Morgunblaðið - 15.01.1998, Blaðsíða 14
14 FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
STARFSHÓPUR á vegum Iðnþró-
unarfélags Eyjafjarðar hf. leggur til
að Iðnþróunarfélagið, atvinnumála-
skrifstofa Akureyrarbæjar og
Ferðamálamiðstöð Eyjafjarðar
sameinist í nýju öflugu atvinnuþró-
unarfélagi á Eyjafjarðarsvæðinu.
Einnig er gert ráð fyrir þátttöku
Byggðastofnunar í félaginu, svo og
fleiri aðila sem á einn eða annan
hátt koma að atvinnuþróun á svæð-
inu. Þá er lagt til að stofnaður verði
sjóður til áhættufjárfestinga og að
hann verði vettvangur þeirra sem
vilja leggja atvinnuþróun í Eyjafirði
lið með hlutafjárframlögum.
Bjami Kristinsson, framkvæmda-
stjóri Iðnþróunarfélags Eyjafjarð-
ar, er einn þriggja manna í starfs-
hópnum og hann sagði að fleiri en
Iðnþróunarfélagið væru að vinna að
atvinnuþróun á svæðinu. Nefndi
hann Byggðastofnun, atvinnumála-
nefndir, Ferðamálamiðstöðina og
Héraðsnefnd Eyjafjarðar í því sam-
bandi.
Starfíð markvissara
„Þarna er gerð tillaga um nýtt
skipulag á atvinnuþróunarstarfi í
Eyjafírði og að allt samstarf sveit-
arfélaga í Eyjafírði í atvinnumálum
og sameiginleg stefnumótun fyrir
Hita- og vatnsveita
Akureyrar
Reikningar
sendir út á
tveggja mán-
aða fresti
SAMÞYKKT hefur verið í stjórn
Hita- og vatnsveitu Akureyrar að
senda út reikninga á tveggja mán-
aða fresti, en fram til þessa hefur
verið innheimt fyrir vatnið einu
sinni í mánuði.
Flestar hita- og rafveitur, m.a.
Rafveita Akureyrar, senda út reikn-
inga fyrir vatns- og orkunotkun á
tveggja mánaða fresti eða sjaldnar
og er nú komið að því að Hita- og
vatnsveita Akureyrar geri það
einnig.
Ekki eins erfítt
Ákvörðunin var tekin með hlið-
sjón af því að verð á heitu vatni hjá
veitunni hefur lækkað umtalsvert á
undanfórnum árum og álykta for-
svarsmenn hennar því að ekki verði
eins erfitt fyrir viðskiptavini að fá
reikning fyrir tvo mánuði í senn
eins og var þegar vatnsverð var
sem hæst á Akureyri.
Útsendingu reikninga verður
hagað þannig að reikningur frá
Rafveitu Akureyrar berst ekki í
sama mánuði og hitaveitureikning-
urinn og er með því móti verið að
jafna greiðslu viðskiptavina. Fyrir-
komulagið verður með þeim hætti
að viðskiptavinir fá reikning fyrir
tveggja mánaða hitavatnsnotkun
ein mánaðamót og um þau næsta
kemur reikningur fyrir tveggja
mánaða raforkunotkun og svo koll
af kolli.
----------------
Söngtónleikar
SÖNGTÓNLEIKAR verða í Safn-
aðarheimili Akureyrarkirkju næst-
komandi laugardag, 17. janúar, kl.
15.
Fram koma Margrét Sigurðar-
dóttir sópran og Magnús Friðriks-
son tenór, píanóleikari er Richard
Simm. Á efnisskrá eru þekkt ein-
söngs- og tvísöngslög, innlend og
erlend.
Margrét og Magnús eru virkir
þátttakendur í sönglífí á Akureyri
og hafa lokið prófí frá Tónlistarskól-
anum á Akureyri. Richard Simm er
þekktur undirleikari, bæði með kór-
um og einsöngvurum.
ÆFINGAR eru hafnar á söng-
leiknum Söngvaseiði, The Sound
of Music, hjá Leikfélagi Akureyr-
ar en frumsýning verður 6. mars
næstkomandi í Samkomuhúsinu
á Akureyri. Með þessari sýningu
verður húsið opnað gestum á ný
eftir gagngerar endurbætur,
einkum á áhorfendasal en í hann
verða sett ný sæti.
Tónlistin í Söngvaseiði er eftir
Richard Rodgers, söngtextarnir
eftir Oscar Hammerstein annan
og þeir Howed Lindsay og Russel
Crouse sömdu leikhandritið.
Flosi Ólafsson þýddi verkið á ís-
lensku.
Vinsæll söngleikur
Söngvaseiður var frumsýndur
í New York árið 1959 og hefur
allar götur síðan verið meðal
vinsælustu söngleikja enda er
sagan sem sögð er spennandi og
rómantísk og tónlistin hugljúf og
hrífandi. Verkið gerist í Austur-
ríki skömmu áður en heimsstyrj-
öldin síðari skall á. Sagan er
byggð á ævi Maríu Rainer, ungr-
ar konu sem hugðist gerast
nunna, en réðst í þess stað barn-
fóstra til Georgs von Trapp
kapteins, ekkjumanns og sjö
barna föður. Börnin eru óstýri-
lát, kæra sig lítið um nýjar og
nýjar bamfóstrur og fínna upp á
ýmsu til að gera Maríu lífið leitt.
Með glaðlyndi sínu og tónlistar-
gáfum tekst henni þó að vinna
hug þeirra og hjarta. Áður en
Ieiknum lýkur bráðna fleiri
hjörtu. Allt gerist þetta í skugga
ógna þeirra sem stafa af vaxandi
gengi nasismans.
Þóra Einarsdóttir óperusöng-
kona fer með aðalhlutverkið,
barnfóstruna Maríu, og er þetta í
fyrsta sinn sem hún starfar með
LA. Hið sama gegnir um Hinrik
Ólafsson sem leikur Georg von
Trapp. Hrönn Hafliðadóttir og
Jóna Fanney Svavarsdóttir hafa
heldur ekki komið við sögu fé-
lagsins áður, en Hrönn leikur
abbadisina og Jóna Fanney leik-
ur Lísu, elstu dótturina. Hjalti
Valþórsson fer með hlutverk
Rolfs, kærasta Lísu. í hlutverk-
um annarra barna von Trapp
verða þær Unnur Helga Möller
og Inga Bára Ragnarsdóttir sem
skiptast á að leika Lovísu, Ingi-
sjóðnum og tekið þátt í uppbyggingu
atvinnulífs með áhættufjármagni án
þess að taka þátt í rekstri félagsins."
Ávöxtunin til fjárfestinga
Bjarni sagði ýmsar tölur hafa ver-
ið nefndar varðandi atvinnuþróunar-
sjóðinn en sjóður með 600-800 millj-
óna króna stofnfé myndi gerbreyta
þeirri stöðu sem hér hefur verið
varðandi áhættufjármagn. „Menn
hafa hugsað sér að ávaxta stofnfé
sjóðsins og nota ávöxtunina til fjár-
festinga.“
Stjóm Iðnþróunarfélagsins mun
afgreiða tillögumar endanlega frá
sér í lok þessarar viku og í fram-
haldinu fer málið til formlegrar um-
fjöllunar hjá sveitarfélögunum. „Það
er svo sveitarfélaganna að taka mál-
ið til afgreiðslu og ég er á þeirri
skoðun að meðal sveitarstjórnar-
manna sé meirihluti fyrir þessum
breytingum."
Með Bjama í starfshópnum vora
Daníel Árnason, formaður stjórnar
Iðnþróunarfélagsins og nefndar-
maður í atvinnumálanefnd Akureyr-
arbæjar, og Rögnvaldur Skíði Frið-
björnsson, bæjarstjóri á Dalvík.
Ráðgjafi starfshópsins var ráðinn
Sigfús Jónsson, fyrrverandi bæjar-
stjóri á Akureyri.
mar Davíðsson Ieikur Friðrik,
Hildur Þóra Franklín og Helga
Valborg Steinarsdóttir leika og
syngja Birgittu til skiptis, Mörtu
leika þær Helga Margrét Clarke
og Rakel Hinriksdóttir, Kurt
leika þeir Vilhjálmur B. Braga-
son og Baldur Hjörleifsson og
Audrey Freyja Clarke og Erika
Mist Arnarsdóttir leika yngstu
dótturina, Grétu, til skiptis.
Rósa Kristín Baldursdóttir
verður Elsa Schrader, barónessa
og keppinautur Maríu um hylli
von Trappe, Aðalsteinn Bergdal
verður Max Detweiler, Þráinn
Karlsson verður í hlutverki
einkaþjónsins Frans og Guðbjörg
Thoroddsen leikur frú Scmitli
ráðskonu.
Námskeið
um skatta-
mál
SKATTAMÁL - nýlegar
breytingar er yfírskrift nám-
skeiðs sem Endurmenntunar-
stofnun Háskóla Islands í
samstarfi við Félag viðskipta-
og hagfræðinga á Norður-
landi efnir til á Akureyri laug-
ardaginn 24. janúar næstkom-
andi.
Námskeiðið er ætlað öllum
sem hafa með skatta- og fjár-
mál fyrirtækja að gera og
verða á því kynntar nýlegar
breytingar á lögum um tekju-
og eignaskatt. Auk þess verð-
ur farið yfír helstu breytingar
á öðrum lögum sem varða
skatta og önnur atriði sem
tengjast framtalsgerð vegna
tekjuársins 1997. Kennari er
Árni Tómasson viðskipta-
fræðingur, löggiltur endur-
skoðandi og stundakennari
við Háskóla Islands.
Skráning þarf að berast til
Endurmenntunarstofnunar
fyrir þriðjudaginn 20. janúar
næstkomandi.
Þijár söngkonur, Hildur
Tryggvadóttir, Sigrún Arn-
grímsdóttir og Þuríður Vil-
hjálmsdóttir verða í hlutverkum
nunna og bregða sér einnig í
önnur gervi, en auk þeirra leika
í sýningunni Jónsteinn Aðal-
steinsson, Jón Júlíusson og Mar-
inó Þorsteinsson.
Sýning Leikfélags Akureyrar
er unnin í samvinnu við Sinfóníu-
hljómsveit Norðurlands og munu
14 hljóðfæraleikarar úr sveitinni
leika á sýningum undir stjórn
Guðmundar Ola Gunnarssonar.
Ingvar Björnsson hannar lýs-
ingu, Messíana Tómasdóttir er
höfundur leikmyndar og bún-
inga og Auður Bjarnadóttir
verður leikstjóri.
AKUREYRI
Tillögur um breytingar á atvinnuþróunarstarfí á Eyjafjarðarsvæðinu
Nýtt og öflugt at-
vinnuþróunarfélag
Sjóður til áhættufjárfestinga
að baki félaginu
svæðið verði viðfangsefni Atvinnu-
þróunarfélags Eyjafjarðar. Þannig
verður starfið markvissara, enda
erfitt fyrir lítil félög með kannski
einn starfsmann að ná árangri.
Stærri eining býður upp á verka-
skiptingu og sérhæfingu starfs-
manna og þeir hafa stuðning hver af
öðrum.
Þá teljum við ekki vænlegt til ár-
angurs að hafa atvinnuráðgjöf fyrir
einstaka atvinnugreinar í aðgreind-
um félögum. Sameinað félag getur
nýtt betur þá fjármuni sem varið er
til stai’fsins en mörg lítil félög. Þá
era ríkisstofnanir, sjóðir og samtök
í atvinnulífi áhugasamari um að fela
einu öflugu félagi svæðisbundin
verkefni en nokkrum smáum félög-
Rekstrarframlag uin 30 milljónir
Akureyrarbær á tæplega 50%
eignai'hlut í Iðnþróunarfélaginu,
önnur sveitarfélög á svæðinu um
20%, Byggðastofnun um 20% og aðr-
ir minna. Rekstrarframlag sveitarfé-
laga á svæðinu til þeirra þriggja ein-
inga, sem lagt er til að sameinist, er
tæpar 30 milljónir króna.
Bjami sagði að hingað til hafi aðil-
ar, sem ekki tilheyra sveitarstjóm-
um eða ríki, verið tregir að leggja fé
í Iðnþróunarfélagið. „Fyrirtæki á
svæðinu, lífeyrissjóðir eða verka-
lýðsfélög era tilbúin að kaupa hluta-
fé en era ekki tilbúin að standa að
rekstri Iðnþróunarfélagsins. Með
þeirri breytingu sem við leggjum til
geta þessir aðilar keypt hlutafé í
Morgunblaðið/Kristj án
FÖNGULEGUR hópur leikara og söngvara kom saman á fyrstu æfingu á Söngvaseiði, The Sound of Music, og stillti sér upp til
myndatöku í stöllunum neðan Sigurhæða.
Leikfélag Akureyrar
Æfingar hafnar
á Söngvaseiði
JÓNA Fanney Svavarsdóttir fer með hlutverk Lísu, elstu dóttur Georg
von Trapp. Á myndinni er hún með föður sínum, kunnum söngvara,
Svavari Jóhannssyni.