Morgunblaðið - 15.10.1997, Qupperneq 48
'48 MIÐVIKUDAGUR 15. OKTÓBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
Fyrsta sýning Poppminjasafns íslands
Bítlabærinn Keflavík
Morgunblaðið/Björn Blöndal
ÞAU stóðu að undirbúningi sýningarinnar, talið frá vinstri: Guðmundur Hermannsson tónlistarkennari, Stefán Viðarsson veitingamaður á
Glóðinni, Rúnar Júliusson tónlistarmaður, Kjartan Már Kjartansson skólastjóri Tónlistarskólans í Keflavík, Björn G. Björnsson, Bryndís Eva
Jónsdóttir innanhússarkitekt og Þorsteinn Eggertsson textahöfundur.
►Keflavík - Bítlabærinn
Keflavík er nafn fyrstu sýn-
ingar nýstofnaðs Poppminja-
safns Islands. Sýningin var
opnuð um helgina á veitinga-
staðnum Glóðinni í Keflavík
og er helguð þeim fjölda tón-
listarmanna sem kom frá
Suðurnesjum á árunum 1963
til 1976.
Sýningin prýðir veggi
Glóðarinnar á báðum hæðum
og er að uppistöðu ljósmynd-
ir, veggspjöld, plötuumslög,
úrklippur, bókhaldsgögn,
tæki, fatnaður, liljóðfæri og
margt fleira. Leikin er hljóm-
list frá þessum tíma og göml-
um sjónvarpsþáttum er
brugðið á skjáinn. Sagt er frá
bæjarbragnum í Keflavík og
brautryðjandanum Guð-
mundi Ingólfssyni sem stofn-
aði hljómsveit árið 1960 sem
lék á dansleikjum í Krossin-
um og þeim hljómlistarmönn-
um sem hófu feril sinn undir
hans stjórn.
Hljómar eru án efa fræg-
asta hljómsveitin frá þessum
tíma. Hún kom fyrst fram 5.
október 1963 og kemur fram
að upp frá þeim tíma hafi
Keflvík verið frægari fyrir
bítla en físk. Saga þeirra er
rakin og sagt frá níu útgáf-
um af Hljómum í gegnum tíð-
ina, Trúbroti, Hljómum 74,
og ðe lónlí blú bojs. Þá er
fjallað um Oðmenn, Júdas,
Magnús og Jóhann, Change
og fleiri hljómsveitir, hljóm-
plötuútgáfu, textagerð og
tíðaranda.
Meðal hljómlistarmanna úr
þessum hópi sem sett hafa
svip sinn á íslenska dægur-
menningu eru lagahöfund-
arnir Gunnar Þórðarson, Jó-
hann G. Jóhannsson, Jóhann
Helgason, Magnús Þór Sig-
mundsson, Magnús Kjartans-
son, Rúnar Júhusson, Þórir
Baldursson, textahöfundur-
inn Þorsteinn Eggertsson og
fleiri sem samanlagt hafa
sent frá sér meira en 2.000
RUNAR Júlíusson hljóm-
listarmaður úr Keflavík og
meðlimur Hljóma við sýn-
ingarglugga þar sem sjá má
bassagítar sem hann lék á
og föt frá þessum tíma.
Þarna eru líka gullplötur
sem hljómsveitin fékk.
ÞORSTEINN Eggertsson, höfundur flestra texta Hljóma frá
þessum tíma, við sýningarglugga textahöfunda, en hann ritaði
stutta skýringartexta við hvern glugga.
Iög. Önnur þekkt andlit á
sýningunni frá Suðurnesjum
á þessum tíma eru Vilhjálm-
ur og Ellý Vilhjálms, Einar
Júlíusson, Anna Vilhjálms,
Engilbert Jensen, María
Baldursdóttir og Ruth Regin-
alds. Gvendur þribbi „heims-
meistari" í munnhörpuleik á
líka sinn bás, en alls er sýn-
ingin í 50 atriðum. Að sögn
Kjartans Más Kjartanssonar
skólastjóra Tónlistarskólans í
Keflavík sem sat í undirbún-
ingsnefnd er þetta aðeins
hugsað sem upphaf því áfram
verði haldið að safna minjum
um leið og sviðið verði víkk-
að.
MYNDBÖND
Týndi snill-
ingurinn
Frákast
(Rebound)_________
DI* a ni a
iHrk
Framleiðendur: David Coatsworth.
Leikstjóri: Eriq La Salle. Handrits-
höfundur: Alan Swyer og Larry Gol-
in. Kvikmyndataka: Alvar Kivilo.
Tóniist: Kevin Eubanks. Aðalhlut-
verk: Don Cheadle, James Earl Jon-
es, Forest Whittaker, Eriq La Salle,
Michael Beach, Loretta Devine. 107
nu'n. Bandaríkin. Bergvík 1997. Út-
gáfudagur: 14. október. Myndin er
bönnuð börnum innan 12 ára.
ÞETTA er sannsöguleg mynd um
feril körfuboltasnillingsins Earl
„The Goat“ Manigault, en margir
telja hann vera besta körfuboltaspil-
ara sem uppi hefur verið. Ólíkt
stjörnum á borð við Magic Johnson
og Kareem-Abdul Jabbar, sem hafa
fest sig í sessi í NBA-deildini í
Bandaríkjunum, varð ekkert úr
Manigault. Myndin sýnir hvernig
vonir allra voru bundnar við hann og
hvernig hann
brást sér og öðr-
um með því að
gerast fíkniefna-
neytandi. En
undir lokin náði
hann sér á strik
og byrjaði að
hjálpa drengjum
sem bjuggu við
svipaðar aðstæð-
ur og þær sem
hann gerði.
Sagan sem myndin segir er mjög
sorgleg, en um leið sýnir hún fram á
að það er aldrei of seint að reyna að
bæta sig, hversu langt leiddur sem
maður er. Þessu er afbragðsvel
komið til skila af úrvalsliði leikara
en fremstur í flokki er Don Cheadle,
sem leikur Earl. Cheadlé nær full-
komnum tökum á hlutverki sínu og
nær að draga upp mynd af manni
sem í barnslegu sakleysi sínu dregst
inn í heim spillingar og glæpa í Harl-
em. Aðrir leikarar standa sig með
prýði og ber sérstaklega að nefna
Eriq La Salle í hlutverki vinar Earls
sem tekur þátt í Víetnamstríðinu og
Michael Beach sem leikur kunningja
Earls sem hefur auðgast á því að
selja vímuefni. Stundum er myndin
helst til of dramatísk en væmni er
aldrei til staðar. Leikstjórinn Eriq
La Salle, sem er betur þekktur úr
þáttunum „ER“, getur verið ánægð-
ur með útkomuna og vonandi fáum
við að sjá fleiri myndir með hann í
leikstjórastólnum. Tæknilega er
myndin vel unnin og körfuboltaat-
riðin eru virkilega vel gerð. Frákast
ætti bæði að gleðja unnendur góðra
mynda og þá sem gaman hafa af
íþróttamyndum.
Ottó Geir Borg