Morgunblaðið - 15.01.1998, Qupperneq 54

Morgunblaðið - 15.01.1998, Qupperneq 54
54 FIMMTUDAGUR 15. JANÚAR 1998 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Tommi og Jenni PANCIN6 IN TWE RAIN 15 ROMANTlC. 5TANDIN6 IN THE RAIN 6EHINP A TREE ISN'T Þarna er húsið sem Þegar hún Þá segir hún ... Þú segi ég: Þá segir hún: Að dansa í rigningu litla rauðhærða stelp- kemur út „Af hveiju stend- „Ó, er rign- „Svakalega ertu er rúmantískt... að an býr í... segi ég: urðu þarna úti í ing?“ vitlaus!" standa i rigningu á „Góðan dag- rigningunni?" bak við tré er ekki inn.“ rómantískt. BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Nafnlaust níð í Morgnnblaðinu Frá Veturliða Guðnasyni: ÞAÐ er vægast sagt skelfíleg til- hugsun að þurfa að ætla Matthíasi Johannesen og Styrmi Gunnars- syni allan þann sjálfbirgingshátt, fáfræði og hreina mannvonsku sem birtist í örstuttri grein Víkverja laugardaginn 10. janúar. Nafnlaus- ar blaðagreinar eru þó á ábyrgð ritstjóra og yfirleitt taldar túlka stefnu blaðsins. Víkverji er pistill um dægurmál og oftar en ekki geðvonskulegt nöldur á heldur lágu plani en að- finnslur hans um þýðingar í Sjón- varpinu eru ekki gagnrýni heldur skítkast. Að væna vandaðan og virtan þýðanda, sem birtir verk sitt undir fullu nafni, um stórfelld mis- tök í starfí án þess að nefna eitt einasta dæmi því til stuðnings er ekkert annað en atvinnurógur. Fé- lag sjónvarpsþýðenda krefst þess að Morgunblaðið færi rök fyrir þessum aðdróttunum eða biðji þýð- andann afsökunar. Að lesa þennan heimskulega þvætting Víkverja verður enn gremjulegra vegna þess að full þörf er á skynsamlegri gagnrýni og umfjöllun um þýðingar sjónvarps- efnis og kvikmynda. Arlega er fjór- um milljónum texta dembt yfir þjóðina og margt sem þar birtist getur ekki talist íslenska. „I bæn- um var eldfjall sem breytti náttúr- unni í martröð," birtist á skjá Sjón- varpsins milli jóla og nýárs, reynd- ar ekki í sjónvarpsmynd heldur auglýsingu um nýútkomið mynd- band, en orðréttar „þýðingar“ af þessu tagi eru orðnar óhugnanlega algengar og það sem verra er: Fólki á menningarstigi Víkverja finnst þær vera „réttar“. Morgunblaðinu væri nær að kynna sér hvernig á því stendur að þýðingar í Sjónvarpinu eru „yfir- leitt sæmilega vandaðar“. Ef það er rétt er það sannkallað krafta- verk. Fyrstu tuttugu ár Sjónvarps- ins var greitt sæmilega fyrir þýð- ingar en fyrir réttum tíu árum var kaup þýðenda skorið niður við trog í anda markaðshyggjunnar. Þýð- endur, sem vilja vanda verk sitt, ná ekki strípuðum Dagsbrúnartaxta fyrir vinnu sína og njóta hvorki fé- lagslegra réttinda launamanna né atvinnurekenda. Þeir vinna eftir þrjátíu ára gömlu kerfi, sem var ágætt og eðlilegt á sínum tíma, en er nú beinlínis beitt til að níðast á örfáum einstaklingum sem vinna sitt gamla starf af hreinni hugsjón. Valdníðsla Ríkisútvarpsins er slík að félagsmálaráðherra hefur skipað sérstakan starfshóp, ein- göngu til að fá þessa opinberu menningarstofnun til að leiðrétta kjör sjónvarpsþýðenda, en enginn virðist ráða við kerfið. Það vantar ekki að menn verði klökkir þegar talað er um íslenska tungu á tylli- dögum en hversdags er oftast og þá gilda sömu lögmál um sjón- varpstexta og hverja aðra fram- leiðslu. Vandaðir sjónvarpstextar eru handunnin gæðavara og hún fæst ekki til lengdar langt undir kostnaðarverði. Morgunblaðinu væri nær að reyna að komast að kjarna þessa máls en birta nafnlaust níð. F.h. Félags sjónvarpsþýðenda, VETURLIÐIGUÐNASON, Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. Ókeypis lögfræðiaðstoð í kvöld milli kl. 19.30 og 22.00 í síma 551 1012. Orator, félag laganema Vinsœlu prjóna- og heklnámskeiðin að hefiast hjá PRJÓNASKÓLA TINNU * Almennt prjón - kennt 5 kvöld, eitt kvöld í viku * Hekl - 3 kvöld, eitt kvöld í viku * Myndprjón - 1 kvöld. Skráningarsími 565 4610 GARNBVÐIN Tinna Hjallahrauni 4, 220 Hafinarfirði, sími 565 4610
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.