Morgunblaðið - 07.02.1998, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 7. FEBRÚAR 1998 57
FRÉTTIR
i
(
i
(
(
i
(
i
i
i
(
Forysta ASI fundar
á Norðurlandi
GRÉTAR Þorsteinsson, forseti
ASI, og aðrir forystumenn verka-
lýðshreyfmgarinnar halda fundi
með félagsmönnum ASÍ á Norður-
landi 8.-14. febrúar nk. Yfirskrift
fundanna er „Verkalýðshreyfmg
framtíðarinnar“.
A milli almennra funda verða
fundir forseta ASÍ með stjómum og
starfsmönnum stéttarfélaganna á
hverjum stað auk heimsókna á
vinnustaði.
Fundirnir verða sem hér segir:
í Eyjafirði verður fundur með fé-
lagsmönnum Einingar og Iðju
sunnudag 8. febrúar kl. 16 á Skipa-
götu 14, Akureyri. Mánudaginn 9.
febrúar kl. 20 með félagsmönnum
Félags byggingamanna Eyjafírði,
Rafiðnaðarsambands íslands og
Félags málmiðnaðarmanna Akur-
eyri, á Skipagötu 14, Akureyri.
Þriðjudaginn 10. febrúar kl. 20 með
félagsmönnum Félags verslunar- og
Kosið um
sameiningn
á vestan-
verðum Flóa
ÍBÚAR Selfossbæjar, Sandvíkur-
hrepps, Eyrarbakkahrepps og
Stokkseyrarhrepps kjósa um sam-
einingu sveitarfélaganna laugar-
daginn 7. febrúar.
A Selfossi er kosið í Sólvalla-
skóla frá kl. 9-22; í Sandvíkur-
hreppi á heimili oddvita í
Litlu-Sandvík frá kl. 12-22; á Eyr-
arbakka verður kosið í samkomu-
húsinu Stað frá kl. 10-22 og á
Stokkseyri í barnaskólanum frá kl.
10-22.
Stjórnstöð og aðsetur samstarfs-
nefndar sveitarfélaganna um þessa
sameiningu verður í stjórnunar-
álmu Sólvallaskóla, Selfossi, kenn-
arastofu. Upp úr kl. 20 mun sam-
starfsnefndin mæta á staðinn
ásamt fulltrúm í sveitarstjórnum
viðkomandi sveitarfélaga.
Samstarfsnefndin safnar saman
niðurstöðum frá einstökum kjör-
stjómum og mun formaður nefnd-
arinnar tilkynna um sameiginleg
úrslit sameiningarkosninganna
milli kl. 23 og 24. Gert er ráð fyrir
að niðurstöður úr skoðanakönnun
um nafn á hið nýja sveitarfélag
liggi frammi um kl. 1.
Menningar-
málaþing í
Hafnarfirði
MENNINGARMÁLAÞING, á
vegum Listafélags Hafnarfjarðar
og Menningarmálanefndar, verð-
ur haldið í Tónlistarskóla Hafnar-
fjarðar, Strandbergi, í dag kl.
14-18. Að þingi loknu mun Menn-
ingarmálanefnd afhenda styrki.
Á menningarmálaþinginu verða
þrjú umræðuefni: Á Hafnarfjarð-
arbær að setja fé í menningu og
listir? Á að halda fleiri listahátíðir í
Hafnarfírði? Er hafnfírsk list
öðmvísi? Þátttakendur í umræð-
unni em Guðmundur Arni Stef-
ánsson, Halldór Árni Sveinsson,
Skarphéðinn Orri Björnsson, Sig-
rún Ágústsdóttir, Kristinn Ander-
sen, Jónína Guðnadóttir, Ellert
Borgar Þon'aldsson, Jónatan
Garðarsson, Örn Óskarsson, Aðal-
steinn Ingólfsson, Árni Ibsen og
Kolbrún Benediktsdóttir. Fundar-
stjóri er Guðrún Helgadóttir.
Um skemmtiatriði sjá hljóm-
sveitin Botnleðja, Elín Ósk
Óskarsdóttir, Ása Marín Haf-
steinsdóttir, Flensborgarskólinn
og nemendur í Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar. Aðgangur að þing-
inu er ókeypis.
skrifstofufólks á Akureyri, á Skipa-
götu 14, Akureyri.
Fundur verður á Siglufírði mið-
vikudag 11. febrúar ki. 20, með fé-
lagsmönnum Verkalýðsfélagsins
Vöku og RSÍ, á Suðurgötu 10,
Siglufirði.
I Skagafirði verður fundur með
félagsmönnum Verkalýðsfélagsins
Fram, Verkakvennafélagsins Öld-
unnar, Verslunarmannafélags
Skagfirðinga, Iðnsveinafélags
Skagafjarðar og RSÍ, fimmtudaginn
12. febrúar kl. 20 á Sæmundargötu
7a, Sauðárkróki.
í Húnavatnssýslu verður fundm'
með félagsmönnum Samstöðu, Iðn-
sveinafélags Húnvetninga og RSÍ, á
Þverbraut 1, Blönduósi, laugardag-
inn 14. febrúar kl. 14. Einnig verður
fundur með félagsmönnum Verslun-
armannafélags V-Húnvetninga og
RSÍ laugardaginn 14. febrúar kl. 17
á Strandgötu 1, Hvammstanga.
Fræðslu-
fundur um
smitsjúkdóm
FRÆÐSLUFUNDUR á vegum
fræðslunefndar Meinatæknafélags
Islands verður haldinn þriðjudag-
inn 10. febrúar nk. í Eirbergi kl.
20.
Fyrirlesari verður Sigurður B.
Þorsteinsson sérfræðingur í smit-
sjúkdómum og mun hann fjalla um
Chlamydia pneumoniae.
■ STJÓRN Sjálfsbjargar á höfuð-
borgarsvæðinu býður þeim félögum
sem komast á sýningu Halaleik-
hópsins á leikritinu Búktalaranum
þriðjudaginn 10. febrúar kl. 20 að
sjá sýninguna endurgjaldslaust. Fé-
lagar eru hvattir til að skrá sig á
skrifstofunni til að tryggja sér miða
og sækja þá mánudaginn 9. febrúar.
Aðeins eru sæti fyrir 50 í húsinu
þannig að skráið ykkur sem fyrst.
SÖNGSVEITIN Drangey heldur
sitt árlega þorrakaffi í Drangey,
Stakkahlíð 17, sunnudaginn 8.
febrúar nk. Húsið opnað kl.
14.30. Eins og alltaf áður verður
Fræðslufundur
um forvarnir
gegn krabba-
meini
STYRKUR, samtök krabbameins-
sjúklinga og aðstandenda þeirra,
heldur fræðslufund í Skógarhlíð 8 í
Reykjavík þriðjudaginn 10. febrúar
kl. 20.30. Bryndís Eva Birgisdóttir,
næringarfræðingur og næringar-
ráðgjafí ræðir um forvarnir gegn
ki'abbameini.
I frétt frá Styrk segir að allir séu
velkomnir.
Ný ÓB-stöð
opnuð við
Snorrabraut
NÝ bensínstöð, ÓB-ódýrt bensín,
verður opnuð í dag, laugardaginn 7.
febrúar, kl. 13 við Snorrabraut í
Reykjavík við Domus Medica.
I tilefni af opnun stöðvarinnar við
Snorrabraut verður boðið upp á 7
króna afslátt af hverjum lítra bens-
íns og díselolíu. Afslátturinn gildir
fyrstu vikuna. Starfsmaður ÓB
verður við sjálfsalann fyrstu vikuna
frá kl. 9-17 og kennir viðskiptavin-
um notkun hans.
Stöðin við Snorrabraut er sjötta
ÓB stöðin sem tekin er í notkun.
Öllum 6 stöðvunum er stjórnað af
einum starfsmanni og allur rekstr-
arkostnaður er því í lágmarki. Því
getur ÓB boðið lægra verð.
Fimm kórar
syngja fyrir
sjúka og aldraða
KVENNAKÓR Reykjavíkur, Vox
feminae, Léttsveitin, Senjoritumar
og Gospelsystur syngja á sjúkra-
stofnunum og dvalarheimilum fyrir
aldraða í Reykjavík sunnudaginn 8.
febrúar. Tilefnið er að nú í janúar
voru fimm ár frá því að Kvennakór
Reykjavíkur var stofnaður.
Að söngnum loknum er öllum fé-
lögum í kórunum fímm, auk eldri
kórfélaga, boðið að þiggja kaffiveit-
ingar í félagsheimili skólans, Ægis-
götu 7.
veisluhlaðborð að skagfirskum
sið og söngsveitin mun taka lagið
fyrir gesti undir stórn Snæbjarg-
ar Snæbjarnardóttur. Undirleik-
ari verður Árni Elvar.
Leikfélag MH
sýnir Macbeth
LEIKFÉLAG Menntaskólans við
Hamrahlíð frumsýnir Macbeth eftir
William Shakespeare í kvöld kl. 20.
Leikstjóri leikfélagsins að þessu
sinni er Björn Ingi Hilmarsson. Lif-
andi tónlist verður flutt á sýning-
unni og er tónlistarstjóri Svavar
Knútur Ki-istinsson. Með hlutverk
Macbeths fer Orri Huginn Ágústs-
son og frú Macbeth leiktir Ilmur
Kristjánsdóttir.
Fyrirhugaðar eru átta sýningar á
Macbeth.
SÖNGSVEITIN Drangey.
Þorrakaffi Drangeyjar
Athugasemd frá
ríkisskattstj <5ra
VEGNA ummæla framkvæmda-
stjóra VISA Island í Morgunblaðinu
á fimmtudag sl. (5. feb.) vill embætti
ríkisskattstjóra koma á framfæri eft-
irfarandi athugasemd:
„Einar S. Einarsson, fram-
kvæmdastjóri VISA Island, gerir lít-
ið úr lagalegu áliti embættis ríkis-
skattstjóra þar sem það „sé í full-
komnu ósamræmi við álit færustu
endurskoðenda. I mesta lagi sé þar
aðeins spurning um útfærsluatriði
eða bókhaldsfyrirkomulag en ekki
skattskyldu“. Af þessu tilefni skal
tekið fram að fyrirspurn barst frá
endurskoðanda fyrirtækisins hinn
23. desember sl. um hvernig fara
bæri með veittan afslátt í þessum til-
vikum í bókhaldi kaupmanna. Á
sama tíma barst reyndar fyrirspurn
frá Kaupmannasamtökunum um
sama efni.
Ríkisskattstjóri svaraði báðum fyr-
irspurnum 2. febrúar sl. og þykir
ekki leika neinn vafi á því að afsláttur
sem reiknaður er eftir á í gegnum yf-
irlit greiðslukortafyrh'tækis getur
aldrei komið til frádráttar við skil á
virðisaukaskatti enda um svokallaðan
óskilyrtan afslátt er að ræða. Það er
hins vegar bent á að sé afslátturinn
reiknaður til frádráttar söluverði
strax við afhendingu vöru eða þjón-
ustu (þ.e. tekjuskráning og útgáfa
reikninga miðist við það) verði virðis-
aukaskattsskil í samræmi við það.
Það skal tekið fram að öll ákvarð-
andi álit ríkisskattstjóra eru birt
skattstjórum og teljast bindandi fyr- .
h’ skattframkvæmd þar til þeim hef-'
ur verið hnekkt með úrskurði yfir-
skattanefndar eða dómstóla. Skatt-
stjórar munu því við reglubundna
skattframkvæmd ganga úr skugga
um að virðisaukaskattsskil séu í
samræmi við téð álit.
Virðingarfyllst,
Jón H. Steingrímsson, forstöðumað-
ur virðisaukaskattsskrifstofu ríkis-
skattstjóra.
Athugasemd frá
Visa Islandi
EINAR S. Einarsson, fram- því að umræddur rafrænn afsláttur'
kvæmdastjóri Visa Islands hefur
óskað eftir að koma á framfæri eftir-
farandi varðandi úrskurð embættis
Ríkisskattstjóra um virðisaukaskatt
af rafrænum afslætti, sem fjallað
var um í viðskiptablaði Morgun-
blaðsins á fimmtudag:
„Vegna frétta af úrskurði emb-
ættis ríkisskattstjóra við fyrirspum
Kaupmannasamtaka Islands um
virðisaukaskattskyldu af „eftirá-
reiknuðum" rafrænum afslætti af
Visa-viðskiptum er það að segja að
úrskurðurinn er að nokkru leyti
byggður á röngum upplýsingum frá
Kaupmannasamtökunum en einnig
ófullkomnum upplýsingum af okkar
hálfu. Lýsingar á verklagsreglum
vora ekki nógu nákvæmar, þ.e.a.s.
hvernig að hlutunum/afgreiðslu er
staðið, útreikningi og bókhaldsfyrir-
komulagi o.s. frv. svo það kann að
hafa valdið misskilningi um þann
hátt sem hér er á hafður.
Alla tíð hefur verið gengið út frá
Heimildarkvik-
mynd um heims-
styrjöldina
HEIMILDARKVIKMYNDIN
„Föðurlandsstyrjöldin mikla“ verður
sýnd sunnudaginn 8. febrúar kl. 15 í
bíósal MÍR, Vatnsstíg 10.
Þetta er ein fjölmargra kvik-
mynda sem Sovétmenn gerðu um
síðari heimsstyi-jöldina en hún er
sett saman úr fréttamyndum sem
teknar voru á vígstöðvunum beggja
vegna víglínunnar. Roman Karmen,
hinn kunni kvikmyndaleikstjóri, átti
mestan þátt í því að setja myndina
smaman en aðalstarfsmaður hans við
það verk var S. Smirnov.
Aðgangur að kvikmyndasýningu
MIR er ókeypis og öllum heimill
meðan húsrúm leyfir.
Fyrirlestur um
heimspeki
GEIR Sigurðsson, MA í heimspeki,
flytur opinberan fyrirlestur á vegum
Félags áhugamanna um heimspeki í
dag, laugardaginn 7. febrúar, kl. 15 í
Odda, stofu 101 sem ber yfirskriftina
Lífsþjáningin, leiðindin og listin -
heimspeki Leopardis.
Fyrirlesturinn fjallar almennt um
heimspeki Giacomos Leopardis
(1798-1832). Beint verður sjónum að
gagnrýni hans á upplýsinguna og
þeÚTÍ frumspekilegu fagurfræði sem
hann setti til höfuðs þeirri tóm-
hyggju er vísindahyggjan olli að
hans mati. Geir Sigurðsson lauk
BA-prófi í heimspeki frá Háskóla Is-
lands 1994 og MA-prófi frá Uni-
versity College Cork á Irlandi vorið
1997. Fyrirlesturinn er að nokkru
leyti byggður á MA-ritgerð hans.
komi í fyrsta lagi fram á sölunótum
til korthafa og í öðru lagi heildar-
upplýsingar um frádreginn afslátt á
niðurstöðulistum dagsins hjá sölu-
og þjónustuaðilum til uppfærslu í
bókhaldi. Þannig er einnig tryggt að
nettóviðskipti af þessu tagi færist
ekki milli mánaða eða vask-tíma-
bila.
Því miður hefur orðið nokkur
dráttur á því að tölvuvæða þessa
framkvæmd og því byggt á bráða-
birgðalausnum sem stendur. Þv/
verður embætti ríkisskattstjóra nú
beðið um nýtt álit hér á að fengnum
fyllri upplýsingum um framkvæmd
mála frá VISA og FRÍÐINDA-
KLÚBBNUM sem annast samninga
við sölu- og þjónustuaðila hér um.
Eins og áður hefur verið látið i
ljós er það álit færustu endurskoð-
enda að rafrænn kreditkortaafslátt-
ur af þessu tagi sé eins og annar af-
sláttur af reikningsviðskiptum frá-
dráttarbær frá virðisaukaskatti."
Gengið á reka á
Hafnarskeiði
í ÞRIÐJA áfanga raðgöngu ÚtivisL
ar, Gengið á reka, verða gengnar
fjörur Þorlákshafnar og Hrauns í
Olfusi í fylgd staðarmanna. Farið
verður frá Umferðarmiðstöðinni kl.
10.30 á sunnudaginn.
Gangan hefst í Skötubót kl. 11.15.
Litið verður inn í Byggðasafnið í
Þorlákshöfn og komið við á Hrauni í
bakaleið.
Hraunsfjara er einna þekktust
fyrir strand danska herskipsins
Giötheborg haustið 1718 en þar var
framkvæmt af fáum mönnum eitt
hið mesta björgunarstarf sem sögur
fara af á Islandi, segir í fréttatil-
kynningu.
LEIÐRÉTT
Flóabær
VEGNA ummæla sem höfð eru eft-
ir Kjartani Björassyni í grein í blað-
inu í gær um sameiningu sveitarfé-
laga í Flóanum vill Kjartan árétta
að það sé ekki hans eigin skoðun að
uppnefnið Flóafífl sé niðrandi. I
gi'eininni var ranglega talað um
Flóabyggð sem eitt af hugsanlegum
nöfnum á nýja sveitarfélagið, það á
að vera Flóabær. Kjartan getur
þess að hann hafí sérstaklega til-
greint Flóabæjarnafnið sem slæm-
an kost en Árnesþing gæti komið til
greina sem framtíðarnafn.
Tónlistarskólinn
í Reykjavík
í frétt í gær var Tónlistarskólinn
í Reykjavík rangnefndur Tónlistar-
skóli Reykjavíkur. Beðist er velvirð-
ingar á þessum mistökum.