Morgunblaðið - 20.11.1997, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 20.11.1997, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1997 39 AÐSENDAR GREINAR Erfðir og aukakíló MARGIR sem berjast við aukakíló og almenna þyngdarstjómun vilja kenna slæmum genum um. Þessir einstakling- ar hafa að vissu leyti rétt fyrir sér. Ef annað foreldra okkar er of þungt em líkurnar 40-50% á að við verðum það líka. Ef báðir foreldrar era of þungir fara líkurnar upp í 70-80%. Það er erfítt að segja til um hvort þetta megi rekja til ættgengni eða um- hverfisaðstæðna. Marg- ar rannsóknir hafa verið gerðar um hvort óhófleg fít- usöfnun sé ættgeng og komið hefur fram að börn foreldra sem era ekki í kjörþyngd og eru ættleidd til for- eldra sem era í kjörþyngd hafa rík- ari tilhneigingu til þess að verða of þung. Auðveldara að breyta stærð en lögun Þrátt fyrir þessa vitneskju er ljóst að hvernig sem gen okkar era og hvar og hvernig sem við ölumst upp, geta allir komið sér í gott lík- amlegt form og haldið sér í kjörþyngd. Við getum verið viss um að við erfum lögun foreldra okkar eða ömmu og afa o.s.frv. Ef annað eða báðir foreldrar safna fitu á efri hluta líkamans (eplalögun) era auknar líkur á að við fítnum á sömu stöðum. Sama á við ef fitusöfnunin er á neðri hluta líkamans, þ.e. á mjöðmum og læram (peralögun), sem er algeng- ara á meðal kvenna. Hvort sem þú hefur svokallað „epla“- eða „pera“- vaxtarlag getur þú breytt stærð þinni (fituhlutfalli) en lögunina hef- ur þú erft og henni verður varla breytt. Breiðu mjaðmirnar hennar ömmu Nútímavísindi segja okkur að það sé heilsufarsleg áhætta að vera með of mikla líkamsfitu. Til að ákv- arða hvort þú sért í aukinni heilsu- farslegri hættu vegna ofþyngdar geturðu mælt mitti þitt og mjaðmir. Karlmenn sem era með breiðara mitti en mjaðmir era í áhættuhóp. Sama má segja um konur sem hafa mittismál meira en 80% af mjaðmamáli. Tilhneiging til fitusöfnunar er óbreytanlegur eiginleiki eins og augnlitur. Við getum tekist á við veikleika okkar og lært að stjóma þyngd okkar. Of margir trúa bhnt á erfðafræðilega þáttinn um stærð og lögun lík- amans og telja jafnvel litla möguleika á að komast í gott líkam- legt form. Þetta er til allrar hamingju hinn mesti misskilningur. Þó að vissulega ráði erfðir miklu, þá stjóm- um við sjálf neyslu- og hreyfivenjum okkar. Aukin hreyfing og skynsamlegt fæðuval era venjur sem skila okkur Tilhneiging til fitusöfn- unar er ekki óbreytan- legur eiginleiki. Hrafn Friðbjörnsson hvetur fólk til að takast á við veikleika sína og læra að stjórna þyngdinni. betri heilsu og betra lífí. Það skipt- ir ekki máli þótt þú hafir erft breiðu mjaðmirnar hennar ömmu þinnar, þær þurfa ekki að vera feit- ar maðmir. Duft í dollum og skyndilausnir í starfi mínu sem líkamsrækt- arþjálfari hef ég heyrt ýmsar af- sakanir og ranghugmyndir. Við sem störfum á heilsu- og lík- amsræktarsviði, þurfum í samein- BIODROGA snyrtivörur ingu að vinna að þvi að veita fólki réttar upplýsingar og fræðslu um leiðir til að komast í gott líkamlegt form á skynsamlegan hátt hvort sem fólk er innan eða utan við kjörþyngd. Við þekkjum það öll þegar líkamsástandið er ekki sem skyldi, þá er oftar en ekki gripið til gömlu úreltu aðferðarinnar sem nefnist megranarkúr. Áreynslu- laus „þægileg“ skyndilausn sem því miður er aðeins tímabundin lausn og tekur ekki á grannvand- anum sem er hreyfingarleysi og slæmar neysluvenjur. Ekkert lát virðist á framboði dufts í dollum, pillum og ýmiss konar skyndi- lausnum í megrun, þrátt fyrir að fræðsla hafi aukist. Stöðvum þenn- an endalausa megranarkúrafarald- ur sem stuðlar að síaukinni fit- usöfnun. Okkur ber skylda til að hugsa um framtíð barnanna og stuðla að því að þau alist upp við hollar neysluvenjur og heilbrigða hreyf- ingu. Við þurfum að vera fyrir- myndir sem sýna gott fordæmi og hvetja þau og fræða um mikilvægi þess að hugsa um heilsuna. Með stuðningi okkar og hvatningu sönnum við máltækið „heilbrigð sál í hraustum líkama“ Munum að erfðii- era aðeins einn af mörgum þáttum sem hafa áhrif á þyngd okkar. Ásökum ekki for- eldra eða umhverfí vegna eigin ofþyngdar því okkar er valið. Tökum ábyrgð á eigin lífi, temjum okkur heilbrigðari h'fsstfl og náum yfirráðum yfir eigin líkama, heils- unnar vegna. Höfundu r er fram k væm dus tjóri, ACE líkamsræktarþjálfari og ICS næringarráðgjafi. hvermínúta eftir kl.ig.oo á kvöldin PÓSTUR OG SÍMI Hrafn Friðbjömsson á tilboðsverði Sérfræðingur frá Jensen dýnuverksmiðjunum í Noregi verður í verslun okkar dagana 20. - 22. nóvember. Af því tilefni veitum við 15% afslátt af Jensen dýnum. Einnig bjóðum við rúm og höfðagafla á sérstöku tilboði. Nú er kjörið tækifæri til að eignast gæðadýnu og rúm á góðu verði. Jensen dýnurnar fást ífjölmörgum gerðum og útfœrslum Tilboð á rúmum og höfiðagöflum inn til okkar og gerðu góð kaup á dýnum og rúmum. Opið á virkum dögum frá kl. 9 -18, laugardögum frá kl. 10 - 16 og sunnudögum frá kl. 14 -16 TM - HÚSGÖGN SíSumúla 30 - Sími 568 6822 SíSumú
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.