.
Hf7+ - Kh8 58.
De5+ - Hg7 59.
Dxg7+ og hvítur
vinnur) 55. Hg3 —
Kh7 56. c4! og
svartur er varnar-
laus. Hvítur leikur
næst 57. Hxg4. Það er ekki
á færi nema geysilegra
sterkra skákmanna að
finna leikinn 53. Dd4!!
VIÐ ættum að vera
ánægðir með að 72% að-
gerða hjá okkur leiða í
ljós að 28% aðgerðanna
eru óþarfar.
Yíkveiji skrifar...
A RSVERKUM hjá íslenzka rík-
-*•*- inu, það er hjá A-hluta ríkis-
stofnunum sem starfsmannaskrif-
stofa fjármálaráðuneytisins sér um
launavinnslu fyrir, fækkaði um
nærri tvö þúsund frá fyrri helmingi
ársins 1996 til sama tíma 1977.
Reiknuð ársverk átímabilinujanúar
til júní í ár voru 7.566 samanborið
við 9.551 í fyrra, fækkaði um
20,8%.
Ekki er því þó að heilsa að skatt-
borgarar hafi fært launakostnað
fyrir tvö þúsund ársverk yfir á fyrir-
tækin í landinu, eða svokallaðan
frjálsan vinnumarkað. Þessi fækk-
un ársverka skýrist fyrst og fremst
af flutningi grunnskólans frá ríkinu
yfir á sveitarfélögin. Skattborgarar
eru áfram launagreiðendur.
Kennarar hafa átt á brattann að
sækja í launabaráttu við ríkisvaldið,
ef marka má fréttir þar um lengi
undanfarið. Nú er vinnuveitandinn
og launagreiðandinn annar, þ.e.
sveitarfélögin í landinu með R-list-
ann í Reykjavík í fylkingarbijósti.
Víkveiji er ekki getspakur og lætur
ógert að gera því skóna, hver verða
launaviðbrögð hins nýja viðsemj-
anda kennara. Reynslan, sem er
ólygnust, leiðir landsmenn í allan
sannleika um það efni áður en lang-
ir tímar líða. Kennarar og skatt-
greiðendur verða þá reynslunni rík-
ari.
ALDRAÐIR sækja í sig veðrið
víða um lönd. Á 25 ára tíma-
bili, 1970 til 1995, fjölgaði íslend-
ingum, 65 ára og eldri, úr 5,9%
þjóðarinnar í 11,3%. Spár standa
til að þessi aldurshópur verði hvorki
meira né minna 19% þjóðarinnar,
tæpur fimmtungur hennar, árið
2030. Spá Hagstofu íslands er sú
að íbúar landsins verði um 320
þúsund talsins árið 2030, þar af
tæplega 60.400 sextíu og fimm ára
og eldri.
íbúar í svokölluðum velferðar-
ríkjum, þ.e. í vestrænum markaðs-
samfélögum, lifa nú um 30 árum
lengur en áar þeirra fyrir einni öld.
Gjörbreytt aldurssamsetning ís-
lenzku þjóðarinnar kallar á miklar
samfélagsbreytingar. Öldrunar-
þjónusta hvers konar, m.a. kostnað-
ur heilbrigðiskerfis, eykst óhjá-
kvæmilega umtalsvert. Það verður
ekki undan því vikizt, að mati Vík-
veija, að huga að áhrifum þessarar
þróunar á eftirlauna- og heilbrigðis-
kerfið. Það leysir engan vanda að
stinga höfðinu í sandinn.
XXX
JÁKVÆÐUM manneskjum líð-
ur betur en neikvæðum, að
mati Víkveija dagsins. Það gildir
bæði um sál og líkama, þar eð hug-
urinn hefur áhrif á líkamann - og
öfugt. Ekki nóg með það. Öðrum
líður einnig betur í návist jákvæðs
fólks en neikvæðs. Jákvæðir ein-
staklingar hafa útgeislun. Neikvæðir
síður.
Jákvæðir einstaklingar eru oftar
en ekki bjartsýnir, neikvæðir svart-
sýnir. Þessar tvær manngerðir horfa
gjaman á sama fyrirbærið af ólíkum
sjónarhólum. Þar sem bjartsýnismað-
urinn sér hálffulla flösku af ein-
hveiju góðgæti, til dæmis eðalvíni,
sér sá svartsýni hálftómt ílát, svo
auðskilið dæmi sé tekið. Víkveiji bið-
ur reyndar bindindismenn afsökunar
á þessum umdeilanlega samanburði.
Allt sæmilega upplýst fólk gerir
sér grein fyrir því að það stjómar
að stórum hluta eigin heilsufari með
lífsmáta sínum, hreyfingu og mat-
aræði. Það leggur því gjarnan kapp
á líkamsrækt - meðan aðrir,
skammsýnni, reykja sig sjúka. Það
gleymist hins vegar alltof mörgum
að það er ekki síður nauðsynlegt,
svo ekki sé fastar að orði kveðið,
að rækta sinn innri mann, það er
að sinna hugarrækt sem líkams-
rækt. Það þarf að hirða um og hlúa
að hinum jákvæðu lífsviðhorfum í
eigin hugarheimi, skapa þeim skil-
yrði til vaxtar og þroska. Það er
hægt að gera með margvíslegum
hætti. Meðal annars með því að
sækja sóknarkirkjuna sína og taka
þátt í því sem þar fer fram. Og það
er einmitt sunnudagur í dag.
Sjáumst!