Morgunblaðið - 05.03.1998, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1998 15
FRÉTTIR
Umferðarspá höfuðborgarsvæðisins samkvæmt forgangsröðun sveitarfélaga fram til ársins 2008
Umferð mest um
Kringlumýrar-
braut í Fossvogi
í TILLÖGU sveitarfélaga að for-
gangsröðun framkvæmda fyrir
vegaáætlun fram til ársins 2010, er
í umferðarspá bent á þær leiðir,
þar sem umferðarálag verður yfír
90% af flutningsgetu en þá er veru-
leg seinkun á umferð á vegarkafl-
anum og versnar hratt með auknu
álagi þar fram yfir. Fram kemur að
þegar er of mikið álag á Gullinbrú,
hluta Miklubrautar og á Hring-
braut. Það sama gildir um gatna-
mót Reykjanesbrautar og Breið-
holtsbrautar og við gatnamót
Lækjargötu í Hafnarfirði. Sam-
kvæmt umferðarspá fram til ársins
2008 verður mesta umferðarálagið
á Kringlumýrarbraut í Fossvogi.
Til grundvallar umferðarspám
voru lagðar áætlaðar breytingar á
íbúafjölda og atvinnuhúsnæði
ásamt upplýsingum um skipulags-
tölur frá árinu 1995 og breytingar
á þeim samkvæmt áætlunum sveit-
arfélaga. Astand umferðar var
metið árið 1997 og er stuðst við
talningu Vegagerðarinnar og
Reykj avíkurbor gar.
Framkvæmdir
miði við tillögur
Umferðarspáin fyrir árið 2002
miðast við að framkvæmdum miði
eins og tillögur sveitarfélaganna að
forgangsröðun framkvæmda fyrir
vegaáætlun gera ráð fyrir. Miðað
er við að í árslok verði fram-
kvæmdir vestast á Miklubraut og
færsla á Hringbraut komnar það
langt að umferðarmannvirkin nýt-
ist.
Helstu götur, þar sem álag verð-
ur yfir 90% af flutningsgetur verða
samkvæmt umferðarspá Kringlu-
mýrarbraut í Fossvogi en þar er
gert ráð fyrir að 71 þús. bílar fari
um á sólarhring árið 2002, Vestur-
landsvegur í Elliðaárbrekku, þar
sem gert er ráð fyrir 47-68 þús. bíl-
um á sólarhring og Miklabraut frá
Lönguhlíð að Kringlu en þar er
gert ráð fyrir 43-49 þús. bílum á
sólarhring. Ennfremur Höfðabakki
frá Vesturlandsvegi að Stórhöfða,
þar sem gert er ráð fyrir 47 þús.
bílum á sólarhring, Hafnarfjarðar-
vegur í Kópavogi en þar er gert
ráð fyrir 44 þús. bílum á sólar-
hring, Höfðabakld um brúna yfir
Elliðaár, þar sem gert er ráð fyrir
25 þús. bílum á sólarhring og á
Reykjanesbraut ofan við Hafnar-
fjörð en þar er gert ráð fyrir 22
þús. bflum á sólarhring.
A sama tíma er gert ráð fyrir að
Miklabraut frá Sæbraut að Kr-
inglumýrarbraut anni án erfiðleika
48-60 þús. bflum á sólarhring,
Vesturlandsvegur neðan við
Höfðabakka 58 þús. bflum á sólar-
UMFERÐARSPA 2002 OG
HAFNARFJÖRÐUR
---------- 2002
---------- 2008
yfir 90% af flutningsgetu
hring, Reykjanesbraut frá Reykja-
vík í Kópavog 48-58 þús. bflum á
sóalarhring og að Gullinbrú anni 34
þús. bílum á sólarhring.
Umferðarspá
árið 2008
Umferðarspá fyrir árið 2008
sýnir að enn verður álagið mest á
Kringlumýrarbraut í Fossvogi og
er þá gert ráð fyrir 75 þús. bflum á
sólarhring. Einnig á Höfðabakka
yfir Elliðaár og að Stórhöfða en
þar er gert ráð fyrir 36-46 þús. bfl-
um ,á sólarhring á þeirri leið og á
Miklubraut frá Stakkahlíð að Kr-
inglu en þar er gert ráð fyrir 43-49
þús. bflum á sólarhring.
Samkvæmt spánni er gert ráð
fyrir 35 þús. bflum á sólarhring um
Gullinbrú og að hún anni þeirri
umferð enda verði framkvæmdum
við Sundabraut lokið en gert er ráð
fyrir að um Sundabraut fari þá 21
þús. bílar á sólarhring. Þá er gert
ráð fyrir að um Vesturlandsveg frá
Víkurvegi að Sæbraut fari 32-48
þús. bílar á sólarhring og að göt-
umar anni þeirri umferð.
SJAIÐ VOLU A STANGARSTOKKSMOTIIR
í HÖLLINNI í KVÖLD KL. 20.00
í keppni við bestu stangarstökkvara heims. Heimsmethafinn Balakhonova
og fyrrverandi Evrópumethafinn, Szemeredi glínia við Þóreyju Eddu og Völu okkar.
Mætum í Laugardalshöllina og styðjum okkar stúlkur.
Einar Karl Hjartarson mætir Thomas Hanson frá Svíþjóð.
Stenst íslenska metið átökin