Morgunblaðið - 20.11.1997, Side 1
88 SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
265. TBL. 85. ÁRG. FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
imiiimitritiiiiiiKi!
Ill I IHP.W J»A |MM» l • • •* »
llfM
,1111111111 f
Reuters
EGYPSKUR lögreglumaöur, vopnaður AK-47 riffli, stendur vörð við hof
Hatshepsut drottningar í Lúxor. Egypsk yfirvöld hafa boðað herta
öryggisgæslu í kjölfar morða á tæplega 60 ferðamönnum á mánudag.
Tsjúbajs verður
af ráðherrastól
Moskvu. Reuters.
DUMAN, neðri deild rússneska
þingsins, skoraði í gær á Borís
Jeltsín Rússlandsforseta að víkja
Anatolí Tsjúbajs aðstoðarforsætis-
ráðherra og fjármálaráðherra úr
stjórninni. Forsetinn hefur ákveðið
að enginn aðstoðarforsætisráðherr-
anna geti gegnt öðrum ráðherra-
embættum og það þýðir að Tsjúbajs
verður af fjármálaráðuneytinu.
Talsmaður Jeltsíns, Sergej
Jastrzhembskí, sagði að forsetinn
hefði samþykkt tillögu um að ráð-
herrarnir gegndu aðeins einu emb-
ætti og lagði áherslu á að það ætti
ekki aðeins við um Tsjúbajs. Búist er
við að tilkynnt verði formlega um
þessa breytingu eftir fund Jeltsíns
með Viktor Tsjernomyrdín forsætis-
ráðherra í dag.
Ákvörðun Jeltsíns gerir Tsjúbajs
kleift að hverfa með reisn úr fjár-
málai'áðuneytinu eftir að hafa sætt
harðri gagnrýni fyrir að hafa þegið
greiðslu fyrir bók um einkavæðing-
una í Rússlandi.
Fjórir aðrir aðstoðarforsætisráð-
herrai- gegna öðrum ráðherraemb-
ættum, þeir Borís Nemtsov orku-
málaráðherra, Anatolí Kúlíkov inn-
anríldsráðherra, Oleg Sysujev vinnu-
málaráðherra og Viktor Khlystun
landbúnaðarráðherra.
Kommúnistar
ekki sáttir
Flest bendir til að Tsjúbajs haldi
embætti aðstoðarforsætisráðherra
og geti tryggt að ekki verði miklar
breytingar á efnahagsstefnu stjóm-
arinnar þótt hann hverfi úr fjármála-
ráðuneytinu. Gennadí Seleznjov, for-
seti Dúmunnar, sagði að stjórnar-
andstaðan gæti ekki sætt sig við að
Tsjúbajs yrði aðeins af öðru embætt-
anna.
CIA leitar
arkar Nóa
Washington. The Daily Telegraph.
BANDARÍSKA leyniþjónustan,
CIA, hyggst á næstunni birta
myndir sem teknar hafa verið
yfir Ararat-fjalli í Tyrklandi.
Par leitaði CIA arkarinnar hans
Nóa, sem sagt er frá í Gamla
testamentinu. A myndunum,
sem voru teknar úr ryósnaflug-
vélum og njósnahnöttum, má sjá
skipslaga far í hlíðum íjallsins
en það er huhð snjó.
Myndirnar voru teknar í
njósnaleiðöngrum fyrir árið
1976. Þegar farið kom í Ijós á
myndunum var CIA veitt fé til
að hefja rannsókn á því.
Sérfræðingar við Virginíuhá-
skóla, sem séð hafa hluta
myndanna, segja þær sýna leif-
ar skips sem hafi skemmst mik-
ið undir íshettunni á fjallinu.
Það sé þó ekki eins stórt og
sagt er frá í Biblíunni, en þar
segir að örk Nóa hafi verið 300
alina löng, um 150 metrar.
Mubarak
boðar
hertar
aðgerðir
Utanríkisráðherrar funduðu í nótt í Genf um deilu fraka og Sameinuðu þjoðanna
„Míkíl hætta“ sögð af efna-
vopnaframleiðslu Iraka
Kaíró, Tókýó. Reuters.
RÍKISSTJÓRN Egyptalands hefur
gefið út fyrirmæli um að hert verði á
öryggisráðstöfunum við ferðamanna-
staði eftir að öfgamenn réðust á
ferðamenn í Hatshepsut hofinu í
Lúxor á mánudag og urðu 58 erlend-
um ferðamönnum að bana.
Hosni Mubarak, forseti Egypta-
lands, hóf herferð fyrir bættu öryggi
með því að vikja Hassan el-Alfi úr
embætti innanríkisráðherra á þriðju-
dag. Þá gaf hann Kamal Ganzouri,
forsætisráðherra fyrirmæli um að
setja saman „skothelda" áætlun um
það hvernig standa eigi vörð um ör-
yggi útlendinga í landinu.
Varað við ferðum til
Egyptalands
Genf, New York, Kaíró. Reuters.
UTANRÍKISRÁÐHERRAR
Bandaríkjanna, Rússlands, Bret-
lands og Frakklands áttu í nótt
fund í Genf, sem boðað var til í
skyndingu til að reyna að finna
lausn á deilu Iraka og Sameinuðu
þjóðanna (SÞ). Fundurinn var hald-
inn að frumkvæði Rússa, sem kváð-
ust myndu leggja fram friðaráætl-
un. Þeir og Frakkar vildu að rætt
yrði hvernig frakar gætu fengið SÞ
til að aflétta viðskiptabanni á landið,
svo og hvemig leysa ætti deiluna
um brottvísun bandarískra starfs-
manna vopnaeftirlits SÞ frá írak í
síðpstu viku.
í gær gáfu starfsmennirnir ör-
yggisráði Sameinuðu þjóðanna
skýrslu um vopnaframleiðslu íraka
og sagði Bill Richardson, sendi-
herra Bandaríkjanna hjá SÞ, að
gereyðingarvopn íraka sköpuðu
„mikla hættu“. Sagt er að vopnaeft-
irlitið telji íraka geta framleitt ban-
vænt sinnepsgas á nokkrum dögum.
Talsmaður franska utanríkis-
ráðuneytisins lýsti því yfir í gær að
tilgangurinn með Genfarfundinum
væri að reyna að „sjá ljósið við enda
ganganna ... takist samvinna verð-
ur það verðlaunað. Bundinn verður
endi á viðskiptabannið.“
Bill Clinton Bandaríkjaforseti
ítrekaði að engin eftirgjöf kæmi til
greina, frakar yrðu að hlíta eftirliti
SÞ. Bandaríski og breski herinn
hafa aukið viðbúnað sinn á Miðjarð-
arhafi og Kúveit, komi til átaka.
Héldu sex F-117A bandarískar
stealth-þotur áleiðis til Kúveit í
gærkvöldi. Hins vegar leggja utan-
rflásráðherrarnir, þeirra á meðal
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, áherslu á að
friðsamleg lausn náist.
Prímakov gerir sér
góðar vonir
Taretj Aziz, aðstoðarforsætisráð-
herra Iraks, fundaði í gær og á
þriðjudag með stjómvöldum í
Moskvu um lausn deilunnar og við
komuna til Genfar í gærkvöldi lýsti
Jevgení Prímakov, utanríkisráð-
herra Rússa, því yfir að hann
„byggist við miklum árangri".
Fundur vopnaeftirlitsmanna með
öryggisráði SÞ var lokaður en í
skjölum sem Rcuters-fréttastofan
sá, kemur fram að eftirlitsmenn
telja að ekkert takmarki getu fraka
til að þróa og framleiða efnavopn.
Auk sinnepsgass er nefndur miltis-
brandssýkill, sem koma má fyrir í
kjarnaoddum með litlum fyrirvara.
Fundurinn hjá Oryggisráðinu var
eins og Genfarfundurinn haldinn að
fmmkvæði Rússa sem hafa gagn-
rýnt harðlega þá ákvörðun Rich-
ards Butler, yfirmanns vopnaeftir-
litsins, að kalla eftirlitsmennina
heim frá írak.
Undanfarna daga hafa margar
ríkisstjórnir varað þegna sína við
ferðum til Egyptalands og hundmð
ferðamanna hætt við ferðir sínar
þangað.
Þá hafa erlendar ríkisstjórnir lagt
að stjórnvöldum í Egyptalandi að
grípa til hertra aðgerða til að
tryggja öryggi ferðamanna. Klaus
Kinkel, utam’fldsráðherra Þýska-
lands, sagði að þótt það væri allt að
því ómögulegt að stöðva „öfgasinn-
aða hryðjuverkamenn" yrði Egypta-
land að gera betur en hingað til.
-----------------------
Sjöburar í
heiminn
Des Moins. Reuters.
FYRSTU sjöburarnir, sem allir hafa
lifað fæðinguna af, komu í heiminn í
Iowa í Bandaríkjunum í gær. Börnin
em frá 0,9 kg og upp í 1,5 kg, fjórir
drengir og þrjár stúlkur.
Móðh þeirra tók frjósemislyf en
hún er babtisti og neitaði að láta
eyða hluta fóstranna til að auka
lífslíkur hinna.
Morgunblaðið/Kristján
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra, Þorsteinn Már Baldvinsson, forsljóri Samheija,
og Gerhard Schröder í brúnni á Guðbjörginni.
Schröder í
Guðbjörgu
GERHARD Schröder, forsætisráð-
herra Neðra-Saxlands, hóf í gær
þriggja daga íslandsheimsókn sína
á móttöku um borð í Guðbjörgu,
einu skipa Samherja, sem liggur
við bryggju á Akureyri. Samheiji
átti nýlega í viðræðum við stjóm-
völd í Neðra-Saxlandi um kaup á
hlut þeirra í útgerðarfyrirtækinu
Deutsche Fischfang Union GmbH.
Þorsteinn Már Baldvinsson, for-
stjóri Samherja, ávarpaði gcsti í
brúnni á Guðbjörgu. Bauð hann
Schröder að setjast í skipstjóra-
stólinn með þeim orðum að í
stjómmálum væri Schröder í sæti
skipstjórans.
I dag mun Schröder eiga viðræð-
ur við utanrikisráðherra, þiggja há-
degisverðarboð forsætisráðherra,
eiga fund með sjávarútvegsráð-
herra og heimsækja forseta íslands.
■ Sterk tengsl milli/35