Morgunblaðið - 07.02.1998, Qupperneq 42
42 LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1998
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR/PRÓFKJÖR
SVO virðist sem
þær leiðir sem hingað
til hafa verið farnar til
þess að sporna við
vímuefnaneyslu ungs
fólks hafi ekki skilað
þeim árangri sem
flestir vilja. Framtíð-
arsýn mín, líkt og þús-
unda landsmanna, er
eiturefnalaust samfé-
lag, samfélag lífsgleði
og bjartsýni í stað
firringar og lífsflótta.
Spurningin er hvort
ekki sé rétt að huga að
fleiri ráðum í barátt-
unni við vímuna en
hingað til hafa verið
reynd. Margoft hefur verið bent á
hlutverk íþrótta í þessu sam-
bandi. Vitað er einnig að börn
sem læra snemma dans verða
frjálsari í umgengni sinni við hitt
kynið á unglingsárum. Þau þurfa
því ekki á vímuefnum að halda til
að hleypa í sig kjarki. Framtíðar-
sýn mín er að í skólum verði
dans, tónlist og annað skapandi
starf jafn sjálfsagt og lestur og
reikningur. Það er ef til vill við
hæfi að leiða hugann að tónlist-
inni, nú þegar við sjáum menn-
ingarmiðstöð vera að rísa hér á
Kópavogshálsi.
Eg sé fyrir mér að öll böm njóti
/jafnréttis til tónlistamáms. Kópa-
vosgsbær styrkir Tónlistarskólann
með framlagi sem
nemur launagreiðslum
til skólastjóra og kenn-
ara, eða rúmum 40
milljónum á ári. Fram-
tíðarsýn mín er að slíkt
framlag nýtist með
þeim hætti að tónlist-
arkennarar komi frá
Tónistarskólanum í
grunnskólana til að
kenna 6-9 ára bömum.
Þar sem allir skólar
bæjarins era einsetnir
myndi tónlistarnám
verða viðbót við
skyldunámið og þar
með lengja skólatíma
bama um sem því nem-
ur, tvo til þijá tíma á viku. Þessi
aldurshópm- hefur getað nýtt sér
framhaldsdvöl eftir skólatíma. Vel
mætti hugsa sér að gera alvöra úr
hugtakinu „heilsdagsskóli" með því
að lengja skólavist bama, bjóða
upp á tungumálanám, dansnám og
myndlistamám, auk þess sem böm-
in nýttu tímann í skólanum til að
vinna verkefni sem nú era unnin
heima. Þar með fengju böm jafnan
rétt til þess að kynnast þessum
greinum þegar í upphafi skóla-
göngu, auk þess sem við foreldrar
myndum losna við þennan eilífa
akstur með bömin úr og í sér-
kennslutíma.
Mér er ljóst að ef slík draumsýn
ætti að verða að veruleika þyrfti
ýmislegt annað að fylgja með eins
og t.d. skólaeldhús, annaðhvort í
hverjum skóla eða miðlægt fyrir
fleiri en einn. Að sjálfsögðu er
þetta ekki ódýrt, allt kostar pen-
inga, en nú hefur sitjandi meiri-
hluti að mestu leyti lokið við frá-
gang gömlu gatnanna og breytt
bænum okkar í alvörubæ sem eng-
inn skammast sín fyrir. Jafnframt
því sem við höldum áfram að
borga niður skuldir er brýnt að
huga að forgansröð næstu verk-
efna.
Þótt menningarmiðstöð á hálsin-
um veki með okkur vonir um að
Kópavogur verði fyrirmynd í list-
um og menningu skulum við ekki
gleyma því sem vel hefur verið
gert í þeim efnum á undanfömum
Framtíðarsýn mín er,
segir Margrét Björns-
dóttir, að í skólum
verði dans, tónlist og
annað skapandi starf
jafn sjálfsagt og lestur
og reikningur.
áram; Tónlistarskólinn, Skóla-
hljómsveit Kópavogs og Kárs-
neskórinn eru talandi dæmi um
frábæran árangur. Slík dæmi geta
orðið okkur leiðarvísar til bjartrar
og vonandi vímulausrar framtíðar
ungs fólks.
Vegna tæknilegra mistaka
við vinnslu greinar Margrétar
sem birtist í blaðinu í gær, lenti
hluti af þessari grein inni í
þeirri grein. Beðist er velvirð-
ingar á því.
Höfundur tekur þátt f prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins i Kópavogi og
stefnir á 5. sætí listans.
Fjölskylda,
dagvistun,
skóli
Margrét
Björnsdóttir
Allt sem
skiptir máli!
ÞEGAR við spyrj-
um okkur þeirrar
spurningar, hvaða
kosti við teljum æski-
legasta í fari stjórn-
' Jlmálamanna, hafa
svörin tilhneigingu til
þess að verða býsna
einhlít. Við krefjumst
þess að stjórnmála-
menn séu heiðarlegir,
bæði gagnvart við-
fangsefnum sínum og
umbjóðendum, stefnu-
fastir, til að láta stýr-
ast af málefnalegri
umræðu framar dæg-
urþrasi, séu framsýnir
og hafi til að bera það
innsæi er þarf til réttrar ákvarð-
anatöku.
Laugardaginn 7. febrúar næst-
wikomandi, er það hlutskipti sjálf-
stæðismanna í Kópavogi að velja
það fólk, er skipa á forystusveit
flokksins í komandi sveitarstjómar-
kosningum. Flokksmenn eiga erfitt
val fyrir höndum; margt góðra
manna hefur boðið fram krafta sína,
Sjálfstæðisflokknum til
heilla.
Mér er þó ljúft og
skylt að drepa niður
penna, til að lofa einn
frambjóðanda öðrum
fremur. Einn þeirra,
er gefa kost á kröftum
sínum í fyrrgreindu
prófkjöri, er ungur
maður að nafni Ar-
mann Kristinn Olafs-
son. Armanni kynntist
ég á þeim tíma er ég
gegndi embætti for-
manns Týs, félags
ungra sjálfstæðis-
manna í Kópavogi. Ar-
mann var þá gjaldkeri
Sambands ungra sjálfstæðis-
manna. Áttum við mikið samstarf í
kringum sveitarstjórnar- og Al-
þingiskosningar og urðu þau
kynni til að vekja með mér mikið
traust og álit á Ármanni. Verkefn-
um þeim er ljúka þurfti, lauk Ár-
mann með sóma auk þess að
leggja öðrum gott til við lausn á
verkefnum þeirra.
Þórður Ólafur
Þórðarson
MATARLITIR
fyrir kökur, marsipan
og skreytingar.
/fímismunandi litir
Kr. 150 pr. stk.
PIPAR OG SALT
Klapparstíg 44
S: 562 3614
í sambandi við neytendur
frá morgni til kvölds!
- kjarni málsins!
Ármann er stjórnmálafræðing-
ur að mennt. Að námi loknu stofn-
aði hann, í samstarfí við félaga
sinn, Jón Sæmundsson, auglýs-
ingastofuna Nonna og Manna ehf.,
sem nú er ein stærsta auglýsinga-
stofa landsins. Ármann starfaði
sem framkvæmdastjóri hennar
fram í júní 1995 er hann tók við
starfi aðstoðarmanns samgöngu-
ráðherra er hann hefur gegnt síð-
an. Armann hefur gegnt ýmsum
Armann Kristinn Olafs-
son, er í senn frambæri-
legur og verðugur fnll-
trúi þess unga fólks,
segir Þórður Qlafur
Þórðarson, sem unn-
vörpum byggir nú
Kópavog.
trúnaðarstörfum í forystusveit
Sjálfstæðisflokksins. Hann sat
t.a.m. í stjórn og framkvæmda-
stjórn Sambands ungra sjálfstæð-
ismanna, flokksráði Sjálfstæðs-
flokksins og hefur setið í ýmsum
nefndum og ráðum fyrir hönd
flokksins.
Að ofan minnist ég á þá kosti er
ég tel að góður stjórnmálamaður
verði að vera búinn. Persónuleg
kynni mín af Ármanni hafa fært
mér heim sanninn um það, að
hann er gæddur þeim kostum, er
starf það sem hann nú býður sig
fram til, krefst. Ármann er ungur
maður sem sýnt hefur í verki
hvers hann er megnugur, og er í
senn frambærilegur og verðugur
fulltrúi þess unga fólks sem unn-
vörpum byggir nú Kópavog.
Tryggjum Ármanni Kristni Ólafs-
syni glæsilega kosningu í 4. sæti
framboðslista Sjálfstæðisfélag-
anna í Kópavogi.
Höfundur er riíarí Sambands
ungra sjálfstæðismanna.
Nýtt afl með
framtíðarsýn
FRAMSÓKNAR-
ÍHALDIÐ hefur ráðið
ríkjum í Reykjanesbæ
nær látlaust síðustu 30
árin og ber bæjarfélag-
ið þess merki. Enginn
metnaður virðist vera
fyrir hendi, engin fram-
tíðarsýn til og aðeins er
farið að byrgja brann-
inn þá er barnið er
dottið ofan í. Eini ljósi
punkturinn í þessari
sorgarsögu eru árin
fjögur þegar Jafnaðar-
menn réðu Keflavík.
Reykjanesbær þarf-
nast þess og íbúar bæj-
arins eiga það skilið að
fram komi nýtt afl jafnaðar og fé-
lagshyggju sem sýni metnað. Nýtt
afl sem byggir á framtíðarsýn þar
sem uppeldi og fjölskyldan skipa
mikilvægasta sessinn í umhverfi
okkar. Framtíðarsýn sem byggist
á raunverulegu lýðræði þar sem
bæjarbúar fá að leggja orð í belg
og tillit sé tekið til þess við stjórn
bæjarins. Framtíðarsýn sem bygg-
ist á metnaði fyrir hönd bæjarfé-
lagsins og vilja til þess að skapa
okkur það umhverfi sem við kjós-
um til handa okkur og bömum
okkar. íbúar Reykjanesbæjar
verða að hafna sinnuleysi eða
hentistefnu núverandi meirihluta
og velja sér bæjarstjóm sem hafa
mun framtíðarsýn sem byggist um-
fram allt á manngildi. Prófkjör
Bæjarmálafélags jafnaðar- og fé-
lagshyggjufólks í Reykjanesbæ er
einstakur viðburður og næsta víst
að litið verður til þess alls staðar að
af landinu. Við frambjóðendur í
prófkjörinu eram samhentur hópur
sem vinna mun að hagsmunum
bæjarbúa af fullum heilindum,
hvar sem við lendum á
lista. Hér er það heild-
in sem ræður en ekki
ákveðnar persónur eða
flokksbrot.
Þeir bæjarfulltrúar
sem gefa kost á sér
áfram, Jóhann Geirdal
og Kristján Gunnars-
son, eiga góða kosn-
ingu skilið því auk
verðleika þeirra þá er
hið góða samstarf
þeirra í bæjarstjórn í
raun undanfarinn að
því takmarki sem við
höfum nú þegar náð.
Ég hvet líka alla þá
sem taka þátt í próf-
kjörinu að gera þátt kvenna og
ungs fólks sem mestan. Markmið
okkar jafnaðar- og félagshyggju-
Reykjanesbær þarfnast
þess og íbúar bæjarins
eiga það skilið, segir
Eysteinn Eyjólfsson, að
fram komi nýtt afl jafn-
aðar og félagshyggju
sem sýni metnað.
fólks hlýtur að vera að velja lista
sem undirstrikar það trausta sam-
starf sem tekist hefur, endurspegl-
ar það jafnrétti sem við viljum að
einkenni samfélag okkar og ber
með sér þá fersku vinda sem fylgja
ungu fólki.
Höfundur tekur þátt í prófkjöri
Bæjarmálafélags jafnaðar- ogfé-
lagshyggjufólks í Reykjanesbæ.
Eysteinn
Eyjólfsson
Tryggjum fram-
farir í Kópavogi
í DAG ættu allir að
vita hve Kópavogur er
gott bæjarfélag. En
vonandi gleymir því
enginn að það er fyrst
og fremst íbúunum
sjálfum að þakka. Án
þeirra væri enginn bær.
Án þeirra væru engin
bæjarstjóm. Án þeirra
væra engir kjósendur
sem hingað til hafa bor-
ið gæfu til að velja öfl-
uga fulltrúa til þjónustu
við bæinn. Bæjarfull-
trúi er að mínu mati
einstaklingur sem er í
þjónustu bæjarins, allra
bæjarbúa og ber að
gæta hagsmuna þeirra í hvívetna.
Hagsmunir bæjarfulltrúans sjálfs
eiga ekki að gilda meira en sem
nemur einu atkvæði í kosningum.
Upplýsingatækni er mér ákaf-
lega hugleikin. Grípandi orð og
áreiðanlega framtíðin. Rangt svar.
Gamalt orð og nú þegar bæði nú-
tími og fortíð. Tölvur og upplýs-
ingatækni er eins og hvert annað
verkfæri. Ef það er ekki ^ notað
verður það ekki að gagni. Islend-
ingar era stundum of nýjunga-
gjarnir og era tilbúnir að kaupa
alltaf það nýjasta vegna þess að
þeir halda að það sé þar með betra
og hagkvæmara. Hvað kunna
margir lesendur þessarar greinar
að stilla á upptöku fram í tímann á
myndbandstækinu sínu?
Upplýsingatækni er engin bylt-
ing. Hún þróast eins og allt annað.
Einn daginn í þessa áttina og hinn
daginn einhverja aðra. Það er því
ákaflega mikilvægt að
taka skynsamlegar
ákvarðanir varðandi
nýtingu upplýsinga-
tækninnar. Eða eins
og einn góður maður
komst að orði: „Söfnun
upplýsinga er þekking,
nýting þeirra er
viska.“ Upplýsingar
geta verið gulls ígildi
séu þær nýttar á skyn-
samlegan hátt. Þetta
gildir jafnt um skóla
sem stjórn fjármála í
bæjarfélagi. Eitt af
áherslumálum mínum
er að tryggja skynsam-
lega nýtingu upplýs-
ingatækninnar í Kópavogi. Ég hef
engan áhuga á að sóa fé bæjarbúa í
Eitt af áherslumálum
mínum er, segir Hall-
dór J. Jörgensson, að
tryggja skynsamlega
nýtingu upplýsinga-
tækninnar í Kópavogi.
búnað sem ekki verður nýttur.
Á þessum tímamótum er kominn
tími til að stinga í samband við lýð-
ræðið, nýta atkvæðisréttinn og
tryggja framfarir í Kópavogi.
Höfundur er tölvunarfræðingur og
gefur kost á sér i 5. sæti prófkjörs
Sjálfstæðisflokksins i Kópavogi.
Halldór J.
Jörgensson