Morgunblaðið - 07.02.1998, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ
____________________________LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1998 33
MARGMIÐLUN
Spjallað í beinni
Eitt helsta aðdráttarafl netsins er
hversu það auðveldar fólki að tala saman.
Arni Matthíasson segir frá IRC-inu og
hvernig tengjast megi því.
FÁTT er betur til þess fallið
að glæða áhuga á netinu og
skilning á möguleikum
þess en spjallrásirnar svo-
nefndu, IRC, sem er skammstöfun
á Internet Relay Chat. Á IRC-rás
hittist hópur fólks, spjallar um
heima og geima, er jafnvel inni á
fjölda rása í einu og getur eins átt
einkasamtal sýnist honum sem svo.
Algengt er að fólk nýti sér IRC til
að tala við ættingja úti í heimi, enda
má lengi skrifast á á netinu á innan-
bæjartaxta.
Sagan hermir að 1988 hafí ungur
finnskur forritari, Jarkko Oikar-
inen, ákveðið að skrifa forritsstúf
fyrir gagnabanka sem hann rak,
OuluBox, en með forritinu hugðist
hann gera notendum kleift að skrif-
ast á í rauntíma, en ekki bara senda
póst á milli. Hann notaði íyrirbæri á
Bit-netinu sem kallaðist Relay sem
fyrirmynd, en eftir því sem verkinu
miðaði áfram varð það umfangs-
meira. Snemma var hugmyndin um
OuluBox lögð á hilluna og hann fór
að fá kunningja viða um Finnland í
lið með sér að setja kerfið upp þar i
landi. Síðla árs 1988 voru fyrstu
IRC-þjónamir settir upp utan
Finnlands og í dag skipta notendur
milljónum á hverjum degi og fjölgar
ört.
IRC er vinsæl leið íyrir ungt fólk
að hittast og æ algengara verður að
það hittist á IRC-inu frekar en yfir
ánum, þó nánari kynni verði eðli-
lega að vera augliti til auglitis. Að
auki nota fjölmargir IRC-ið til að
afla sér þekkingar og fróðleiks,
kerfisstjórar og forritarar eru
margir jafnan með IRC-glugga í
gangi á tölvunni hjá sér til að geta
spjallað við aðra kerfisstjóra og for-
ritara; ef eitthvað kemur upp á er
fljótlegt að segja frá því á viðkom-
andi IRC-rás og áður en varir er
komið svar eða tillögur að svari ut-
an úr heimi.
Hvernig má
tengjast?
Til þess að tengjast IRC-inu þarf
vitanlega nettengingu og IRC-forrit
sem sér um að tengja viðkomandi
tölvu IRC-þjóni. IRCnet EU, IS
Reykjavik heitir sá þjónn sem við-
komandi myndi tengjast hér heima,
en til þess má til að mynda nota for-
ritið mlRC, sem er líkast til vin-
sælasta IRC-forritið. Það er svo-
nefndur deilihugbúnaður, þ.e. not-
andi getur sótt það á netið og reynt
það og ef honum líkar við fomtið er
ætlast til að hann kaupi það fyrir
einhverja smáupphæð. Skráning
mlRC kostar um 1.000 krónur og
má finna það á slóðinni
http://www.mirc.co.uk/.
Þegar inn er komið er sitthvað
sem þarf að sinna, til að mynda þarf
að velja sér viðurnefni, eða nick, og
um að gera að hafa það skemmtilegt
og jafnvel svolítið glannalegt.
Þannig má finna á rásinni
#icelandl8+ viðurnefni eins og
haplo, A-Jingo, pavarotti, U-God,
smari36, koddi, kvk24, kk26, disa22,
TYSON-S og svo mætti telja. Kem-
ur einnig í ljós þegar komið er inn á
rás að tungutak þar getur verið
álíka skrautlegt og oft harla ensku-
skotið. Þannig er ekki óalgengt að
sjá spurningunni hvernig hefurðu
það svarað svo: ok en u, sem út-
leggst, ég hef það ágætt, hvernig
hefur þú það?
Það er erfitt fyrir óvana að átta
sig á því sem fram fer á IRC-rás, en
best er að lýsa því eins og að vera
staddur í fjölmennu matarboði. Þar
eru kannski margar samræður í
gangi í einu og talar hver upp í ann-
an. Það kemur ekki að sök, því vilji
einhver tala við sessunaut sinn tek-
ur hann einfaldlega ekki eftir því
hvað aðrir við borðið eru að segja;
leiðir það hjá sér. Þannig geta verið
tugir manna inni á rás og tugir sam-
tala í gangi í einu. Ef aftur á móti á
að ræða eitthvert prívatmál er hægt
að mynda eigin rás og loka henni
eða einfaldlega nota DCC, sem ger-
ir kleift að senda einkaskeyti á milli
manna og ýmis gögn, til að mynda
forritsbúta, hljóð eða myndir. DCC
er innbyggt í mlRC.
Það er hægðarleikur að koma sér
af stað á IRC-inu og til að mynda
fylgir afbragðs hjálpartexti með
mlRC þar sem sagt er frá IRC-inu
og því hvemig best er að nota það,
aukinheldur sem almennustu skip-
anir eru kenndar, sagt frá op-um og
bot-um og script-um svo fátt eitt sé
talið. Einnig þarf að hafa í huga að
þó að tjáningarfrelsi á IRC-inu sé
meira en gengur og gerist manna á
meðal, gilda þau gömlu sannindi að
hver og einn má segja og gera það
sem hann vill svo framarlega sem
hann gangi ekki á rétt annarra.
Þannig eru ýmsar sanngjarnar
reglur á IRC-inu um framkomu og
hegðun sem er fylgt fast eftir og
best að læra þær utanað þegar 1
upphafi.
Þeir sem hyggjast kynna sér
IRC-ið ættu að gefa sér góðan tíma
til að fylgjast með áður en viðkom-
andi blandar sér í einhverja umræð-
una, en eftir að komið er útí er eins
gott að hafa nóg aflögu af frítíma,
því IRC-ið verður oftar en ekki
árátta.
12/12, ...— 1/
SnmHMpMHHpHpMHpBnynMpMHHMBHHKnHHmHHnnn
iiPUiri' D-a 2'JAjiA*)
SPilRT:
Hvernig getur maður fengið
fleiri brautir og bfla í Need For
Speed 2?
Er einhver munur á Need for
Speed 2 eða Need for Speed 2 SE?
jm(a>eldhorn.is
SVAR:
Need for Speed II er til fyrir
PC-samhæfðar tölvur og einnig
PlaySation. Svokölluð SE-útgáfa
er aftur á móti aðeins til fyi-ir PC-
tölvur og er með stuðningi við
3Dfx-kort en einnig er þar auka-
borð, The Last Resort. I hinni út-
gáfunni eru borðin sex. I báðum
leikjunum er leyniborð, þar sem
keppt er að næturlagi og meðal
annars glímt við þórseðlur, geim-
flaugar og álíka. I leiknum er
einnig aukabíll, Ford Indigo, fyrir
þá sem ná lengst, en honum má
hka ná fram með því að slá inn
REDRACER í aðalvalmyndinni,
en aukaborðið með því að slá inn
HOLLYWOOD. Fleiri svindl má
finna á slóðinni http://www.pcga-
mer.com/stra-
tegyAieed-for-speed-2.html, þar á
meðal hvernig komast má yfir ýmis
sérkennileg farartæki, þórseðlur,
trékassa, mjólkurbíla og Unimoog
ti-ukka, svo fátt eitt sé talið.
Lesendum Morgunblaðsins gefst
kostur á að leita svara við spurn-
ingum um margmiðlun og tölvu-
mál. Spurningar skal senda með
tölvupósti til spurt@mbl.is, eða í
hefðbundnum pósti til Margmiðl-
unarsíðu Morgunblaðsins, Kringl-
unni 1,103 Reykjavík.
Reiknað með Glókolli
TÖLVUR verða æ algengari sem
kennslutæki í skólum og forritum
fjölgar sem nota má við kennslu.
Hrafnkell S. Gíslason hefur fengist
við forritun nokkra hríð og meðal
annars samið nokkur kennsluforrit,
þar á meðal Glókoll, sem kennir
margfóldun, eins og Glókollur ævin-
týrisins.
Hrafnkell segist semja kennslu-
forrit mikið til sér til gamans. Hann
segist og hafa gaman af kennslu,
enda hafi hann kennt í fimmtán ár þó
hann starfi við annað sem stendur.
Forritið heitir Glókollur II og er ætl-
að til margföldunarkennslu, eins og
getið er. Það er samið í Visual Basic
og ætlað fyrir PC-samhæfðar tölvur
með Windows 3.1 eða betra.
Nemendur fá upp valmynd sem
gefur þeim kost á að velja tvo sams-
konar leiki, annan þar sem keppst er
við kökuát og þarf að svara rétt til að
fá köku, en síðan er leikur sem kall-
ast meistarinn og þá er keppt við
tímann um að svara margfóldunar-
spurningum. Hægt er að velja ólíka
töflur eftir því sem vih og hafa þær
fleiri en eina í einu.
Hrafnkell S.
Gíslason
Sérstakur kennarahluti er
í forritinu, en í honum er
hægt að prenta út kannanir í töflum
og æfingablöð, en búin er til ný
könnun í hvert sinn, aukinheldur
sem kennari getur haldið til haga
frammistöðu nemenda.
Hrafnkell segir að þeir sem kaupi
Glókoll fái í kaupbæti annað forrit
sem hann hefur samið og heitir
Reikningskappakstúr, en þegar skóli
kaupir Glókoll fær hann um leið leyfi
til að dreifa Reikningskappastri eins
og honum sýnist til nemenda sinna.
MIKIÐ hefur verið rætt um
framtíð Sega Saturn-leikjatölv-
unnar og reyndar framtíð
Sega almennt á leikjatölvu-
markaði. Getgátur hafa verið
uppi um að fyrirtækið hyggist
slá sér saman við Microsoft í
tölvusmíðinni, aukinheldur
sem þrívíddarstaðlar hafa
komið við sögu.
Á heimasíðu Sega má lesa að
fyrirtækið hyggist senda frá
sér nýja leikjatölvu á næsta ári
Ný Sega-
tölva
og endurskipuleggja rekstur-
inn, meðal annars með því að
segja upp þriðjungi af starfsliði
sínu vestan hafs. Á sama stað
má lesa að Sega muni halda
áfram þröun og stuðningi við
þær tölvugerðir sem þegar eru
á markaði. Um 300 leikir eru til
fyrir Saturn-tölvuna og að sögn
stjöra fyrirtækisins verða leikir
framleiddir fyrir þá vél af full-
um krafti út árið að minnsta
kosti. Til viðbótar við þetta
hyggst fyrirtækið leggja enn
meiri áherslu á PC-samhæfða
leiki, en einnig hefur það hasl-
að sér völl í netleikjum í sam-
starfi við Heat.net og rekur
víða um Bandarikin leikjamið-
stöðvar í samvinnu við Dream-
works.