Morgunblaðið - 20.11.1997, Blaðsíða 64
* 64 FIMMTUDAGUR 20. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
' 'i
HÁSKÓLABÍÓ
# *
HASKOLABIO
Hagatorgi, símí 552 2140
Sýnd kl. 7, 9.15 og 11. BJ ieára.
Leikstjóri: Kenneth I
Aðalhlutverk: Kennet
Julie Christie, Rich.
Sýnd kl. 6. Siðustu
Sýnd kl. 7, 9 og 11.
Sýnd kl 5.
mpýmíM
-JJ J
Alfabnkka Ö, simi S07 8900 og 507 8905
nns i
GONöFIRACY
THEORY
Tveir af fyndnustu mönnum heims, Robin Williams
og Billy Crystal, eru hér í fyrsta sinn saman í
sprenghlægilegri grínmynd í leikstjórn Ivan
Reitman (Ghostbuster, Twins). Þá kemur einn
heitasti karlleikarinn í dag fram í skemmtilegu ges-
tahlutverki. Hver?
ROBIN
MYND
Allt sem hí
sagði var:
„Þú átt
hann
...en
sagði þi
WILUAMSs“ BILLY CRYSTAL
EFTIR IVAN REITMAN
Isún
tmlflicrakki.
Tveirpobbar.
Stór Ipurning!
Sýnd kl. 5, 6.45, 9 og 11 . B.i. 14
Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. ÖDQDIGFTAL
, , , Sýnd kl. 9.05 og
breakdown 11.20.
Sýnd kl. 9.
FACE/OFF B.I16.
fnim ví Sýndkl. 5.
UMEENNBIGÍM fi I IM u. taii
Periur og Svm sý7n^kl9 5
I 35.000
fctuni
tekur
, stefnn
forset-
hryðju-
verka-
málum
óvænta
stefnuí
www.pepsi.com/peacemaker
www.samfilm.is
Send-
" ing frá
Eyjum
TÓrVIJST
Geisladiskur
ÞJÓÐFLOKKURINN
Geisladiskur „E1 Puerco"; Elíasar
Bjarnhéðinssonar frá Vcstmannaeyj-
um. Lög eru eftir Elias, utan nokkur
eftir Hlöðver S. Guðnason.
Hljóðmaður var Addi 800. Útgefandi
Stöðin. 1.999 kr. 50 min.
UNDIRRITAÐUR tekur starf
sitt sem tónlistargagnrýnandi alvar-
lega. Full ástæða er til, þar sem því
fylgir mikil ábyrgð að fjalla um hug-
arfóstur manna; oft ávöxt mikillar
vinnu; í blaði allra landsmanna. Sá
sem þetta ritar reynir að hlýða á
misjafnar afurðir íslenskra tónlistar-
manna með opnum hug og hlusta
fímm til sex sinnum á „fórnar-
lambið" áður en dómur er upp
kveðinn.
Því fylgir vandamál, þar sem sum-
ar plötur eru þess eðlis að ekki er
ljúft, stundum jafnvel kvöl og pína, á
þær að hlýða. Þannig er mál með
vexti um Þjóðflokkinn, plötu Elíasar
Bjarnhéðinssonar sem kallar sig E1
Puerco.
Best er hægt að.lýsa tónlist Elías-
ar með því að kalla hana leiðinlega,
því það er hún sannarlega. Lögin eru
fábreytileg og ófrumleg; byggjast að
miklu leyti á endurtekningu, þai1 sem
síðasta lína erindis er endurtekin
hlustandanum til takmarkaðrar
ánægju.
Hljómurinn er dæmigerður og ís-
lenskur, minnir mjög á níunda ára-
tuginn með gervilegu hljómborði,
u dauðum trommuhljómi og „iðnaðar“-
gítarleik. Hljóðfæraleikur er hins
vegar ágætur miðað við að hann er
beinn, platan er tekin upp „live“ á
einum degi. Digurbarkaleg rödd Elí-
asar er afar leiðigjörn og gítar er
falskur á köflum.
Textar Elíasar eru skömminni
skárri en tónlistin; bera vott um sér-
visku og eru margir hverjir „smelln-
ir“ ef svo má að orði komast: „En
þarna var maður með „moonface" /
þekktur fyrir konupett. / Hann var
yfirmaður „in this place“ / hann
káfaði á konum alveg pottþétt.“
Hrein snilld.
Geislaplatan Þjóðflokkurinn átti
ekki erindi á markað. Nær hefði
verið fyrir Elías að dreifa upptökum
til skyldmenna og vina, því ég get
ekki ímyndað mér að nokkur annar
hafi minnsta áhuga á að hlýða á þessi
ósköp.
ívar Páll Jónsson
SÓLDÖGG leikur á afmælishátið Gauksins á fimmtudagskvöld ásamt
hljómsveitinni Skítamóral, föstudagskvöld á Langasandi, Akranesi og á
laugardagskvöldinu í Stapanum Njarðvík.
Skemmtanír
■ TILKYNNINGAR í skemmtana-
rammann þurfa að berast í sfðasta
lagi á þriðjudögum. Skila skal til-
kynningum til Kolbrúnar, í bréfsima
569 1181 eða á netfang frett(a>mbl.is.
■ NAUSTKJALLARINN er opinn
fostudags- og Iaugardagskvöld. Lif-
andi tónlist bæði kvöldin. Hilmar
Sverrisson og félagar sjá um fjörið
fostudagskvöld og Gammeldansk frá
Borgarnesi laugardagskvöld.
■ RE YK J AVÍKURSTOFAN við Vest-
urgötu er opin föstudag og laugardag
til kl. 3.
■ NAUSTIÐ er opið fimmtudags- og
sunnudagskvöld til kl. 1. Föstudag og
laugardag til kl. 3. Eldhúsið opnað kl.
19. Marion Herrera frá Frakklandi
leikur matartónlist á hörpu.
■ GULLÖLDIN, Grafarvogi Gömlu
brýnin Svensen & Hallfunkel leika
fóstudags- og laugardagskvöld.
■ HÓTEL SAGA Fimmtudags- og
sunnudagskvöld er Mímisbar opinn
frá kl. 19-1. Föstudags- og laugar-
dagskvöld opið frá kl. 19-3. Raggi
Bjarna og Stefán Jökulsson leika fyrir
gesti. I Súlnasai á laugardagskvöld er
lokasýning á skemmtun vetrarins
Allabaddarf og dansleikur með
hljómsveitinni Saga Klass frá kl.
23.30-3.
■ SIR OLIVER Á föstudagskvöldum í
nóvember verður haldið Halla og
Ladda kvöld og hefst það kl. 23. A
þessum kvöldum verður gríntilboð á
öli auk þess sem konur fá glaðning til
kl. 23. Þess má geta að aðgangur er
ókeypis til kl. 22 en eftir það kostar
500 kr. inn.
■ KÁNTRÝKLÚBBURINN
KÚREKINN, Kársnesbraut 106, Kóp.
Dansæfing föstudagskvöld ki. 21.
Kúrekinn er með sýningarhóp.
■ VÍKURBÆR ' BOLUNGARVÍK
Hljómsveitin Sixties leikur laugar-
dagskvöld frá kl. 23-3.
■ LEKKERT er nafn á tríói sem fer
nokkuð óhefðbundnar leiðir. Þeir fé-
iagarnir leika mest gamla rokk- og
popptónlist td. frá Pink Floyd, David
Bowie, Tom Waits, REM og fleirum,
en það sem er óvenjulegt er hljóðfæra-
skipanin; tveir kassagítarar og kontra-
bassi! Eins og nærri má geta hafa þau
lög sem Lekkert flytur nokkuð sér-
stakan blæ, en fólk getur kynnt sér
það nánar á Fógetanum fimmtu-
dagskvöld. Lekkert skipa: Orri
Harðarson, söngur og gítar, Ragnar
Emilsson, gítar og söngur og Jón
Ingóifsson, kontrabassi og söngur.
■ VESTANHAFS leikur á Ránni
Keflavík föstudags- og laugar-
dagskvöld.
■ NEMENDAFÉLAG Fjölbrauta-
skóla Vesturlands á Akranesi stendur
fyrir afmælistónleikum skólans fóstu-
dagskvöld, en skóiinn varð 20 ára fyrir
nokkru. Fram munu koma margir
frægir tónlistarmenn hvort sem eru
gamlir nemendur úr skólanum eða
núverandi nemendur skólans, sem
dæmi má nefna hljómveitirnar GOS,
Tíbrá, Frímann, Abbababb, Mr.
Moon, Bróðir Darwins, Soul De Luxe,
Fresh, Þykkt og Orra Harðar, Halla
Melló og Önnu Halldórsdóttir.
Tónleikarnir hefjast kl. 20.30 á sal
skólans.
■ CAFÉ ROMANCE Breski pí-
anóleikarinn Liz Gammon leikur
þriðjudags- til sunnudagskvöld frá kl.
22 fyrir gesti veitingahússins. í til-
kynningu frá Romance segir að Liz
þyki ein af þeim bestu í sínu fagi í dag.
■ GRAND HÓTEL v/Sigtún A
fimmtudags-, föstudags- og laugar-
dagskvöld leikur Gunnar Páll fyrir
matargesti frá kl. 19-23.
■ GREIFARNIR halda útgáfupaití
fimmtudagskvöld á Hótel Borg frá kl.
21 í tilefni af útkomu geisladisksins í
ljósaskiptunum. Á fostudagskvöld
leikur hljómsveitin á Hótel íslandi og
á laugardagskvöld á Inghóli, Selfossi.
■ ASTRÓ Á fímmtudagskvöld halda
hljómsveitirnar Maus og Soðin fiðla
tónleika frá kl. 22.
■ HITT HÚSIÐ heldur síðdeg-
istónleika á föstudag þar sem tónlist-
armaðurinn Ölli Þeramfn kemur fram
á Kakóbarnum. Þetta eru fyrstu
Þeramín tónleikarnir sem haldnir eru
hér á landi en reyndar nýtur
hljómsveitin Soðin fiðla aðstoðar Öiia
á nýju plötunni.
■ SÓLDÖGG leikur á afmælishátíð
Gauksins á fimmtudagskvöld ásamt
hljómsveitinni Skítamóral. Þar mun
hljómsveitin kynna efni af væntanleg-
um geisladiski sínum sem hefur fengið
nafnið Breyt’um lit. Á föstudagskvöld
leikur Sóldögg á Langasandi, Aki-a-
nesi og á laugardagskvöldinu í Stapan-
um Njarðvík ásamt Helga Björnssyni.
■ FEITI DVERGURINN Á fóstu-
dags- og laugardagskvöld leikur Einar
Jónsson.
■ SKÍTAMÓRALL leikur fimmtu-
dagskvöld á Gauknum ásamt
hljómsveitinni Sóldögg. Á fóstu-
dagskvöld verður Skítamórall í Sjall-
aiium, Akureyri. Sérstakur gestur
kvöldsins er Helgi Björnsson en hann
flytur lög af nýjum geisladiski sínum.
Á laugardagskvöldinu leikur
hljómsveitin í Víkurröst á Dalvík.
■ NÆTURGALINN Á fimmtu-
dagskvöld heldur Tríó Björns
Thoroddsen tónleika en ásamt Birni
koma fram þeir Ásgeir Óskarsson,
Gunnar Ilrafnsson og Egill Olafsson.
Tónleikarnir hefjast kl. 22. Á föstu-
dags- og laugardagskvöld leikur
Hljómsveit Önnu Villvjálms og á
sunnudagskvöldinu leikur Hljómsveit
Hjördísar Geirs nýju og gömlu
dansana.
■ INGÓLFSCAFÉ Á fóstudagskvöld
ætlar Páll Óskar að koma út úr
plötuskápnum og leika stofutónlist eft-
ir eigin smekk á efri hæð frá kl. 23-3.
DJ Thomas sér um danstónlistina á
neðri hæð. Opið til ki. 3. Á laugar-
dagskvöld leikur lyftutónlist-
arstórsveitin Casino á efri hæð frá kl.
24-3 eða eftir að Páll Óskar hefur
lokið sínum leik í afmæli hjá konunni
hans Gumma Alberts. DJ Thömas
heldur áfram á neðri hæð til 3 með
danstónlist. Aldurstakmark 23 ára.
■ HÓTEL ÍSLAND Á fímmtu-
dagskvöld verða tónleikar með þeim
einu og sönnu Commitments. Húsið
opnar kl. 21, tónleikarnir byrjar kl. 22.
Miðasala er hafin á Hótel Isiandi. Á
föstudagskvöld heldur stórsýning
Björgvins Halldórssonar í útvarpinu
heyrði ég lag áfram. Sérstakur gestur
Björgvins það kvöld verður Bjarni
Arason. Á eftir verður stórdansleikur
með Greifunum tii kl. 3. Á laugar-
dagskvöld heldur Blaðamannafélag
Islands upp á 100 ára afmælishátíð
sína. Dansleikur til kl. 3, hljómsveit
Björgvins Halldórssonar skemmtir.
■ STOLÍA heldur útgáfutónleika sína
í Þjóðleikhúskjallaranum fímmtu-
dagskvöld og hefjast þeir kl. 22. Þar
mun hljómsveitin kynna nýútkominn
geisiadisk sinn Flýtur vatn. Aðgangs-
eyrir er 500 kr.
■ FÓGETINN Á fimmtudagskvöld
leikur tríóið Lekkert og á fóstudags-
og laugardagskvöld leikm- dúettinn
Hálfköflóttir en þetta eru írskættaðir
gleðipinnar. Á sunnudagskvöld leikur
Halli Reynis trúbador og á miðviku-
dagskvöld leika þeir Maggi Einars og
Tommi Tomm.
■ RÓSENBERG Á flmmtudagskvöld
heldur hljómsveitin Croisztans sína
fyrstu tónleika hér á landi frá ki. 21.30.
Hljómsveitin var stofnuð í Danmörku í
ársbyrjun og hefur starfað víða um
Evrópu í sumar. Hana skipa fjórir
íslendingar, einn Frakki og einn Dani.
Auk Croisztants munu koma fram
hljómsveitirnar The Bag of Joys og
PPPönk. Vcitingar verða í boði Karls
J. Karlssonar og er aðgangseyrir
1000 kr.
■ KAFFI AKUREYRI Ástralski
söngvarinn og hljómborðsleikarinn
Glen Valentine skemmtir gestum
fimmtudags- og föstudagskvöld. Á
laugardagskvöld er dansleikur með
Siggu Beinteins og Grétari Örvars.
■ LEIKHÚSKJALLARINN Á
fimmtudagksvöld verður Stolía með
útgáfutónieika. Húsið opnar ki. 22. Á
föstudagskvöld verður Stjórnin með
stórdansleik og á laugardagskvöld
verðm- diskótek með Sigga Hlö í
búrinu.
■ ÁRTÚN Á föstudagskvöld leikur
hljómsveitin Dansbandið gömlu
dansana. Húsið opnar kl. 22. Á laugar-
dagskvöld leikur Keflavíkur-
hljómsveitin Suðurnesjamenn frá kl.
23-3.
■ CATALÍNA KÓPAVOGI Á föstu-
dags- og laugardagskvöld leikur Viðar
Jónsson.
■ BLUES EXPRESS ieika á 2. hæð
Dubliners föstudagskvöld frá kl. 24 en
fyrir þann tíma er einkasamkvæmi. Á
laugardagskvöld leikur hljómsveitin á
Blúsbarnum.
■ GOS leikur fimmtudags- og föstu-
dagskvöld á Gjánni, Selfossi og á iaug-
ardagskvöld á Gauki á Stöng.
■ KAFFI REYKJAVÍK Efnt verður
til sérstaki’ar Grolsch viku og hefst
hún fimmtudaginn 20. nóv. Meðan á
þessai’i viku stendur verður margt
gert til skemmtunar m.a. boðið upp á
hollenska osta, hollenska smárétti og
gestir fá tækifæri til að taka þátt í leik.
Hljómsveitin Yfir Strikið ieikur
fimmtudags-, föstudags- og laugar-
dagskvöld. Hljómsveitina skipa: Sig-
urður Hrafn Guðmundsson, gítar,
Árni Björnsson, bassi, Tómas Malm-
berg, söngur, Ingvi Rafn Ingvason,
trommur og Karl Olgeir Olgeirsson,
hljómborð.
■ DUBLINER Á fimmtudagskvöld
leikur hljómsveitin Spuni BB, föstu-
dagskvöld Bjarni T. og laugar-
dagskvöld hljómsveitin Sangría.
■ RAUÐA LJÓNIÐ Dúettinn
Klappað og klárt sem skipaður er
þeim Garðari Karlssyni, gítar og
hljómborðsleikara og Kristbjörgu
Löve söngkonu, skemmtir föstudags-
og laugardagskvöld.
■ KK er á ferð um landið til að kynna
nýútkomna plötu sína. KK leikur
fimmtudagskvöld á veitingahúsinu
Við Pollinn, Akureyri, kl. 21, föstu-
dagskvöld kl. 21 á Hótel Reynihlíð,
Reykjahlíð, laugardagskvöld kl. 21 í
Samkomuhúsinu á Húsavík, sunnu-
dagskvöld kl. 21 í Grunnskólanum
Kópaskeri, mánudagskvöld ki. 21 í
Félagsheimilinu Hnitbjörg, Rauf-
arhöfn, þriðjudagskvöld kl. 21 í Fé-
lagsheimilinu Þórshöfn og miðviku-
daginn 26. nóv. kl. 21 á Hótel Tanga,
Vopnafirði.
■ FJÖRUGARÐURINN er opinn um
helgina. Veislur haldnar að hætti Vík-
inga. Magnús Kjartansson og Rúnar
Júhusson leika fyrir dansi. Fjaran er
opin öll kvöld og í hádeginu fimmtu-
dag til sunnudags. Jón Möller leikur
píanótónlist föstudags- og laugar-
dagskvöld.
■ DEAD SEA APPLE heldur
miðnæturtónleika í Rósenberg. Tii-
efni tónleikanna er að útsendari
útgáfufyrirtækisins BMG er að koma
til landsins til að hlusta á ný og eldri
lög frá hljómsveitinni. Þessi heimsókn
kemur í kjölfar útgáfu fyrstu plötu
sveitarinnar Crush. Tónleikarnir hefj-
ast stundvíslega kl. 24. Þess má geta
að frumflutt verða nokkur ný lög.
■ ÍRLAND Hljómsveitin 8-vilIt leik-
ur föstudags- og laugardagskvöld.