Morgunblaðið - 07.02.1998, Síða 32
32 LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
HEIMILISVÉLIN
..er nokkur spuming?
v« TXturn
ooaxwi 200 MMX
Minnl 32 MB
D»kur 3200 MB
Skjér 15"
skjákon Tseng Labs ET6000
Geisiadni 24 hraöa
Híóðkort Soundblaster 64
Hótrtarar 180 WÖtt
Mótaw 33.6 bás fax & símsvari
Netáskrft 4 mánaða
stýnkerfl Windows 95b & bók
Win 95 lyklaborð & mús
HP690c+ prentari og kapali
Lon og Don - 6 íslenskir leikir
FEBRÚAR
DAGAR
Schneider MP140
hljómflutningstæki
0MB
Virkadaga 10-19
Laugardaga 10-16
Sunnudaga 13-17
www.bttolvur.is
B.T. Tölvur
Grensásvegur 3 - Sími 588 5900 Fax 588 5905
MARGMIÐLUN
LEIKUR
Wing Commander: Propheey
krefst 166 MHz Pentium örgjörva
án þrívíddarskjákorts, en 133 MHz
með slíku korti, Ijögurra hraða
geisladrifs og 32 Mb innra minnis.
Origin framleiðir og gefur út.
leiknum bráð-
vel heppnuð og
lýsing nánast
gallalaus. Spreng-
ingar eru skemmti-
lega eðlilegar, með við-
eigandi höggbylgjum og
ljósadýrð, og leikurinn bráð-
spennandi. Hönnuður Blade
Runner kom við sögu í grafík-
inni, og stóð sig vel sem vonlegt
er, og þó að risapöddurnar séu
ekki ógurlegri í sjálfu sér en
risavaxnir rykmaurar,
þá líta þær vei út.
Hnökrar eru helst á
kvikmyndaskeiðunum,
sem verða leiðigjöm eins og
áður er getið, og segja verður
eins og er að frammistaða leikar-
anna í þeim er í slöku meðallagi,
sagan óspennandi og umhverfið
ótrúverðugt. Þetta varpar þó
engri rýrð á leikinn sjálfan, sem
geimflugshermar næstu mánaða
verða bornir saman við, en enn
betri hefði hann orðið ef hægt
væri að spila hann yfir net.
Árni Matthíasson
Glímt við
risapöddur
WING Commander-leikirnir
eiga sér langa sögu, en fyrir
skemmstu barst hingað til
lands fímmti leikurinn í
þeirri röð. Þeir hafa og
tekið nokkrum breyting-
um en stærsta stökkið
var likiega í þriðja
leiknum þar sem Mark
Hamiil lék stórt hlut-
verk. f Wing Comm-
ander III var geisla-
diskurinn nýttur tii
liins ýtrasta og þeg-
ar ijórði skammtur
kom út var gengið enn lengra í
þá átt, því diskarnir voru sex og
nánast heii kvikmynd á bak við
alit saman. Þetta var reyndar á
þeim tíma sem Hollywood-furst-
ar hugðust græða vel á tölvu-
leikjum og helltu ómældu fé í hít-
ina, en gleymdu aðalatriðinu;
Ieiknum. Þannig þótti mörgum,
þar á meðal undirrituðum, sem
Wing Commander IV væri mikið
fyrir augað, en lítil skemmtun
þegar á reyndi.
Mannaskipti urðu í brúnni áð-
ur en vinna hófst við Wing
Commander: Prophecy sem
merkja má af leiknum. Meiri
áhersla er nú lögð á leikinn sjálf-
an og grafík og vélin sem knýr
hann áfram hafa verið samhæfð
aðdáunarlega. Ekki er lengur
glímt við Kilrathi-ketti, heldur
eru risapöddur viðfangið, sem
breytir reyndar litlu. Töluvert er
um myndskeið í Ieiknum, sem er
og aðal Wing Commander leikj-
anna í seinni tíð, en heldur þreyt-
andi til lengdar. Þá er þó hægt
að slá á Esc-hnappinn, sem gerist
æ oftar eftir því sem líður á leik-
inn. Það skiptir þó ekki
|w máli, þvf Ieikjahlutinn
Wm sjálfur er meistaralega vel
■1 af hendi leystur og tekur
H§r aðra geimflugsherma
wm —? í nefið. ,1S!Á
Lifandi
grafík
Leikjavélin á bak við Wing
Commander: Prophecy, kjarni
forritsins, er endurhönnuð frá
grunni og frábærlega vel heppn-
uð. Grafíkin er Iifandi, hraðinn
mikill og grúi smáatriða gerir
umhverfíð Iifandi og eðlilegt.
Leikurinn var reyndar prófaður í
200 MHz MMX tölvu með 64 Mb
innra minni og 4 Mb 3Ðfx-skjá-
korti, en gengur bráðvel á minni
vél, 166 MHz tölvu með 24 Mb
innra minni og slarkfært tvívídd-
arskjákort. Það tekur tíma að
læra að
fljúga í
Ieiknum, þó
grunnhreyfíngar séu auðlærðar.
Eftir því sem færnin eykst kann
maður betur að meta hversu ná-
kvæm stýringin er og eðlileg og
ekki líður á löngu að sá sem leik-
ur er farinn að stinga óþokkana
af og stinga sér til og frá með
sveiflum og fléttum.
Eins og getið er er grafíkin í
V =1 ýú M í
J ---1 J J -J J
■
■ Líkja má veraldarvefnum við bókasafn
þar sem þúsundir vörubfla keppast við að
sturta inn bókum allan sólarhringinn, og
öllum óbundnum. Þá koma til leitarvélar og
síðusöfn. Flestir þekkja Yahoo-vefinn,
http://www.yahoo.com/, og reyndar una
margir hag sinum harla vel þar.
■ Yahoo er svokallað síðusafn og ekki eigin-
leg leitarvél, enda nær það ekki nema yfir
brot af vefnum. Altavista, sem Digital setti
upp til að monta sig af Alpha örgjörva sín-
um, er aftur á móti leitarvél. Altavista er
byggt upp af forriti sem fer um vefínn og
safnar síðum í sérstakan gagnagrunn. For-
ritið kalla menn þar á bæ Scooter og safnar
það sex milljónum síðna á dag, vistar í
grunninn og þegar þangað er komið sér
sértilgert forrit um að vinsa úr það sem
tvítekið er og úrelt, en tölvukostur þeirra
Digital-manna er harla góður. Altavista er á
slóðinni http://altavista.digital.com/, en
vert er að benda á islenska útgáfu á slóðinni
http://altavista.telia.com/cgi-
bin/query?mss=is/about&country=is sem
vistuð er hjá sænska símafyrirtækinu Telia
eins og slóðin ber með sér.
■ Nýjung hjá Altavista er að hægt er að láta
þýða síðumar sem leitað er að með því að
smella á viðeigandi tengil, en einnig er
hægt að láta sérstakan hugbúnað þýða
texta með því að slá hann beint inn. Slóðin
er http://babelfish.altavista.digital.com/, en
þar er þýtt úr ensku á frönsku, þýsku,
ítölsku, portúgölsku og spænsku og úr sömu
málum á ensku. Þýðingin er ekki alltaf kór-
rétt og jafnvel kátleg á köflum, en dugir yf-
irleitt til að skilja megi innihald síðunnar.
Þeir sem þekkja til Douglas Adams og
sagna hans um geimputtalinginn átta sig
strax á hvaðan nafnið er fengið.
Picrd World " -
bfsmet Séjecf kdn w i Searck Btuþt
■ Getið er Yahoo-síðusafnsins, en fleiri síðu-
söfn em til, þar á meðal Nerd World. Þar á
bæ reyna menn að bjóða up á meira en
hreint síðusafn, til að mynda gefst notend-
um kostur á að setja upp „korktöflu“, leita
að netföngum og þar fram eftir götunum.,
en gamansemi er í hávegum á slóðinni.
Slóð Nerd World er http://www.nerd-
world.com/.
■ Faq heita skjöl á netinu sem em mikil
upplýsingauppspretta. I þeim er að finna
svör við algengustu spurningum um ýmis
málefni, hvort sem er um tölvur, matvæli
eða mannleg samskipti, enda er samheitið
skammstöfunin Frequently Asked Qu-
estions, eða algengar spumingar. A slóðinni
http://mailserv.cc.kuleu-
ven.ac.be/faq/faq.html má leita að slíkum
skjölum en heildarlistinn er 2 MB.
■ Hjá Altavista er einnig hægt að leita í
póstlistasafni, Usenet, er þar er að finna
grúa upplýsinga um
ólíklegustu málefni og
svör við flestu á milli
himins og jarðar. Betra
er þó að leita hjá
DejaNews á slóðinni
http://www.dejanews.com/info/top-
level.shtml, en þar er gríðarlegt safn skjala.
Hægt er að leita beint í bunkanum, eða
reika um skjalasöfn ákveðinna rása. Til að
mynda má leita svara við allskyns
tölvuvandamálum með því að fletta í
alt.computers og rekja sig þaðan eftir
viðkomandi tölvugerð, hugbúnaði eða
jaðartæki.
■ Yahoo hefur liaslað sér völl víða um heim,
er meðal annars með slóð í Bretlandi,
http://www.yahoo.co.uk/, og aðra í Frakk-
landi, http://www.yahoo.fr/. I Bretlandi er
helsti keppinautur um hylli veflesenda
UKplus síðusafnið á slóðinni
http://www.-ukplus.co.uk/uk-
plus/owa/pkghome.-p_home.
UKplus segist skera sig úr frá öðr-
um síðusöfnum í því að allar slóðir
sem birtar eru í safninu eru yfír-
farnar af safnvörðum og því megi
treysta því að þar sé ekki að finna
klám og álíka óáran.
■ Eftir því sem leitarvélum hefur
fjölgað hafa ýmsir séð sér leik á
borði og sett upp leitarvélar sem
leita í leitarvélum. Til að mynda er
Inference Find, á slóðinni http://www.in-
ference.com/ifind/, þannig upp byggl að
það leitar með
fttforence aðstoð helstu
_> ~ ~~ leitarvéla og
síðusafna,
WebCrawler,
Yahoo, Lycos, Alta Vista, InfoSeek og
Excite, fiokkar niðurstöðurnar og eyðir tvö-
földum leitarniðurstöðum. Á heimasíðunni
má lesa að þó Inference Find skili færri
síðum en til að mynda Altavista þá séu þær
síður marktækari og líklegri til að falla að
því sem leitað var eftir.
■ Whatis.com heitir upplýsingalind á netinu
sem fer nokkuð aðra leið en þær sem þegar
hefur verið getið. Á slóðinni eru 1.200 atrið-
isorð og grúi tilvísanasíðna. Alls eru 5.000
tilvísanatengingar um 3.000 tengingar á
aðrar slóðir. Á heimasíðu whatis.com kem-
ur fram að upphaf fyrirtækisins hafi verið
orðalisti með tenglum sem félagar hafi sett
saman sér til hægðarauka. Slóðin er
http://www.whais.com/default.htm.
mming company
■ Nýlegt síðusafn kallast The Mining
Company og státar af einskonar safni
undirsiðna eða slóða sem hver er helguð
sérstöku málefni. Hverri slóð stýrir
sérfræðingur í viðkomandi málefni, hvort
sem um er að ræða listir, menntun,
tölvutækni, trúarbrögð, menningu, heilsu,
íþróttir eða fréttir og fréttaskýringar, en
alls eru atriðin 13 sem getið er á forsíðu og
reyndar sitthvað smálegt sem fellur ekki
undir þá flokkun.
Til viðbótar við
síðu-söfnun stýra
sérfræðingar
fyrirtækisins
umræðum um
hvaðeina
viðkomandi sérsviði
þeirra, gefa út
fréttabréf og svara
tölvupósti. Slóð
námafélagsins er
http://www.whais.
com/default.htm.