Morgunblaðið - 05.03.1998, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 05.03.1998, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FORSETAHJÓNIN, heilbrigðisráðherra og forsvarsmenn íþróttahreyfingarinnar ásamt landsliði Islands gegn fíkniefnum. ÍÞRÓTTAHREYFINGIN hefur valið 19 manna landsliðshóp gegn fTkniefnum. í honum er margt fremsta íþróttafólk landsins og er það von hreyfíngarinnar að það muni með þátttöku sinni vekja at- hygli á skaðsemi fíkniefíia og styrkja þá ímynd að íþróttaiðkun og fíknieftianeysla fari ekki saman. Þetta kom fram á kynningarfundi íþróttahreyfingarinnar um átaksverkefnið íþróttir - afl gegn fíkni- efnum, sem haldinn var í íþróttamiðstöðinni í Laugardal í gær. Á fundinum afhentu verndarar verkefnisins, þau Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, og frú Guðrún Katrín Þorbergsdóttir, Björn Bjarnason menntamálaráð- herra og Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra, landsliðs- hópnum nýjar landsliðstreyjur. Vala Flosadóttir þakkaði heiður- inn, íyrir hönd hópsins, og sagðist ætla að leitast við að nýta sér þau tækifæri sem byðust til þess að vekja athygli á málefninu og miðla af eigin reynslu varðandi heil- brigðan lífstíl. Neikvæð fylgni milli íþróttaiðk- unar og fíkniefnaneyslu Á fundinum kom fram að íþrótta- og Ólympíusamband ís- lands og Ungmennafélags fslands, sem standa sameiginlega að verk- efninu, vilji auk stofnunar lands- liðsins leggja baráttunni gegn fíknieftium lið með beinum og óbeinum hætti. Vanda Sigurgeirsdóttir, fundar- stjóri og landsliðsþjálfari kvenna í knattspymu, sagði hreyfinguna hafa náð ótrúlega góðum árangri í baráttunni gegn fíkniefnum án þess að leggja sérstaka áherslu á þessi mál og spurði: „Hvað getum við þá gert ef við fórum í þetta með markvissum og skipulögðum hætti?“ Þórólfur Þórlindsson prófessor, sem unnið hefur að verkefninu, sagði rannsóknir benda til þess að fíkniefnavandinn færi vaxandi meðal ungs fólks hér á landi. Þá kom fram í máli hans að rannsókn- ir sýndu neikvæða fylgni á miUi íþróttaiðkunar og fíkniefnaneyslu. „Við verðum að bregðast við þess- um vanda með skipulögðum hætti og kannanir sýna að íþróttahreyf- ingin geti þar spilað mjög stórt hlutverk," sagði hann. „Sam- kvæmt könnunum reykja 31,4% unglinga í 9. og 10. bekk, sem ekki taka þátt í íþróttastarfinu, saman- borið við 13% þeirra sem stunda íþróttir tvisvar til þrisvar í viku og 10,5% þeirra sem æfa íþróttir fjór- um sinnum í viku eða oftar.“ Einnig sagði hann h'nulegt sam- band vera á milh íþróttaiðkunar og minni neyslu áfengis og annarra fíkniefna og því væru staðreyndir málsins þær að það væri mjög mikill munur á fíknieftianeyslu ungmenna sem væru í íþróttum og þeirra sem væru það ekki. Verkefni íþróttahreyfingarinnar er styrkt af Forvamasjóði heil- brigðis- og tryggingamálaráðu- neytisins. Morgunblaðið/Árni Sæberg GUÐRÚN Katrín Þorbergsdóttir afhenti Völu Flosadóttur fyrstu landsliðstreyjuna. Morgunblaðið/Golli Kynntu sér forvarnir gegn vímuefnum FORSETAHJÓNIN, sem undan- faraa tvo daga hafa kynnt sér vímuefnavandann og forvarnastarf gegn honum, heimsóttu baraa- og unglingageðdeild Landspítalans í gær. Olafur Ragnar og Guðrún Katrín, sem hér sjást taka við blóm- vendi frá ungum vistmanni, eyddu morgninum með starfsfólki og vist- mönnum deildarinnar. Ólafur Ó. Guðmundsson, yfir- læknir baraa- og unglingageðdeild- ar, segir stóran hóp þeirra barna sem komi inn á deildina vera í áhættuhópi. Starfsfólk deildarinnar sjái þennan hóp einu skrefi fyrr en starfsfólk margra annarra stofnana og eigi því meiri möguleika á að fyrirbyggja vandann ef það heldur vel á spöðunum. Starfsemi þess sé því mjög mikilvægur liður í for- vöraum gegn fíkniefnum. Mál Keikós í athugun HALLDÓR Runóhsson yfir- dýralæknir á ekki von á því að það skýrist fyrr en í lok apríl hvort gefið verði leyfi fyrir því að háhymingurinn Keikó komi til landsins. Halldór segist hafa tekið við umfangsmiklum gögnum um málið á þriðjudag og þurfa að skoða þau vandlega áður en hann geti komist að nokkurri niðurstöðu. Hann hafí sagt að miðað við fyiTÍ afgi’eiðslur sé ólíklegt að þetta geti gengið en málið verði skoðað og lítið sé hægt að segja um afgreiðslu þess á þessu stigi. 54% vilja Keiko til landsins RÚMLEGA 54% eru hlynnt því að háhyrningurinn Keiko komi aftur til landsins en tæp- lega 24% eru því andvíg. Þetta kemur fram í skoðanakönnun Gallups sem framkvæmd var dagana 19.-28. febrúar síðast- hðinn. Úrtakið var tilviljanaúr- tak 1.118 einstaklinga á aldrin- um 18-75 ára og var svarhlut- fall 73,1%. Fram kemur að karlar eru hlynntari málinu en konur, því tæplega 60% þeirra vilja veita leyfi fyrir því að Keiko komi til landsins en tæplega 49% kvenna. Vilja fá að sundurliða símreikninga í GÆR barst Tölvunefhd er- indi frá Landssímanum þar sem beðið var um heimild til að sundurliða á reikningum öll dýrari símtöl símnotenda. Að meðaltali berast Landssíman- um 10-15 fyrirspurnir á mán- uði vegna hárra símreikninga og dæmi eru um að símreikn- ingar fyrir heimilissíma hijóði upp á 60.000-70.000 krónur. Áð sögn Hrefnu Ingólfsdótt- ur upplýsingafulltrúa Lands- símans er skýringin á háum upphæðum símreikninga oft fólgin í notkun símatorgs, sím- tölum til útlanda og nú nýverið þátttöku í skjáleik sem er á ríkissjónarpinu og Sýn. Beiðnin til Tölvunefndar segir Hrefna að sé hður í að bæta þjónustu Landssímans við viðskiptavini og ef leyfi fæst hjá Tölvunefnd verður hún viðskiptavinum að kostn- aðarlausu. ■ Landssíminn leitar/23 Landslið Islands ge fíkniefnum Þriggja manria tal Þarftu að ná sambandi við tvo í einu? Með einfaldri aðgerð get- urðu komið á símafundi með þremur þátttakendum sem geta verið staddir hvar sem er á landinu eða erlendis. Nánari upplýsingar um verð og sérmónustu Landssímans færðu í síma 800 7000 eða SÍMASKRÁNNI. LANDS SfMINN Forathugun á hagkvæmni 100 þús. tonna pólýólverksmiðju Niðurstöður þykja lofa mjög góðu NIÐURSTÖÐUR úr forathugun sem gerð hefur verið á hagkvæmni þess að reisa og starfrækja pólýól- verksmiðju hér á landi liggja nú fyr- ir og benda þær til þess að um mjög hagkvæman kost geti verið að ræða, samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins. Hefur verið út frá því gengið að um yrði að ræða jarð- gufuverksmiðju með um 100 þúsund tonna framleiðslugetu. Islenskir ráðgjafarverkfræðingar sem fengnir voru til að gera forat- hugun á kostnaði við verkefnið hafa skilað niðurstöðum sínum í skýrslu, og lofa þær mjög góðu, skv. upplýs- ingum blaðsins, og eru taldar gefa fullt tilefni til að halda áfram frek- ari athugunum og undirbúnings- vinnu. Skýrsla verkfræðinganna er nú til skoðunar hjá verkefnisstjórn á vegum ískem ehf., sem er sam- starfsfyrirtæki innlendra og er- lendra aðila. Er helmingur hluta- fjárins í eigu bandaríska fyrirtækis- ins Technology International Exchange (TIE). ískem vinnur einnig að undirbúningi að byggingu 40 þúsund tonna eimingarverk- smiðju fyrir iðnaðaralkóhól á Reykjanesi, en sá undirbúningur er mun lengra á veg kominn en pólýól- verkefnið. Fjárfesting í pólýólverk- smiðju yrði hins vegar margfalt meiri en nemur fjárfestingarkostn- aði vegna alkóhólverksmiðjunnar, sem hefur verið áætlaður á bilinu 700 til 1.000 milljónir kr. Pólýól er stór efnaflokkur sem nýtist í mismunandi tilgangi, m.a. í plastiðnaði. Við framleiðsluna er notuð ný framleiðslutækni og þykja staðarkostir hér á landi ákjósanleg- ir.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.