Morgunblaðið - 15.10.1997, Page 14
14 MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1997
AKUREYRI
MORGUNBLAÐIÐ
Vilji fyrir sameiginlegu framboði
Alþýðubandalags og Alþýðuflokks
Sigríður Stef-
ánsdóttir hættir
Morgunblaðið/Kristján
Hauststemmning
SIGRÍÐUR Stefánsdóttir sem set-
ið hefur fyrir Alþýðubandalagið í
bæjarstjórn Akureyrar lýsti því
yfír á aðalfundi
flokksins á mánudags-
kvöld að hún gæfi
ekki kost á sér áfram.
{ lok þessa kjörtíma-
bils næsta vor verða
liðin 14 ár frá því Sig-
ríður tók fyrst sæti í
bæjarstjóm Akur-
eyrar.
„Ég hef verið að
hugsa málið dálítið
lengi og var búin að
gera það upp við mig
að hætta. Það kom
bakslag í þá ákvörðun
þegar ákveðið var að
fara út í viðræður um
sameiginlegt framboð,
þar sem mér fannst
hugmyndin spennandi,
en ákvað svo að láta
það ekki hafa nein
áhrif,“ sagði Sigríður. Hún fór
fyrst í framboð árið 1982 og var
þá varabæjarfulltrúi, en kom inn
í bæjarstjórn á miðju kjörtímabili.
Oft órólegur tími en
skemmtilegur
„Ég hugsaði mér þetta í upphafi
sem tímabundið starf, gerði mér
þá enga grein fyrir að þetta yrði
mitt aðalstarf eins og raunin hefur
orðið á síðustu ár,“ sagði hún.
Sigríður sagði að þau ár sem hún
hefði starfað að bæjarmálum hefðu
verið fljót að líða.
„Þetta hefur verið
krefjandi tími og á tíð-
um órólegur, en líka
skemmtilegur, maður
er sífellt að læra eitt-
hvað nýtt og kynnist
flestum sviðum þjóðfé-
lagsins og mörgu góðu
og athyglisverðu fólki.
Því er hins vegar ekki
að neita að það er erf-
itt að samræma þetta
öðru sem maður gjarn-
an vill sinna, eins og
fjölskyldu og áhuga-
málum."
Sigríður hefur á ferl-
inum starfað sem for-
seti bæjarstjómar
Akureyrar, verið for-
maður bæjarráðs og
formaður ýmissa
nefnda. Hún hefur setið í stjórn
Sambands íslenskra sveitarfélaga
síðustu tvö kjörtímabil og er nú
varaformaður þeirra.
Á aðalfundi Alþýðubandalagsins
kom fram vilji fundarmanna til að
láta á það reyna að bjóða fram
sameiginlegan lista Alþýðubanda-
lags og Alþýðuflokks auk fleira fé-
lagshyggjufólks en viðræður þar
um standa nú yfír.
H AU STSTEMMNIN GIN var alls
ráðandi í Listigarðinum á Akur-
eyri er þau Kristjána Þ. Ólafsdótt-
ir og Stefán Örn Stefánsson voru
Á FUNDI fulltrúaráðs Framsóknar-
flokksins á Akureyri var kosin fimm
manna nefnd sem hefur það verkefni
að ákveða með hvaða hætti valið
verður á framboðslista flokksins fyr-
ir sveitarstjórnarkosningar í vor.
Gísli Kristinn Lórenzson, einn
nefndarmanna, sagði að nefndin
kæmi að líkindum saman í lok vik-
unnar, en hann átti von á að ákvörð-
un um val á framboðslista yrði tekin
á næstu vikum. Fyrir síðustu kosn-
ingar fór fram skoðanakönnun meðal
flokksbundinna framsóknarmanna
og sagði Gísli Kristinn að sú aðferð
hefði tekist vel. „Það gekk ágætlega
og var alveg sársaukalaust," sagði
þar á ferð með dætur sínar Ólöfu
Ingu, Þóru Björg og Ásthildi
Láru. Tíkin Birta var einnig með
í för og skemmti sér líka vel.
hann. Taldi hann vel líklegt að sami
háttur yrði hafður á nú og gerði þá
ráð fyrir að listinn gæti verið tilbúinn
í desember næstkomandi.
Jakob Björnsson, bæjarstjóri, Þór-
arinn E. Sveinsson, Sigfríður Þor-
steinsdóttir, Ásta Sigurðardóttir og
Oddur Halldórsson bæjarfulltrúar
Framsóknarflokksins hafa lýst yfir
að þau muni áfram taka þátt í sveit-
arstjórnarmálum og á aðalfundi
Framsóknarfélags Akureyrar lýsti
formaður þess, Elsa Friðfinnsdóttir,
lektor við heilbrigðisdeild Háskólans
á Akureyri því yfir að hún gæti kost
á sér til starfa fyrir flokkinn við
bæjarstjómarkosningar næsta vor.
Iþrótta- og
tómstundaráð
Tillaga um
að byggt
verði yfir
skauta og
fótbolta
ÍÞRÓTTA- og tómstundaráð Akur-
eyrarbæjar leggur til að gengið
verði til samninga við íþróttafélagið
Þór um byggingu og rekstur fjöl-
nota húss og að samtímis verði
gerðir hliðstæðir samningar við
Skautafélag Akureyrar. Bæjarráð
mun taka afstöðu til tillagna ráðs-
ins á fundi sínum á morgun,
fimmtudag, en á fundi fyrr í mánuð-
inum óskaði bæjarráð eftir tillögum
varðandi byggingu yfir skautasvell-
ið við Naustaveg. Minnir íþrótta-
og tómstundaráð á í bókun sinni
vegna málsins að það hafi verið
stefna Akureyrarbæjar að úrbætur
fyrir knattspyrnuiðkendur hafi for-
gang.
Yfirbyggingarnar sem um er að
ræða eru frá Kanada og eru, að
sögn Eiríks Björns Björgvinssonar
íþrótta- og tómstundafulltrúa, vin-
sælar víða um heim, slíkar bygging-
ar eru í yfir 50 löndum, m.a. yfir
skautasvell og hafa reynst vel.
í tillögum íþrótta- og tómstunda-
ráðs er gert ráð fyrir að bygging
yfir skautasvellið verði 37x70 metr-
ar að stærð og er kostnaður áætlað-
ur um 60 milljónir króna. Knatt-
spyrnuhúsið yrði nokkru stærra eða
46x70 metrar og er heildarkostnað-
ur við gerð þess áætlaður um 100
milljónir króna.
SIGRÍÐUR Stef-
ánsdóttir, bæjar-
fulltrúi Alþýðu-
bandalags.
Val á framboðslista Framsóknarflokks
Skoðanakönnun meðal
flokksbundinna líkleg
Alvöru þjónusta
fyrir alvöru fólk
„Ég hélt alltaf að peningar og sköpun fœru ekki saman. Þar sló ég
vísr feilnótu. Ég ferðasr mikið úr af srarfi mínu og fer þegar mér henrar.
Þess vegna verða peningamálin að vera í lagi. Mér finnsr peningar
og reikningar ekki skemmrilegir, en ég hef skemmtilegr fólk í bankanum
mínum sem sér um þessi mál fyrir mig. Þess vegna er ég í Vörðunni.
Landsbankinn treystir fólki eins og John og veitir
því sveigjanlega fjármálaþjónustu í Vörðunni.
Hann kýs það öryggi og þau þægindi sem felast
í því að hafa öll sín f jármál á einum stað.
Hann lætur peningana vinna fyrir sig með því
að safna punktum....
•
•
I Vörðunni er margt í boði, meðal annars:
• Yfirdráttarheimild, allt að 300.000 kr.
án ábyrgðarmanna.
• Vörðulán, allt að 700.000 kr. án ábi/rgðarmanna.
• Gulidebetkortið, aðildarkort Vörðunnar sem veitir
aðgang að ýmsum fríðindum.
• Gullkreditkort, Visa og Vildarkort Flugleiða.
• Ferðaklúbbur f jölskyldunnar.
• Bílalán, hagstæð lán til bílakaupa.
• Stighækkandi vextir á Einkareikningi.
• Punktasöfnun, í hvert skipti sem þú notar
. gullkortin færð þú 2 punkta, hvar sem þú verslar.
•
Með því að beina viðskiptum smum á einn stað á
fjölskyldan auðvelt með að safna yfir 15.000 punktum
hjá bankanum á ári í Vildarklúbbi Flugleiða. Vörðufélagar
geta einnig safnað punktum með viðskiptum hjá
Landsbréfum, með því að kaupa F+ fjölski/ldutri/ggingu
VÍS, og nú þegar hjá i/fir 160 verslunar-og
þjónustufi/rirtækjum sem tengjast Vildarklúbbi Flugleiða.
Síðan má breyta punktum í peninga eða nota þá sem
greiðslu vegna ferðalaga.