Morgunblaðið - 15.01.1998, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1998 33'
LISTIR
Þannig vöxum við frá
fallegu fjöllunum í eitt-
hvað enn þá stærrau
AJU í Nuuk á Grænlandi er listmálari, skáld,
kennari og heimspekingur. Hann er náttúru-
barn Grænlands sem nærist á lífsorkunni sem
hann fær í samskiptum við öfluga náttúru og
samfélag sem byggist á vinarþeli. AJU leggur
mikið upp úr birtunni og uppáhaldsviðfangs-
efni hans er fólk norðursins. Arni Johnsen
ræddi við AJU um lífsviðhorf hans og áhersl-
urnar í lífsnautninni og þroskanum.
Morgunblaðið/RAX
AJU við tvö málverka sinna þar sem myndefnið er sótt í náttúrustemmningu.
AJU ER málari, skáld, heim-
spekingur og kennari og
fyrst og fremst er hann
ákaflega hlý persóna og það stafar
töfrum af lífsgleði frá honum. Kris-
ján Aju er barn náttúrunnar og
stemmningin ræður miklu hvort
sem hann málar landslag, andlit
fólks eða yrkir ljóð um lífið og til-
veruna. Við sátum í stofunni hjá
honum og skoðuðum nýjustu mál-
verkin hans, myndir af fólki og
landslagi.
„Ljósið í kringum okkur er
magnað, ljósið í Nuuk er einstakt,
sérstaklega frá mars til sepember.
Þá mála ég,“ sagði Aju. „Maður
ræður aldrei alveg ferð,“ hélt hann
áfram, „nú hafa fuglamótífin verið
lengi í burtu en þau skjóta upp
kollinum á vorin. Manneskjurnar
eru þó alltaf aðalviðfangsefnið í
myndum mínum. í gamla daga var
þetta mest teikning en menningar-
arfurinn er styrkurinn í eðli okkar
og þráin eftir virðingu og félags-
skap án þess að hólfa allt af og
skipuleggja í botn, gerilsneyða
lífsandann. Stoltið okkar er að
vera inúítar.
Það er þetta sem hrærir mig, að
grípa fólk, fugla og abstraktið en
náttúran sjálf er undiraldan í þessu
öllu. Ég vinn helst með Iiti og form
þannig að þau fái samband við
hvort annað. Það eru andstæðurn-
ar sem kalla á mig og í gegnum
myndirnar reyni ég að sjá landið
sem við eigum.
Það er hundkalt á veturna hér
hjá okkur, mjög kalt, en ég vil fjalla
um áhrifin af kuldanum í litum á
náttúruna og fólkið. Það mannlega
talar til okkar, seiðir fólk og það er
gefandi að ná slíku, skapa vanga-
veltur og tilfinningar, fá samband
sem er heillandi tilfinning og lífs-
reynsla. Mynd getur sagt góðan dag
til okkar eða sagt farið vel.
Ég er meira og meira farinn að
sjá myndirnar eins og tónlist, gefa
stemmningunni lausan tauminn. Lit-
ur er litur og blátt er blátt en þegar
litirnir fara að spila saman, byijar
Qörið. Þannig getur tónlistin verið
leiðbeinandi. Tónlistin skapar hring
og hringurinn er svo mikilvægur
fyrir mig, ró hringsins sem spannar
lífið allt. Maður má ekki gera hlut-
ina eins, heldur allt öðruvísi, annars
stöðvast hringurinn. Þannig er ég
stemmingsmálari með útfærslu á
ákveðnum þáttum í náttúrunni.
Ljóssins Ieið er mitt viðfangsefni,
fólk norðursins er uppáhaldsefnið
mitt og eitthvað japanskt. Það er
mikilvægt í hversdagslífinu hér að
byggja á gömlum hefðum þótt við
tökum á móti því sem er nýtt og
þróum það saman og umsköpum
það. Ég get ekki málað kajak, hrein-
dýr eða ísbirni, því ég hef ekkert
verið á þessum veiðum. En þetta
skiptir samt allt miklu máli.
Með því að láta andstæðurnar
vaxa saman eða bijóta nýjar leiðir
þá kemur nýr tónn og það er nýi
tónninn sem stækkar hringinn. Inn-
an hringsins eru allir möguleikarnir
í félagsskap. Listmálunin er upplif-
un fyrir mig. Ég byija að tala við
myndimar, geng inn í mynd
rammans og skapa ævintýri hvers-
dagsins. Það er mikilvægast að
koma því út sem er að bijótast um
innan í manni. Utsýn verður að
koma til, það er h'fslykillinn, því
þannig vöxum við frá fallegu fj ö 11-
unum í eitthvað ennþá stærra. Við
höfum lítið rými f sjálfu sér en við
höfum svo mikið að segja. Utan
dyra er allt svo stórt og þess vegna
eigum við að halda okkur við það
smáa, halda okkur við það nálæga.
Sjáðu natnina í vinnu kvenna al-
mennt, ótrúleg natni og aftur natni
sem skapar svo margar og mikil-
vægar festur til að byggja á. Ná-
lægðin er svo öflug, nálægðin við
lifandi fólk, ltfsmarkið sjálft, mann-
eskjuna, húsin, birtuna, samfélagið.
Margir smáhlutir hafa verið í
höndum fólks, fengið allan varm-
ann. Listhandverkið er þess eðlis og
sem betur fer byggist hluti af
kennslunni í Grænlandi á takti ltfs-
ins í Grænlandi. Og mikil nálægð
getur hins vegar orðið abstrakt, lft-
ill steinn í Ijósinu er síbreytilegur
þótt ímynd steinsins sé óbreytanleg
í sjálfu sér. Náttúran er sffellt að
setja saman milljónir forma,
abstrakt forma í sjálfri sér. Hið
abstrakta kemur einnig inn á við
eins og til dæmis þegar við íjarlægj-
umst það þekkta með því að þreifa
okkur áfram á nýjar slóðir, alveg
eins og þegar sólin brýtur nýja liti í
ljósinu við einhvetjar aðstæður.
Blátt er blátt og það er grunnlitur-
inn okkar, en hann gefúr færi á öllu
lifrófinu þegar lagt er af stað, lagt
af stað í leik með lífinu og öllum
mögnleikunum sem það gefur eftir
afli og atorku okkar sjálfra."
• •
UTSOLUTILBOÐ
Allir kjólar 1.000 kr.
Allir hattar 500 kr.
Skyrtur og pils frá 500 kr.
NYTT KORTATIMABIL