Morgunblaðið - 15.01.1998, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 15.01.1998, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1998 29 / Islensk tónlist í New York TÓNLISTARHÁTÍÐIN FOCUS verður haldin í New York dag- ana 28.-30. janúar. Þema hátíð- arinnar er tónlist Norðurland- anna og ber yfirskriftina Scand- inavia Today. Á sex tónleikum í Lincoln Center og Julliard Theatre verða flutt jafnmörgy'slensk verk. Þau eru Elja eftir Áskel Másson, en það verður fyrsta verk á opnun- artónleikunum í Loncoln Center; Fantastic Rondos III eftir Atla Heimi Sveinsson; Musubi eftir Atla Ingólfsson; Renku eftir Kar- olínu Eiríksdóttur, Píanótríó eft- ir Hafliða Hallgrímsson og Strati eftir Hauk Tómasson. Meðal þeirra sem eiga verk á hátiðinni eru mörg fremstu tónskáld Norð- urlandanna. Þar má nefna Magn- us Lindberg, Jukka Tiensuu og Kaiju Saariaho frá Finnlandi, Per Norgárd og Poul Ruders frá Danmörku, Olav Anton Thommesen og Cecilia Ore frá Noregi og Karin Rehnqvist og Par Lindgren frá Svíþjóð. Flytj- endur á hátíðinni eru hljómsveit- ir hins virta Julliard skóla; Julli- ard Ensemble sem Joel Sachs sljórnar og Julliard Orchestra undir stjórn Roberts Duerrs. Ekkert íslensku verkanna hefur áður heyrst á tónleikum í Banda- ríkjunum. ♦ ♦♦ Nýjar bækur • ÖKUNÁMIÐ er eftir Guðna Karlsson. Hún er ætluð ungum og verðandi ökumönnum sem eru að búa sig undir bílpróf. Kennt er hvernig á að aka bíl við ýmsar aðstæður, veitt undirstöðuþekking um bílinn og búnað hans, öll umferðarmerki og reglur eru útskýrð, og að lokum er kafli um slys og skyndihjálp. Bókin kemur út í endurskoðaðri gerð, með fjölda skýringarmynda og myndum af umferðarmerkjum. Utgefandi er Mál og menning. Bókin er 120 bls. og kostar 2.480 kr. Prentvinnsla var í höndum Prentsmiðjunnar Odda hf. Böðvar Leós gerði skýringarmyndir í bókina og kápu gerði Helga Páiína Brynjólfsdóttir. LISTIR Harðar deilur um byggingu Árþúsundshvelfíngar f London Ekkert rúm fyrir Jesúm London. The Daily Telegraph. ÓVENJULEG deila stendur nú yfir vegna fyrirhugaðrar bygging- ar svokallaðrar Arþúsundshvelf- ingar (Millenium Dome) í Greenwich í London. Deilt er um þátt kristninnar við skreytingu hvelfingarinnar, en einn hinna listrænu ráðgjafa við bygginguna, Terence Conran, hefur lýst því yf- ir að kristilegt þema sé „algerlega óviðeigandi“. Hvelfingin skiptist í níu hluta og kallast einn þeirra „Andinn“ og er deilt um að hve miklu leyti kristnin tengist þessu þema, eða önnur trúarbrögð. Terence Conr- an liggur undir miklu ámæli frá kirkjunnar mönnum, sem segja að um næstu aldamót fagni kristnir menn fæðingu frelsarans. Hann telur það hins vegar alls ekki við hæfí að leggja áherslu á ein trúar- brögð framar öðrum. Conran kveðst óttast að skreyt- ing hvelfingarinnar verði í anda amerískra predikara ef kristnin verði áberandi, enda sé grunn- þema hvelfingarinnar tíminn, ekki kristnin. „Þetta er óður til alda- mótanna og tengist kristninni að- eins lauslega ... Fæðingardagur Krists hefur aldrei verið sannað- ur,“ segir Conran. Eins og við er að búast hafa þessar yfirlýsingar skapað mikið fjaðrafok og hefur þess m.a. verið krafist að Conran verði rekinn. Þá hefur verið deilt um gríðarlegan kostnað við verkið. Listrænn stjórnandi þess, Steph- en Bayley, sagði upp og fullyrti að það hefði ekki gert honum auð- veldara fyrir að ráðherrann sem verkið heyrir undir, Peter Mand- elson, láti stjórnast af almennings- álitinu. Hefur Mandelson lýst því yfir að kristnin verði eitt höfuðefna skreytinga hvelfingarinnar. Til að koma til móts við kirkj- unnar menn og til að hægt verði að standa við fullyrðingar Mandel- sons hefur nú verið lagt til að gerð verði teiknimynd um ævi Krists og muni leikarinnar Ralph Fienn- es ljá honum rödd sína. Myndin verði sýnd í kvikmyndahúsum en sviðsmynd og brúður gerðar eftir teikningunum verði hafðar til sýn- is í hvelfingunni. GÓLFFLÍSAR Stærð 30X30 áður kr. 1.790 m2 núkr. 1.253 m2 ARMSTRONG gólfdúkur Teg. GGMFORT áður kr. 1.473 m2 GOLFTEPPI Teg. ARGUS 4m á breidd áður kr. 1.595 m 100°/o polypropylene Teg.RUBY stærð 80x150 kr. 2.282 pr.stk. stærð 120x180 BOEN parket ®BEYKI STRUKTU áður kr. 3.9E4 m2 I TILBOÐSifERÐia I FILTTEPPI I Teg. FUN 4m á breidd, 15 litir 1200m2 fyrsta flokks stigahúsateppi Verð aðeitts kr. 1.300 pr.stk. SOMMER | plastparket W3 álagsþol / 4 Utir núkr. 1.835 m2 70 sm 80 sm 90 sm á breidd Takið málin með það flýtir afgreiðslu! Góð greiðslukjör! Raðgreiðslur til allt að 36mánaða # AFGANGAR: TEPPI, DUKAR, FLfSAR ALLT AD 70% AFSL. OPNUNARTÍMI: 9-18 vlrha daga 10-16 TEPPABUÐIN Suðurlandsbraut 26 s: 568 1950
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.