Morgunblaðið - 24.08.1997, Side 52
.dif* Ws
*aö koma póstinum 98$ i "^^^vidskiptah
þínum til skila pösturogbimihf I
AS/400
Mikið úrval
viðskiptahugbúnaðar
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
SUNNUDAGUR 24. ÁGÚST 1997
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/Golli
Selur hlut
í Vöruvali
BENEDIKT Kristjánsson, fram-
kvæmdastjóri og aðaleigandi Vöru-
yals hf., sem rekur fjórar verslanir á
Isafirði, í Hnífsdal og Bolungarvík,
hefur fengið tvo meðeigendur að
versluninni á Isafirði og stefnt er að
því að þeir eignist meirihlutann.
Benedikt og fjölskylda hans hafa
byggt upp fyrirtækið í tíu ár og seg-
ist hann hafa lagt í það mikla vinnu.
Nú sé kominn tími til að minnka við
sig með því að deila ábyrgðinni með
ungum meðeigendum. Mikil sam-
keppni er í matvöruverslun á ísafirði
eftir að Samkaup opnaði þar verslun
en Benedikt neitar því að þessi
ákvörðun tengist því og tekur fram
að á síðasta ári hafi verið metvelta
hjá Vöruvali og enn sé aukning á
þessu ári.
Skipt upp
Fyrirtækinu verður skipt upp.
Vöruval hf. mun reka verslanimar
tvær á ísafu-ði og munu Haukur
Benediktsson, verslunarstjóri í Vöru-
vali á Skeiði, og Guðmundur Sverris-
son verslunarmaður kaupa 30% hlut í
fyrirtækinu. Hugmyndin er að þeir
eignist síðar meirihlutann. Benedikt
mun áfram eiga og reka verslanimar
í Bolungarvík og Hnífsdal og ætlar
að helga þeim krafta sína á næstunni.
■ Samkeppnin/24
ÍS eykur samvinnu við fyrirtæki í Argentínu og Chile
Selja lýsingsafurðir
og lax til Evrópu
Sex mjöl-
tankar
rísa á
Seyðisfirði
IÐNAÐARMENN vinna nú að
smíði sex mjöltanka við verk-
smiðju SR-mjöls á Seyðisfirði.
' Wjöltankarnir eiga að rúma um
sex þúsund tonn af mjöli og
leysa að mestu af hólmi eldri
mjölgeymslu fyrirtækisins, en
mjölið hefur hingað til verið
geymt í stórsekkjum í húsi.
Þórður Jónsson, rekstrarstjóri
SR-mjöls, segir að framkvæmdir
við smiðina hafl hafist í sumar
og vonandi ljúki þeim fyrir vetr-
arvertíðina. „Við höfum verið í
vandræðum með geymslupláss,
enda framleiðslan mikil. Tank-
arnir tvöfalda geymsluplássið og
auðvelda okkur mjög störfín.
Við getum t.d. blandað mjöl bet-
ur en nú.“ Kostnaður við tank-
Mj)na er um 250 milljónir króna.
ÍSLENSKAR sjávarafurðir hafa
ákveðið að taka upp samstarf við
tvö sjávarútvegsfyrirtæki í Chile og
Argentínu um markaðssetningu á
afurðum þeirra á Evrópumarkaði.
Undirbúningur hefur staðið yfir um
nokkurt skeið að þessu máli, en var
ýtt úr vör meðan heimsókn Hall-
dórs Asgrímssonar, utanríkisráð-
herra, stóð yfir til þessara landa.
Bjöm Þór Jónsson, fram-
kvæmdastjóri söluskrifstofu Is-
lenskra sjávarafurða á Spáni, segist
mjög ánægður með ferðina til Suð-
ur-Ameríku, en í henni hafi fulltrú-
ar fyrirtækisins rætt við um 35 fyr-
irtæki. „Þar á meðal voru stærstu
framleiðendur Argentínu og Chile á
lýsingi, sem er mikil markaðsvara á
Spáni, Portúgal og Italíu. Þessi fyr-
irtæki lýstu yfir miklum áhuga á
samstarfí við okkur um markaðs-
setningu á framleiðslu sinni inn á
markaði í Suður-Evrópu,“ sagði
Bjöm.
Aukið samstarf
Hann sagði að jafnframt hafi ver-
ið rætt við núverandi birgi ÍS í
Chile. „Hann lýsti yfir mikilli
ánægju með samstarfið, en við höf-
um annast fyrir þá sölu á laxaafurð-
um í eitt ár, bæði í Bandaríkjunum
og Frakklandi. Nú era uppi áætlan-
ir um að auka það starf enn frekar.
Þessi aðili framleiðir 12 þúsund
tonn á ári. Hann hefur áhuga á að
tvö- eða þrefalda sölu gegnum ís-
lenskar sjávarafurðir sem er mjög
mikil stuðningsyfirlýsing við okkur.
Þessi árangur mun ekki aðeins skila
árangri fyrir sölukerfi okkar heldur
einnig fyrir önnur íslensk fyrirtæki.
Það fréttist út að íslendingar hafa
verið að gera góða hluti í eitt ár sem
ánægja ríkir með. Þessi aðili er að
skoða ýmsa samstarfsmöguleika
með öðram íslenskum fyrirtækjum í
framhaldi af samstarfinu við okkur,
einkum varðandi kaup á vélum,
tækjum og þekkingu."
Björn sagði að heimsókn Hall-
dórs Asgrímssonar utanríkisráð-
herra og viðskiptasendinefndarinn-
ar hafi gefið fyrirtækinu tækifæri á
að hitta fjölmarga aðila á mjög
skömmum tíma. „Þessir aðilar
komu til okkar í stað þess að við
þyrftum að ferðast í tvær til þrjár
vikur til að leita þá uppi. Við náðum
árangri sem kannski hefði náðst á
tveimur mánuðum með því að senda
mann á staðinn. Það er því hægt að
gefa utanríkisráðherra og Utflutn-
ingsráði mikið hrós fyir þeirra
starf.“
Grafið fyrir
goshver
BYRJAÐ er að bora fyrir gervigos-
hver í Öskjuhlíð, sunnan við
Perluna á vegum Veitustofnana
Reykjavíkur. Boraður verður 30
metra djúpur brunnur og jarðhita-
vatni veitt þangað með neðanjarð-
arleiðslu. Gert er ráð fyrir að gos-
hverinn geti gosið í um 10-15
metra hæð. Heildarkostnaður við
framkvæmdina er áætlaður um 20
milljónir króna.
Hugmyndir Blóðbankans og Islenskrar erfðagreiningar
Vilja stofna stóran lífs-
sýnabanka hér á landi
HUGMYNDIR era uppi bæði hjá
CÍGióðbankanum og íslenskri erfða-
greiningu um stofnun stórs lífs-
sýnabanka hér á landi. I slíkan
banka yrði safnað skipulega blóð-
sýnum úr íslendingum og einnig
heilsufarsupplýsingum, sem nýtast
myndu til erfðarannsókna.
Sveinn Guðmundsson, yfirlækn-
. jg Blóðbankans, segir að hug-
myndir um stofnun lífssýnabanka
hafi oft verið ræddar hjá Blóð-
bankanum þótt ekki hafi verið
teknar neinar ákvarðanir í því efni.
Góður efniviður
Þá sagði Kári Stefánsson, for-
stöðumaður íslenskrar erfða-
greiningar, að fyrirtækið undir-
byggi nú stofnun slíks banka.
Því hefur verið haldið fram að
erfðaefni úr íslensku þjóðinni sé
góður efniviður til erfðarann-
sókna, því þjóðin sé lítil, með til-
tölulega fáa forfeður og upplýs-
ingum hafi verið haldið mjög vel
til haga. Tilgangur lífssýnabanka
væri að safna efni til erfðarann-
sókna. Þá er einnig möguleiki að
selja upplýsingar úr lífssýnabanka
til rannsóknastofa erlendis.
■ Á að markaðsetja/10-11
Erfitt að fá kennara
í tölvunarfræði
ERFIÐLEGA hefur gengið að fá
kennara til starfa við tölvunar-
fræðiskor raunvísindadeildar Há-
skóla íslands en ásókn nemenda í
tölvunarfræði fer vaxandi og hafa
verið innritaðir 110-120 nýir
nemendur á haustmisseri saman-
borið við 80 umsóknir í fyrra, skv.
upplýsingum Ebbu Þóra Hvann-
berg, formanns tölvunar-
fræðiskorai'.
Við tölvunarfræðiskor eru sex
fastar stöður kennara en einn pró-
fessor er í launalausu leyfi í eitt ár
og annar hefur sagt upp störfum
frá næstu áramótum. I sumar var
auglýst staða dósents við tölvun-
arfræðiskor og barst ein umsókn.
Hefur reynst nauðsynlegt að fá
stundakennara í verulegum mæli
til að annast dæmatíma og verk-
lega kennslu. „Það hefur reynst
mun erfiðara að fá stundakennara
til starfa en áður og fjöldi nýrra
nemenda léttir okkur ekki róður-
inn þó það sé að sjálfsögðu
ánægjulegt að það sé aðsókn í
þetta fag,“ segir Ebba Þóra.
Hún segir að mikil eftirspurn sé
á markaðinum eftir sérfræðingum
í tölvugeiranum og töluvert launa-
skrið sem geri ríkisstofnun erfitt
um vik að keppa við einkafyrir-
tæki um starfsfólk á þessu sviði.