Morgunblaðið - 15.01.1998, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 15.01.1998, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1998 27 ___________ERLENT__________ Slavneskar stúlkur ganga kaupum og sölum >. RINA stóð í þeirri trú að útlitið myndi forða sér frá að daga uppi í úkraínska þorpinu sem hún ólst upp í. Fyrir nokkrum mánuðum svaraði hún auglýsingu um starf í ísrael og hélt af stað í von um að efnast á því að dansa nektardans. Raunin varð önnur, passinn hennar var brenndur að henni ásjáandi skömmu eftir komuna til Israel og henni sagt að hún væri nú eign manns sem rak vændishús í Haifa. Irína hafði, eins og hund- ruð þúsunda úkraínskra kvenna, látið blekkjast og var orðin kynlífsþræll. Því fer fjarri að saga Irínu sé einsdæmi. Um 1.500 stúlkur hafa komið frá Úkraínu og Rússlandi til Israel, og það er að- eins einn áfangastaður af mörgum. Sala á fáfróðum og örvæntingarfullum stúlkum í vændi er sívax- andi grein glæpasam- taka, sem auðgast gífur- lega. Vændi er ekki nýtt af nálinni, Asíulöndin voru um áratugaskeið einn helsti áfangastaður karla í kynlífsferðum en efna- hagshrunið í lýðveldum Sovétríkj- anna sálugu og Austur-Evrópu eftir hrun kommúnismans hefur opnað ábatasamasta markað, sem austur- evrópskir glæpahópar hafa komist í kynni við; austur-evrópskar konur sem eiga ekkert annað en draum um betra líf. Melludólgar, lögreglumenn og starfsfólk góðgerðarstofnana eru sammála um að úkraínskar og rúss- neskar konur séu þær verðmætustu á vændismarkaðnum um þessar mundir. Hins vegar er útilokað að gera sér grein fyrir því hversu margar konur hafa verið hnepptar í kynlífsþrældóm. Flestar eru ólöglegir innflytjend- ur í löndunum þar sem þær starfa og sumar þeirra gerðust vændiskon- ur af fúsum og frjálsum vilja. Sameinuðu þjóðirnar hafa giskað á að um fjórar milljónir manna séu fluttar ólöglega á milli landa á hverju ári, og að það sé fólk sem sé lokkað eða þvingað til að vinna við alls kyns þjónustu. Alþjóðasamtök um fólksflutninga giska á að um hálf milljón kvenna sé flutt til landa í Vestur-Evrópu á ári hverju. 400.000 konur farið frá Úkraínu Margar kvennanna eru í sömu sporum og Irína. Hún fylltist skelf- ingu er henni var gert ljóst að hún ætti að stunda vændi og neitaði. Hún var barin illa og henni nauðgað, og þá gafst hún upp. Írína komst úr klóm melludólganna er lögregla gerði árás á vændishúsið og bíður hún þess nú að verða send aftur til Úkraínu. „Þið megið kalla mig kjána fyrir að láta glepjast," segir Írína, sem er 21 árs. „Það er eini glæpur- inn sem ég hef framið. Eg var heimsk. Heimsk þorpsstúlka. En geta menn í raun og veru keypt og selt konur og komist upp með það?“ spyr hún. Glæpasamtökin sem standa að sölunni á konum í vændi hafa flest aðsetur í Moskvu og Kiev, höfuð- borg Úkraínu. Þaðan stjórna þau flutningi kvenna allt austur til Japan og Tælands og til fjölmargra landa ( Vestur-Evrópu. Þá eru glæpahóp- arnir í samvinnu við vændishúsaeig- endur og sjá konunum fyrir fölsuð- um skilríkjum. Framtíðin er ekki björt í Úkraínu, konur eru tveir þriðju þeirra sem eru án atvinnu og mánaðarlaun þeirra sem hafa vinnu eru rétt rúm- ar 2.000 kr. ísl. Margar konurnar fara sjálfviljugar af stað, láta freist- ast af atvinnutilboðum sem fela í sér hærri laun en þær geta látið sig dreyma um heima fyrir. Hefur úkraínska innanríkisráðu- SÞ telja að um 200 milljdnir manna hafi verið hnepptar í þræl- ddm um heim allan. Þar á meðal eru hundruð þúsunda kvenna, sem er haldið í kynlífsþrælddmi neytið giskað á að um 400.0000 kon- ur undir þrítugu hafi farið úr landi sl. áratug. Og til marks um hvert konurnar halda má nefna að tæ- lenska sendiráðið í Moskvu segist fá um 1.000 umsóknir um vegabréfsá- ritun frá Rússlandi og Úkraínu á degi hverjum og eru langflestir um- sækjendanna konur. ísrael er annar dæmigerður áfangastaður. Vændi er ekki ólög- legt þótt rekstur vændishúsa sé það. Þau eru engu að síður fjölmörg. Fjórar deila rúmi „Mann langar til að segja þeim að virðist eitthvað of gott til að vera satt þá er sú yfirleitt raunin,“ segir Ljúdmíla Birjúk, úkraínskur sál- fræðingur sem hefur aðstoðað margar stúlkurnar við heimkomuna. „En það er erfitt að gera sér grein fyrir því hvað ótti og fávísi getur gert fólki.“ Konurnar hafa enga hugmynd um hvað bíðm- þeirra. Flestum er haldið í íbúðum, á börum og á vændishús- um, þar sem þær sinna viðskiptavin- um, allt að fimmtán á dag. I mörg- um tilvikum eru stúlkurnar á vökt- um og rúminu sem þær sofa í, deila þær með þremur öðrum stúlkum. Helsta von þessara ólánsömu kvenna er að lögreglan uppræti starfsemina og sendi þær úr landi. Þær bera ekki vitni gegn mönn- unum sem hafa þær í haldi, því það kostar þær að öllum líkindum lífið. í Istanbúl horfðu sex Rússar á þegar tveimur löndum þeirra, vændiskon- um, var hrint niður af svölum. Úkra- ínsk kona, sem flýði af vændishúsi í Serbíu í október sl. var hreinlega hálshöggvin á götu úti þar í landi. Og einni viku fyrir jól komst upp um glæpahring í Mílanó á Ítalíu, sem hélt uppboð á konum frá Sovét- ríkjunum gömlu. Konurnar voru boðnar upp í hópum, hálfnaktar, og söluverðið fyrir hverja var að jafnaði um 70.000 ísl. kr. eða minna. 200 milljónir þræla í heiminum Michael Platzer, sem hef- ur yfirumsjón með aðgerð- um á vegum Alþjóða glæpa- vamastofnunar Sameinuðu þjóðanna, segir ýmsar ástæður fyrir því að það er eins ábatasamt og raun ber vitni að hneppa konur í kynlífsþrældóm. Platzer segir gróðann geysimikinn og kostnaðinn að sama skapi fremur h'tinn. „Eiturlyf selja menn einu sinni en konur geta aflað fjár lengi. Og lög- in eru glæpamönnunum hliðholl því vændi er hálf-löglegt í mörgum lönd- um, sem gerir lögreglu erfitt íyrir að ráðast gegn starfseminni, og í flest- um tilvikum eru viðui-lögin lítil.“ Sem dæmi um þetta er ísrael en þar, og í fleiri löndum, er ekki bann- að að selja fólk. Platzer segii' útilokað að gera sér grein fyrir því hversu margar konur hafa verið hnepptar í kynlífsþræl- dóm. „En vilji menn hengja sig í töl- ur, má nefna að um tvö hundruð milljónir manns eru fórnarlömb nú- tímaþrælahaldara. Vændiskonur eru lítill hluti þeirra, flestir eru börn sem vinna í ólöglegum verksmiðjum, verka- og þjónustufólk og ólöglegir innflytjendur." Platzer minnh- á að talið er að um tólf milljónir Afríkubúa hafi verið hnepptar í þrældóm og fluttar til Ameríku á fjórum öldum. Nú séu þrælarnir um 200 milljónir. Byggt á The International Herald Tribune. • Byrjendanámskeið • Framhaldsnámskeið • Söngleikjahópur (byrjendur, jramhald) • Barna- og unglingahópar • Einsöngsnám (klassískt og söngleikja) Píanókennsla Meðal kennara: Rapnhelður Hall • Iris Erlingsdóttir Anna Sigurðardóttir • Helga Finnbogadóttir Sigrún Grendal • Ragnheiður Lárusdóttir Upplýsingar og innritun i sirna: 561 2455 alla virka daga frá kl. 10 -17. SÖniCSMIÐJAIU IÉ Reuters RUSSNESKAR vændiskonur í haldi lögreglu í Moskvu. Þær lifa engu sældarlífi og því síður þær stúlkur sem halda úr landi í von um betra starf og hærri laun. 1 4 p M jg. ■■■■i || • 4 ® i fc. ' ■w§ m - 0 RíHflU býður upp á fjölbreytt úrval af vörum á sviði húsa- og byggingar- tækni 0REHAU er með alhliða kerfis- lausnir fyrir flutning á vatni, varma og skólpi 0 REHAU „press fittings“ (hulsur) pípulagningakerfi HIS 311 fyrir heimili 0 RAUPINK ofnatengikerfi '□ REHAU gólfhitunarkerfi ■k w hljóðeinangrandi skólp- lagnakerfi fyrir heimili þakrennukerfi með hámarksvatnssöfnun REHAU - VIT Á VATNI FJÖLTÆKNI SF., Súðarvogur 7, sími 568 7580, fax 568 7585.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.