Morgunblaðið - 15.01.1998, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1998 51
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
(
(
I
(
I
(
3
(
(
J
(
FRÉTTIR
Minningarsióður Helgu Jónsdóttur og Sigurliða Kristjánssonar
|i' v i |
Sí § á
FRÁ afhendingu styrkjanna.
Styrkur til stuðnings
nýjungum í læknisfræði
HIN árlega afhending styrkja úr
Minningarsjóði Helgu Jónsdóttur
og Sigurliða Kristjánssonar, sem
stofnaður var skv. ákvæði í erfða-
skrá þeirra hjóna hefur farið fram.
Til sjóðsins rann 1/8 hluti eignar
þeirra í Silla og Valda. Samkvæmt
skipulagsskrá er „Minningarsjóður
Helgu Jónsdóttur og Sigurliða
Kristjánssonar til stuðnings nýj-
ungum í læknisfræði", bundinn
rannsóknum á sviði öldnmarlækn-
inga, heila- og taugalækninga,
hjarta- og æðalækninga og augn-
lækninga. Fyrstu styrkir voru veitt-
ir árið 1985.
Upphæð styrkjanna að þessu
sinni var kr. 5.759.000.00 og skiptist
hún milli 13 styrkþega.
Þeir sem hlutu styrkina að þessu
sinni voru:
Til augnlækninga: Einar Stefáns-
son, Ph.D. prófessor, forstöðulækn-
ir við Augndeild Landspítalans, til
rannsóknar á lífeðlisfræði gláku og
glákulyfja og Súrefnisbúskap í sjón-
taugum.
Einar Stefánsson, Ph.D., prófess-
or og forstöðulæknir við Augndeild
Landspítalans, til rannsóknar á nýt-
ingu tölvutækni og sjálfvirkni í heil-
brigðisþjónustu. Meðumsækjendur
eru Herbert Þorsteinsson og Ragn-
ar B. Guðmundsson, tölvunarmenn.
Friðbert Jónasson, dósent, yfir-
læknir Augndeildar Landspítalans,
til rannsóknar á faraldsfræðú klinik
og áhættuþáttum drers á Islandi.
Meðumsækjandi er Einar Stefáns-
son, Ph.D. prófessor, forstöðulækn-
ir á Augndeild Landspítalans.
Haraldur Sigurðsson, sérfræð-
ingur á Augndeild Landspítalans,
til rannsóknar á augntóft eftir
brottnám auga og erfðamunstri
hrömunar í augnbotnum á Islandi.
Harpa Hauksdóttir, læknir, til
íramhaldsnáms í augnsjúkdómum
við Hospital Ophtalmique Jules
Gonin, University of Lausanne,
Sviss.
Til heila- og taugalækninga: Þor-
bergur Högnason, stud.med. í MS
námi við Beth Israel Hospital í
Boston, til rannsóknar á stökk-
breytingu á sérstöku erfðaefni
(OMgp-geni) í sambandi við heila-
æxli.
Til hjarta-og æðalækninga: Lilja
Sigrún Jónsdóttir, læknir, til rann-
sóknartengds framhaldsnáms í far-
aldsfræði hjartasjúkdóma. Þetta er
doktorsverkeftii hennar við Erasm-
us háskólann í Rotterdam.
María Ragnarsdóttir, sjúkra-
þjálfari á Landspítala, til rannsókn-
ar á lungnafylgikvillum við hjarta-
skurðaðgerðir.
Til öldrunarlækninga: Anton Pét-
ur Þorsteinsson, læknir við Uni-
versity of Rochester School of Med-
ieine, á sérstakri meðferð á kvíða
hjá heilabiluðum öldruðum einstak-
lingum, sem dvelja á hjúkrunar-
heimilum.
Arna Rún Óskarsdóttir, aðstoðar-
læknir á Öldrunarlækningadeild
Huddinge sjúkrahússins í Stokk-
hólmi, til rannsóknar á Alzheimer
sjúkdómi við Downs heilkenni.
Björn Einarsson sérfræðingur í
öldrunarlækningum við Öldrunar-
lækningadeild Sjúkrahúss Reykja-
víkur. Rannsóknai-verkefnið er
áhættuþættir æðakölkunar meðal
heilabilaðra.
Engilbert Sigurðsson, læknir,
MSc, MRCPsych, við London
School of Hygiene and Tropical
Medicine og einnig við The
Maudsley Hospital í London, til
rannsóknar á faraldsfræði geðsjúk-
dóma aldraðra (þunglyndis og heila-
bilunar). Hugmyndin er að leita að
erfðamörkum, sem valda þunglyndi,
minnistapi og skertri getu til at-
hafna daglegs lífs.
Jón Snædal sérfræðingur í lyf- og
öldrunarlækningum við Öldrunar-
lækningadeild Sjúki’ahúss Reykja-
víkur, og Jakob L. Kristinsson,
lyfjafræðingur, dósent við Rann-
sóknarstofu Háskólans í lyfjafræði,
til rannsóknar á magni kopars og
ceruloplasmins ásamt ákvörðun á
virkni superoxide dismutasa og
ceniloplasmins í sermi sjúklinga
með Parkinson sjúkdóm. Samverka-
menn eru dr. med. Þorkell Jóhann-
esson, prófessor, Rannsóknarstofu
Háskólans í lyfjafræði og Guðlaug
Þórsdóttir, sérfræðingur í öldrunar-
lækningum, Öldrunarlækningadeild
Sjúkrahúss Reykjavíkur.
Frá árinu 1985 hafa verið veittir
78 styrkir úr sjóðnum og hafa 30
verið veittir til öldrunarlækninga,
11 til heila- og taugalækninga, 16 til
hjarta- og æðalækninga og 21 til
augnlækninga.
Við þetta tækifæri ávarpaði Har-
aldur Sigurðsson, augnlæknir, gesti
og sagði meðal annars: „Þökk sé
sjóðstjóm Minningarsjóðs Helgu
Jónsdóttur og Sigurliða Kristjáns-
sonar, ég get nú ótrauður haldið
áfram að vinna að þeim rannsókn-
um sem nú þegar era í gangi og
einnig hafið ný og spennandi verk-
efni. Það er mikið Guðs lán að til
hafi verið manneskjur á Islandi eins
og Helga Jónsdóttir og Sigurliði
Kristjánsson, fólk sem trúði því að
rétt væri að ráðstafa peningum til
vísindavinnu, til framtíðar. Og á
sama hátt og dómgreind þeirra var
skýr, þá treystu þau best skyldfólki
sínu til að líta eftir sjóðnum."
Morgunblaðið/Sigurgeir.
SVIPMYND frá Suðurlandsmótinu í brids, sem fram fór í Vest-
mannaeyjum um sl. helgi.
BRIDS
llinsjón Arnór G.
Ragnarssun
Sveit Kristjáns Más vann Suð-
urlandsmótið í sveitakeppni
Mótið fór fram í Framhalds-
skóla Vestmannaeyja föstudaginn
9. janúar og laugardaginn 10. jan-
úar, með þátttöku 11 sveita. Eftir
harða baráttu tókst sveit Krist-
jáns Más Gunnarssonar að endur-
heimta Suðurlandsmeistaratitil-
inn, sem aldrei þessu vant gekk
þeim úr gi'eipum 1997. Með Krist-
jáni spiluðu þeh’ Helgi Grétar
Helgason, Guðjón Einarsson,
Bjöm Snorrason og Vilhjálmur
Þór Pálsson. Röð efstu sveita varð
þessi:
Sveit
Kristjáns Más Gunnarssonar Selfossi 233
Byggingavörur Steinars Selfossi 219
Sigfiísar Þórðarsonar Selfossi 189
Gísla Þórarinssonar Selfossi 189
Magneu Bergvinsdóttur Vestm.eyjum 188
Eins og sjá má var geysihörð
barátta um þriðja sætið, sem veit-
ir þátttökurétt á íslandsmóti.
Sveit Sigfúsar, sem spilaði án fyr-
irliða síns, vann sveit Gísla í inn-
byrðisviðureign, og það réð úrslit-
um um hvor sveitin hreppti sætið
mikilvæga. Sveit Byggingavara
Steinars skipuðu Ólafur Steina-
son, Sigfinnur Snorrason, Rík-
harður Sverrisson og Runólfur
Þór Jónsson. Sveit Sigfúsar skip-
uðu Gunnar Þórðarson, Ólafur
Týr Guðjónsson, Auðunn Her-
mannsson og Brynjólfur Gests-
son.
Mótið var einnig reiknað með
fjölsveitaútreikningi. Bestum ár-
angri náðu eftirtalin pör:
Guðjón Einarsson - Bjöm Snorrason 18,97
Ríkharður Sverriss. - Runólfur Þ. Jónss. 17,31
Kristján M. Gunnarss. - Helgi G. Helgas. 17,28
Olafur Steinason - Sigfinnur Snorrason 16,47
Keppnisstjóri var Stefán Jó-
hannsson og stóð hann sig að
venju með stakri prýði.
Bridsfélag Húsavíkur
Aðalsveitakeppni Bridsfélags
Húsavíkur er að þessu sinni hald-
in í boði Landsbanka íslands hf. á
Húsavík. 8 sveitir mættu til leiks í
fyrstu umferð. Spilaðir eru 24
spila leikir með forgefnum spilum
og fjölsveitaútreikningi. Að lok-
inni fyrstu umferð er staða efstu
sveita þannig:
Þórir Aðalsteinsson 25
Björgvin R. Leifsson 23
Sveinn Aðalgeirsson 22
Þórólfur Jónasson 19
Bridsdeild Barðstrendinga
og Bridsfélag kvenna
Mánudaginn 12. jan. sl. var spil-
aður eins kvölds tvímenningur. 30
pör mættu. Meðalskor 364. Besta
skor í N/S:
Friðjón Margeirsson - Valdimar Sveinsson 444
GuðrúnJorgensen-ÞorsteinnKristjánsson 430
Geirlaug Magnúsd. - Torfi Axelsson 417
Vilhjálmur Sigurðsson - Viðar Guðmundsson 411
Bestu skor í A/V:
Baldur Bjartmarss. - Halldór Þorvaldss. 478
Maria Asmundsd. - Steindór Ingim.s. 446
Guðm. Guðmundsson - Gísli Sveinsson 414
Kristinn Karlsson - Jóhann Magnússon 400
Mánudaginn 19. jan. nk. hefst
Aðalsveitakeppni 1998. Spilað eft-
ir Monradkerfi með forgefnum
spilum. Upplýsingar og skráning
hjá Ólínu í síma 553-2968, Ólafi í
síma 557-1374 á kvöldin og BSÍ í
síma 587-9360. Spilað í Þöngla-
bakka 1 öll mánudagskvöld kl.
19.30. Pör aðstoðuð við að mynda
sveitir.
Sameiginleg bridskvöld hjá
Bridsfélagi Breiðfirðinga og
Bridsfélagi Breiðholts
Spilaðir verða eins kvölds tölvu-
reiknaðir tvímenningar með for-
gefnum spilum á fimmtudags-
kvöldum. Veitt verða rauðvíns-
verðlaun fyrir efsta sætið í hvora
átt. Spilamennska byrjar kl. 19.30
og keppnisstjóri er Isak Öm Sig-
urðsson. Allir spilarai- eru vel-
komnir og ísak aðstoðar við
myndun para á staðnum.
Islandsmót í parasveita-
keppni1998
Islandsmót í parasveitakeppni
fer fram helgina 31. janúar-1.
febrúar. Fyrirkomulag verður
með sama móti og undanfarin ár.
Spilaðar eru 7 umferðir af 16 spila
leikjum og raðað í umferðir með
Monrad fyrirkomulagi. Spila-
mennska hefst kl. 11 báða dagana
og verður verðlaunaafhending
u.þ.b. ki. 15.30 á sunnudeginum.
Keppnisgjald er 10.000 kr. á sveit.
Tekið er við skráningu hjá BSÍ, s.
587-9360.
fundir/ mannfagnaðurII félagsstarf
l Þorrablót
Austfirðingafélag Suðurnesja heldur hið
árlega þorrablót í Stapa laug. 17. janúar.
Borðhald hefst kl. 19.30. Stuðbandalagið úr
Borgarnesi spilar fyrir dansi til kl. 03.00.
Aðgöngumiðar verða seldir 15. janúar milli
kl. 17 og 19 í Stapa. Ferðir frá BSÍ kl. 18.00 og
veitingahúsinu Gaflinum, Hafnarfirði, kl. 18.30.
I Nánari upplýsingar veittar í Kaffi Duus við
smábátahöfnina í Keflavík, sími 421 7080.
VSjálfstæðisflokkurinn
í Reykjaneskjördæmi
Rabbfundur
Með alþingismönnunum
Sigríður Önnu Þórðardóttur
og Árna Ragnari Árnasyni
laugardaginn 17. janúar nk.
kl. 10—12 í Sjálfstæðishúsinu,
Víkurbraut 12, Grindavík.
Fundurinn er öllum opinn.
Stjóm Kjördæmisráðs.
V Aðalfundur
Hverfafélag sjálfstæðismanna
í Smáíbúða-, Bústaða-
og Fossvogshverfi
Aðalfundur félagsins verður haldinn fimmtudaginn
22. þ.m. í Valhöll, Háaleitisbraut 1, og hefst kl. 20.30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Árni Sigfússon, borgarfulltrúi, flytur ávarp.
Fundarstjóri: Hannes Þ. Sigurðsson.
Stjórnin.