Morgunblaðið - 20.11.1997, Síða 60

Morgunblaðið - 20.11.1997, Síða 60
60 FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1997 MORGUNBLAÐIÐ Lagenmál eru okkar sérgnein Þjonusta - þekking - ráðgjöf. Áratuga reynsla. þýsk gæðavara beurer beurer 1.. ..i______i 1 ^Beurer) rafmagnshitapúðar Yfir 40 ára reynsla hér á landi. Fæst í apótekum, kaupfélögum og raftækjaverslunum um allt land. 75 ára reynsla feeeurer) á framleiðslu. TILBOÐ UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN SUNDABORG 1, RVK • SÍMI568 3300 • FAX 568 3305 FÓLK í FRÉTTUM Nýja myndastofan Laugavegi 18, sími 551 5125 SÖNGKONAN og leikkonan Courtney Love sem kvikmynda- stjarnan Jean Harlow. Bjóöum allskonar lager- og hillukerfi fyrir vélvædd vörugeymsluhús sem minni lagera. Innkeyrslurekkar sem rúllurekkar. Aðeins vönduð vara úr sænsku gæðastáli. Mjög gott verð. Bjóðum einnig sérhæfð lyftitæki. Leitið ráöa við skipulagningu og byggingu lagerrýma. MECAUJX KYIKMYNDIR/Sambíóin frumsýna á morgun spennumyndina Incognito með þeim Jason Patrick og Iréne Jacob 1 aðalhlutverkum. Myndin fjallar um listaverkafalsara sem verður að koma upp um sjálfan sig til að losna við ákæru um þjófnað og morð. Svindlari í kröppum dansi Fegurð er vald HARRY hyggst snúa við blaðinu og snúa sér að löglegri listsköpun undir eigin nafni. ISABELLA Rossellini förðuð sem átrúnaðargoð Aucions, Barbra Streisand. HARRY Donovan (Jason Patrick) er myndlistarmaður sem hlotið hefur sérstaka náðargáfu í vöggu- gjöf og eru málverk hans í háveg- um höfð á heimilum margra þekkt- ustu listaverkasafnara heims og jafnframt hanga þau í flestum helstu listasöfnunum. Hæfileikai- hans, ástríða og lífsstarf hans felst eingöngu í því að mála myndir, en samt er engum kunnugt um nafn listamannsins. Hann ritar ekki nafn sitt á verkin, og ef hann merkir þau á annað borð er það með nöfnum helstu myndlistar- manna sögunnar. Harry Donovan er því óþekktur í heimi listanna og þannig vill hann einmitt hafa það því hann er listaverkafalsari að at- vinnu. En hann hyggst engu að síður snúa við blaðinu og snúa sér að löglegri listsköpun undir eigin nafni. Til að standa skil á hálfrar milljónar dala skuld ákveður hann þó að takast á við erfiðasta verk- efni sitt til þessa, en það er að gera portrett í anda sjálfs Rembrandts. Þetta verður mesta snilldarverk hans og flestir helstu sérfræðingar heims láta blekkjast. En skyndi- lega skipast veður í lofti og Harry er grunaður og efth'lýstur fyrir að hafa stolið þessum nýuppgötvaða Rembrandt og jafnframt er hann eftirlýstur fyrir morð. Eina von hans til að leiða sannleikann í ljós er listfræðingurinn Marieke van der Brock (Iréne Jacob), sem alla tíð hefur efast um að Rembrandt- inn sé ekta. Ófús verður Mai'ieke félagi Harrys á flóttanum undan réttvísinni og í tilraun hans til að sýna fram á að hann sé höfundur málverksins. Þau verða að forðast handtöku um leið og þau reyna að sanna að Harry málaði myndina og eftir að hafa starfað í nafnleynd verður Harry að svipta af sér hul- unni til að bjarga lífi sínu. Leikstjóri Incognito er John Badham sem fyrst sló í gegn þegar hann leikstýrði metaðsóknannynd- inni Saturday Night Fever með John Travolta í aðalhlutverki, en áður hafði hann leikstýrt einni kvikmynd. Meðal mynda sem Bad- ham hefur síðan leikstýrt eru Blue Thunder, Stakeout, The Hard Way, Point of No Return og Another Stakeout. Þá gerði hann nýlega myndimar Nick of Time HARRY Donovan (Jason Pat- rick) leggur síðustu hönd á „Rembrandtinn" sem á að verða lykill hans að heiðvirðu listamannslífi. með Johnny Depp í aðalhlutverki og Drop Zone með Wesley Snipes. Framleiðandi Incognito er James G. Robinson, sem m.a. á að baki myndirnar Young Guns, Dead Rin- gers, Robin Hood: Prince of Thi- eves, The Crush, True Romance og Ace Ventura-myndirnar. Þegar hann las handritið að Incognito sá hann strax að morðsaga sem gerist í völundarhúsi listaverkafalsana byggi yfir miklum möguleikum, og evrópskt sögusviðið og þéttofin sagan um baksvið falsana ætti fullt erindi á hvíta tjaldið. Þrjár evr- ópskar stórborgir leika stóran þátt í myndinni og fór kvikmyndatakan fram á mörgum vinsælustu stöðum ÞAU Harry og listfræðingur- inn Marieke van der Brock (Iréne Jacob) reyna að sanna að Harry hafi málað myndina og sé því saklaus af morð- ákæru og þjófnaði. Evrópu. Þar á meðal eru listasöfnin og síkin í Amsterdam, Notre Dame og Signa í Pan's og Thamesá og þinghúsið í London, en þar í borg koma t.d. Victoria lestarstöðin og ýmsir staðir í West End við sögu. Jason Patrick sem leikm- lista- verkafalsarann Harry Donovan sást síðast í Speed 2: Cruise Control með Söndru Bullock, en þar á undan lék hann í Sleepers. Patrick er fæddur í New York en 16 ára gamall flutti hann til Los Angeles. Fyrsta hlutverkið fékk hann í sjónvarpsmyndinni Toug- hlove með þeim Lee Remick og Bruce Dem i aðalhlutverkum. I kjölfarið fylgdu svo hlutverk í Lost Boys, The Beast, After Dark My Sweet, Rush og Geronimo: An American Legend. Næsta mynd hans verður The Gipp, sem Francis Ford Coppola leikstýrir. Iréne Jacob er fædd í Sviss og sló hún á sínum tíma í gegn í myndinni Au Revoir Les Enfants sem Lois Malle leikstýrði, en hún á orðið að baki fjöida mynda. Alþjóð- lega frægð hlaut hún efir að hafa leikið í myndinni Tvöfalt líf Veróníku sem Krzysztof Kieslowski gerði, og fyrir það hlut- verk hlaut hún verðlaunin sem besta leikkonan á kvikmyndahátíð- inni í Cannes árið 1991. Næst lék hún í Rauðum sem Kieslowski gerði og hlaut sú mynd tvær til- nefningar til óskarsverðlauna, og síðast sást hún í Othello þar sem hún lék á móti þeim Kenneth Branagh og Laurenee Fishburne. Fleiri þekktir leikarar koma fram í Incognito og meðal þeirra eru Rod Steiger og breski leikarinn Ian Richardson sem sennilega er þekktastur fyri að leika stjómmála- manninn Francis Urquart í sjón- varpsþáttaröðinni House of Cards. ►í BÓKINNI „Making Faces“ gefur förðunarmeistarinn Kevyn Aucoin ráðleggingar um snyrtingu, segir gamansögur frá ferli sínum sem einn eftir- sóttasti maðurinn á sínu sviði í BandaiTkjunum og sýnir hæfni sína með því að mála andlit þekktra kvenna þannig að þær líkjast ekki sjálfum sér heldur öðrum þekktum konum. Aucion breytir t.d. Lisu Mariu Presley í Marilyn Monroe og Co- urtney Love í Jean Har- low. Árið 1995 hlaut Aucion verðlaun Council of Fas- hion Designers of America og er hann eini förðunarmeistar- inn sem hefur hlotið þann heið- ur. Aucion er samt ekki stolt- astur af þeim áfanga í ferli sín- um heldur því að Vogue fékk hann til að farða dívuna sjálfa, Barbra Streisand. Að sögn Aucion var hrifning hans á söngkonunni, leikkonunni og leiksljóranum svo yfirþyrmandi að hann þurfti að fara nokkrum sinnum fram á bað til þess að gráta. Aucion fann köllun sína snemma. Ellefu ára gamall tók hann til við að mála yngri syst- ur sína svo að hún liti út eins og fyrirsætur Vogue. Hjónin sem höfðu ættleidd drenginn urðu skelfingu lostin yfir þessari undarlegu hegðun hans. Kyn- hneigð Aucion þótti heldur ekki viðeigandi í smábæ í Louisiana á áttunda áratugnum og segir hann afrek lífs síns að komast lifandi frá því fylki og finna sinn eigin Iífsstíl. I dag er Aucion einn af mest áberandi talsmönnum homma í Banda- ríkjunum. FEGURÐ er vald, samkvæmt förðunarmeistaranum Aucion. Lisa Maria Presley sem Marilyn Monroe. Hjá okkur færðu yfir 90 gerðir af brjóstahöldum/settum í___1 lym paía. Laugavegi 26, sími 551 3300, Kringlunni 8-12, sími 553 3600. LÍMMIÐAPRENT Pegar þig vantar límmiðal Skemmuvegi 14 • 200 Kópavogur Sími: 587 0980 • Fax: 557 4243 Farsími: 898 9500 Blað allra landsmanna! -kjarni málsins! Frumsýning

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.