Morgunblaðið - 24.08.1997, Síða 45
morgunblaðið
SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 1997 45
WIYIMPBÖIMP
Átök
innan frá
Ógreið heimfðr___
(No WayHome)
Spcnnumynd
★ ★‘A
Framleiðandi: Orenda Films. Leik-
stjóri og handritshöfundur: Buddy
Giovinazzo. Kvikmyndataka:
Claudia Raschke. Tónlist: Rick Gio-
viazzo. Aðalhlutverk: Tim Roth,
Deborha Kara Unger og James
Russo. 98 mín. Bandaríkin. Gold-
crest/Sljörnubíó 1997. Myndin er
bönnuð börnum innan 16 ára.
JOEY Larabito (Tim Roth) losnar
úr fangelsi eftir sex ár. Hann fer
strax til bróður síns (James Russo)
sem býr ásamt
nýrri eiginkonu
sinni (Unger) í
húsi foreldra
þeirra. Joey vill
hefja nýtt líf, en
ómerkileg per-
sóna bróður hans
verður þess vald-
andi að hann er
ekki alltaf í rétta
félagsskapnum.
Ogreið heimleið er raunsæ
mynd, ágætlega unnin á flesta
vegu. Höfundur hefur ekkert nýtt
né frumlegt fram að færa og á það
einnig við um „plottið" sjálft.
Skemmtilegasti og ferskasti hluti
myndarinnar er fallegt samband
Joey við mágkonu sína. Þau eru í
raun utangátta í þeim heimi sem
þau búa í, bæði komin þangað
vegna hins óskemmtilega bróður
Joeys. Þetta dýpkar myndina og
lyftir henni upp úr því að vera ein-
föld og ófrumleg glæpamynd.
Samleikur þeirra Roth og Unger
er góður; einstaklega smekklegur
°g hógvær. Tim Roth sannar hér
eina ferðina enn að hann er ansi
snjall leikari sem ekki þarf að baða
út öllum öngum til að ná að hrífa
áhorfendur með sér.
Glæpahlið myndarinnar finnst
mér draga hana örlítið niður. Það
hefði mátt spara gerviblóðið og
ofbeldið oft og tíðum, því í þessari
sögu er það ekki það sem máli
skiptir og hefur því ekki tilætluð
áhrif. Átakanlegheitin koma að
innan ekki að utan.
Ögreið heimleið er því skringileg
blanda af sálfræði og blóði sem
tekst að hreyfa við hjarta áhorf-
andans.
Hildur Loftsdóttir.
BMW 3 línan
FRAMÚR-
SKARANDI
BMW 3 línan með spólvöm / læstu drifi
VERO FRÁ 2.288.000
B&L Suðurlandsbraut 14, sími 553 8636
FÓLK í FRÉTTUM
Carlyle fækkar klæðum
►ÞEIR sem hafa næmt auga fyrir
góðum leikurum, hafa sjálfsagt
dáðst að frammistöðu leikarans
Robert Carlyles, m.a. í myndunum
Priest og Trainspotting. Brátt fá
aðdáendur hans að beija hann
augum í nýrri breskri kvikmynd,
og það kviknakinn.
Myndin heitir The Fuli Monty
og fjallar um Gaz (Carlyle) sem
sífellt er á höttunum eftir auð-
fengnum peningum tii að eiga fyr-
ir barnameðlaginu. Þegar hann sér
hvernig Chippendale flokkurinn
rakar saman fé og hefur lítið fyrir
því, fær hann hugmynd. Hann
stofnar nektarsýningarflokk með
vinum sínum og félögum, en þeir
reynast víst misjafn-
lega lögulegir og
ekki endilega sann-
færðir um eigin kyn-
þokka.
Myndin hefur ver-
ið prófsýnd í Banda-
ríkjunum og líst þar-
lendum vel á hana.
Myndin hefur ekki síst vakið
athygli vegna frumlegrar auglýs-
ingaherferðar. Þar mega tilvon-
andi áhorfendur senda myndir af
sjálfum sér inn á alnetið, í þeim
„klæðum“ sem þeir myndu kjósa
að nota í nektarsýningu. Til að
vera með eða gægjast, er hægt að
heimsækja www.fullmonty.co.uk.
Nánari upplýsingar
hjá sölumönnum.
NÝR
KOMINN
ViSA
SJÓVÁ-ALMENNAR
FERÐIR
Faxafei
108 Reykjavík. Sími: 568 2277 Fax: 568 2274
Umboösmenn Plúsferða:
Akranes:
Auglýsingablaðið Pésinn
StiUholti 18,
sími 431 4222/431 2261.
Sauðárkrókur:
Skagfirðingabraut 21,
sími 453 6262.
Akureyri: Ráðhústorg 3,
sími 462 5000.
Grindavík: Flakkarinn
Vfkurbraut 27, sími: 426 8060
Vestmannaeyjar:
Eyjabúð Strandvegi 60,
sími481 1450
Selfoss-.Suðurgarður hf.
Austurvegi 22, sími 482 1666.
KeflavQc:Hafnargötu 15,
sími421 1353.
Pr. mann:
™$9.600.-
Flugvallarskattar innifaldir.
Verðið miðast við tvofull-
orðna og tvö börn 2-11 ára,
gistingu á Aloe í 28 nœtur.
Tveir saman í íbúð á Aloe.
kr. 67.900.-pr. mann.
Pr. mann:
3. DES.
81.700.-
Flugvallarskattar innifaldir. Verðið
miðast við tvo fullorðna og tvö börn
2-11 ára, gistingu á Aloe á Ensku
ströndinni í 14 nœtur.
Tveir saman í íbúb á Aloe.
kr. 48.700.- pr. mann.
Lítill og
þœgilegur
K
Audiovox 680
GSM handsími
► 235 g með rafhlöðunni
► Rafhlaða endist í allt að
22 klst. í bið
► Númerabirting 10
síðustu númera
PÓSTUR OG SÍMI HF
Söludeild Ármúla 27, sími 550 7800
Þjónustumiðstöð í Kirkjustræti, sími 800 7000
Söludeild Kringlunni, simi 5506690
Póst- og símstöðvum um land allt