Morgunblaðið - 15.10.1997, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 15.10.1997, Qupperneq 22
22 MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1997 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Frelsið er hveijum listamanni ómetanlegt Lokatónleikar tónlistarhátíðar Musiqua Antiqua eru haldnir í kvöld, en þá koma fram þau Emma Kirkby og Antony Rooley. Ami Matthíasson tók þau tali og komst að því að yfírskrift tónleikanna, Arie Antiche, segir ekki nema hálfa söguna. Morgunblaðið/Ásdfs EMMA Kirkby og Antony Rooley sem Ijúka tónlistarhátíðinni Norðurljósum með tónleikum i Langholtskirkju i kvöld. LOKATÓNIjEIKAR tónlistarhátíð- arinnar Norðurljósa, sem Musica Antiqua heldur í samvinnu við Ríkis- útvarpið, verða haldnir I kvöld, en þá syngur sópransöngkonan Emma Kirkby við lútuundirleik Antonys Rooleys verk eftir Monteverdi, Bar- bara Strozzi, Carissimi, Henry Law- es, John Blow og John Weldon, svo- nefndar Arie Antiche. Þau Kirkby og Rooley eru í fremstu röð tónlist- armanna sem helgað hafa sig fyrri tíðar tónlist að mestu, hafa leikið víða um heim og inn á fjölda hljóm- platna. Emma Kirkby og Antony Rooley eru alþýðleg og glaðlynd, ræða tón- list af fullri alvöru en brosið er aldr- ei langt undan, líkt og hjá flestum þeim sem helgað hafa líf sitt tónlist og náð að virkja sköpunarandann. Þau hafa greinilega velt fyrir sér listinni og hafa grundaðar skoðanir á henni en þau hafa ekki bara skoð- anir á tónlist, heldur eru þau vel heima í rafrænni miðlun upplýsinga, netið og stafræna útgáfu ber eins eðlilega á góma og miðaldatónlist. Samtal okkar hefst á spjalli um kosti og galla þess að vera lausráð- in sem tónlistarmenn, að vera ekki samningsbundin einhveiju stórfyrir- tækinu sem síðan sér um að aug- lýsa þau eins og hveija aðra mark- aðsvöru víða um heim. Emma Kirkby segir reyndar að það vilji bregða við að þegar tónleikahaldar- ar vilji fá útgáfur til liðs við sig til að auglýsa upp tónleika sé viðkvæð- ið gjaman að þar sem hún sé ekki á föstum samningi hjá viðkomandi útgáfu sjái fyrirtækið sér ekki hag í að auglýsa hana. „Það er þó auka- atriði," segir hún glaðlega, „frelsið sem felst í því að vera laus og liðug bætir margfalt upp alla peninga; ég get leyft mér að syngja hvaðeina sem mig lystir sem er hveijum lista- manni ómetanlegt.“ Antony Rooley tekur í sama streng, segist reyndar muna þá daga þegar hann var samn- ingsbundinn Decca-útgáfunni fyrir mörgum árum og fékk leyfi til að taka það upp sem honum þóknað- ist, enda var þá mikil vakning í fyrri tíðar tónlist. „Það eru þó breyttir tímar í dag, útgáfumarkaðurinn er sérkennilega samsettur nú um stundir og við stöndum á þröskuldi mikilla breytinga,“ segir hann með áherslu og spáir því að ekki séu nema fá ár í að fólk hætti að kaupa geisladiska úti í búð og sæki tónlist- ina frekar til sín yfír netið og brenni á diska. „Síðasta aldarfjórðung hef ég verið í þeirri öfundsverðu stöðu að vera tónlistarkönnuður og finn æ betur hve mikið er eftir að kanna og það gefur augaleið að mínu mati að markaður fyrir slíka tónlist er langt í frá mettur og á eftir að blómstra eftir því sem auðveldara verður að koma tónlist til þeirra sem henni unna.“ Talið berst að plötumarkaði seinni ára sem undirlagður er markaðs- speki og sölumennsku. Þau taka undir það að metsala tenóranna þriggja og álíka söluafrek séu lítt til þess fallin að auka áhuga manna á sígildri tónlist en Emma Kirkby segir að ekki megi gleyma mannlegu hliðinni og þannig hafí grúi manna komið á tónleika Davids Helfgotts eftir að hafa orðið snortinn af kvik- myndinni Shine. „Meirihluti þeirra, sem komu á tónleika hans, komu ekki til að heyra hann leika á hljóð- færi, heldur til að vera í návist manns sem komist hafði í gegnum hrikalega erfíðleika, tónlistin var aukaatriði, frekar kom fólk af sam- úð og samkennd; það lét stjórnast af hjartanu sem er í raun frábært því þegar fólk hefur glatað því að geta hrifist er lítið eftir.“ Ekki er hægt að líta framhjá menningararfinum Áhugi á tónlist er mjög breyttur; á árum áður voru áheyrendur helst sólgnir í nýja tónlist og frumflutta, en nú á tímum vilja þeir helst heyra eitthvað sem þeir þekkja eða hafa heyrt áður. Rooley nefnir þó að í Bretlandi til að mynda hafí verið sterk hefð fyrir því að flytja gamla tónlist og þar hafí verið starfandi Acadamy of Acient Music þegar á sautjándu öld og staðið fyrir tónlist- arfræðilegum rannsóknum og fiutn- ingi á eldri tónlist. „Ekki má svo gleyma því að tónlist á þeim tíma var yfírleitt samin í skjóli aðals- manna sem lögðu mikið fé til tónlist- armanna og gerðu kröfu um að þeir skrifuðu ný verk, ekki alltaf vegna áhuga á tónlist, heldur var ástæðan oft sú að það var viðeig- andi fyrir yfirstéttina að halda tón- leika og láta sjá sig á þeim,“ segir Rooley. „Nútímatónlist hefur annað hlutverk er tónlist fyrri tíma, hún verður að virðast nýstárleg og frum- leg, hún verður að virðast segja eitt- hvað sem ekki hefur áður heyrst, sem er að mínu mati óhugsandi því ekki er hægt að flytja tónlist án þess að vísa til þess sem þegar hef- ur verið gert, það er ekki hægt að líta framhjá menningararfinum.“ Emma Kirkby tekur undir það að alvarleg tónlist seinni tíma hafí tekið kúrsinn í átt frá hjartanu og í átt að heilanum; fjarlægst áheyr- endur. „Það er reyndar hreyfing í gangi í dag í átt frá þessu og sem dæmi má nefna vinsældir tónskálda eins og Párts og Taverners." Rooley segir að ekki megi líta fram hjá því að í dag sé framboð af tónlist meira en nokkru sinni og allar gerðir tónlistar fáanlegar, allt frá framúrstefnulegustu nútíma- tónlist og aftur í aldir. „Oft er eng- in skýring nærtæk á því hvers vegna ákveðin plata selst önnur en sú að hún er svo hugvitssamlega markaðssett," segja hann. „Það má ekki gleyma því að fjölmörg tónskáld fyrri tíma voru mun fram- úrstefnulegri og hugmyndaríkari en þorri nútímatónskálda. Ég held að það sé tími til kominn að seinni tíma tónskáld átti sig á því að það þarf fagmennsku og kunnáttu til að skapa eitthvað nýtt,“ segir Rool- ey og Emma Kirkby skýtur inn í: „Mikið af nútimatónlist er svo illa samið að það er beinlínis heilsuspil- landi að syngja hana; það kemur fyrir að ég geng út af tónleikum og er ekki viss um það hvort ég geti sungið aftur. Til er mikið af erfiðri tónlist sem gerir miklar kröf- ur til tæknilegrar hæfni, en mikið af henni er samið án tillits til líf- fræðilegra staðreynda ólíkt því sem var á öldum áður þegar öll tón- skáld hófu sitt tónlistarnám sem söngvarar. í miðaldatónlist rekst maður oft á ótrúlega erfíð og frum- leg verk sem eru einnig samin af tæknilegri fæmi.“ Brot úr stærri verkum Yfrirskrift tónleika þeirra Emmu Kirkby og Antonys Roo'eys er Arie Antiche og aðspurðum um verkin segist Rooley svo frá: „Arie Antiche þekkja allir sem lært hafa söng, en þær komu út í tveimur bindum síðla á sautjándu öld og upp frá því hafa þær verið notaðar til söngkennslu enda em söngkennarar með íhaldssamasta fólki í heimi,“ segir Rooley og kím- ir. „Verkin eru í raun brot úr stærri verkum," segir Emma Kirkby, „og heyrast sjaldan öll.“ „Það hefur meðal annars leitt til þess að fólki fínnst sem þessar gömlu aríur hafí allar verið stuttar og léttar, eins konar upphitun fyrir veigameiri verk, en það er fjarri sanni. Þannig er upphafsarían öll Lamento d’Ar- ianne, úr ópera Monteverdis sem er glötuð að öðru leyti, en í Arie Antice er aðeins fyrsti hluti af fimm,“ segir Rooley, en hann hyggst leika á lútuna inngang að hveiju verki til að gefa Emmu Kirkby færi á að hvíla röddina, en einnig til að koma fólki í rétta stemmningu. „Fyrri hluti söngdagskrárinnar er þijú verk frá Ítalíu og eftir hlé verða þijú ensk verk. Upphafsverkið verður Lamento d’Arianne, eins og ég nefndi, en þar á eftir verður verk eftir Barbara Strozzi, ítalska konu sem er fyrsta kvenkyns tón- skáldið sem eitthvað kveður að - frábært tónskáld. Arían segir frá ástföngnum söngvara sem er að fletta söngvabók í leit að einhveiju sem hæfir ástarsorginni sem hijáir hann. Þetta er bráðskemmtilegt verk því hann er alltaf að byija á söngvum og hætta síðan við því þeir eru ekki nógu harmþrungnir fyrir hann og í lokin kastar hann öllu frá sér í bræði. Barbara Strozzi er ekki síður að gera gys að harm- söngvum karla þegar þeir era að reyna að tjá djúpar tilfinningar. Síðasta verk fyrir hlé er eftir Carissimi og segir frá lokaorðum Maríu Stúart, sem var hálshöggvin á sínum tíma, henni eru lögð orð í munn sem skáldinu fannst rétt að hún myndi segja.“ „Mjög áhrifamik- ið verk,“ skýtur Emma Kirkby inn í, „sem samið var fyrir Kristínu Svíadrottningu sem hraktist til Rómar fyrir kaþólska trú sína og hefur eflaust séð samsvörum í örlög- um sínum og Maríu Stúart." „Eftir hlé taka við ensk tón- skáld,“ heldur Rooley áfram. „Fyrsta verkið segir einnig frá Ar- ianne, að þessu sinni í búningi Henr- ys Lawes, og er gott dæmi um muninn á breskum tónskáldum og ítölskum. Afbragðsverk og mjög breskt. Við höfum reyndar tekið það upp en að hefur ekki notið þeirra vinsælda sem vert er. Þá kemur verk eftir John Blow, kennara Puc- ells, og hefur ekki notið sannmælis; horfíð í skuggann af Purcell. Loka- verk tónleikanna verður svo aría þar sem Venus syngur til Paris að biðja hann að veita sér skálina gullnu. Afbragðsverk sem sigraði í sam- keppni enskra tónskálda árið 1700, en breskum hefðarmanni þótti ensk tónlist heldur klén um það leyti og vildi auka veg hennar með keppn- inni.“ Emma Kirkby segir að þessi skipting milli ítalskra verka og enskra sé vel til þess fallin að sýna muninn á enskri sagnahefð og ít- alskri því ensku verkin hafí meira skemmtigildi og séu meiri sögur en þau ítölsku, ítölsku verkin sýni há- stemmdar tilfínningar, en þau bresku leggi höfuðáherslu á sögu- þráðinn, segi sögu með útúrdúram um hitt og þetta. Við ljúkum okkar spjalli á frá- sögnum af verkefnum sem þau Emma Kirkby og Antony Rooley eiga framundan og þau takast öll á loft þegar þau lýsa því sem fram- undan er og þykir blaðamanni nóg um annimar. Þrátt fyrir sífelld ferðalög til tónleikahalds víða um heim segjast þau ekki þreytast á því að ferðast og kynnast nýju fólki, eins og til að mynda í þessari ís- landsferð sem sé fyrir þeim ævin- týraferð; „vissulega er leiðinlegt að hanga á flugvöllum og hírast á hót- elherbergjum, en þegar vel tekst til á tónleikum og við náum að snerta hjörtu áheyrenda gleymist öll þreyta og leiðindi hverfa eins og dögg fyr- ir sólu,“ segja þau glaðbeitt að lok- um. Vann til verðlauna áhugaljóð- skálda INTERNATIONAL Library of Po- etry eru alþjóðasamtök áhugaljóð- skálda. Sigríði Sigmundsdóttur hlotnaðist sá heiður að vinna til verð- launa fyrir ljóð sem hún sendi í ár- lega samkeppni samtakanna. Hún fór utan til Washington í sumar til að taka á móti verðlaun- um á hátíðarráð- stefnu samtak- anna ásamt nafnbótinni Poet of Merit. Verðlaunaljóð Sigríðar nefnist Þögul ferð og hefur það verið gefíð út I ljóðasafni samtakanna. Sigríður hlaut einnig sérstaka viðurkenningu ritstjóra út- gáfunnar. Hún segir að viðurkenn- ing sem þessi sé henni vissulega hvatning til að halda áfram að yrkja. „Ég hafði aðeins átt við skáldskap á unglingsárum en fyrir 4 árum hóf ég að setja saman ljóð af einhverri alvöru og nú fylla þau fjölda bóka. Ég hafði þó ekki haft kjark í mér til að senda þau frá mér fyrr en ég tók þátt í ljóðasamkeppninni nú í sumar.“ Um ástæðu þess að hún fór að setja saman ljóð segir hún að þar hafí hún fundið tilfínningum sínum farveg á erfíðum tímum. „Verð- launaljóðið, Þögul ferð, er túlkun á því hvemig mér var innanbijósts á þeim tíma sem það varð til. Mér fannst sem ég væri á göngu yfir auðnina en svo birti allt í einu til.“ -----------♦ ■ ♦---- Vinatónleikar í Víðistaðakirkju EITT hundrað flytjendur standa fyrir tónleikum í Víðistaðakirkju á morgun, fimmmtudag, kl. 20.30. Karlakórinn Þrestir og Kvennakór- inn Vox Feminae taka þar á móti þýskri blásarasveit, söngvuram og dönsuram frá Sud-Sauerland. Tón- leikarnir bera yfirskriftina „Gruss an Island" sem einnig er titill á lagi eftir framkvæmdastjóra ferða- laganna, Josef Hesse, og er tileink- að fyrrverandi forseta okkar, Vig- dísi Finnbogadóttur. Þjóðveijarnir munu einnig skemmta á hinni árlegu „október- fest“ hjá Germaníufélaginu. Karla- kórinn Þrestir naut hjálpar þeirra við tónleikahald í Þýskalandi sl. sumar og Kvennakórinn mun syngja á þeirra vegum í þýska út- varpinu þamæstu jól (1998). Þetta era því vinatónleikar og verður efn- isskráin fjölbreytt en þó aðallega af þýskum og Sslenskum toga. Stjórnendur kóranna eru Jón Kristinn Cortez, Margrét Pálma- dóttir og Michael Nathen. -----» ♦ ♦---- Nýr konsert- flyg’ill í Hvera- gerðiskirkju TÓNLISTARFÉLAG Hveragerðis og Ölfuss hefur fest kaup á nýjum konsertflygli af gerðinni Steinway & Sons og verður hann staðsettur í Hveragerðiskirkju. Tónlistarfélag Hveragerðis og Ölfuss er nú að fara af stað með söfnunarátak meðal fyrirtækja og almennings, en þegar hefur safnast á aðra milljón króna í útborgun á flyglinum sem kostar tæpar 5 millj- ónir króna. Einnig hafa tónlistar- menn boðist til að halda tónleika í fjáröflunarskyni. Vígslutónleikar verða sunnudagskvöldið 2. nóvem- ber og mun Jónas Ingimundarson leika á hinn nýja flygil. Sigríður Sig- mundsdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.