Morgunblaðið - 15.01.1998, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
LAGANEPND Dagsbrúnar og Framsóknar að störfum.
>
>
I
>
>
I
I
|
»
I
»
»
i
m
(hinna nýju laga. innsk. laganefnd)
sé að efla áhrif valdastofnana inn-
an félagsins á kostnað félagsmann-
anna sjálfra." Þama nefnir hann
sem rök listakosninguá í stað per-
sónukosningar, mikið vald trúnað-
arráðs og meint minnkandi vald
félagsfunda. Rétt er að svara
þessu.
Listakosning er eins og kunnugt
er afar algengt foiTn kosninga í fé-
lögum hér á landi. Nafngiftin
„skrílræði" sem Gunnar notar fyrir
listakosningu er því fráleit. Laga-
nefnd félagsins var þeirrar skoðun-
ar að með þeirri breytingu á stjóm-
arkosningu þar sem helmingur
stjórnar er kosinn í senn, hafí verið
komið nokkuð til móts við þá sem
vilja persónukosningu. Nefndin og
mikill meirihluti félagsmanna töldu
að listakosning tryggði betur sam-
stöðu innan félagsins og vildi láta
reyna á þetta fyrirkomulag sam-
hliða tvískiptingu stjómarkosninga.
Gunnar Guðmundsson segir í
grein sinni: „Þá er tekið fram í lög-
unum að æðsta vald í málefnum fé-
lagsins sé í höndum trúnaðarráðs,
sé ekki annars getið. Hvert er vald
hins almenna félagsmanns og
ályktunarbærni félagsfunda?“ spyr
hann. Svarið er að þetta ákvæði um
trúnaðarráð er nánast samhljóða
ákvæði og var í eldri lögum Dags-
brúnar. Erfitt er að sjá að verið sé
að efla trúnaðarráðið með óbreyttu
ákvæði. Þá segir Gunnar að „vilji
menn ná fram niðurstöðu sem ekki
er að skapi trúnaðarráðs þurfa
minnst 300 félagsmenn að sitja
þann fund.“ Ákvæðið er óbreytt frá
fyrri lögum.
Trúnaðarráðið hefur ekki verið
eflt á kostnað félagsfunda í lögun-
um. Staðreyndin er sú að félags-
fundir eru jafnþýðingarmiklir og
nauðsynlegir í starfsemi félagsins
og áður og ný lög breyta því ekki.
Það er rétt að árétta að trúnað-
arráð félagsins er skipað 100 trún-
aðarmönnum/fulltrúum helstu
starfsgreina félagsins og tryggir
valddreifingu innan félagsins.
Þetta skipulag hefur reynst vel.
Bent skal á að sæki 300 manns fé-
lagsfund er hann æðri trúnaðar-
ráðsfundi.
Aðildin að ASÍ og VMSÍ
Gunnar telur að félagsfundur
Dagsbrúnar og Framsóknar sé
gerður að „áhrifalausri sýndar-
samkomu" þar sem miðstjórn ASI
og framkvæmdastjórn VMSÍ verði
að samþykkja lagabreytingar fé-
lagsins. Þessu er til að svara að
sambærileg ákvæði eru í öllum
lögum ASI og VMSÍ-félaga. Ef
Dagsbrún og Framsókn - stéttar-
félag ætlar að vera innan heildar-
samtaka, þarf það að hlíta lögum
samtakanna.
Afstaða Gunnars í garð heildar-
samtaka er í rauninni óskiljanleg
þar sem þau eni samtök aðildarfé-
laga á borð við Dagsbrún og Fram-
sókn - stéttarfélag. Dagsbrún og
Framsókn - stéttarfélag hefur
áfram fullan sjálfsákvörðunarrétt í
eigin málum.
Miklar breytingar á lögunum
Laganefnd Dagsbrúnar og
Framsóknar var vel ljóst þegar
hún hóf störf fyrir nærri tveimur
árum að hún átti erfitt starf fyrir
höndum. Deilur höfðu lengi staðið
um lögin og gagnrýni komið fram á
þau. Gagnrýnt var að erfitt væri að
bjóða fram í félaginu, lagabreyt-
ingar væru erfiðar og margt fleira
var nefnt til sögunnar.
Laganefndin féllst á þau sjónar-
mið að breyta þyrfti lögunum í
veigamiklum atriðum. Breytingar
voru gerðar á stjómskipan og
kosningafyrirkomulagi, kjörtíma-
bili er breytt, gengið er nú til kosn-
inga um hluta stjórnar hverju
sinni, stjóm er ekki kosin lengur
samhliða trúnaðarráðskosningu, ný
ákvæði eru um samninganefnd,
nýtt jafnréttisákvæði er í lögunum
og margt fleira mætti nefna.
Fullyrða má að ný lög Dags-
brúnar og Framsóknar - stéttar-
félags eru mjög til bóta frá fyrri
lögum. Lögin hafa á málefnalegan
hátt verið færð í nútímalegt horf í
anda lýðræðis og jafnréttissjónar-
miða. Um leið em allar breyting-
ar á lögunum gerðar auðveldari.
Með þessari jákvæðu fullyrðingu
sendum við Gunnari Guðmunds-
syni kveðju með þeirri von og
vissu að reynslan af nýju lögunum
muni skila félagsmönnum Dags-
brúnar og Framsóknar - stéttar-
félags þeim árangri sem að var
stefnt.
Höfundar, Atli Gíslason, Ingunn
Þorstcinsdo'ttir, Sigurður Bessason,
Þórir Daníelsson og Þráinn Hall-
grímsson, skipa laganefnd Dags-
brúnar og Framsóknar - stéttarfé-
lags.
kbt í «n,k,U Ö/fc
odidos
VerSd®'
FuHor&'nsU,p
S í'lfSl 3*^ •
Skíðabo«1o«orð'mSSt'
o,ma- 09 1
ö ^ EURO - VISA
NÝTT KORTATÍMABIL! - P6stsendum
samdægurs
FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1998 41*
daleikuY
Þú klippir út myndina hér til
hliðar og límir á svarseðilinn
sem birtist á síðu 49 í
Morgunblaðinu 14. janúar.
Þá átt þú möguleika á að
vinna ferð fyrir tvo í Tívolí í
Kaupmannahöfn, miða á
sýninguna Bugsy Malone
eða geisladisk með tónlist-
inni úr sýningunni.
Mynd1 af1° tAstflONfJ JRoreunWabtb
Ástúðleg umhyggja
og lifandi litir í
litalínunni frá
MARBERT.
Þú getur valið um 6 tegundir af
andlitsfarða frá MARBERT allt
eftir þvi hvemig húð þín er.
Andlitsfarðinn inniheldur vitamín
og UV filter sem virkar gegn
skaðlegum áhrifum í umhverfmu.
Við bjóðum upp á skemmtileg
tilboð í litalínunni í næstu
MARBERT verslun.
Kynning í dag, fimmtudag.
NANA,
Hólagarði, sími 557 1644.
Kynning á morgun, föstudag
BRÁ
Laugavegi 66, sími 551 2170.
ÞREKTÆKJA
ÚTSALA
Skeifunni 11, s. 5889890