Morgunblaðið - 15.01.1998, Blaðsíða 59

Morgunblaðið - 15.01.1998, Blaðsíða 59
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1998 59 FÓLK í FRÉTTUM ► FYRSTA umferð „Gettu betur“, ár- legrar spurningakeppni framhaldsskól- anna, hefst þriðjudaginn 20. janúar. Fyrri hluti keppninnar fer fram á Rás 2 Ríkisútvarpsins þriðjudaga, fímmtudaga og föstudaga kl. 20.30-21.30 frá 20. jan- úar til 6. febrúar. Úrslit þessa hluta ráða hvaða lið komast í úrslitakeppnina sem sýnd verður í Sjónvarpinu. I ár stjórnar Davíð Þór Jónsson keppninni og fer með gamanmál, en það er þriðja skipti sem hann gegnir því hlutverki. Þar er Davíð Þór sporgöngu- maður Stefáns Jóns Hafstein sem stýrði vitsmunaati menntskælinga af hörku um árabil, og Ómars Ragnarssonar sem staldraði heldur skemur í embættinu. Allt síðan Stefán Jón tók við stjórn keppninnar árið 1991 hefur Andrés Ind- riðason séð um tæknilega hlið mála fyrir hönd Sjónvarpsins og ótal aðilar hafa Vitsmunaat mennt- skælinga að hefjast komið að ólikum hlið- um þess í gegnum ár- in. Nú er það Gunn- steinn Ólafsson sem semur spurningar og metur svör. Honum til aðstoðar er Katrín Jakobsdóttir sem fylgist með klukku og stigagjöf annað árið í röð. í fyrstu umferð keppa lið frá 22 fram- DAVÍÐ Þór Jónsson verður spyrill í spurningakeppninni. haldsskólum um rétt til þátttöku í annarri umferð þar sem þau 11 lið sem sigra, auk sigurvegaranna frá í fyrra, liðs Menntaskól- ans í Reykjavík, bítast um að komast í aðal- keppnina í Sjónvarp- inu. Þar keppa svo sigur- vegararnir 6 auk tveggja stigahæstu tapliðanna um verðlaunasætin. Spurningakeppni framhaldsskóla er orðin nokkuð formfastur dagskrárliður, enda liggur ellefu ára hefð að baki henni sem er langur tími í sögu íslensks sjónvarps. Aðspurður hvort miklar breytingar væru fyrirhugaðar þetta árið sagði Davíð Þór að lítið yrði brugðið út af þeim hefðum sem myndast hefðu. Mikil stemning myndast oftast um keppnina í þeim skólum sem ná góðum árangri og er hún nánast ómissandi þáttur í félagslífi margra þeirra. Sam- kvæmt hefð munu fulltrúar þeirra skóla sem keppa í hvert skipti sjá um skemmtiatriði í hléum sjónvarpskeppn- innar. Sjónvarpið sýnir keppnina í 7 þáttum á jafnmörgum föstudögum frá 20. febniar til 3. apríl þegar bein útsending verður frá úrslitaviðureigninni. MYNDBÖND Dagsverk Sundlaugahreinsun Hugo (Hugo Pool) _____________ íía in a n iii y n d 'k Framleiðandi: Barbara Ligeti. Leik- stjóri: Robert Downey. Handritshöf- undar: Robert Downey og Laura Downey. Kvikmyndataka: Joseph Montgomery. Tónlist: Danilo Perez. Aðalhlutverk: Alyssa Milano, Malcom McDowelI, Richard Lewis, Robert Downey jr., Sean Penn, Cathy Mori- arty, Patrick Dempsey. 92 mín. Bandarikin. Bergvík 1997. Útgáfu- dagur: 16. desember. Myndin er öll- um leyfð. ROBERT Downey er frekar þekktur sem faðir hins ágæta kvik- myndaleikara Roberts Dow- neys jr. en að vera kvik- myndaleikstjóri sem hefur gert myndir síðan seint á 7. ára- tugnum. Það getur vel verið að Downey hafi gert nokkrar piýðilegar gaman- myndir í fyrstu en það sem hann hefur gert frá árinu 1980 er hrein- asta hörmung og má nefna myndir eins og „Too Much Sun“. Sund- laugahreinsun Hugo breytir engu um gæðin á myndum Downeys þótt það sé frekar undarlegt að all- ir þessir ágætu leikarar taki þátt í henni. Myndin fjallar um einn dag í lífi Hugo sem starfar við það að hreinsa sundlaugar. Þennan dag hittir hún margar sérviskulegar persónur eins og uppdópaðan föður sinn (Malcom McDowell) spilaóða móður sína (Cathy Moriarty), mis- heppnaðan leikstjóra (Robert Downey jr.) og ungan mann sem er með Lou Gehrig sjúkdóminn (Pat- rick Dempsey). Myndin er hræðilega skrifuð og leikin og það sama má segja um leikstjórnina. Hvernig fólk getur aflað peninga til þess að gera svona óskapnað er mér mikil ráðgáta. Myndin er samt sem áður ágætis heimild um hversu lágt góðir leik- arar geta lagst og er Robert Down- ey jr. skólabókardæmi um það. Alyssa Milano hefur nánast enga leikhæfileika og reynir að komast í gegnum myndina á útlitinu einu og miðað við gæði myndarinnar tekst henni það prýðilega. Þessi mynd er ásamt „Shootfighter 2“ versta mynd ársins 1997. Ottó Geir Borg Laugavegi 91, sími 511 1717 Kringlunni, sími 568 9017 ETiiírTi raCTin
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.