Morgunblaðið - 09.11.1997, Blaðsíða 58
58 SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
V ' ' ...-...-
Ert þú aldrinum 14-15 ára?
Prófaðu spennandi skóíaár í Danmörku
Viltu eignast nýja félaga, bæta tungumálakunnáttuna og kynnast veröld-
inni? — Komdu þá í Den Internationale Efterskole.
Vi'd bjóðum:
• Nútíma kennslu á PC-tölvur - mörg fög
• Alþjóðlegt umhverfí með nemendum frá mörgum löndum.
• Námsferðir í Evrópu, til Norður-Afríku og Tyrklands.
• Mikið tómstundastarf: fþróttir, tónlist, náttúruskoðun, tölvuvinnsla.
Kynningarfundur í Reykjavík í nóvember.
Hringið eða skrifið:
Den Internationale Efterskole pá Boserup, Boserupvej 100,
DK-4000 Boserup. Sími 00 45 4632 0930. Fax 00 45 4632 4640
Netfang: tvidebos@inet.uni-e.dk Vefsíða: http://inet.uni-c.dk./ —tvidebos
-..-....... ............................ -4
FÓLK í FRÉTTUM
HARALD G. Haraldsson, Edda Arnljótsdóttir og Þrúður Vilhjálmsdóttir í hlutverkum sínum.
Mynd um framhjáhald
] ^WTBCFKNDAHÁtÍí> \í
Dagskrá
Kvikmyndahátíðar í Reykjavík
Sunnudagurinn 9. nóvember
Regnboginn
Kl. 3, 7 og 11 Anna Karenina leikstj. Bemard Rose.
Kl. 5 oq 9 Mrs. Brown (Madama Brown),
leikstj. John Madden.
Kl. 7 Citizen Ruth (Borgari Rut),
leikstj. Alexander Payne, b.i. 12 ára.
JCI. 11 Looking for Richard ((leit að Ríkharði),
leikstj. Al Pacino, b.i. 12 ára.
Kl. 7 Slingblade, leikstj. Billy Bob Thornton, b.i. 12 ára.
Kl. 3 Hamlet, leikstj. Kenneth Brannagh, b.i. 12 ára.
Kl. 3 Hamlet (löng Útgáfa), leikstj. Kenneth Brannagh, b.i. 12 ára
Kl. 3, 9 og 11 Fistful of Flies (Handfylli af flugum),
leikstj. Monica Pellizzari.
Háskólabíó
Kl. 5, 7, 9 oq 11.10 Pusher, leikstj. Nicolas Winding.
Kl. 9 Burnt by the Sun (Sólbruni), leikstj. Nikita Mikhalkov.
Kl. 9 oq 11.15 Carla's Song (Söngur Cörlu),
leikstj. Ken Loach, b.i. 16 ára.
Kl. 7 Un heros tres discret (Hógvær hetja),
leikstj. Jaques Audiard
Laugarásbíé
Kj. 9 og 11 The End of Violence (Endalok ofbeldis),
leikstj. Wim Wenders, b.i. 14 ára.
Kl. 3 The Truce (Sáttmálinn), leikstj. Francesco Rosi.
Kl. 3 En été a la Goulette (Sumarið í Goulette),
leikstj. Férid Bougnédir.
Stjörnubíó
Kl. 5, 7, 9 oq 1J Touch (Snerting), leikstj. Paul Schrader.
Bíóborgin
Kl. 4.40, 7 og 9.20 TVvelfth Night (Þrettándakvöld),
leikstj. Trevor Nunn.
Lesið allt um Kvikmyndahátíð í
KVIKMYNDAFYRIRTÆKIÐ Ax
er í eigu systkinanna Önnu sem er
leikstjóri og handritshöfundur og
Ólafs Rögnvaldssonar kvikmynda-
tökumanns og framleiðanda. Hef-
ur framleiðsla fyrirtækisins aðal-
lega falist í heimildar- og stutt-
myndum. Þau eru nú að klára aðra
stuttmyndina eftir Önnu, en sú
fyrri hét „Hlaupár" og hefur farið
víða á kvikmyndahátíðir og selst til
þónokkurra sjónvarpsstöðva.
- Hver var kveikjan að þessari
mynd?
„Eg var á tímabili með handrit
að bíómynd í vinnslu. I því var
mikil veisla. Eg tók ástfóstri við
þessa veislu og í hvert skipti sem
ég vann handritið stækkaði veisl-
an að umfangi. Það endaði þannig
að nánast allar persónur voru
kynntar til sögunnar í þessari
veislu. Ég áttaði mig svo á því að
veislan var farin að sliga myndina.
Kvikmyndafyrírtækið
Ax hefur nýlega lokið
tökum á stuttmyndinni
Kalt borð eftir Önnu
Th. Rögnvaldsdóttur.
Hildur Loftsdóttir tal-
aði við leikst.jórann,
handritshöfundinn og
framleiðandann.
Enskt orðatiltæki segir „kill your
darlings“, sem þýðir að annað-
hvort handritshöftmdur eða leik-
stjóri tekur miklu ástfóstri við
einhvem tiltekinn þátt myndar-
innar, eins og einhverja persónu
eða atriði. Hann heldur síðan
dauðahaldi í þennan þátt jafnvel
þótt hann sé myndinni til óþurft-
ar. Það kemur að því að viðkom-
andi þarf að líta raunsæjum aug-
um á málið og ákveða að henda
því af því að það gengur ekki upp
í heildinni.
Þegar ég þurfti svo að slátra
þessari veislu minni langaði mig tii
þess að gera stuttmynd sem gerist
í partýi. Þetta er upphaflega
kveikjan að myndinni. Én ekki
þannig að þessar tvær veislur eigi
neitt sameiginlegt.“
- Um hvað fjallar þá myndin?
„Hún er um konu sem er búin að
uppgötva að grasið er grænna hin-
um megin við girðinguna! Þetta er
sem sagt mynd um framhjáhald."
- Hvar fóru tökur fram?
„Myndin var tekin í húsnæði
Myndhöggvarafélags Reykjavíkur
á Nýlendugötu, sem er gömul vél-
smiðja. Þar sem myndin er frekar
ódýr höfðum við ekki efni á því að
byggja leikmynd í stúdíói. Það
hefði ekki komið tO greina að taka
alla myndina upp á vettvangi;
finna einhverja íbúð og gera
myndina þar. Það er ekki nægileg
lofthæð í venjulegum íbúðum til
þess að lýsa almennilega og þær
eru líka of þröngar. Við notuðum
þetta húsnæði vegna þess að sal-
irnir eru hóflegir að stærð, ekki
svo ýkja miklu stærri en í rúm-
góðu íbúðarhúsnæði. Lofthæðin er
hins vegar mun meiri. Þannig að
þetta hentaði okkur mjög vel sem
tökustaður."
- Hvaða leikara fékkstu til liðs
við þig?
„Ég fékk mjög góða leikara, þá
sem ég hafði áhuga á að fá. Aðal-
hlutverkin eru í höndum Eddu
Amljótsdóttur, Hilmis Snæs
Guðnasonar, Haralds G. Haralds-
sonar, Þrúðar Vilhjálmsdóttur og
Guðrúnar Stephensen.
Ég hafði þessa leikara í huga
þegar ég var að skrifa handritið,
nema Þrúði því ég þekkti hana
ekki þá. Ég hafði leikaraprufur en
niðurstaðan varð sú að ég hélt mig
við upphaflegar ákvarðanir. Það
eru svo fáir leikarar í hverjum ald-
ursflokki á Islandi að ráðið er að
fínna leikarana fyrst og skrifa svo
handritið utan um þá. Frekar en
að sitja uppi með handrit og hlut-
verk sem manni finnst enginn
passa almennilega í nema Bruce
Willis og Isabelle Adjani. í „Köldu
borði“ var það þannig að leikar-
amir sem ég var með í huga þegar
ég var að skrifa handritið komu
svo og tóku við hlutverkunum og
NAMSKEIÐ
Markmið og Keppnisáætlanir:
Markmiðasetning og stefnumótun.
Beiting átaks í viðskiptum.
Námskeiðið er 10 kennslustundir.
Verð kr. 12.000 með kennslugögnum og máltíð.
Nœsta námskeið verður 18. nóv. kl 09-17.
Þarfagreining:
Spurningatækni.
Greining þarfa viðskiptavina.
Framsetning lausna og meðferð andmæla.
Námskeiðið er 10 kennslustundir.
Verð kr. 12.000 með kennslugögnum og máltíð.
Nœsta námskeið verður 19. nóv. kl 09-17.
Samningatækni:
Undirbúningur samninga.
Samningaþrepin.
Viðhorf til verða og útskýringar.
Meðferð andmæla við verðum.
Námskeiðið er 10 kennslustundir.
Verð kr. 12.000 með kennslugögnum og máltíð.
Nœsta námskeið verður 20. nóv. kl 09-17.
Leiðbeinandi: Jóhannes Georgsson
Ice - Scan
Sölu og rekstraráðgjöf
Bolliolti 6 -105 Reykjavík - Sínti 533 4100 - Fax 533 4101