Morgunblaðið - 01.11.1997, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
LAUGARDAGUR 1. NÓVEMBER 1997 49
' Heimaþjónusta
fyrir aldraða
ENDURMENNTUNARSTOFN-
UN Háskóla íslands og Öldrunar-
j fræðafélag íslands standa að nám-
■ stefnu á Hótel Sögu fimmtudaginn
16. nóvember kl. 9-16 um rétt aldr-
aðra til heimaþjónustu.
Fjallað verður um þá þróun sem
aldraðir eiga kost á að fá heim
og siðfræðilegum vangaveltum um
hversu langt réttur til heimaþjón-
ustu nær. Fjallað verður um þau
úrræði sem standa öldruðum til
boða. Ýmsar stefnur, hugmynda-
■ fræði og þróun í heimaþjónustu
verður kynnt og áhrif þeirra á lífs-
gæði hins aldraða. Ennfremur
verður fjárhagslegur ávinningur
mismunandi úrræða skoðaður.
Umsjón hefur Hlíf Guðmunds-
dóttir, stoðhjúkrunarfræðingur á
öldrunarsviði Sjúkrahúss Reykja-
víkur.
Ragnheiður Haraldsdóttir,
skrifstofustjóri í heilbrigðisráðu-
neytinu gerir grein fyrir lögum og
LEIÐRÉTT
Röng dagsetning í
afmælistilkynningu
DAÐI Elvar Sveinbjörnsson varð
fimmtugur í gær og birtist tilkynn-
ing í blaðinu af því tilefni. Hann
var sagður eiga afmæli 31. septem-
ber en þar átti að sjálfsögðu að
i standa 31. október. Hægt er að
senda honum heillaóskaskeyti í
bréfsíma númer 001-760-603-
9100, en hann er staddur í Napa-
dalnum í Kaliforníu.
reglugerðum sem fjalla um heima-
þjónustu. Sigurbjörg Sigurgeirs-
dóttir, yfirmaður öldrunarþjón-
ustudeildar Félagsmálastofnunar
Reykjavíkurborgar fjallar um val
á úrræðum í öldrunarþjónustu.
Svavar Stefánsson, sóknarprestur
í Þorlákshöfn, fjaliar um ábyrgð
og hlutverk kirkjunnar gagnvart
öldruðum. Karítas Ólafsdótitr og
Sara Hafsteinsdóttir, sjúkraþjálf-
arar öldrunarlækningadeild SHR
í Fossvogi, skýra frá könnun sem
verið er að gera um notagildi úr-
ræða sem mælt er með fyrir út-
skrift af öldrunarlækningadeild.
Ella B. Bjarnarson, sjúkraþjálfari
í heilsugæslunni á Seltjarnarnesi,
fjallar um heimsóknir til eldri
borgara með tilliti til forvarna-
starfs sjúkraþjálfara. Dagrún
Hálfdánardóttir, hjúkrunarfræð-
ingur MA, fjallar um siðfræðileg
gildi sem tengjast heimaþjónustu
aldraðra. Anna Birna Jensdóttir,
hjúkrunarframkvæmdastjóri öldr-
unarsviðs SHR fjallar um þróun
heimaþjónustu aldraðra í öðrum
löndum. Kristjana Sigmundsdótt-
ir, félagsráðgjafi, fjallar um
tengslanet hins aldraða og styrk-
ingu þess. Sigríður Jónsdóttir, for-
stöðumaður rannsóknar- og þró-
unarsviðs Félagsmálastofnunar
Reykjavíkurborgar, íjallar um
könnun á því hvemig aldraðir vilji
sjá þörfum sínum mætt þegar
heilsan bilar.
Nánari upplýsingar eru veittar
á skrifstofu Endurmenntunar-
stofnunar.
Allra heilagra
messa í Breið-
holtskirkju
„FYRSTA sunnudag í nóvember
minnumst við í lúthersku kirkjunni
að fornum sið allra heilagra messu
en á allra heilagra messu minnist
hinn kristni söfnuður sérstaklega
þeirra sem látnir eru og þakkað er
fyrir líf þeirra og þjónustu.
Af þessu tilefni verður á morgun
sérstök messa í Breiðholtskirkju í
Mjódd kl. 14. Karlakvartett úr Kór
Breiðholtskirkju syngur stólvers og
tendrað verður kertaljós til minn-
ingar um látna. Að messu lokinni
verður síðan kaffisala í safnaðar-
heimilinu til stuðnings orgelsjóði
kirkjunnar en Björgvin Tómasson
orgelsmiður er nú að smíða 18
radda pípuorgel sem sett verður upp
í kirkjunni 1998.
Það er von okkar að sem flestir
safnaðarmeðlimir og aðrir velunn-
arar kirkjunnar hafi tækifæri til að
taka þátt í guðsþjónustunni með
okkur og styðja síðan starf safnað-
arins með því að þiggja veitingar á
eftir,“ segir í fréttatilkynningu.
Tónlistarflutn-
ingur í Lang-
holtskirkju
Á ALLRA heilagra messu, næsta
sunnudag, er víða í kh'kjum lands-
ins minnst látinna. í Langholts-
kirkju verður sérstakur tónlistar-
flutningur í guðsþjónustunni kl. 11
á vegum Minningarsjóðs Guðlaugar
Bjargar Pálsdóttur en tilgangur
sjóðsins er m.a. að styrkja tónlistar-
starf í Langholtskirkju.
Guðlaug Björg var félagi í Kór
Langholtskirkju og lést í slysi árið
1986. Foreldar hennar og systkini
stofnuðu sjóðinn til minningar um
hana. Eitt af verkum sjóðsins er
að greiða kostnað við tónlistarflutn-
ing í messunni á allra heilagra
messu, segir í fréttatilkynningu.
í messunni á sunnudag leikur
Hljómskálakvintettinn og verður
m.a. fluttur Introitusþátturinn úr
Sálumessu eftir Gabriel Fauré. Kór
Langholtskirkju syngur fullskipað-
ur við messuna.
Alþjóðleg
kattasýning
ALÞJÓÐLEG kattasýning verður
haldin í reiðhöll Gusts í Linda hverfi
í Kópavogi laugardaginn 1. nóvem-
ber og sunnudaginn 2. nóvember
nk. Þrír alþjóðlegir dómarar dæma
á sýningunni og keppa kettimir til
verðlauna báða dagana.
Fjölmargar tegundir verða til
sýnis, þar á meðal persneskir kett-
ir, óríentalkettir, abbyssiníukettir
og norskir skógarkettir að ógleymd-
um ýmsum afbrigðum af íslenska
húskettinum. Haldin verður kynn-
ing á nýjum kattartegundum auk
þess sem Kattholt mun kynna starf-
semi sína.
Sýningarsvæðið verður opið al-
menningi frá kl. 10-18 báða dag-
ana.
Tónlist á „löng-
um laugardegi“
Á „LÖNGUM laugardegi“ mun
strengjakvartett frá Tónlistarskól-
anum í Reykjavík flytja kammer-
tónlist fyrir gesti Súfístans og bóka-
búð Máls og menningar, Laugavegi
18.
Strengjakvartettinn er skipaður
fiðluleikurunum Jóhönnu Ósk Vals-
dóttur, Kristínu Bjömsdóttur og
Álfheiði Hafsteinsdóttur ásamt
sellóleikaranum Sólrúnu Sumarliða-
dóttur.
Kvartettinn mun leika klassíska
strengjatónlist á heila tímanum frá
kl. 15-17.
Fyrirlestur um
heimspeki
SEBASTIAN Slotte, Nordplus-
skiptikennari í heimspeki frá há-
skólanum í Helsinski, flytur opin-
beran fyrirlestur á vegum heim-
spekideildar Háskóla Islands og
Félags áhugamanna um heimspeki
í Norræna húsinu laugardaginn 1.
nóvember kl. 14.
Fyrirlesturinn verður fluttur á
ensku og ber heitið „Word Pictures
and Scepticism" eða Heimsmyndir
og efahyggja.
í fyrirlestrinum fjallar Slotte um
heimsmyndir vísindanna og tak-
mörk þeirra. Hann veltir upp ýms-
um spurningum um heimsmyndir
okkar eins og hvort þær séu á rök-
um reistar eða hluti af menningar-
arfleið okkar.
Aðgangur er ókeypis og allir
velkomnir.
Poppmessa í
Hjallakirkju
POPPMESSA verður haldin í
Hjallakirkju sunnudaginn 2. nóvem-
ber á almennum messutíma kl. 11.
Slíkar guðsþjónustur eru að jafnaði
einu sinni í mánuði.
í guðsþjónustunni flytur hópur
fólks tónlist í léttum dúr en þessi
hljómsveit var stofnuð síðasta haust
sérstaklega í tengslum við popp-
messur í Hjallakirkju. Markmiðið
er að ná til sem flestra með nýjung-
um í tónlistarflutningi og söngva-
valdi, segir í fréttatilkynningu.
I
;
i
,
J
I
I
Opið virka daga 9-18
Laugardaga 10-16
Sunnudaga 14-16
3000 nv sýningarsalur
( 59.500
100x37x178
Hnota
Mahónt
°~i______________n
( 21.800 )
40x40x78
Mahóní_________
Hnota
Kirsuberjaviður
TM - HÚSGÖGN
Síðumúla 30 -Sími 568 6822
I