Morgunblaðið - 24.08.1997, Síða 46
RÝNTÁ
MORGUNB LAÐIÐ
46 SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 1997
[iioiMiiðr cai
□□Dolby
DIGITAL'
HASKOLABIO
SÍMI 552 2140
Háskólabíó
EerGAir&M,
Christopher Ecdeston Kate Winslet
Jude er mögnuó kvikmynd byggö á skáldsögu Thomas Hardy um
frændsystkynin Jude og Sue sem eru yfir sig ástfangin en fordómar
samfélagins gera samband þeirra næstum ómögulegt. Aðalhlutverk
Christopher Eccleston (Shallow Grave) og Kate Winslet (Sense and
Sensibility, Hamlet, Titanic)
Sýnd kl. 6, 9 og 11.15. b.í.i4.
GENE HACKMAN
CHRIS O’OONNELL
4 KLEFINN
§ W LÖGFR/EÐI NGU R
■^Revnir ao bjarga
FA SÍNUM FRÁ GASKLEFANUM.
I ER ÞAD ÞESS VIRÐI?
ijjimiiiiijj
Sýnd kl. 6, 9 og 11.15. B.i.16
líjjffiimli, gnðar-
ileigJi falleg og
e.rotisk mynd
éftir meistara
k J
B o Wulei lÆm g.
S I )
m
| MWKMRN rjeðMyflf ■■■■■■■
ude lt< *J WM
Sýnd kl. 4.45, 7 og 9.15. B.i. 12
Sýnd kl. 4.45. Allra síðustu sýningar
Bean er mynd fyrir karla
heimsækið heimasíðuna www.mrbean.co.uk
SKJÁINN
JIM Henson með nokkrum af afkvæmum sinum.
r
Fjölbrautaskólinn Breiðholti kvöldskóli
TRÉSMÍÐI
fjOlbrautasxúunn
BREIOHOUI
Grunndeild undirstöðuatriði í trésmíði
Húsasmíði grunn- og framhaldsdeildir
Húsasmíði fyrir nema á samningi
FB þegar þú velur verknám
GAULAIÞER
OARNIRNAR?
cll uilum rizzd Ameiiucuici
FRÍIRTÓMAT
á allar pizzur
frá 8. ágúst til
8. september.
-
um land allt
DÝRI, Iengst til hægri, er óumdeild stjarna hljómsveitar dr. Tanna.
Prúðuleikararnir
enn í fullu fjöri
Ein af fyrstu minningum Ottós Geirs Borg
um sjónvarpið var þegar fjölskylda hans
fékk sér litasjónvarp og horfði hugfangin á
hina litskrúðugu Prúðuleikara.
NÖLDURSEGGIRNIR Statler
og Waldorf í kröppum dansi.
LAN GLUNDARGEÐ Bikars
gagnvart yfirmanni sínum er
ótrúlegt.
LITASJÓNVARPIÐ kom á
heimili okkar einmitt það
kvöld sem Prúðuleikaramir
voru á dagskrá en þau kvöld voru
álitin heilög stund í fjölskyldunni
og safnaðist hún öll saman fyrir
framan sjónvarpið til að fylgjast
með því hvaða gestur væri í þáttun-
um og hverju brúðurnar tækju
uppá.
Allur heimur Prúðuleikaranna
breyttist á þeirri stundu
þegar litirnir flæddu um
skjáinn. Kermit froskur
var auðvitað grænn og
Svínka var bleik, en lita-
dýrðin sem var í brúðu-
heimi Jim Hensons var
engu lík. Furðuverui- af
öllum stærðum og gerð-
um tóku á sig regnbogans liti.
120 þættir voru gerðir af fyrstu
þáttaröðinni um Prúðuleikarana á
árunum 1976-1980, en Kermit og
félagar eiga sér lengri sögu. Árið
1954 hóf Jim Henson feril sinn sem
brúðugerðarmaður fyrir þátt sem
sýndur var á sjónvarpsstöðinni
WRC-TV. Ári síðar kom hann með
hugmynd að fímm mínútna löngum
þáttum sem hann kallaði „Sam and
Friends“. Urðu þættimir strax
mjög vinsælir.
Kermit froskur er einn þeirra
sem hófu sjónvarpsferil sinn í „Sam
and Friends". Brátt tóku fleiri
sjónvarpsstöðvar eftir Kermit og
félögum og urðu Prúðuleikararnir
tíðir gestir í þáttum eins og „The
Today Show“ (frá árinu 1963) og
„The Ed Sullivan Show“ (frá árinu
1966).
Á þessum árum bættist fleira
hæfileikafólk við þá sem stóðu að
baki Prúðuleikurunum en meðal
þeirra voru Don Sahlin, sem er
hönnuður margra af frægustu
Prúðuleikurunum, og Frank Oz,
sem margir þekkja sem
rödd Svínku eða Yoda úr
Stjörnustríðs-myndun-
um, Oz hefur einnig leik-
stýrt nokkrum myndum
eins og „Little Shop of
Horrors" og „Dirty Rott-
en Seoundrels".
Það var ekki fyrr en
árið 1975 að Jim Henson byrjaði að
undirbúa þáttaröð þar sem Prúðu-
leikaramir réðu algerlega ferðinni
og 26. september árið 1976 var
fyrsti þátturinn af „The Muppet
Show“ sýndur í bandarísku sjón-
varpi. Þættirnir urðu gífurlega vin-
sælir hjá jafnt ungum sem öldnum.
Margar frægar persónur komu
fram í þáttunum. Má sem dæmi
nefna hryllingsmeistarann Vincent
Price, tónlistarmenn eins og Elton
John, Lisu Minelli, Kenny Rogers,
spéfuglana John Cleese, Bob Hope,
Steve Martin, ofurmennið sjálft
Christopher Reeve. Svona mætti
lengi telja.
Brúðurnar eru hins vegar það
sem er minnisstæðast af öllu. Hver
man ekki eftir sænska kokkinum,
sem babblaði eitthvað meðan hann
klúðraði matargerð sinni; hljóm-
sveit dr. Tanna; vísindamönnunum
tveimur, þar sem litli augnalausi
gleraugnaglámurinn lét aðstoðar-
mann sinn, Bikar, ganga í gegnum
hverja tilraunina á fætur annarri?
Eða þá gamlingjunum tveimur
sem hrópuðu ókvæðisorð að hinum
prúðuleikurunum frá svölunum, en
nöfn þeirra eru Statler og Waldorf,
sem eru fræg hótel í Bandaríkjun-
um. Þess má geta að kona Waldorf
heitir Astoria. Ekki má heldur
gleyma Gunnsa. Enginn virðist vita
nákvæmlega af hvaða dýrategund
hann er en eitt er víst að hann elsk-
ar hænur, og hinum skemmtilega
ófyndna Fossa bimi.
Árið 1991 lést Jim Henson og tók
þá sonur hans, Brian, við rekstri
fyrirtækis foður síns. Jim hafði léð
mörgum af frægustu prúðuleikur-
unum rödd sína, t.d. Kermit, en sá
sem talar fyrir Kermit þessa dag-
ana heitir Steve Whitmire. Whit-
mire talar einnig fyrir rottuna
Rizzo, sem er einn af stjórnendum
nýju þáttaraðarinnar um Prúðu-
leikarana, „Muppets Tonight“, sem
frumsýnd var í sjónvarpi í fyrra.
Nýju þættirnir sýna það og sanna
að Prúðuleikararnir eru enn í fúllu
fjöri og verða það eflaust langt
fram á næstu öld.
Heimur
Prúðuleikar-
anna breytt-
ist þegar lit-
irnir flæddu
um skjáinn.