Morgunblaðið - 15.10.1997, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1997 13
FRETTIR
Morgunblaðið/Kristján Kristjánsson
KLAKVEIÐI á laxi hefur verið í ám víða um land síðustu
vikurnar. Hér er vígalegur hængur sem verður í undaneldinu
við Laxá í Aðaldal.
Mikil og
góð sjó-
bleikju-
veiði
PRÝÐISGÓÐ sjóbleikjuveiði
var í flestum bleikjuám á
Vesturlandi og í sumum var
veiðin „ævintýraleg". Má þar
nefna Hörðudalsá í Dölum.
Veiðitími sjóbleikju er nú liðinn
og er mál manna að veiði hafi
verið í góðu meðallagi miðað
við síðustu sumur en veiðin
hefur verið stunduð af meira
kappi en áður var.
Veiði í Hörðudalsá var „æv-
intýraleg" eins og Sigurður
Siguijónsson, einn leigutaka
árinnar, komst að orði í sam-
tali við blaðið, um 1.200 bleikj-
ur voru bókaðar og mikið af
því prýðisvænn fiskur. „Ég
lenti sjálfur í því, einnig félag-
ar mínir og margir sem þeir
töluðu við, að fá mokveiði, al-
veg upp í 80 fiska í túr og
megnið af fiskinum ekki bara
yfir pundinu, heldur á bilinu
1,5 til 2 pund sem er falleg
bleikja. Auðvitað var eitthvað
um smælki, en megnið af afl-
anum var þessi væna og fallega
bleikja. Þetta var miklu betra
en í fyrra og kom okkur alveg
í opna skjöldu," sagði Sigurður.
I næsta dal rennur Miðá í
Dölum og þar veiddust um 500
bleikjur. Það er mjög góð út-
koma og sérstaklega gott þeg-
ar tekið er tillit til að oft var
óselt í ána. Bleikjan í Miðá var
lík þeirri í Hörðudalnum, mest
1-2 pund, en stærstu fiskar í
báðum ám voru 5 punda. Báðar
gáfu litla laxveiði, Hörðudalsá-
in aðeins 20 fiska og Miðáin
mijli 40 og 50.
í Svínafossá á Skógarströnd
veiddust um 200 sjóbleikjur og
100 sjóbirtingar. Að sögn As-
geirs Ásmundssonar leigutaka
var allmikið af bleilgunni 3-4
pund og stærsti sjóbirtingurinn
7,5 pund. Einnig veiddust 19
laxar, sá stærsti 8 pund.
Gott á Barðaströnd
Lokatölur hafa ekki verið
teknar saman í Gufudalsá og
Skálmardalsá sem eru trúlega
bestu sjóbleikjuárnar í Barða-
strandarsýslum. I Gufudalsá
var raunar lítið veitt því leigu-
takar höfðu ekki boðlega gist-
ingu að bjóða að þessu sinni og
stendur það að sögn til bóta. I
Skálmardalsá hafa menn viður-
væri í gömlu eyðibýli og þar
var veiði góð. Veiðitíminn er
stuttur, byijar undir lok júlí og
stendur út ágúst. Algengt var
að 3 daga holl væru að fá milli
100 og 150 fiska þegar best lét
að sögn Péturs Péturssonar
eins eigenda árinnar. Mest var
þetta 1-3 punda fiskur.
Flottasta parið?
Ef keppt væri um flottasta
laxaparið, væru hjónin sem
Eiríkur St. Eiríksson veiddi á
Iðunni á þriðja svæði Stóru-
Laxár í Hreppum á lokadag
vertíðarinnar örugglega sig-
urstrangleg. Þetta var í lok
september í hávaðaroki og
vægast sagt óvinsamlegu veðri.
Eiríkur tók þá þessa tvo laxa
í beit, báða á maðk á sama
blettinum með fárra mínútna
millibili. Fyrst kom hrygnan
og hún var 13 pund. Síðan kom
hængurinn og hann vó 19,5
pund veginn blóðgaður nokkr-
um klukkustundum síðar; sem
sagt 20 punda er hann var ný-
kominn úr ánni. Hvorki Eiríkur
eða félagar hans urðu meira
varir þennan lokadag.
I
I
Borgarráð
Tillögur að
Hafnarhúsi
samþykktar
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
með þremur atkvæðum gegn
tveimur teikningar að Listasafni
Reykjavíkur í Hafnarhúsinu. Gert
er ráð fyrir 150 millj. til verksins
á næsta ári. í bókun fulltrúa Sjálf-
stæðisflokks í borgarráði er bent
á að árlegur rekstrarkostnaður
listasafnsins í Hafnarhúsinu sé
áætlaður 62 millj. Rekstrarkostn-
aður listasafna á vegum borgarinn-
ar muni því í það minnsta aukast
um 31 millj. á ári.
Ströng
kostnaðaraðgát
í tillög-u borgarráðsfulltrúa
Reykjavíkurlista vegna listasafns-
ins, segir að framkvæmdir á næsta
ári skuli miðast við að hægt verði
að nota sali á 1. hæð til tímabund-
ins sýningarhalds á vegum
Listahátíðar Reykjavíkur næsta
sumar. I samþykkt borgarráðs er
byggingadeild borgarverkfræðings
falið að viðhafa stranga kostnaðar-
gát við framkvæmdina og endur-
skoða tímaáætlun fyrir hönnun og
framkvæmdir hússins þannig að
kostnaður dreifist á lengri tíma en
ráðgert er í áætlun byggingadeild-
ar.
SAMSTAÐATIL SIGURS
Stuðningsmenn
VILHJÁLMS Þ. VILHJÁLMSSONAR,
borgarfulltrúa
opna í dag kosningaskrifstofu kl. 17.00
í Borgartúni 33 (austurhlið).
Opið kl. 16-19 daglega en laugardag og
sunnudag kl. 14-19. Sími 552 2123.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins 24.-25. október 1997
■-iislSlil
COROL.LA
F®rii okkur
nær livext oðxu
Tál<n um gceði