Morgunblaðið - 18.12.1997, Blaðsíða 80

Morgunblaðið - 18.12.1997, Blaðsíða 80
t-yrsTir meo ' “ ”.. '▼ S^ervfciiJi nrtf II HP Vectra PC Whp% hewlett PACKARD Sjáðu meira á www.hp.is MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181 PÓSTHÓLFmO, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KA UPVANGSSTRÆTI1 FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1997 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Djúpstæður vandi blasir við Sjúkrahiisi Reykjavíkur Ekkí horfur á að slysa- deild verði fullmönnuð Banaslys í umferðinni í Reykjavík BANASLYS varð í umferðinni í Reykjavík í gærmorgun er sjötíu og þriggja ára gömul kona varð fyrir sendibíl. Var hún flutt á slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur og lést þar nokkru síðar af völdum áverka. Lögreglunni í Reykjavík var til- kynnt um slysið kl. 8.08 í gærmorg- un. Sendibíl var ekið eftir Suðurgötu í norðurátt og á kaflanum milli Há- skólans og Þjóðminjasafnsins lenti hann á konunni. Hún er talin hafa verið á leið austur yfir götuna. Dimmt var en þurrt í Reykjavík í gærmorgun. Fór strax í aðgerð en lést af völdum áverka Konan hlaut mikla áverka og var flutt í skyndingu á slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur þar sem hún fór strax í aðgerð en hún lést nokkru síðar af völdum áverkanna. Lögreglan í Reylgavík biður þá sem kynnu að hafa orðið vitni að slysinu að gefa sig fram. Ekki er hægt að gefa upp nafn hinnar látnu að svo stöddu. MEIRIHLUTI lækna á slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur er hættur störfum. Jón Baldursson yfirlæknir segir að unnið sé að því að fá sér- fræðinga til starfa af öðrum deildum, en fyrir liggi að deildin verði ekki fullmönnuð næstu vikurnar. Vandi slysadeildar er djúpstæður m.a. vegna þess að þar hafa í langan tíma verið miklir erfiðleikar við að fá nægilega marga lækna til starfa. „Það er Ijóst að slysadeildin verður ekki fullmönnuð næstu vikur. Ég ótt- ast að þessi kjaradeila dragist á lang- inn og jafnvel þó að samningar verði samþykktir er verulegt áhyggjuefni ef ungu læknai-nir skila sér ekki aft- ur til starfa,“ sagði Jón. Sex ungir læknar ætla sér að hætta störfum hjá SHR um áramót og eru þær uppsagnir óháðar óánægju ungra lækna með kjör sín. Aðrir læknar sem sagt hafa upp störfum eru annaðhvort hættir eða hætta um helgina. Til viðbótar út- skrifast óvenjufáir læknar úr lækna- deild næstu tvö ár. Jón sagði að þetta yki enn á vandann. Uppsagnir ungra lækna kæmu á versta tíma því að álag á slysadeild væri að jafnaði mik- ið um jólin. Aðsókn í þessari viku hefði ekki verið eins og þegar mest væri að gera og læknum hefði tekist að anna eftirspurn. Kerfið hrunið en lausn ófundin A slysadeild starfa að jafnaði átta aðstoðarlæknar og fimm sérfræðing- ar, auk afleysingalæknis. Jón sagði að allir aðstoðarlæknarnir væru að hætta. Enn væru tveir við störf, en þeir myndu hætta um áramót. Sigurður Ásgeir Kristinsson, sér- fræðingur á slysadeild, sagði að vandi slysadeildar væri djúpstæður og hann myndi ekki leysast þó að samkomulag tækist við þá lækna sem sagt hafa upp störfum. Slysa- deild hefði til margra ára byggt á kerfi ungra lækna. Þetta kerfi hefði verið að láta unda síga á síðustu ár- um og nú hefði því verið greitt náð- arhöggið. Á síðustu árum hefðu verið miklir erfiðleikar við að fá unga lækna til starfa. Ástæðurnar væru m.a. þær að framboð á ungum lækn- um væri of lítið og álag á starfsfólk deildarinnar væri geysilega mikið. 22 hættu á Land- spftala í gær Tuttugu og tveir aðstoðarlæknar hættu störfum á Landspítalanum í gær og hafa þá alls 25 ungir læknar horfið frá störfum þar. Þorvaldur Veigar Guðmundsson, lækningaforstjóri, segir að upp- sagnirnar bitni einkum á lyflæknis- og handlæknisdeildum. Þar verði sérfræðingar að ganga næturvaktir og sinna bráðaþjónustu. Hægt sé að sinna bráðatilfellum með þessum hætti en aðrar læknisaðgerðir sem ekki teljist til bráðaaðgerða, t.d. hjartaþræðingar, sitji á hakanum fyrir vikið og þjónusta göngudeilda skerðist. Þorvaldur Veigar segir að fyrst um sinn valdi þetta ástand ekki neinni hættu fyrir sjúklinga á spít- alanum. „Ef þetta stendur lengi fara málin að vandast og auðvitað er þetta mikil röskun fyrir spítalann," segir hann. Hluti fískibátaflotans á Rifí á Snæfellsnesi stóð í ljósum logum um miðja nótt Morgunblaðið/Guðlaugur Wium BATANA þijá rak frá öðrum bátum þegar landfestar brunnu. Að öðrum kosti hefði getað farið verr og kviknað í fleiri bátum. Fiskikör í nálægum báti bráðnuðu vegna hitans. Þrír bátar ónýtir ÞRÍR bátar eyðilögðust í eldi í höfninni á Rifi á Snæfellsnesi aðfara- nótt miðvikudags. Voru það allt plastbátar, 4-6 tonn að stærð, og sukku þeir allir í höfninni. Tveir bátanna náðust af hafsbotni í gær. HURÐASKELLIR Elísabet Jensdóttir á Rifi sá eld- inn fyrst út um stofugluggann hjá sér en hún var að pakka inn jóla- gjöfum um kl. þrjú um nóttina. Þá voru bátamir orðnir alelda. Hún hafði strax samband við lögreglu. Slökkvistarfi var lokið um klukkan fjögur. Tókst að bjarga öðrum bátum með því að draga þá til Bátarnir lágu bundnir við flot- bryggju hafnarinnar en auk þeirra voru fjölmargir aðrir bátar í höfn- inni. Margir aðrir bátar voru við flotbryggjuna og var mikil hætta á því að eldur læstist í þá. Trillusjómenn komu fljótlega á staðinn og drógu bátana til með því að festa taug í þá frá bílum. Mjög líklegt er talið að kviknað hefði í þeim ella. Fiskikör í nærliggjandi báti bráðnuðu. Fljótlega eftir að eldurinn kom upp brunnu landfestar þannig að bátana rak út á höfnina og þar sukku þeir einn af öðrum. Eitraðar lofttegundir mynduðust Eitraðar lofttegundur mynduð- ust við bruna plastbátanna en eng- an sakaði í slökkvistarfinu. Bátarnir voru Blíðfari SH 153 sem er fjögur tonn, Ingunn ÁR 27 sem er sex tonna bátur og stærstur þeirra var Óli SH 305 sem var átta tonn. Ekki er vitað með vissu um upp- tök eldsins en talið hugsanlegt að kveikt hafi verið í kabyssu eins þeirra. Tjónið er talið vera hátt í 30 milljónir króna. Miðlunartil- laga í lækna- deilunni RÍKISSÁTTASEMJARI leggur fram miðlunartillögu í kjaradeilu Læknafélags Reykjavíkur og Reykjavíkurborgar í dag. At- kvæði verða greidd um tillöguna á fóstudag og laugardag. Ekki búist við miklum breyt- ingum frá kjarasamningi Tveir sáttafundir hafa verið haldnir í deilunni og þykir sýnt að samkomulag tekst ekki án at- beina sáttasemjara. Ekkert hefur verið gefið upp um efni miðlunar- tillögunnar, en ekki er búist við að hún feli í sér miklar breytingar frá þeim kjarasamningi sem gerð- ur var 2. desember sl. Læknar á Sjúkrahúsi Reykjavíkur felldu samninginn með 86 atkvæðum gegn 84. Læknar á öðrum sjúkra- húsum samþykktu samninginn. Ungir læknar ekki með atkvæðisrétt Ungir læknar sem sagt hafa upp störfum á spítalanum fá ekki að greiða atkvæði um tillöguna þar sem þeir eru ekki lengur á launaskrá hjá spítalanum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.