Morgunblaðið - 09.11.1997, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1997 37
I
'
I
I
í
3
I
'
5
I
I
I
I
I
EGGERT G. Þorsteinsson
alþingismaður bauð gesti
velkomna á stofnfundinn.
Þar fluttu einnig ávörp
þeir Iiilmar Helgason og
Matthías Bjarnason
heilbrigðisráðherra.
aðdraganda stofnunar samtakanna og mark-
mið þeirra.
Matthías Bjamason heilbrigðisráðherra
tók næstur til máls og taldi misnotkun áfeng-
is meiriháttar vandamál í þjóðfélaginu. Hann
sagði að þar sem aðgerðir heilbrigðisyfir-
valda hefðu einkum beinst að þeim sem væru
orðnir mjög sjúkir, andlega og líkamlega,
væri ef til vill skiljanlegt að meðferð þeirra
hefði til þessa verið á vegum geðsjúkrahúsa.
Ráðherra gat sérstaklega um merkilegt starf
AA-samtakanna og fagnaði stofnun nýrra
samtaka og stefnu þeirra. Óskaði SÁÁ góðs
gengis og bauð þau velkomin til samstarfs
við alla þá sem ynnu að heilbrigðismálum.
Vilborg Helgadóttir hjúkrunarkona talaði
næst og rakti í stórum dráttum sögu áfengis-
mála síðustu áratugina. Hún sagði að þýðing-
armest væri að eyða ranghugmyndum og
hleypidómum og fínna aðferðir til áhrifarík-
ari meðferðar.
vorum komnir nokkuð áfram í þessum um-
ræðum sáum við að við þyrftum að stofna fé-
lag til að vera ábyrgt fyrir rekstri slíkrar
stöðvar. Meðal annars hvað snertir húsaleigu
og aðrar fjárfestingar. Það voru til tveir
möguleikar. Annars vegar að stofna lítið fé-
lag þeirra sem höfðu kynnst vandamálinu af
eigin raun eða stofna félag þar sem almenn-
ingi væri gefinn kostur á að taka þátt í mál-
inu. Við höfðum orðið varir við áhuga al-
mennings á að gera eitthvað róttækt enda
kannski ekki að ástæðulausu. Það er alkunna
að í hverri einustu fjölskyldu á fslandi fyrir-
finnst alkóhólismi. Við ákváðum að höfða til
almennings og unnum síðan út frá því,“ sagði
Hilmar í þessu útvarpsviðtali.
Böl sem grasséraði í
þjóðfélaginu
Jafnhliða því að funda með félögum sínum
vann Hilmar að því að velja fólk til að taka
sæti í stjórn samtakanna við stofnun þeirra.
Sem fyrri daginn átti hann auðvelt með að fá
fólk á sitt band. Meðal þeirra sem Hilmar
fékk augastað á var áhrifamaður í verkalýðs-
hreyfingunni, Guðmundur J. Guðmundsson.
Guðmundur segir að þá um sumarið hafi
hann hitt Hilmar Helgason á götu og Hilmar
hafi farið að ræða fyrirhugaða félagsstofnun.
„Ég hafði þekkt Hilmar alllengi og hann
vildi fá mig með í þetta. Hilmar var slíkur
eldhugi að það borgaði sig að segja já strax í
stað þess að eyða löngum tíma í rökræður.
Enda var ég hrifinn af þessari hugmynd. Ég
hafði misst marga góða vini og félaga í
brennivínið og gerði mér grein fyrir því hvað
þetta böl grasséraði í þjóðfélaginu," segir
Guðmundur J. Binni Bemdsen segir Hilmar
hafa verið aðalhvatamanninn að stofnun SÁÁ
og tekur undir með Guðmundi að hann hafi
verið eldhugi: „Það besta við Hilmar var að
hann hugsaði eins og fíkill, fékk svo stórkost-
legar hugmyndir. En það þurfti líka að fram-
kvæma hlutina og ég var svona eins og kúst-
ur á eftir honum að koma því í verk sem hon-
um datt í hug. Boðun stofnfundarins var
bara sérmál á þessum tíma. Hvað ætti síðan
að gera var órætt.“
Skotheld samtök
Það fer ekki á milli mála að Hilmar Helga-
son hefur frá upphafi sett sér það markmið
að gera samtökin skotheld, ef svo má að orði
komast, það er að fá til liðs við málefnið
áhrifamenn af ýmsum sviðum þjóðfélagsins í
bland við aðra. Björgólfur Guðmundsson,
kunnur maður úr viðskiptalífinu, fór ekki
framhjá vökulum augum hans.
„Hilmar bað mig um að koma og vera með
í fyrirhuguðum samtökum og það sama
gerðu fleiri vinir mínir sem voru að undirbúa
stofnun þessara samtaka. í byrjun velti ég
því svolítið fyrir mér hvort það væri heppi-
legt fyrir mig að taka þátt í þessu. En ég sá
að það var svo mikil þörf á að gera eitthvað í
þessum málum og svo mikil ánægja hjá fólki
að einhverjir vildu drifa í að koma á úrbótum
að ég hugsaði mig ekki lengi um. Það má
segja að strax hafi verið bæði áhugi og þörf
af minni hálfu að taka þátt í þessu,“ segir
Björgólfur. Hann átti síðan eftir að starfa í
mörg ár fyrir SÁA sem stjórnarmaður og
síðar formaður samtakanna.
„Það hrikti í þjóðfélaginu eftir þennan
þúsund manna fund“
Guðmundur J. rifjar upp að þegar rætt
var um stað fyrir stofnfundinn hafi orðið
Unnið gegn mesta
meini aldarinnar
Hilmar Helgason, formaður undirbúnings-
nefndar, tók nú til máls og skýrði tilganginn
með stofnun SÁA og þeirri reynslu sem kom-
in væri á erlendis af meðferð alkóhólista.
„Minnumst þess, að enginn er vonlaus og að
enginn ætti að þurfa að drekka sér til óbóta
áður en hann leitar hjálpar. Sú kenning er
úrelt,“ sagði Hilmar.
Næst talaði Skúli Johnsen borgarlæknir
og kvaðst vera hlynntur þeim hugmyndum
sem lægju að baki stofnun samtakanna og
vænti alls hins besta af þeim. Hann hét
stuðningi síns embættis við starfsemina. Ind-
riði Indriðason stórtemplari kvaddi sér
hljóðs og sagði góðtemplararegluna fagna
SAÁ, bæði fyrirbyggjandi starfi þeirra og
hjálparstarfi við hina sjúku.
Jóhannes Magnússon bankafulltrúi sté
næst í ræðustól og lýsti reynslu sinni af bar-
áttunni við Bakkus á áhrifamikinn hátt.
Hann lagði áherslu á að það þyrfti að draga
fram vandamálið og hætta að fela alkóhólist-
ann. Síðan fékk Pétur Sigurðsson alþingis-
maður orðið og flutti þakkir fyrir hönd und-
irbúningsnefndar. Hann sagði meðal annars
að undirtektir almennings hefðu verið merki-
legar. Fólk væri meðvitað um að áfengis-
vandamálið snerti í raun hvern einasta lands-
mann. Hér væri um þjóðarvakningu að ræða
og menn stæðu í svipuðum sporum og braut-
ryðjendur baráttunnar gegn berklaveiki á
sínum tíma. SÁA vildi heilshugar samstarí
við alla sem hefðu áhuga á að vinna gegn
mesta meini aldarinnar.
„Höldum sameinuð til starfa“
Framhaldsstofnfundur SÁÁ var haldinn á
tilsettum tíma þann 9. október á Hótel Sögu
og var Súlnasalurinn þéttsetinn enda mættu
um 850 manns. Eggert G. Þorsteinsson setti
fundinn og kvaddi til fundarstjóra Jóhannes
Magnússon. Fundarstjóri skipaði síðan Egg-
ert og Aðalheiði Bjamfreðsdóttur, formann
Sóknar, sem fundarritara. Sverrir Garðars-
son útskýrði drög að lögum samtakanna sem
dreift hafði verið á fyrri hluta stofnfundar.
Hver grein fyrir sig var borin undir atkvæði
og samþykkt með örlitlum orðalagsbreyting-
um. Einnig var samþykkt breytingartillaga
frá undirbúningsnefnd um fjölgun í aðal-
stjóm úr 15 í 36. Lög samtakanna í heild
vom síðan samþykkt einróma. Strax að þvi
loknu var gengið til stjórnarkjörs. Sérstök
uppstillingamefnd lagði fram tillögu með 36
nöfnum. Var hún samþykkt einróma sem og
nöfn fimm varastjórnarmanna.
Að loknu stjórnarkjöri og kosningu endur-
skoðenda var gert hlé í hálfa klukkustund til
að nýkjörin stjórn gæti kosið framkvæmda-
stjórn. Kosningu hlutu: Hilmar Helgason
formaður, Binni Bemdsen, John Aikman,
Einar Sverrisson og Björgólfur Guðmunds-
son. Til vara: Ingibjörg Bjömsdóttir, Eyjólf-
ur Jónsson og Sveinsína Tryggvadóttir. For-
maður var kosinn sérstaklega en að öðra
leyti skipti stjórnin með sér verkum.
Hinn nýkjörni formaður, Hilmar Helga-
son, tók síðan til máls og þakkaði það traust
sem sér og samstjómarmönnum sínum væri
sýnt með kjörinu. Hann hét á alla viðstadda
að standa vel og dyggilega að baki stjóminni
og veita verkefnum og baráttumálum sam-
takanna öflugan stuðning. Án sameiginlegs
allsherjarátaks væri ekki mikils að vænta.
„Höldum sameinuð til starfa,“ sagði formað-
urinn.
Freeportklúbburinn
FREEPORTFARAR stofnuðu með sér fé-
lag 12. ágúst 1976 sem nefnist Freeport-
klúbburimi. Markmiðið með stofnun
klúbbsins var að viðhalda og auka við
fróðleik sem félagamir öðluðust á
Freeportspítalanum og í framhaldsmeð-
ferðinni. Ennfremur að miðla fróðleik um
áfengismál með forgöngu um fyrirlestra-
hald, veitingu námsstyrkja og með hverj-
um þeim hætti sem þætti henta hveiju
sinni. Einnig að vera vettvangur umræðu
og upplýsingamiðlunar fyrir klúbbfélaga
um hvað það sem væri efst á baugi í áfeng-
ismálum þjóðarinnar á hveijum tíma. Þá
var það ennfremur tilgangur félagsins að
taka að sér, ef tilefni þætti til, þjónustu við
eitthvert verkefni innan íslenskra áfengis-
mála með fjáröflun eða sjálfboðaliðastörf-
um. Félagið er óháð öðrum samtökum en
klúbbfélagar sem einstaklingar eru hvattir
til að leggja þeim hreyfingum lið sem að
þeirra eigin mati beijast raunhæft gegn
áfengisvandamálinu.
Freeportfarar standa saman í bliðu og
stríðu. Til marks um það má nefna að
Freeportfari sem var á ferðalagi í Róm hóf
þar drykkju á nýjan leik. Hann hringdi
heim, félaus og illa haldinn. Þegar í stað
lagði einn Freeportari af stað til Ítalíu,
leysti manninn úr hótelskuld og kom hon-
um beina leið á Freeportspítalann.
Segja má að Freeportklúbburinn hafi
verið undanfari SÁA. Klúbburinn bauð
hingað til lands sérfræðingum í áfengis-
meðferð frá Bandaríkjunum sem héldu
fundi og fyrirlestra og komu fram í íjöl-
miðlum. Klúbburinn veitti fjárstyrki til
námsferða ráðgjafa SÁÁ eftir stofnun
samtakanna og átti stóran þátt f að opna
fordómalausa umræðu um áfengisvanda-
málið. Fyrsti formaður Freeportklúbbsins
var Anna Þorgrímsdóttir, en hún var
jafnframt einn af fyrstu ráðgjöfum SÁÁ.
Klúbburinn er enn starfandi þar sem
ákveðinn kjarni úr hópi Freeportfara
hittist reglulega.
TÆPLEGA þúsund manns sóttu stofnfund SÁÁ og troðfylltu Háskólabíó.
ágreiningur. „Mönnum sló saman. Flestir
vildu halda fundinn á sæmilega huggulegum
stað sem rúmaði tvö til þrjú hundruð
manns. Það mætti til dæmis halda fundinn í
Austurbæjarbíói eða á Hótel Borg. Hilmar
harðneitaði að fallast á þær hugmyndir og
heimtaði sjálft Háskólabíó. Mönnum blöskr-
aði. Það var ekki á færi nema stjórnmála-
flokka að fylla þúsund manna sal og kannski
ekki einu sinni á þeirra færi, að minnsta
kosti ekki allra. Hilmar sagði blákalt að
þetta ætti að vera stormandi fundur sem
mundi sprengja utan af sér þúsund manna
sal og hann hafði sitt fram. En Hilmar varð
hræddur þegar nær dró fundinum. Óttaðist
að okkur tækist ekki að fylla salinn. Þá
lagðist hann í símann og hringdi í fólk til að
fá það á fundinn. Það mætti segja mér að
hann hafi hringt í fimm til sex hundruð
manns. Og auðvitað kjaftfyllti hann bíóið.
Það hrikti í þjóðfélaginu eftir þennan þús-
und manna fund,“ segir Guðmundur J. Guð-
mundsson.
Þýðingarmest að eyða ranghugmyndum
og hleypidómum
Boðað var til stofnfundar SÁÁ laugardag-
inn 1. október 1977 í Háskólabíói klukkan 14.
Fólk tók að streyma að löngu fyrir tilsettan
tíma. Skólahljómsveit Kópavogs lék létt lög
meðan fundargestir komu sér fyrir. Salurinn
vai' nær fullsetinn þegai- Eggert G. Þor-
steinsson fundarstjóri setti fundinn á slaginu
tvö. Talið er að fundargestir hafi verið yfir
900. Fyrir hönd undirbúningsnefndar bauð
Eggert alla viðstadda velkomna og ræddi um