Morgunblaðið - 15.01.1998, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 15.01.1998, Blaðsíða 30
30 FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1998 MORGUNB LAÐIÐ LISTIR Listagóð söngkona TðlMLIST Listasafn Kópavogs EINSÖNGSTÓNLEIKAR Auður Gunnarsdóttir og Jónas Ingi- mundarson fluttu söngverk eftir ell- efu íslensk tónskáld. Mánudagurinn 12.janúar, 1998. SAGA íslenska sönglagsins spannar rétt ríflega hundrað árin og fyrstu einsöngslögin urði til í rómantísku andrúmslofti, hingað komnu frá Þýskalandi með við- komu í Danmörku. A milli heims- styrjaldanna náðu íslendingar að kynnast þeim nútímaviðhorfum í listsköpun, er bera tók á um alda- mótin og þegar liststjórnun nas- ista og kommúnista hafði hindrað eðlilega framvindu í þýskri og rússneskri listsköpun, varð nú- tímalistin í raun frelsun undan allri þjóðernislegri áþján og þá varð til slagorðið „öll þjóðleg list er vond“. Alþjóðahyggjan gat af sér ópersónulega listsköpun og það sem verra var, að tilfinninga- semi var nær algerlega útrýmt. Um síðir hafa menn fundið leið til að endurmeta gömul gildi og þar með sameina gamalt og nýtt. Þessar sviptingar í mótun söng- lagsins íslenska má greina í efnis- skrá Auðar og Jónasar. Rómantík- in er ríkjandi í söngverkum eftir Eyþór Stefánsson (Hjá vöggunni), Emil Thoroddsen (Vöggukvæði). Sigurð Þórðarson (Vögguljóð) og Þórarin Guðmundsson (Þú ert), sem voi-u fallega flutt, sérstaklega lög Emils og Sigurðar. Tónleikarnii’ hófust á útsetning- um Þorkels Sigurbjörnssonar á átta íslenskum þjóðlögum og þar mátti heyra á margan hátt skemmtilega tilraun til að gefa hinu frumstæða íslenska þjóðlagi nútímalegt svipmót. Þjóðlögin voru næsta lítið breytt en undir- spilið var á stundum eins og af öðr- um heimi, þó oft skemmtilega unn- ið við mörg laganna, Besta lagið, var Nátttröllið (Fögur þykir mér hönd þín, snör mín en snarpa og dillidó), þar sem saman vann mót- un lagsins og undirspilsins í að skapa dramatíska heild enda var flutningur Auðar og Jónasar á þessu frábæra lagi aldeilis glæsi- legur. Þrjú lög eftir Fjölni Stefánsson birta okkur tvenna tímana. Tvö þeirra voru í stíl þeim er einkenndi upphaf nútímatónlistar hér á landi, Minning við kvæði eftir Valgerði Benediktsdóttur, er var hér flutt í fysta sinn og Sólskin á Austurvelli, við kvæði eftir Stefán Hörð Gríms- son. Minnig er fagurlega unnið en sérstaklega glæsilegt er lagið við kvæði Stefáns og það var mjög vel flutt. Þriðja lag Fjölnis var Litla barn, við kvæði efitr Halldóru B. Björnsson. Þama eru gömlu gildin ráðandi og hefur þetta fallega lag verið mikið sungið. Ljóð fyrir börn, eftir Atla Heimi Sveinsson, við samnefndan kvæða- flokk eftir Matthías Johannessen, er góð nútíma tónlist, að nokkru tónlesin, oft á sérlega gamansam- an hátt. Þarna mátti heyra skemmtilega samtvinnun tónferlis söngraddar og undirspils, varð- andi mótun stíls og leikrænnar tjáningar, sem allt var mjög vel út- fært af Auði og Jónasi. Fjögur lög eftir Jón Þórarinsson ramma inn þessar sviptingar, því Islenskt vögguljóð á hörpu og Fuglinn í fjörunni eru samin áður en Jón fer utan til náms en hann var einn af fmmkvöðlum í nútíma- legri tónsmíði hér á landi. Lög frá þeim tíma vom ekki á efnis- skránni, en lögin Jeg fandt í mor- ges, við kvæði eftir Kristmann Guðmundsson og Jeg elsker dig, við kvæði Magdalenu Thoresen era frá tíma endurmatsins. Öll þessi lög em frábærar tónsmíðar og voru vel flutt, einkum lögin við kvæði Kristmanns og þó sérstak- lega Jeg elsker dig. Lög Jórannar Viðar hafa nokkra sérstöðu í safni íslenskra söngverka, því auk þess að vera við jaðar nútímatónlistar, bera þau í sér sönglínu, oft tónala og jafnvel þjóðlega. Segja má að tónmál Jór- unnar sé sambland tónbundins frjálsræðis og nútímalegs tónferl- is, beri í sér eins konar samkomu- lag hins nýja og gamla, þar sem henni hefur tekist að skapa sér mjög persónulegan stíl. Öll lög Jórunnar voru mjög vel flutt, sér- staklega Unglingurinn í skóginum, við kvæði Halldórs Laxness en helst vantaði á túlkun textans í Gestaboði um nótt við kvæði Ein- ars Braga. Júnímorgunn, við kvæði Tómasar Guðmundssonar, var ágætlega flutt. Yngsta tón- skáldið í þessum hópi var Tryggvi Baldvinsson og mátti marka í lög- um hans þá togstreitu á milli hins gamla og nýja sem enn er í gangi. Ekki veit undirritaður hvort áheyrilegt lag hans við kvæðið um hann krumma, eftir Davíð Stefáns- son, er gamalt eða nýtt, en trúlega er lag hans við kvæðið Gömul ljós- mynd, eftir Sveinbjörn I. Bald- vinsson, nær okkur í tíma. Þetta er viðamikið lag sem Auður söng af mikilli innlifun. Tónleikunum lauk með þremur lögum eftir undirritaðan, sem Auð- ur og Jónas fluttu aldeilis vel. Það er erfitt að syngja eingöngu ís- lenska efnisskrá og eftir þessa tón- leika verður ekki annað sagt en að Auður Gunnarsdóttir er frábær söngkona og hefur þegar aflað sér mikillar og góðrar tækni, svo að þarna er von í listagóðri söngkonu. Samspil Auðar og Jónasar var í heild gott og glampaði af leik Jónasar, eins og þegar honum tekst best upp í mótun fallegra blæbrigða. Jón Ásgeirsson F til framtfl Markads- og sölunám Almennt Stutt og hnitmióaó skrifstofunám • Tölvur • Enska • Markaðsfræði • Lögfræði • Tollskýrslugerð • Námsstefnur • Tölfræði og aðferðir • Starfsþjálfun • Stjórnun • Lokaverkefni starfsnám í takt við þarfir vinnumarkaöarins. i Tölvur > Enska | • Bókhald > íslenska > Verslunarreikningur • Vólritun •Tollskýrslugerð • Námsstefnur • Starfsþjálfun Vlðurkenndur elnkaskóll Skóll sem byggir á 23 óra reynslu og hefð Nám sem lelðir ftll auklnna starfsmögulelka Skóllnn sftarfar í ftakt vlð þarfir atvfnnulífslns Faxafeni 10 • Framtíðin ■ 108 Reykjavík Sími: 588 5810 - Bréfasími: 588 5822 AIK nám f skólanum er að fullu lánshæfft Skóllnn undlrbýr nemendur fyrfr sftörf á 21. öldlnnl Hvergl á fslandl er að flnna beftrf aðstöðu fyrfr nemendur Morgunblaði Silli. SIGURÐUR Hallmarsson við eitt verka sinna. Vatnslitamyndir í Safnhúsinu á Húsavík Morgunblaðid. Húsavík. FYRIR nýliðin jól sýndi fjöllista- maðurinn Sigurður Hallmarsson 27 málverk, vatnslitamyndir, í Safnhúsinu á Húsavfk. Flestar myndanna voru landslagsmyndir frá ýmsum stöðum víðsvegar um landið, aðallega þó sunnan heiða frá sl. sumri. I anddyri Safnhússins héngu 19 myndir, sem Sigurður málaði á sínum tfma af gömlum húsvískum sjómönnum, en Krist- ján Ásgeirsson, Höfða hf., hafði látið gera þær og voru þær gefnar safninu á liðnu sumri. Sýningin var fjölsótt og seldust flestar myndanna. HANDVERK íbúa Sólheima í Grímsnesi verður til sýnis í Jóni Indtafara. Ibúar á Sólheimum með yfírlitssýningu NÚ stendur yfir á „loftinu" í versl- uninni Jóni Indíafara, Kringlunni, yfíriitssýningu á verkum íbúa Sól- heima í Grfmsnesi. Á sýningunni er m.a. vefnaður, s.s. mottur, dúk- ar, veggteppi, töskur og treflar. Kort úr endurunnum pappír og kort með myndum máluðum á silki. Málverk, myndir, auk leik- fanga og skrautmuna sem unnir eru úr tré. Kerti, s.s. bývaxkerti, endurunnin kerti, skrautkerti o.fl. Á Sólheimum er lögð áhersla á endurvinnslu og að unnið sé með náttúruleg hráefni. Allt sorp er flokkað og eru um 60% af því end- urnýtt á staðnum, hluti þess endar sem handverk. Kertagerð Sól- heima endurnýtir alla kertastubba og aðra vaxafganga og tekur verslunin Jón Indiafari á móti vaxafgöngum fyrir kertagerðina. Sýningunni Iýkur laugardaginn 31. janúar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.