Morgunblaðið - 09.11.1997, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1997 29
Ráðherra leggur fram frumvarp til laga um dómstóla
Markar lokaáfanga í heildar-
endurskoðun réttarfarslaga
ÞORSTEINN Pálsson dómsmála-
ráðherra mælti fyrir frumvarpi til
laga um dómstóla á Alþingi nýlega,
en frumvarpið hefur það að megin-
markmiði að styrkja enn frekar
sjálfstæði dómsvaldsins. Frumvarp-
ið var samið að tilhlutan dómsmála-
ráðherra, en unnið var að samningu
þess í nánu samráði við réttarfars-
nefnd. Einnig var haft samráð við
Dómarafélag_ íslands og Lög-
mannafélag íslands.
í framsögu dómsmálaráðherra
kom m.a. fram að frumvarpið mark-
aði lokaáfanga í heildarendurskoð-
un réttarfarslaga sem hófst á árinu
1987, en sú endurskoðun hefur leitt
til þess að sett hafa verið ný lög
um alla þætti réttarfars, auk þess
sem dómstólaskipan landsins hefur
verið breytt í grundvallaratriðum.
Lagði Þorsteinn ríka áherslu á að
heildarendurskoðun þessari lyki á
þessu þingi með setningu dómstóla-
laganna.
Sagði ráðherra að við samningu
frumvarpsins hefði verið haft að
leiðarljósi, að ekki væri nægilegt
að sjálfstæði dómsvaldsins væri
tryggt í raun, heldur yrði sjálfstæð-
ið og trúverðugleikinn, sem því
fylgdi, að vera öllum sýnilegur. „í
þeim efnum er mikilvægt, að svo
verði búið um hnútana, að dómstól-
ar séu sjálfstæðir í ríkum mæli
varðandi stjórn innri málefna sinna,
þannig að staða þeirra sé traust
gagnvart öðrum þáttum ríkisvalds-
ins,“ sagði hann. „Til að ná þessu
markmiði frumvarpsins um að
styrkja sjálfstæði dómstólanna, svo
sem frekast er unnt, eru lögð til
ýmis nýmæli með frumvarpi þessu.“
Sagði ráðherra að af þeim meiði
væru tvö atriði öðrum mikilvægari.
Sérstök stjórnarnefnd
í fyrsta lagi er lagt til í frumvarp-
inu að stjórnsýsla héraðsdómstóla
verði að verulegu leyti falin sér-
stakri stjórnarnefnd, svonefndu
dómstólaráði, en það verði þannig
skipað, að í því sitji þrír menn, þar
af tveir kjörnir af héraðsdómurum
úr þeirra röðum. „í frumvarpinu er
gert ráð fyrir, að dómstólaráð verði
sameiginlegur málsvari héraðsdóm-
stóla út á við, hafi eftirlit með starf-
semi þeirra og verði aflvaki að
ýmsum breytingum og nýjungum í
starfsháttum. Þannig er lagt til að
dómstólaráð komi fram gagnvart
stjórnvöldum og öðrum í þágu hér-
aðsdómstólanna sameiginlega. Enn
fremur er gert ráð fyrir að dóm-
stólaráð fari með fjárreiður héraðs-
dómstóla og geri tillögur til dóms-
málaráðherra um fjárveitingar til
þeirra sameiginlega. Þetta felur
ótvírætt í sér tryggari stöðu dóms-
valdsins við stjórnun innri mála, en
það atriði er einnig mikilvægur
þáttur í sjálfstæði þess,“ sagði ráð-
herra.
í annan stað er í frumvarpinu
lagt til að sett verði á stofn óháð
nefnd um dómarastörf, en henni er
meðal annars ætlað að fjalla um
hvaða aukastörf geta samrýmst
embættisstörfum dómara og gegna
sama hlutverki varðandi heimildir
þeirra til að eiga hlut í félögum og
fyrirtækjum. „Einnig er nefndinni
ætlað að fjalla um aðfinnslur í garð
dómara og fara með vald til að
veita áminningar vegna framferðis
dómara i starfi eða utan þess,“ að
sögn ráðherra.
Þrír héraðsdómarar
eigi ekki fast sæti
„í frumvarpinu er lagt til óbreytt
það fyrirkomulag að dómstigin hér
á landi verði tvö, þannig að mál
verði dæmd á fyrsta stigi fyrir hér-
aðsdómi en á áfrýjunarstigi fyrir
Hæstarétti. Einnig er lagt til að
fjöldi hæstaréttardómara og hér-
aðsdómara verði óbreyttur. Þá er
ráðgert í frumvarpinu, að héraðs-
dómstólar verði áfram átta með
sömu umdæmaskiptingu," sagði
ráðherra.
„Á hinn bóginn miðar frumvarpið
að því til hagræðingar að draga úr
skilum milli héraðsdómstóla, svo
vinnubrögð þeirra verði frekar sam-
ræmd og skilvirkni aukin. Þannig
er lagt til að héraðsdómstólar heyri
undir sameiginlega stjórn dómstóla-
ráðs. Einnig er gert ráð fyrir að
héraðsdómarar verði ekki skipaðir
til starfa við ákveðinn dómstól og
því yrði unnt að koma við breyting-
um á starfsvettvangi dómara í
styttri eða lengri tíma. Enn fremur
er lagt til að unnt verði að ákveða
að allt að þrír héraðsdómarar eigi
ekki fast sæti við tiltekinn dóm-
stól, heldur sinni þeir störfum við
þá alla eftir þörfum hveiju sinni.
Með þessu væri unnt að bregðast
við auknu álagi á einstaka dóm-
stóla, auk þess sem unnt væri að
styrkja stöðu minni dómstóla með
því að manna þá með reyndum
dómurum,“ sagði ráðherra.
ítarlegur reglur um réttíndi
og skyldur dómara
Þá er í frumvarpinu lagt til að í
stað dómarafulltrúa sem um langa
hríð hafa starfað við flesta héraðs-
dómstóla landsins verði tekin upp
störf löglærðra aðstoðarmanna hér-
aðsdómara. Gert er ráð fyrir að að-
stoðarmenn inni af hendi ýmis verk
við undirbúning og framkvæmd
þinghalda og meðferð einstakra
mála. Sagði ráðherra að við Hæsta-
rétt hefðu um all langt skeið verið
starfandi aðstoðarmenn og að það
fyrirkomulag hafi gefið góða raun.
Að síðustu gat ráðherra þess í
framsögu sinni með frumvarpinu
að þar væru lagðar til ítarlegar
reglur um réttindi og skyldur dóm-
ara. „Með þeim fæst gleggri heild-
armynd af stöðu dómara, auk þess
sem komist verður hjá óvissu um
að hvaða marki almennar reglur
um starfsmenn ríkisins geti gilt um
dómara, en þær taka einkum mið
af stöðu starfsmanna á sviði fram-
kvæmdavalds. Helsta nýmælið í
þeim efnum er að finna í 26. gr.
frumvarpsins en þar segir að dóm-
ara sé óheimilt að taka að sér starf
eða eiga hlut í félagi eða atvinnufyr-
irtæki ef slíkt fær ekki samrýmst
stöðu hans eða leiðir til þess að
hann geti ekki sinnt embættisstarfí
sínu sem skyldi."
Stuðningshópar Krabbameinsfélagsins, Ný rödd,
Samhjálp kvenna, Stómasamtökin og Styrkur, sam-
tök krabbameinssjúkbnga og aðstandenda þeirra,
hafa opið hús á Hótel Loftleiðum, Þingsal 1.
þriðjudaginn 11. nóvember kl. 20.00.
Fundarefni:
Lög um réttindi sjúklinga
Frummælendur: Dögg Pálsdóttir lögfræðingur,
Ástríður Stefánsdóttir læknir og M.A. í heimspeki,
Sigurður Björnsson læknir, Sigurður Líndal pró-
fes^or og Sigurður Jón Ólafssn formaður Stóma-
samtakanna.
Auk frummælenda sitja fyrir svörum: Matthías
Halldórsson aðstoðarlandlæknir og Ragnheiður
Haraldsdóttir skrifstofustjóri í heilbrigðisráðuneyt-
inu. Fundarstjóri er Guðrún Agnarsdóttir forstjóri
Krabbameinsfélags íslands.
Kaffiveitingar í boði Krabbameinsfélags Reykjavíkur.
Allir velkomnir.
S tuðnings hópamir.
Magni Siqurhansson
Framkv.stjóri Álnabw
„Með náminu fékk ég mjög
góða yfirsýn yfir mögulelka
PC tölvunnar og góða
þjólfun í notkun þess
hugbúnaðar sem ég nota
hvað mest í starfi mfnu,þ.a.
ritvinnslu, töflureikni og
I nternetinu. Öll aðstaða,
tækjabúnaður og
frammistaða kcnnara hjá
NTV var fyrsta flokks og
námið hnitmiðað og
árangursríkt."
Kennt er þrisvar í viku í fjórar vikur.
Windows 95, Word 97, Excel 97, og
notkunarmöguleikar Internetsins.
Samtals 48 klukkustundir.
Næsta námskeið byrjar 25. nóvember
Vönduð námsgögn pfijpH
og bækur fylgja BSw vfey
öllum námskeiðum Bjóium uPI. i vís« & Evm
raðgneidsiur
Nýi tölvu- &
viðskiptaskólinn
Hólshraunl 2 - 220 Haiimrftrði - Sínii: 555 498D - Fsuc 555 4981
TölvupfetfanH: skoliintvis - Hshnasiða; wwwntvis
* Innifalið: Flug og skattar.
Verð miðast við lágmarksþátttöku.
Beint fjlug - eimtakt tœkifjœri á firábœru verðií
Beykjavík: Austurstræti 12 • S. 569 1010* Símbrót 552 7796 og 569 1095* Innanlandsferðir S. 569 1070 Hótel Sögu við Hagatorg • S. 562 2277 • Símbréf 562 2460 Hafnarfjörður: Bæjarhraimi 14* S. 565 1 155 • Símbréf 565 5355
Keflavík: Hafnargötu 35 • S. 421 3400* Símbréf 421 3490 Akranes: Breiðargötu 1 • S. 431 3386 • Símbréf 431 1195 Akureyri: Ráðhústorgi 1 • S. 462 7200 • Símbréf 461 1035 Vestmannaeyjar: Vestmannabraut 38 • S. 481 1271 • Símbréf 481 2792
ísafjörður: Hafnarstræti 7• S.4565390• Simbréf 4563592 Einnig umboðsmenn um land allt H ei m asíða: www.samvinn.is.