Morgunblaðið - 18.12.1997, Blaðsíða 66
66 FIMMTUDAGUR 18. DESEMBER 1997
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Ljóska
Eteert,'zqg&tbam.ú, (ekkl h#tt cw montZLnoiz'
1 Ot&ri £
■ ®
Ferdinand
8UT WMOEVER JT 15
86TTER. 6ET RIP OFIT
BECAU5EIF HE THR0W5IT
AT ME, l'M 60NNA POUNO
MIMINTOTHE 6R0UNP!
Ég veit ekki hver er að
fela sig á bak við þetta tré
með snjóbolta ...
En hver svo sem það er,
þá er best fyrir hann að
losa sig við hann, því að
ef hann kastar honum í
mig þá kýli ég hann niður!
BRÉF
TTL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík # Sími 5691100 • Símbréf 569 1329
Jólatónleikar
Frá Ólafi Jens Sigurðssyni: þetta tækifæri og taldi það vera
ÞAÐ var mikil tónlistarhátíð sem
fram fór í Klifi í Ólafsvík sl. sunnu-
dag kl. 16.00, þegar Lúðrasveitin
Snær hélt þar jólatónleika, ásamt
kirkjukórum bæjarins og bjöllusveit
Tónlistarskólans á Hellissandi. Ian
Wilkinsson tónlistarkennari kom
hingað til starfa við Tónlistarskólann
í Ólafsvík fyrir röskum tveimur árum.
Á þessum tíma hefur honum tekist
af smitandi dugnaði og áhuga, að
virkja nemendur og foreldra þeirra,
sem myndað hafa félag í kringum
þessa starfsemi til að styðja við hana,
og koma á laggimar ótrúlega góðri
lúðrasveit sem skipuð er yfir 40 ung-
um tónlistarmönnum. Ekki er það
síst uppörvandi hvað lúðrasveitin
hefur náð góðum árangri á skömmum
tíma. Nú orðið má fá hana til að leika
við margvísleg tækifæri sem upp
koma í bænum. Ekki þarf að spyija
að því að þau taka sig alltaf vel út
í fallegu búningunum sínum. Eru
alltaf jafn lífleg og glöð eins og
stjómandinn sjálfur. Hljómsveitin lof-
ar vissulega góðu. Ian Wilkinsson á
mikinn heiður skilið fyrir þennan
mikla áhuga og bjartsýni og ekki
síður foreldramir_ sem staðið hafa
öflugir að baki. Á tónleikunum var
Foreldra- og styrktarfélagið með
kaffisölu til styrktar hljómsveitinni.
Fréttaritara varð starsýnt á hversu
margt tónlistarfólk kom fram við
Klúður
Frá Guðmundi Rafni Geirdal:
ÞEGAR þessar línur em ritaðar eru
fréttir að berast af því að ríkis-
stjórn íslands hafi ekki í hyggju
að undirrita alþjóðlegan samning
um takmörkun á losun mengandi
lofttegunda út í andrúmsloftið þrátt
fyrir að hafa fengið vilyrði fýrir að
geta aukið mengun um 10% á með-
an flestar aðrar þjóðir heims eru
samdóma um að draga úr loftslags-
mengun til að forða stórkostlegum
umhverfisslysum í framtíðinni.
Taka forráðamenn okkar ekki eftir
allri umræðunni meðal veðurfræð-
inga og fleiri fagmenntaðra aðila
um yfirvofandi hættu sem ríkjum
heims stafar af hinni miklu meng-
un sem hefur dreifst út í andrúms-
loftið? Ætla þeir að standa frammi
fyrir alþjóð í framtíðinni með það
á samviskunni að hafa mælt með
aukinni mengun þegar fréttir hafa
borist um það að ísland gæti lagst
í eyði vegna hinnar auknu mengun-
ar, til dæmis ef Golfstraumurinn
sveigir fram hjá landinu og það
yrði ísi lagt?! Það er alls ekki víst
að það verði á hinn veginn, það
er að segja að ísland hlýni þannig
að jöklar bráðni og vatnsorka auk-
ist til að geta knúið enn meiri járn-
og steinsteypuferlíki, hvort sem
þær heita virkjanir, álver eða stál-
ver.
Þetta er einnig í andstöðu við
það markmið sem ríkisstjórnin hef-
ur á stefnuskrá sinni að ísland verði
a.m.k. hálft annað hundrað. Ungir
og aldnir lögðust á eitt, úr öllu hlut-
um þessa nýja sveitarfélags, Snæ-
fellsbæjar. Gæti þetta verið vísbend-
ing um hvernig sameina má gamla
og fastheldna hreppa í eina félags-
lega heild? Að þessu véku þau raunar
bæði í ræðum sínum, Guðjón Peter-
sen bæjarstjóri og Svanfríður Guð-
mundsdóttir kennari sem hafði orð
fyrir Foreldra- og styrktarfélagi
Lúðrasveiðtarinnar Snæs.
Dagskráin var skemmtilega sam-
sett, Lúðrasveitin Snær lék allmörg
lög, síðan sungu kirkjukórar
Ingjaldshóls- og Ólafsvíkurkirkna og
kórfólk úr Staðarsveit og Breiðuvík.
Stjórnendur kóranna voru þau Kay
Wiggs Lúðvíksson, Kjartan Eggerts-
son og Ian Wilkinsson. Þá sungu
kóramir allir saman með lúðrasveit-
inni og tókst það sérlega vel.
Bjöllusveit Tónlistarskólans á
Hellissandi lék á milli atriða undir
stjórn Kay Wiggs Lúðvíksson með
miklum ágætum og er sama um það
starf að segja, að það er lofsvert
hvað Kay Wiggs hefur tekist að
byggja upp þessa bjöllusveit barna
á Hellissandi á skömmum tíma.
Tónleikar lúðrasveitarinnar voru
vel sóttir og var uppörvandi að sjá
hvað fólk sýndi þeim mikinn áhuga.
ÓLAFUR JENS SIGURÐSSON,
Laufási 2, Hellissandi.
í Kyoto
hreinasta land í heimi árið 2000.
Ég legg því til að endurskoðað sé
hvort ekki væri hyggilegra að við
leggjum megináherslu á hreinleika
og heilbrigði og verðum jiekkt fyrir
það á alþjóðavettvangi. A það hefur
verið bent að ísland sé fyrst og
fremst matvælaframleiðsluland,
bæði hvað varðar sjávarafurðir og
landbúnaðarafurðir og því sé hent-
ugt að hreinleikaímyndin haldist
óskert. Á undanförnum árum hefur
einnig verið rætt um þann mögu-
leika að ísland verði með alþjóðleg-
ar heilsumiðstöðvar í fallegri nátt-
úru innan um heitu hverina, til
dæmis í tengslum við Bláa lónið.
Ég tel að þetta sé mun meira heill-
andi mynd af landinu okkar, okkar
kæra Islandi, heldur en reykspúandi
álver í öðrum hveijum firði.
Ég hvet ykkur lesendur því til
að íhuga hvort ríkisstjórn okkar sé
ekki á rangri braut og þurfi ekki
hreinlega að fara frá ef hún áttar
sig ekki í tíma á að hún getur ver-
ið að eyðileggja orðspor okkar á
alþjóðavettvangi sem siðmenntuð
og hugsandi þjóð. Málið er að við
erum ekki Davíð einn í heiminum
heldur hluti af stærra mannkyni
sem hefur þann sameiginlega hag
að veðurfar verði ekki það óhag-
stætt að íbúar þurfi að hrökklast
af stórum landsvæðum í framtíð-
inni, til að mynda íslandi.
GUÐMUNDUR RAFN GEIRDAL,
skólastjóri.