Morgunblaðið - 18.12.1997, Side 1
96 SIÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
289. TBL. 85. ÁRG.
FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1997 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Farþegavél
hlekktist á
í lendingu
Fredricton. Reuters.
PRJÁTÍU og fimm manns voru
fluttir á sjúkrahús eftir að Canadair
Regional-þotu kanadíska flugfélags-
ins Air Canada hlekktist á í lend-
ingu í Fredricton í New Brunswick-
fylki í gær. Enginn var alvarlega
slasaður og fengu 26 að fara heim
að lokinni skoðun.
Þotan var að koma frá Toronto
með 37 farþega og þriggja manna
áhöfn. Niðaþoka var í Fredricton er
óhappið varð. Ekki hafa borist
fregnir af orsökum óhappsins, en
rannsókn stendur yfir. Flugvélin er
mikið skemmd. Framkvæmdastjóri
Air Canada sagði þotuna vera
tveggja og hálfs árs gamla og hafa
flogið í 8.000 klukkustundir. „Sem
þýðir að þetta er ný flugvél."
Canadair Regional, sem er
tveggja hreyfla og tekur fimmtíu
farþega, er framleidd af Bombardi-
er í Montreal. Þetta er í fyrsta sinn
sem flugvél af þessari gerð, á veg- ÞOTAN fór út af flugbrautinni og hafnaði í skóglendi við enda brautarinnar. Björgunarsveitir aðstoðuðu
um Air Canada, hlekkist á. farþega við að komast út, en margir komust út af sjálfsdáðum og gengu til flugstöðvarinnar.
Kúbustjórn
fundin sek
Miami. Reuters.
DÓMARI í Miami í Bandaríkj-
unum dæmdi Kúbustjórn til
þess að greiða fjölskyldum
þriggja flugmanna bætur upp
á rúmlega 187 milljónir Banda-
ríkjadala, að andvirði rúmlega
12 milljarðar íslenskra króna, í
gær.
Mennirnir, sem voru af
kúbönskum uppruna, voru
skotnir niður af kúbanskri or-
ustuþotu, er þeir voru að svip-
ast um eftir kúbönskum flótta-
mönnum á alþjóðlegu hafsvæði
24. febrúar árið 1996.
Dómurinn er fyrsti dómur
sem felldur er samkvæmt nýj-
um bandarískum lögum gegn
hryðjuverkastarfsemi sem m.a.
miða að því að teygja lögsögu
Bandaríkjanna út fyrir landa-
mæri þeirra þegar bandarískir
ríkisborgarar eiga í hlut.
Stjórnvöld á Kúbu neituðu
að verja sig fyrir réttinum og
báru það fyrir sig að banda-
rískt réttarkerfi hefði ekkert
yfir þeim að segja.
Bankaræningi tók
tuttugu börn í gíslingu
Dallas. Reuters.
VOPNAÐUR maður tók u.þ.b. 20
börn í gíslingu á leikskóla í úthverfi
Dallas í Bandaríkjunum í gær.
Maðurinn var á flótta undan lög-
reglu eftir bankarán er hann hljóp
inn á leikskólann. Hann sleppti
fljótlega leikskólakennurum og
hluta barnanna en hélt um 20 börn-
um eftir sem gíslum. Lögregla um-
kringdi húsið strax og hóf fljótlega
samningaviðræður við manninn.
Áhyggjufullir foreldrar og ná-
grannar söfnuðust saman í ná-
grenninu og sameinuðust margir
þeirra í bæn fyrir velferð bam-
anna.
Leiðtogaskipti innan ANC
Winnie
gaf ekki
kost á sér
Mafeking. Reuters.
THABO Mbeki var í gær útnefndur
næsti flokksformaður Afríska þjóð-
arráðsins, ANC, á 50. landsfundi
ráðsins sem nú fer fram í Suður-Afr-
íku. Mbeki, sem nýtur stuðnings
Nelsons Mandela, fráfarandi for-
manns ANC og forseta landsins, var
eini frambjóðandinn í stöðuna. Hann
mun taka formlega við embættinu
við lok fundarins á laugardag.
í þakkarræðu sinni vísaði Mbeki
óbeint í ræðu Nelsons Mandela frá
því á þriðjudag en Mandela hefúr
verið harðlega gagnrýndur fyrir um-
mæli sem hann lét falla í kveðjuræðu
sinni sem formaður ráðsins.
I ræðunni hvatti forsetinn arftaka
sína m.a. tál þess að vinna að því að
breytingar verði gerðar á skiptingu
auðæfa í landinu og ásakaði íbúa af
evrópskum uppruna um að reyna að
komast hjá þeim fórnum sem upp-
bygging nýrrar Suður-Afríku krefst.
íbúar af evrópskum uppruna brugð-
ust reiðir við og ásökuðu forsetann
um að hvetja til kynþáttamisréttis
gegn sér.
Mbeki, sem talið er fullvíst að
verði næsti forseti Suður-Afríku,
sagði í ræðu sinni að forystan hefði
Reuters
MADIKIZELA-Mandela óskar
Zuma til hamingju.
fengið skýr skilaboð þess efnis að
byltingunni væri langt frá því lokið.
Eitt fyrsta verk Mbekis eftir út-
nefninguna var að hafna ósk Winnie
Madikizela-Mandela um að fá að ráð-
færa sig við stuðningsmenn sína eftir
að hún var tilnefnd til embættis
varaformanns ráðsins.
Reglunum breytt
Madikizela-Mandela, sem er fyrr-
verandi eiginkona Nelsons Mandela,
hafði sóst eftir tilnefningu tif emb-
ættisins en kvaðst hætt við að gefa
kost á sér eftir að Mbeki hafnaði ósk
hennar. Áður hafði ráðið breytt regl-
um þannig að frambjóðendur þyrftu
stuðning 3.000 fulltrúa til þess að til-
nefning þeirra yrði staðfest.
Jacob Zuma var því útnefndur til
embættis varaformanns án þess að
til mótframboðs gegn honum kæmi.
Prímakov gagnrýnir stefnu Bandarfkj astj órnar
Segir heimsbyggðina
á móti árásum á Irak
Brussel, Washington. Reuters.
JEVGENÍ Prímakov, utanríkisráð-
herra Rússlands, sagði í gær að „yf-
irgnæfandi meirihluti" mannkynsins
væri andvígur því að gnpið yrði til
hemaðaraðgerða gegn Irökum tor-
veldi þeir leit eftirlitsmanna Samein-
uðu þjóðanna að gjöreyðingarvopn-
um í Irak.
Prímakov var að svara ummælum
Madeleine Albright, utanríkisráð-
herra Bandaríkjanna, sem lét þau
orð falla að reyna bæri áfram að
knýja íraka til samstarfs við eftir-
litsmennina með friðsamlegum hætti
en ekki væri hægt að útiloka að grip-
ið yrði til hemaðaraðgerða.
„Við emm andvígir því að hervaldi
verði beitt,“ sagði Prímakov. „Ég tel
að í heiminum styðji mikill meirihluti
þá afstöðu, yfirgnæfandi meirihluti."
MESUT Yilmaz, forsætisráðherra
Tyrklands, sagði í gær að Tyrkir
myndu draga til baka aðildarumsókn
sína að Evrópusambandinu, ESB,
yrðu þeir ekki settir í hóp tilvonandi
aðildarríkja sambandsins.
„Yilmaz forsætisráðherra tilkynnti
að Tyrkland myndi draga beiðni sína
um fulla aðild til baka ef Evrópu-
sambandið breytir ekki afstöðu
sinni,“ sagði tyrkneska ríkisfrétta-
stofan Anatolian eftir að Yilmaz
millilenti í Brassel í gær á leiðinni í
opinbera heimsókn til Bandaríkj-
anna.
Leiðtogar ESB sömdu um síðustu
helgi um að bjóða sex ríkjum að
hefja aðildarviðræður af alvöru í vor.
Þá var öðrum fimm ríkjum gefinn
kostur á að bætast í þann hóp að
uppfylltum ákveðnum skilyrðum.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti var
harðorður í garð íraka eftir viðræð-
ur Richards Butlers, yfirmanns eft-
irlitssveita SÞ, við íraska ráðamenn,
sem sögðu að eftirlitsmennirnir
myndu „aldrei“ fá aðgang að forseta-
höllum í leit að efnavopnum. Sagði
Clinton Bandaríkjamenn verða að
vera ákveðna gagnvart Irökum, þar
sem þeir hefðu ekki staðið við alþjóð-
legar skuldbindingar sínar.
Clinton harðorður
Er Clinton var spurður hvort hann
teldi Saddam Hussein, leiðtoga Iraks,
ekki heilan á geðsmunum, sagði
Clinton: „Ef hann er [brjálaður], þá
er hann snjall brjálæðingur...
Stundum gerir hann þó eitthvað sem
virðist brjálæðislega heimskulegt."
Tyrkland, sem sótti fyrst um aðild að
sambandinu fyrir 34 árum, er hins
vegar í hvoragum þessara hópa en
var boðið að taka þátt í ráðstefnu til-
vonandi aðildarríkja sem halda á
samhliða aðildarviðræðuferlinu.
Slíkri þátttöku hafnaði Tyrklands-
stjórn hins vegar strax og Yilmaz
bætti um betur í gær með því að lýsa
því yfir að afstaða stjórnarinnar
myndi ekki breytast neitt fyrr en
Tyrklandi yrði bætt á listann yfir til-
vonandi aðildarríki til jafns við hin
ellefu sem fyrir eru á honum.
Yilmaz tók því að sögn Anatolian
sérstaklega illa að boðinu á ráð-
stefnu þessa fylgdi listi yfir skilyrði
fyrir þátttöku Tyrklands í stækkun-
arferlinu. Á listanum vora m.a. skil-
yrði um framfarir í mannúðarmálum
og bætt samskipti við Grikkland.
Clinton kvaðst hvorki útiloka nein-
ar aðgerðir gegn Irökum né að
bandarísk stjórnvöld kynnu að grípa
til frekari aðgerða til að þvinga
íraka til að veita vopnaeftirliti SÞ
aðgang að forsetahöllum íraka.
Brást talsmaður íraska upplýs-
ingaráðuneytisins ókvæða við þess-
ari yfirlýsingu í gær og sagði Banda-
ríkjamenn ekki njóta nægilegs
stuðnings til þess að grípa til að-
gerða, hvorki í öryggisráði SÞ né í
Evrópu. Að því er segir í The New
York Times kann þetta að vera rétt,
því í öryggisráðinu gæti aukinna
áhyggna vegna vannæringar og öm-
urlegra aðstæðna írösku þjóðarinn-
ar. Séu þessar áhyggjur ekki minni
en vegna efnavopnaframleiðslu
íraka.
Flugvél
hvarf
Aþena. Reuters.
FLUGVÉL frá Úkraínu með
73 menn innanborðs, hvarf af
radarskjám þegar hún var að
koma inn til lendingar í Norð-
ur-Grikklandi í gærkvöldi.
Vélin var að koma frá Kiev
með 65 farþega og átta manna
áhöfn og var um 15 km frá
flugbrautinni er hún hvarf.
Fjölmennt björgunarlið var
sent á staðinn til að leita að
vélinni en mikill vindur var á
þessum slóðum í gærkvöldi.
Tvennum sögum fer af því um
hvers konar vél var að ræða
en hún mun annað hvort vera
af Jakolev- eða Tupolev-gerð.
Yilmaz hótar ESB
Ankara. Reuters.