Morgunblaðið - 24.08.1997, Síða 41
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 1997 41
I DAG
Árnað heilla
ORÐABOKIN
Fyriraftan mig
Uyrir fáum árum var í
þessum pistlum vikið að
því, að menn virðast í
seinni tíð fremur kjósa
að tala um, að eitthvað
sé fyrir aftan einhvern,
fyrir aftan húsið
o.s.frv., en segja það sé
bak við einhvern eða
bak við húsið. Enda þótt
hvort tveggja geti vel
staðizt í máli okkar, er
lítil ástæða til, að annað
ot'ðalagið ryðji hinu með
öllu úr vegi. Ekki sízt
fyrir það að örlítill blæ-
munur virðist geta verið
á notkun þeirra. Orða-
lag fyrirsagnarinnar
getur t.d. vel staðið í
sambandi eins og þessu:
Maðurinn stendur fyrir
aftan vélina, fyrir aftan
manninn. En sé t.d.
spurt sem svo: Hvar er
maðurinn? og í ljós kem-
ur, að hann er hinum
megin við hús eða bæ,
fer að mínum dómi bet-
ur á að segja: Hann er
bak við húsið, bak við
bæinn. Ævinlega er líka
komizt svo að orði, að
maðurinn sé að húsa-
b'dki. Ég hygg einnig,
að almennt sé sagt:
Maðurinn stóðá bak við
hurðina, en ekki fyrir
aftan hurðina. Þannig
er einmitt nokkur skils-
munur hér á. Þar sem
svo virðist sem orðalag-
ið fyrir aftan sé að ná
hér undirtökum, virðist
ekki ófyrirsynju að
minna enn einu sinni á
það og benda jafnframt
á ofnotkun þess og í
ákveðnum samböndum
tæplega rétta notkun.
- J.A.J.
•. að skoða stjömur himin-
hvolfsins.
TM Reg. U.S. P«. Off. — all rights reservod
(c) 1997 Loa Angeles Tlmes Syndicate
BRIDS
llmsjön Guömumlur l'áll
Arnarson
VARNARMISTÖK eru dag-
legt brauð við spilaborðið
og í þetta sinn beindust öll
spjót að vestri. Hann vissi
upp á sig sökina en var orð-
inn leiður á þusinu í makker
og ákvað að snúa vörn í
sókn: „Auðvitað átti ég að
spila tígli, makker, en þín
sök er einnig nokkur.“
Austur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♦ D75
V ÁDG102
♦ K6
♦ 954
Vestur Austur
♦ Á3 ♦ 84
V 973 1 V K86
♦ 98754 111111 ♦ ÁD
♦ 1072 ♦ KDG863 Suður ♦ KG10962 ¥ 54 ♦ G1032 ♦ Á
Vestur Norður Austur Suður
- 1 lauf 1 spaði
Pass 3 spaða; r Pass 4 spaðar
Pass Pass Pass
Útspilið var lauftvistur,
þriðja hæsta, og suður drap
gosa austurs með ás. Suður
spilaði strax spaðakóng,
sem vestur tók og spilaði
laufi. Suður trompaði, tók
einn spaða í viðbót og svín-
aði fyrir hjartakóng. Hann
gat svo hent þremur tíglum
niður í fríhjörtu og gaf því
aðeins einn slag á tígul.
„A ég einhveija sök í
þessu máli?“ Austur var
bæði undrandi og hneyksl-
aður. „Hvað gat ég gert?“
Já, hvað gat austur gert?
Austur vissi af útspilinu
að vestur átti eitt eða þrjú
lauf. Einspilið var ekki
vandamál, en ef vestur var
með þrílit var ekkert að
hafa í laufinu. Austur átti
því að blekkja makker og
láta kónginn í fyrsta slag-
inn! Vestur myndi þá ekki
sjá neina framtíð í laufinu
og fara að huga að öðrum
lit.
// ■ ■ Oq hx ttu cui fioðrex hctnct ó. mí/sum. /"
rrriÁRA afmæli. Á
I vlmorgun, mánudag-
inn 25. ágúst, verður sjötug
Sigríður Th. Jónsdóttir,
Hraunbæ 86, Reykjavík.
í tilefni dagsins tekur hún
á móti gestum að Sléttu-
vegi 3 (SEM-húsinu), 4.
hæð, frá kl. 17 á afmælis-
daginn.
HÖGNIHREKKVÍSI
Ast er
£3-
rrrjÁRA afmæli. Á
4 V/morgun, mánudaginn
25. ágúst, verður sjötugur
Bent Bjarni Jörgensen,
bifvélavirkjameistari,
Háaleitisbraut 89,
Reykjavík. Eiginkona hans
er Guðrún Kr. Jörgensen.
Þau taka á móti gestum í
Kiwanishúsinu, Engjateig
11, kl. 17 til 20 á morgun,
afmælisdaginn.
rrkÁRA afmæii. í dag,
tív/sunnudaginn 24. ág-
úst, er fimmtug Sólveig
Snorradóttir, Grænuhlíð
15, Reykjavík. Eiginmaður
hennar er Bergur Ingi-
mundarson. Hún verður
að heiman á afmælisdag-
Ljósm. Oddgeir
BRÚÐKAUP. Gefín voru
saman 28. júní í Keflavíkur-
kirkju af sr. Sigfúsi B.
Ingasyni Guðrún B. Árna-
dóttir og Gunnar L. Þor-
steinsson.
STJÖRNUSPÁ
cftir Frances Drake
MEYJA
Afmælisbarn dagsins:
Þú treystir oftast betur eig-
in dómgreind en ráðum
annarra.
Hrútur
(21. mars- 19. apríl) d*
Þróunin í fjármálum hefur
verið þér hagstæð, en það
gæti spillt fyrir góðu gengi
ef þú skýrir öðrum frá fyrir-
ætlunum þínum.
NdUt
(20. april - 20. maí)
Einhver óvissa ríkir varð-
andi framvindu mála í vinn-
unni, en að öðru leyti átt
þú velgengni að fagna.
Njóttu frístundanna í dag.
Tvíburar
(21. mal - 20. júní)
Þú ert ekki með hugann við
það sem gera þarf heima í
dag, því þig langar að slaka
á með ástvini. Heimilisstörf-
in geta beðið.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú þarft að takast á við erf-
itt verkefni heima í dag, en
árangurinn verður góður, og
þú hefur ástæðu til að fagna
þegar kvöldar.
Ljón
(23. júlf — 22. ágúst)
Einhver dráttur verður á að
hugmyndir þínar fái þær
undirtektir, sem þú vonaðist
eftir. En þú ert samt á réttri
leið.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Þú finnur það sem ú leitar
að í innkaupum dagsins.
Ástvinir eru að undirbúa
ferðalag sem ætti að verða
mjög ánægjulegt.
Vog
(23. sept. - 22. október)
Sumir eru að koma sér upp
vinnuaðstöðu heima í dag.
Góð samstaða ríkir hjá fjöl-
skyldunni og þú átt ánægju-
legt kvöld heima.
Sþoródreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Heppnin er með þér í dag,
og þér tekst að koma ár
þinni vel fyrir borð. Horfur
eru á að þú farir bráðlega í
spennandi ferðalag.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember)
Þú hefur mjög ákveðnar
skoðanir og í dag gefst þér
tækifæri til að tjá þig. Smá
vandamál heima leysist far-
sællega fyrir kvöldið.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú ert að undirbúa breyt-
ingar í vinnunni og ættir
að ráðgast við ráðamenn í
dag. En í kvöld bíður þín
skemmtileg afþreying.
Vatnsberi
(20.janúar-18. febrúar) ðh
Hugsaðu vel um heilsuna,
og gættu hófs í mat og
drykk. Hafðu fjölskylduna
með í ráðum áður en þú
ráðstafar kvöldinu.
Fiskar
(19.febrúar-20.mars)
Þú nýtur mikilla vinsæida,
og margskonar afþreying
stendur þér til boða í dag.
En reyndu að eyða ekki of
miklu í skemmtanir.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
byggjast ekki á traustum
grunni visindalegra staðreynda.
Gullfallegur Benz
Til sölu Mercedes Benz C220, svartur, árgerð 1995, ekinn 65
þús km. Sjálfskiptur, fjarstýrð samlæsing, sóllúga, 2 líknarbelgir,
rafmagn í rúðum, ABS-bremsur, litað gler, höfuðpúðar o.fl.
Staðgreiðsluverð 2.975 þús.
Upplýsingar í síma 562 6311 eða 896 0747.
--------------------^
FJÖLBRAUTASKÓLINN
BREIÐHOLTI
Kvöldskóli hausthönn 1997
Bókndm Eðlisfræðibraut
N áttúrufræðibraut
Nýmálabraut
Félagsfræðibraut
Uppeldisbraut
Iðnndm og
starfsmennta-
ndm
Grunndeild fyrir trésmíði
Grunndeild fyrir rafvirkjun
Grunndeild fyrir rafeindavirkjun
Húsasmíðabraut
Rafvirkjabraut
Sjúkraliðabraut
Listndm Handíðabraut
Myndlistarbraut
Viðskiptandm Ritarabraut
Skrifstofubraut
Verslunarbraut
Bókhaldsbraut
Tölvubraut
Hagfræðibraut
Markaðsbraut
Hægt er að taka einstaka áfanga, brautir, stúdentspróf eða
starfsréttindi, efitir áhuga hvers og eins.
Innritað verður 25., 27. og 28. ágúst kl. 16.30-19.30
Kennsla hefst 1. september id. 18.00
V_____________________________________________________________J
I
c
Heildarjóga (grunnnámskeíð)
Námskeið fyrir þá sem vilja kynnast jóga.
Kenndar verða hatha-jógastöður, öndun,
slökun og hugleiðsla.
Einnig er fjallað um jógaheimspeki, mataræði
o.fl. Þri. og fim. kl. 20.00. Hefst 7. ágúst.
Leiðbeinandi: Daníel Bergmann.
Búðin okkar
" verslun fyrir iíkama og sál
Bækur um jóga, meðgöngujóga, hugleiðslu, Zen, búddisma,
heimspeki, sálfræði, pólunarmeðferð, cranio sacral vinnu, nudd,
Kinesiology, ilmkjarnaolíur, tai chi, chi Kung, acupressure,
ayurveda, aikido, shamanjisma, mataræði, sjálfstyrkingu, White
Eagle bækur o.m.fl.
Slökunar-, indíána-, hugleiðsiu-, indversk- og flaututónlist.
Allison of Denmark: Krem, sjampó, aloe vera gel o.fl.
Oshadhi: 100% hreinar ilmkjarnaolíur, baðolíur o.fl.
Biotone: Andlits-, fóta- og líkamskrem, og olíur.
Vítamín, fæðubótarefni, reykelsi, ilmkerti, ilmker, jógavideo,
minnisbækur, baðburstar o.fl.
‘Súðút oúfavt
YOGA#
STUDIO
Sendum í póstkröfu um allt land.
Hátúni 6a
Sími 511 3100
P
- kjarni málsins!