Morgunblaðið - 09.11.1997, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 09.11.1997, Blaðsíða 48
48 SUNNUDAGUR 9. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Grettir Tommi og Jenni Ljóska Ferdinand Smáfólk A pirate ship! I SEE A PIRATE ship! Here's BLACKSEA6LE.THE IaJORLP FAM0U5 PIRATE,LEAPIN6 HIS SCURVH' SANP ASHORE... SOMEBODy TELL CONRAP HE'S ONLY 5UPP05EPT0 U)EAR ONE EHE PATCH.. Sjóræningjaskip! Ég Hér stígur Svarti Sámur, hinn sé sjóræningjaskip! heimsfrægi sjóræningi, á land ásamt liðsmönnum sínum ... Vill einhver segja Konráði að hann eigi aðeins að hafa einn augnlepp ... BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Erró hvað? Frá Tryggva L. Skjaldarsyni: FYRIR allmörgum árum gaf sá ís- lenski myndlistarmaður, sem þekkt- astur er og nýtur heimsfrægðar, gríðarlega mikla listaverkagjöf til Reykjavíkurborgar og er þannig kominn heim með nokkrum hætti eftir langa útlegð. Flestar ef ekki allar höfuðborgir í Evrópu og Norð- ur-Ameríku eiga listasöfn sem státa af myndlist eftir heimsfræga menn og laða til sín fjölda ferðamanna. Ekki Reykjavík. Gjöf Errós gefur kjörið tækifæri til þess að setja borg okkar á bekk með öðrum menningarborgum að þessu leyti líka. Og ekki seinna vænna með tilliti til þess að Reykjavíkurborg verður menningarborg Evrópu árið 2000. Gjöf Errós hefur til þessa rykfallið í kjallarageymslum borg- arinnar - til skammar fyrir borg- arbúa og landsmenn alla. Verkin hafa þó verið send á sýningar víðs vegar um heimsbyggðina. Davíð Oddsson virtist sjá mikil- vægi þess fyrir Reykjavíkurborg að þiggja þessa gjöf á sínum tíma og var með stórfenglegar - og rándýr- ar - hugmyndir um að breyta Korp- úlfsstöðum í listasafn Errós og borgarinnar. Nú hefur verið fundin góð og helmingi ódýrari lausn á þessu máli. Breyta á Hafnarhúsinu í miðbænum í Listasafn Reykjavík- ur þar sem myndir Errós munu verða í heiðursstað. Verkinu á að ljúka á fjórum árum þannig að flár- veiting til þess verður innan skap- legra marka á hveiju fjárhagsári. Þetta er ágæt lausn því hún mun styrkja miðbæinn í sessi, þar sem flestir ferðamenn eru á stjái, og lífga upp á hafnarsvæðið. Nú mætti ætla að málsmetandi menn fögnuðu því að loksins væri lausn á þessu máli í augsýn, og þó. Tveir af núverandi oddvitum Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík hafa risið upp á afturfæturna og mót- mælt því harðlega að myndir Errós og önnur listaverk borgarinnar fái varanlegan og verðugan samastað. Þeir virðast vilja að myndum Errós verði áfram hrúgað í kjallara- geymslur milli þess sem þær eru sendar úr landi og sýndar á fínustu listasöfnum í heimi. Er hægt að sýna listamanninum meiri óvirð- ingu? Málefnafátæktin hlýtur að vera mikil úr því að þeir þurfa að grípa þetta hálmstrá í kosningabar- áttu sinni. Þetta mál á að verið hafið yfir lágkúrulegt dægurþras. Nei, í þessu máli eiga borgarbúar að standa fast á bak við meirihluta borgarstjórnar og láta ekki pólitísk- an storm i vatnsglasi rugla sig í ríminu. Það stóð ekki í sjálfstæðis- mönnum að byggja Perluna. Ekki heldur ráðhúsið við Tjörnina, þrátt fyrir mikinn kostnað. Reykjavík er höfuðborg íslands og á að standa undir því nafni. TRYGGVIL. SKJALDARSON, Fífuhvammi 17, Kópavogi. „Hófdrykkjan er heldur flá“ Frá Árna Helgasyni: „MAÐUR er nú hættur að kippa sér upp við það þó að maður heyri eitthvað heimskulegt og siðlaust," sagði vinur minn þegar honum fannst ruglið og vitleysan keyra fram úr öllu hófi. Mér varð hugsað til þessara orða þegar ég heyrði í útvarpi að SÁÁ væri að halda á Ioft uppskrift sinni að hófdrykkju. Meir að segja Evr- ópudómstóllinn komst að þeirri nið- urstöðu um það Ieyti sem hóf- drykkjuáætlunin birtist að áfengi væri það hættulegt efni að eðlilegt væri að norrænar þjóðir (og náttúr- lega aðrar ef þær telja slíkt rétt, sbr. USA) hefðu sérstakar gætur á dreifingu þess með því að hafa áfengiseinkasölur. Að sjálfsögðu til að koma í veg fyrir heilsutjón af völdum þessa vímuefnis og tak- marka möguleika á því að einstakl- ingar græði á ógæfu annarra. Ég hélt nú að SÁÁ hefði verið stofnað til að bæta úr böli - og jafnvel koma í veg fyrir böl af völd- um áfengis. En kannski er það orð- ið aðalatriðið hjá þessari stofnun að sjá til þess að alltaf verði nóg að gera í meðferðinni? Augljóst er að meðferðarstofnanir ríkisins nytu góðs af því að úr drykkju drægi. Þá gætu þær snúið sér að mikilvæg- ari verkefnum á sviði geðhjálpar en því að leitast við að rífa menn upp úr sjálfskaparvítinu. Hins vegar horfir náttúrlega illa fyrir einkaaðil- um sem meðferð stunda ef dregur verulega úr aðsókn. Þá stefnir bein- línis í verkefnaleysi - og peninga leysi. Þess vegna má það náttúrlegí alls ekki gerast að fólk steinhætt að drekka. Forysta SÁÁ, sem e: náttúrlega á framfæri hins opinben eins og svokallað forvarnarfólk sen fjölgar nú eins og mýi á mykju skán, verður að sjálfsögðu að hafí sína drykkjumenn hvort sem þeii eru kenndir við hófdrykkju eðí haugdrykkju eða eitthvað annað Hún veit auðvitað fullvel að enginr ánetjast áfengi sem ekki neytii þess. Alvarlegast í þessu eru þó skila- boðin til barna og unglinga: Það er allt í lagi að drekka - en bara í hófi. Hvernig væri nú að koma með uppskriftir að hófreykingum, hófkannabisneyslu eða hóflegri notkun morfíns og ópíums? En það síðastnefna var selt í lyfjabúðum - og fékkst án lyfseðils fram eftir öldinni. Svo er augljóst að ekki þarf margra ára drykkju til að vinna sjálfum sér eða öðrum tjón. Jafnvel fyrsta ölvunin getur stefnt mönnum í háska eða komið þeim til að vinna ódæði, til að mynda drukknum und- ir stýri. Því er gott að hafa vísuna mína gömlu í huga: Hófdrykkjan er heldur flá, henni er valt að þjóna. Hún er bara byijun á að breyta manni í róna. ÁRNI HELGASON, Stykkishólmi. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.