Morgunblaðið - 20.11.1997, Page 23

Morgunblaðið - 20.11.1997, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1997 23 ERLENT Deilt um lesbískan prest Ósló. Reuters. LESBÍSKUR prestur í Noregi, sem giftist ástkonu sinni í and- stöðu við reglur kirkjunnar, varð tilefni deilu og hvassra orðaskipta á norska þinginu í gær. Nokkrir stjórnarandstæðingar gagnrýndu ummæli Jons Lilletuns kirkjumálaráðherra, sem sagði um helgina að presturinn, Siri Sunde, ætti að segja af sér. Kjeil Magne Bondevik forsætisráðherra, sem hefur sjálfur verið vígður prestur í norsku þjóðkirkjunni, varði um- mæli ráðherrans. „Ég tel ekki að það sé ótilhlýði- legt að ráðherrann bregðist við núna,“ sagði Bondevik og bætti við að Lilletun hefði einnig tekið „skýrt fram að kirkjan sjálf myndi taka á málinu“. Hann benti enn- fremur á að Rosemarie Kohn, fyrsta konan sem hefur verið vígð biskup í Noregi, teldi að Sunde hefði gengið á bak orða sinna með því að ganga að eiga ástkonu sína fyrr á árinu. Sunde hefur verið leyst frá störfum tímabundið og búist er við að biskupar kirkjunnar ákveði í næsta mánuði hvort hún verði svipt hempunni. Vinstrisinnar á þinginu gagnrýndu Lilletun fyrir að leggja blessun sína yfir að kirkj- an meini hommum og lesbíum að gegna preststörfum þótt lög lands- ins banni að þeim sé neitað um ráðningu eða vikið frá vegna kyn- hneigðar sinnar. Líklegt talið að Benjamin Netanyahu standist atlögu flokksbræðra sinna Stuðningsmenn segja andstöðuna „lúalega44 Jerúsalem. Reuters. STUÐNINGSMENN Benjamins Netanyahus, forsætisráðherra ísraels, létu til sín taka í gær og gagnrýndu harðlega andstæðinga hans innan flokksins, er vilja bola honum frá völdum. Tzahi Hanegbi, dómsmálaráðherra, sagði „valda- ránstilraunina" vera „lúalega, óheiðarlega niðurrifsstarfsemi". Netanyahu kom til ísraels í gær úr för til Bandaríkjanna og Bret- lands. Andstæðingar Netanyahus í Likudbandalaginu segjast ekki geta sætt sig við yfirráð forsætis- ráðherrans í flokknum og í síðustu viku hvöttu þeir til að hann yrði settur af. „Það er óviðeigandi að fólk með pólitískan metnað ijúfi pólitískar hefðir og tefli þjóðar- hagsmunum í tvísýnu," sagði Net- anyahu er hann var á leið heim í gær. Fundur með Jórdaníukonungi Skrifstofa forsætisráðherrans beindi í gær athyglinni að för ráð- herrans og fundi er hann átti með Hússein Jórdaníukonungi. Hefði náðst „alger sátt“ milli leiðtog- anna. Samskipti ríkjanna versnuðu til muna er upp komst um mis- heppnaða tilraun útsendara ísra- elsku leyniþjónustunnar til að ráða stjórnmálaleiðtoga Hamas sam- takanna af dögum í Amman, höf- uðborg Jórdaníu, í september. Fréttaskýrendur segjast flestir telja líklegt að Netanyahu muni standa þetta veður af sér. Þeir sögðu þó að vegna veikrar stöðu forsætisráðherrans í Likud væri ólíklegt að hann yrði við völd út kiörtímabilið, en því á að ljúka árið 2000. „Netanyahu er í mjög erfiðri aðstöðu og hún fer síversnandi," skrifaði blaðamaðurinn Amnon Denkner. Annar fréttaskýrandi, Yaron Dekel, sagði að Netanyahu hefði aldrei staðið frammi fyrir jafn erfiðu vandamáli frá því hann varð forsætisráðherra. Netanyahu bar sigurorð af Shimon Peres, þáverandi forsætis- ráðherra og leiðtoga Verkamanna- flokksins, í fyrstu almennu kosn- ingunum til forsætisráðherraemb- ættisins á liðnu ári. Samkvæmt nýju kosningalöggjöfinni þurfa a.m.k. 80 þingmenn af 120 að samþykkja nýjar forsætisráðherra- kosningar án þess að kjósa þurfi nýtt þing. Mjög ólíklegt þykir að svo fari. Líklegra er hins vegar að van- trauststillaga, sem þarf stuðning 61 þingmanns, verði stjórninni að falli einhvern tíma síðar á kjör- tímabilinu, hugsanlega vegna deilna um fjárlög eða friðarumleit- anir ísraela og araba. Silvan Shal- on aðstoðarvarnarmálaráðherra spáði því að Ehud Barak, leiðtogi Verkamannaflokksins, kæmist til valda ef efnt yrði til nýrra forsætis- ráðherrakosninga. Ef marka má skoðanakannanir nýtur Barak nú meira fylgis en Netanyahu. Snýst ekki um hugmyndafræði Þótt ósveigjanleg afstaða Net- anyahus í friðarumleitunum hafi valdið mikilli gremju meðal araba snýst valdabaráttan í Likudbanda- laginu ekki um hugmyndafræði. Tveir af helstu andstæðingum hans í Likud, Benny Begin, fyrr- verandi ráðherra, og Limor Livnat fjarskiptaráðherra, þykja standa lengra til hægri í ísraelskum stjórnmálum en forsætisráðherr- ann. Tveir aðrir af andstæðingum Netanyahus tilheyra hins vegar vinstri væng flokksins, en það eru Dan Meridor, fyrrverandi fjár- málaráðherra, og Roni Milo, borg- arstjóri Tel Aviv. Sá sem þykir líklegastur til að verða eftirmaður Netanyahus verði hann hrakinn frá völdum er Ehud Olmert, borgarstjóri Jerúsalem, sem hefur reynt að höfða til beggja fylkinganna. MeXlkÓskir lampar, afrískir púðar og dúkar, húsgögn & gjafavara Nýbýlavegi 30. Sími 554 6300. Opið sunnudag 13-17 KitchenAid DRAUMAVÉL HEIMILANNA! KM90: Verð frá kr. 29.830 stgr. m/hakkavél. Margir litir. Fæst um land allt. 50 ára frábær reynsla. ///* Einar Farestveit&Co. hf. Borgartúni 28 'S 562 2901 og 562 2900 STAKIR JAKKAR BATISTINI SKYRTUR ÁÐUR 2.9, «EASY CARE’ BUXUR SPARI SKOR Ath Sendum í póstkröfu. Grænt númer 800-5730. Simi 562-9730 Fax 562-9731 DRESS MANN LAUGAVEGI 18 B - REYKJAVIK

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.