Morgunblaðið - 25.11.1997, Page 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 25. NÓVEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTB
30 milljóna króna hlutafjárútboð hjá Þorbirni hf.
58 milljóna hagnað-
ur fyrstu 8 mánuðina
HLUTAFJARÚTBOÐ Þorbjarnar
hf. hófst í gær. Um er að ræða allt
að 30 milljóna króna hlutafjáraukn-
ingu að nafnvirði og verða bréfín
seld á genginu 7,57. Að hlutafjárút-
boðinu loknu verður sótt um skrán-
ingu hlutabréfa fyrirtækisins á
Verðbréfaþingi Islands og er þess
vænst að skráning bréfanna geti átt
sér stað í febrúar 1998, að því er
segir í útboðslýsingu. Það er ís-
landsbanki sem mun annast útboð-
ið.
Sem kunnugt er sameinaðist
Bakki í Hnífsdal Þorbimi hf. nú í
sumar og miðaðist sameining við 1.
maí. Fyrstu átta mánuði þessa árs
nam velta Þorbjamar rúmum 1,2
milljörðum og nam tap af reglu-
legri starfsemi fyrir skatta röskum
80 milljónum króna. Uppgjörið
nær til reksturs Þorbjamar frá
janúar til ágústloka og er rekstur
Bakka inni í þeim tölum frá maí og
til ágústloka.
Tapið sem varð af rekstri hins
sameiginlega félags skýrist fyrst
og fremst af miklu tapi af rækju-
Söluhagnaður
nam 112 milljón-
um króna
vinnslu á Vestfjörðum vegna verk-
falls. A móti kemur hins vegar um
112 milljóna króna söluhagnaður
og því varð tæplega 60 milljóna
króna hagnaður af rekstri félagsins
íyrstu átta mánuði ársins.
Mikið tap hjá Bakka
fyrir sameiningu
Velta Þorbjarnar hefur aukist
talsvert undanfarin ár, eins og sjá
má á meðfylgjandi myndum. Arið
1994 varð 4 milljóna króna tap af
rekstri félagsins en árið 1995 skil-
aði það 4 milljóna króna hagnaði. A
síðasta áiá nam hagnaður félagsins
hins vegar rúmum 85 milljónum
króna.
Sambærilegar tölur fyrir Bakka
eru ekki gefnar upp í útboðslýs-
ingu en fram kemur að 191 milljón-
ar krónu tap hafi orðið af rekstri
Haustráðstefna EDI-félagsins '97
Hótel Loftleiðum, bíósal,
25. nóvember, kl. 14.00 til 17.00
Daaskrá:
Kl. 13.00 - 14.00 Innritun fundargesta.
Kl. 14.00 Setning.
Vilhjálmur Egilsson,
formaður EDI-félagsins.
Kl. 14.10 EDI í Danmörku:
Stefna danska ríkisins í
upplýsingatæknimálum.
Bjarne Emig.
formaður Dansk EDI-rád
og DANPRO.
Tryggingastofnun og
rafrænn lyfseðill.
Sigþór Örn Guðmundsson,
deildarstjóri tölvudeildar TR.
Kaffihlé.
EDI og ECR - Hlutverk
staðlaðra rafrænna viðskipta
í skilvirkri neytendasvörun.
Ingi Þór Hermannsson,
framkvæmdastjóri EAN á íslandi.
Kl 16.30 Keðjukaup - Skjákaup
Olíufélagsins hf.
Steingrímur Hólmsteinsson,
verkefnisstjóri í Upplýsingatæknideild
Olíufélagsins hf.
Umræður og fyrirspurnir.
Kl. 17.00 Ráðstefnuslit.
Ráðstefnustjóri:
Óskar B. Hauksson, forstöðumaður
Upplýsingavinnslu Eimskips.
Verð: Kr. 3.500,-
Nánari upplýsingar og skráning:
Skrifstofa EDI-félagsins, Jakob Falur.
Sími 588 6666, fax 568 6564, netfang: jakob@chamber.is
Kl. 15.00
Kl. 15.30
Kl. 15.50
félagsins að teknu tilliti til tæplega
130 milljóna króna söluhagnaðar
fyrstu átta mánuði síðasta rekstr-
arárs félagsins, þ.e. frá september
til aprílloka.
Samlegðaráhrifa
ekki farið að gæta
Áætlað er að rekstrartekjur Þor-
bjarnar á þessu ári verði um 2
milljarðar króna. Á næsta ári er
gert ráð fyrir að þær aukist í 2,5
milljarða og munar þar mest um að
á þessu ári er starfsemi fyrirtækis-
ins í Bolungarvík og Hnífsdal að-
eins inni í uppgjöri síðustu átta
mánuði ársins.
I útboðslýsingu segir að gert sé
ráð fyrir nokkrum ábata vegna
stærðarhagkvæmni með samein-
ingu Þorbjöms og Bakka. Hafí
stjómendur þá helst litið til kostn-
aðar vegna yfirstjómar og betri
vaxtakjara í kjölfar fjárhagslegrar
endurskipulagningar, sem þetta
útboð sé m.a. hluti af.
Þá aukist fjölbreytni í starfsemi
félagsins við sameiningu óg nú
þegar hafi t.d. verið dregið úr land-
frystingu í Bolungarvík og sjó-
frysting aukin á móti.
„Þar sem svo skammt er liðið frá
sameiningu Þorbjöms hf. og
Bakka hf. hafa samlegðaráhrif
sameiningarinnar ekki skilað sér
að fullu og ekki er búist við að það
gerist á allra næstu mánuðum.
Ljóst er þó af rekstri félagsins síð-
ustu tvo mánuði að framlegð út-
gerðar og landvinnslu Þorbjöms
hf. frá 1. september er svipuð og
hún var á fyrri hluta ársins.
Félagið hefur nýlega keypt
rækjufrystiskipið Hrafnseyri ÍS-10
og er það að fullu fjármagnað. Hef-
ur félagið ekki áform um aðrar
fjárfestingar á næstunni," segir í
útboðslýsingu.
Þrískipt sölutimabil
Sölutímabili hlutafjárátboðsins
verður skipt í þrjá hluta, forkaups-
réttartímabil, sem standa mun
fram til 12. desember, almennt
sölutímabil, sem stendur frá 16.
desember til 16. janúar, og tilboðs-
tímabil, sem standa mun frá 23.
janúar til 29. janúar 1998 hafi
hlutafjárátboðið klárast á fyrri
tímabilunum tveimur. Á tilboðstím-
anum verða bréfin seld hæstbjóð-
endum en félagið hefur þó heimild
til að hafna öllum tilboðum.
Nafnvirði hlutafjár fyrir útboðið
er 450 milljónir króna.
Rekstrartekjur 1.144,4
Hagnaður(Tap)
85,2
1994
1995
1996
(4,1)
.... i
1994
3,9
1995
1996
Lmaí- 1 jan.- 31. ág.'97 31 a9-'97 Bolungarvík/
Rekstrarreikningur Grindavík Hnífsdalur Samtals |
Rekstrartekjur Miiijónir króna 664,1 575,4 1.239,5
Rekstrargjöld 602,2 607,5 1.209,7
Afskríftir 66,6 66.9 133.6
Rekstrarhagnaður 62,0 (32,1) 29,8
Fjármagnsliðir (37,9) (72,0) (109,9)
Hagn. af reglul. starfsemi 24,1 (104,2) (80,1)
Aðrar tekjur og gjöld 12,2 99,6 111,8
Skattar 26,4 26,4
Hagnaður tímabilsins 62,8 (4,6) 58,2
Veltufé frá (til) rekstri 84,9 (45,0) 39,9
Efnahagsreikningur 1. maí 1997
I Eignir: \
Veltufjármunir Milljónir króna 899,7
Fastafjármunir 3.137,2
Eignir samtals 4.036,9
I Skuidir og eigið fé: \
Skammtímaskuldir 1.016,5
Langtímaskuldir 2.241.1
Skuldir samtals 3.257,6
Víkjandi skuldir samtals 75,0
Eigið fé
Hlutafé 450,0
Annað eigið fé 254.3
Eigiö fé samtals 704.3
Skuldir og eiglð fé samtals 4.036.9
Þrjú ný hlutafélög
á Verðbréfaþing
STJÓRN Verðbréfaþings íslands
hefur samþykkt að taka á skrá
þingsins hlutabréf Islenskra sjávar-
afurða hf., Hraðfrystihúss Eski-
fjarðar hf. og Bifreiðaskoðunar Is-
lands hf. Síðastnefnda félagið verð-
ur væntanlega hið fyrsta sem hlýtur
skráningu á nýjum vaxtarlista
þingsins, en að því meðtöldu verða
skráð félög orðin 49 talsins. I upp-
hafi þessa árs voru skráð félög 32
talsins.
íslenskar sjávarafurðir hafa í
hyggju að bjóða út nýtt hlutafé í
kjölfar skráningarinnar og hefur fé-
lagið boðað til hluthafafundar í því
skyni þann 1. desember. Þar verður
óskað eftir heimild til stjórnar til að
auka hlutafé félagsins í þeim til-
gangi að styi'kja fjárhag þess.
Á fundi Fjárvangs hf. í síðustu
viku sagði Benedikt Sveinsson,
framkvæmdastjóri IS, að afkoma
samstæðunnar fyrstu níu mánuði
ársins hefði verið í járnum. Þessa
slöku afkomu má einkum rekja til
flutninga á verksmiðju fyrirtækis-
ins í Bandaríkjunum.
TILKYNNING UM SKRANINGU HLUTABREFA A VERÐBREFAHNGI ISLANDS
HRAÐFRYSTIHÚS
ESKIFJARÐAR HF.
Stjórn Verðbréfaþings íslands hefur samþykkt að taka á skrá
hlutabréf í Hraðfrystihúsi Eskifjarðar hf.
Skráning hlutabréfanna hefst hinn 27. nóvember nk.
Landsbréf hf. eru umsjónaraðili skráningarinnar.
Skráningarlýsing vegna ofangreindra hlutabréfa
liggur frammi hjá Landsbréfum hf. Suðurlandsbraut 24 og Strandgötu 1, Akureyri.
&
, LANDSBRÉF HF.
Suðurlandsbraut 24, 108 Reykjavík, sími 535 2000, bréfsími 535 2001,
Strandgötu 24, 600 Akureyri, sími 460 6060, bréfsími 460 6050, landsbref.is.
LÖGGILT VERÐBRÉFAFYRIRTÆKI, AÐILIAÐ VERÐBRÉFAÞINGIÍSLANDS.