Morgunblaðið - 05.03.1998, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1998
LANDIÐ
MORGUNBLAÐIÐ
Grunnskólinn
í Grindavík
Opin
vika á
alnetinu
Grindavík - Opin vika eða þema-
vika var haldin dagana 23.-27. febr-
úar í Grunnskólanum í Grindavík.
Verkefnið var mjög fjölbreytt,
enda ekki annað hægt þegar við-
fangsefnið er hafíð. Afi-aksturinn
er hægt að sjá að hluta til á alnet-
inu á heimasíðu skólans en slóðin
er http:\\rvik.ismennt.isVgrinda.
011 hefðbundin kennsla féll niður
þessa daga og nemendur og kenn-
arar einbeittu sér að hinum ýmsu
verkefnum, m.a. að hreinlega bera
fjöruna inn á skólalóðina, en þar
var útbúin fjara með öllu því sem
þar fannst. Þá var starfrækt út-
varpsstöð, gefíð út blað, teknar
ljósmyndir, myndband gert, eldað
úr sjávarfangi ýmsu og margt
fleira, enda hóparnir alls 23 sem
unnu mismunandi verk en þó öll
tengd hafinu.
títvarpið stóð upp úr
Mikil sýning var síðan haldin
föstudaginn 27. febrúar og sýning-
artíminn hafður frá kl. 16-19
þannig að allir kæmust nú örugg-
lega, enda kom mikið fjölmenni á
sýninguna. A þessari sýningu var
hægt að sjá afrakstur þessara daga
Nýr vél-
hermir
tekin í
notkun
Neskaupstað - Nýlega var
nýr vélhermir formlega tek-
inn í notkun við Verkmennta-
skóla Austurlands. Vél-
hermirinn, sem keyptur vai-
frá Englandi, er mjög full-
kominn og nákvæmur og get-
ur líkt eftir starfsemi vélar
allt að 1.500 kW. Þá er hann
tengdur við tölvu sem sýnir
ástand vélarinnar hverju
sinni.
Kostnaður á þriðju
milljón króna
Jóhann Zoéga, kennari við
Verkmenntaskólann, hefur ís-
lenskað texta fon-itsins sem
fylgir herminum og mun það
auðvelda mjög vélstjóranám
við skólann en áætlað er að
það standi til boða á næstu
önn.
Vélahermirinn kostaði á
þriðju milljón króna og er
hann einn fjögurra slíkra sem
keyptir voru til landsins sam-
an og náðist við það um 25%
lækkun á verði.
Morgunbíaðið/Ágúst Blöndal
HELGA Steinsen, skóla-
meistari Verkmenntaskól-
ans, og Jóhann Zoega,
kennari, við vélherminn.
og eins og áðm- sagði er hluti sýn-
ingarinnar á alnetinu í gegnum
heimasíðu skólans.
Krakkamir voru mjög lukkuleg-
ir með dagana og afraksturinn.
Þegar myndbandshópurinn sem
vann að stuttmynd var spurður um
vikuna sagði Brynjar, sem hafði
orð fyrir hópnum:
Áhugasamir
nemendur
„Þetta hefur verið fínt, gaman og
skemmtilegt. Eg held að útvarpið
standi upp úr þó að sumir þættirn-
ir hafi verið alveg hrikalegir." Auk
Brynjars voru tveir aðrir lO.-bekk-
ingar í myndbandahópnum, þeir
Gulli og Heiðar.
Sjómannalög ómuðu um gang-
ana meðan á sýningu stóð og þegar
Anna Lilja Sigurðardóttir skóla-
stjóri var spurð um markmiðin og
reynsluna af þessum dögum sagði
hún: „Þessi vika var sett upp með
það að markmiði að láta fnimkvæði
og sköpunargleði nemenda njóta
sín og þannig efla hæfni þeirra til
sjálfstæðra vinnubragða.
Reynsla mín er sú að hér voru
virkir og áhugasamir nemendur að
vinna og athyglisvert er hve vel
gekk að vinna í aldursblönduðum
hópum, en 1.-4. bekkur voru sam-
an, 5.-7. bekkur saman og þá 8.-10.
bekkur. Svona vinna byggist á öfl-
ugum og skapandi kennurum, enda
mikil undirbúningsvinna sem þarf
að fara fram áður en verkefnið fer
af stað. Þá vil ég geta þess að fyrir-
tækjum í bænum var skrifað bréf
og þau beðin að taka vel á móti
nemendum sem þyrftu hugsanlega
á aðstoð að halda og gekk sú sam-
vinna sérlega vel.“
ÝMISLEGT var um að vera á þemaviku í Grunnskólanum í Grindavík.
Morgunblaðið/Garðar
Reyklaus 9.
bekkur í
Grunnskól-
anum í
Hveragerði
Hveragerði - 9. bekkur Grunn-
skólans í Hveragerði fékk ný-
verið viðurkenningu frá Tó-
baksvamaráði og Krabbameins-
félaginu fyrir það að vera reyk-
Iaus árgangur. Hefur þessi ár-
gangur ávallt verið reyklaus og
þykir það til mikillar fyrir-
myndar. Bjarni Eiríkur Sig-
urðsson, fulltrúi Tóbaksvarna-
nefndar, afhenti fulltrúum
bekkjanna viðurkenningamar.
Ennfremur var hverjum nem-
anda afhent viðurkenningar-
skjal frá foreldrum fyrir árang-
urinn. Af þessu tilefni buðu for-
eldrar krökkunum í ferðalag og
var ferðinni heitið til Geysis í
Haukadal þar sem dvalið var í
góðu yfirlæti yfir nótt. Foreldr-
arnir gerðu það ekki enda-
sleppt og komu með pizzur til
ferðalanganna og haldin var
mikil veisla.
Að sögn Guðjóns Sigurðsson-
ar, skólastjóra, em reykingar á
miklu undanhaldi í Gmnnskól-
anum. Annar 10. bekkurinn er
reyklaus og báðir 8. bekkimir
era taldir reyklausir þannig að
bundnar era miklar vonir við
það að Grannskólinn geti orðið
reyklaus strax á næsta ári.
' . Morgunblaðið/Aldís Hafsteinsdóttir
BJARNI Eiríkur Sigurðsson, fuiltrúi Tóbaksvarnaráðs afhenti fulltrúum bekkjanna þeim Kolbrúnu Ósk Guðmundsdóttur og Heiðu Rún Sveinsdótt-
ur viðurkenningarskjöl. - 9. bekkingar í Hveragerði á leið í ferðalag í boði foreldra.
Iþróttamað-
ur Borgar-
byggðar
1997 valinn
Morgunblaðið/Ingimundur
BRAGI Hinrik Magnússon körfuboltamaður, íþróttamaður Borgarbyggðar 1997, er fyrir miðri mynd ásamt
íþróttafólki sem valið var best í sinni íþróttagrein eða fulltrúar þeirra sem ekki voru viðstaddir. Við hlið hans sit-
ur Elín Anna Steinarsdóttir er hlaut viðurkenningu úr minningarsjóði Auðuns Hlíðkvist Kristmarssonar.
Borgarnesi - Greint vár frá kjöri
„íþróttamanns Borgarbyggðar" í
íok íþróttadags í Borgarnesi 19.
febrúar sl. Þáð er tómstunda-
nefnd Borgarbyggðar sem valdi
besta fþróttafólkið í hverri grein
eftir tilnefningur frá íþróttafé-
lagihu Kveldúlfi, Umf. Skalla-
grimi, Umf. Stafholtstungna,
Golfklúbbi Borgarness og Hesta-
mannafélaginu Skugga. Við valið
var árangur í íþróttum hafður til
hliðsjónar en einnig félagslegur
þroski og ástundun.
Guðmundur Guðmarsson, for-
seti bæjarstjórnar Borgarbyggð-
ar, og Indriði Jósafatsson, íþrótta-
og æskulýðsfúlltrúi, greindu frá
kjörinu og afhentu íþróttafólkinu
viðurkenningamar.
Eftirtaldir vora valdir íþrótta-
menn þeirra íþróttagreina er
iðkaðar era innan sveitarfélags-
ins:
fþróttir fatlaðra: Einar Tausti
Sveinsson. Golf: Haraldur Már
Stefánsson. Hestaíþróttir: Alex-
ander Hrafnkelsson. Knatt-
spyrna: Hilmar Þór Hákonarson.
Fijálsar íþróttir: Kristín Þór-
hallsdóttir. Badminton: Guðlaug-
ur A. Axelsson. Körfuknattleik-
ur: Bragi H. Magnússon, sund:
Halldór Atli Þorsteinsson.
tír hópi þessa íþróttafólks
valdi tómstundanefnd Braga Hin-
rik Magnússon sem íþróttamann
Borgarbyggaðar árið 1997. En
Bragi hefur verið ein styrkasta
stoðin í úrvalsdeildarliði Skalla-
gríms í körfuknattleik undanfar-
in ár.