Morgunblaðið - 05.03.1998, Síða 6

Morgunblaðið - 05.03.1998, Síða 6
6 FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Menntamálaráðherra kynnir nýja skólastefnu Enn betri skóli, þeirra réttur - okkar skylda KJÖRORÐ nýrrar skólastefnu sem Bjöm Bjamason menntamálaráð- herra lagði fram í gær og verður kynnt á næstu vikum era „Enn betri skóli, þeirra réttur - okkar skyida." Bæklingur með sömu yfirskrift verð- ur sendur inn á hvert heimili í land- inu á næstu dögum og kveðst ráð- herra vonast til þess að sem flestir taki þátt í umræðunni. Hin nýja skólastefna felur í sér umtalsverðar breytingar á námi í grunn- og framhaldsskólum, sem munu koma til framkvæmda með nýjum aðalnámskrám sem lagðar verða fram á hausti komanda en stefnt er að því að þær komist í framkvæmd á næstu þremur árum. Meiri áhersla á sjálfstæð vinnubrögð Á blaðamannafundi sem haldinn var í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ í gær til kynningar á hinni nýju stefnu sagði menntamálaráðherra, að markmiðið væri að tryggja ís- lenskum nemendum nám sem væri sambærilegt við það sem best gerð- ist í heiminum. Ætlunin væri að styrkja og móta heildstætt skóla- starf, herða námskröfur, nýta kennslutíma til hins ýtrasta, auka sveigjanleika og bæta árangur nem- enda, jafnt í einstökum greinum sem og náminu í heild. Ráðherrann sagði ennfremur að með nýrri skólastefnu væri verið að leggja meiri áherslu en áður á sjálf- stæð vinnubrögð og aukið val nem- enda. Til dæmis mun val nemenda í 9. og 10. bekk verða allt að 30% af námstíma þeirra. Þá verður ný námsgrein, lífsleikni, tekin upp sem skyldugrein, hvprt tveggja í grunn- og framhaldsskóla. Kennslu í lífs- leikni er ætlað að stuðla að því að nemendur fræðist meira um réttindi sín og skyldur, fjármál, fjölskyldulíf, atvinnu, umhverfi, heilsu, neytenda- mál og lýðræðislegt samfélag. Þá verður mikil áhersla lögð á vímu- varnir og að einstaklingarnir efli frumkvæði sitt og sjálfstæði. Kennsla í stærðfræði og náttúrufræði aukin Kennslustundum í stærðfræði og náttúrafræði í grannskólanum verð- ur fjölgað veralega og aukin áhersla á íslensku, einnig utan íslenskutím- anna. Þá verður áhersla á tungumál aukin til muna og enskukennsla haf- in tveimur árum fyrr en nú er, eða í 5. bekk. Þar með er enskan tekin fram yfir dönsku sem fyrsta mál en dönskukennsla mun hefjast í 7. bekk í stað 6. bekkjar nú. Að sögn ráð- herra mun dönskukennslan þó fá sama heildartíma og áður, en farið verður yfir jafnmikið efni á skemmri tíma og á hnitmiðaðri hátt en fyrr. Þá er ætlunin að nám í þremur er- lendum tungumálum verði skylda á öllum bóknámsbrautum framhalds- skóla og áhersla lögð á að framhalds- skólanemum bjóðist nám í tungum fjarlægari þjóða. Bryddað verður upp á þeirri ný- breytni að bjóða lesblindugreiningu fyrir öll sex ára börn og í öllu skóla- starfi verður reynt að meta líkur á námsörðugleikum og bregðast við áður en í óefni er komið. Með nýrri stefnu verður lögð áhersla á að BÆKLINGURINN um hina nýju skólastefnu verður sendur inn á hvert heimili í landinu á næstu dögum. notkun upplýsingatækni verði sjálf- sagt hjálpartæki í öllum námsgrein- um og upplýsingalæsi verði skyldu- námsgrein frá upphafi til loka grunnskóla. Leikni á lyklaborð tölvu og ritvinnslu verður skyldu- námsþáttur frá 4. bekk til loka grunnskóla, þannig að ekki verður þörf fyrir slíka kennslu í framhalds- skólanum. Ný upplýsinga- og tæknibraut verður sett á laggirnar í tilraunaskyni í framhaldsskólum, sem þjálfa mun nemendur á sviði rauntækni, upplýsingatækni og hugbúnaðargerðar. Samræmdum prófum í lok 10. bekkjar verður fjölgað úr fjóram í FREYR og Claes spila og syngja íslensk lög um borð í Outeniqua við góðar undirtektir. SWEDARP leiðangurinn til Suðurskautslandsins FREYR Jónsson og Jón Svanþórs- son, íslensku jeppamennimir í sænskum vísindaleiðangri til Suð- urskautslandsins, era nú í Höfða- borg. Jón leggur af stað heimleið- is til íslands í dag. Freyr verður hins vegar áfram f Höfðaborg og bíður þess að Toyota-jepparnir tveir komi með ísbrjótnum Agul- has. Freyr segir að ferðin hafi gengið mjög vel og bflarnir reynst framar vonum. Þeir félagar komu með ís- bijótnum Outeniqua til Höfða- borgar í gær eftir átta daga sigl- ingu. Freyr sagði að illa hefði gengið að koma skipi að íshell- unni og tók langan tíma að lesta skipin. Fóru þeir fram og til baka frá Sanea og Rampen, þar sem út- búnaður þeirra er. Bflarnir tveir eru í Agulhas sem er væntanlegt Komnir til Höfða- borgar til Höfðaborgar nk. föstudag. Freyr kvaðst ekki koma heim fyrr en á miðvikudag. Eldur um borð í Outeniqua Eldur kom upp í Outeniqua á leiðinni til Höfðaborgar 27. febrú- ar. „Þetta var nú ekki mikið. Það varð skammhlaup í hitalögnum sem notaðar eru til að hita vatns- lagnir f skipinu. Það kviknaði 1 lögnunum en eldurinn uppgötvað- ist í tíma. Það hefði getað farið verr,“ sagði Freyr. Freyr sagði að sér þætti ferðin hafa gengið afar vel. „Það sem kom mér helst á óvart var að veðrið var ekki jafn slæmt og ég átti von á. Þótt frostið sé mikið er yfirleitt ekki þetta stöðuga rok sem við eigum að venjast heima á íslandi. Við vorum líka vel búnir þannig að þetta voru engin átök. Bflarnir komu frábærlega vel út, ekki síst miðað við annan tækja- búnað sem við vorum með. Snjó- bflarnir biluðu gjarnan og vélsleð- arnir af og til. Það er greinilegt að kuldinn og þessi mikla lestun reynir mikið á tækin,“ sagði Freyr. Lesa má nánar um leiðangurinn á heimasfðu Morgunblaðsins, http://www.mbl.is/sudurskaut/. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins BJÖRN Bjarnason menntamálaráðherra kynnti nýja skólastefnu á blaðamannafundi sem haldinn var í myndlistarstofu Fjölbrautaskólans í Garðabæ í gær. sex og bætt við prófum í samfélags- greinum og náttúrufræði. Ekki hefur þó enn verið ákveðið hvort einhver þeirra verði skylda eða hvort þau verði öll valfrjáls. Þá verða boðin sveigjanleg námslok í grannskóla þannig að hluti nemenda geti lokið grunnskólanámi á níu áram í stað tíu. Einnig er rætt um að heimila einhverjum framhaldsskólanna að gera tilraun með þriggja ára nám til stúdentsprófs. Reynt að stemma stigu við brottfalli nemenda Ólík inntökuskilyrði verða sett á námsbrautir framhaldsskólans og munu þau einkum byggjast á kröfum um námsárangur í þeim greinum sem mestu máli skipta á viðkomandi námsbraut. Markmiðið með inntöku- skilyrðunum er að gera nám á hinum ýmsu námsbrautum markvissara með tilliti til lokamarkmiðs námsins og viðkomandi nemendahóps en einnig að stemma stigu við brottfalli nemenda. Tengsl atvinnulífs og skóla munu aukast með fjölgun starfs- námsbrauta og þátttöku atvinnulífs- ins í mótun námskrafna. Námsfram- boð í öldungadeildum verður einnig aukið, einkum á sviði starfsnáms. I máli ráðheraa kom fram að hann teldi það afar þýðingarmikið að námskrár grannskóla og framhalds- skóla væru nú endurskoðaðar sam- eiginlega í fyrsta sinn. Þannig væri nú í fyrsta sinn unnið skipulega að því að skapa samhengi mÚli náms í grunn- og framhaldsskóla í því skyni að tryggja eðlilega stígandi í náminu. Kynningarfu ndir víða um land á næstu vikum Menntamálaráðherra minnti á að til þess að ný skólastefna gæti orðið að veruleika þyrftu allir að leggjast á eitt; yfirvöld menntamála, sveitar- stjórnir, skólaskrifstofur, kennarar, foreldrar og nemendumir sjálfir. „Með sameiginlegu átaki skulum við tryggja betri menntun. Við skulum halda þannig á málum að árið 2011 líti nýútskrifaður framhaldsskóla- nemi um öxl og þakki þeim sem gáfu honum góða menntun, auðæfi sem aðeins aukast en ekki minnka á lífs- göngunni. Virðum þann rétt unga I fólksins, með því að gera skyldu okk- ar í þágu enn betri skóla,“ sagði hann. A næstu vikum efnir menntamála- ráðherra til funda um allt land, þar sem almenningi jafnt sem fagfólki gefst færi á að kynna sér hina nýju stefnu og koma með ábendingar áð- ur en gengið verður endanlega frá nýjum námskrám fyrir grunn- og framhaldsskóla næsta haust. Þá verður einnig leitað eftir formlegri i umfjöllun hagsmunaaðila á borð við kennara, skólastjórnendur, Sam- band íslenskra sveitarfélaga og sam- tök foreldra og nemenda. Forstjóri Visa íslands um úrskurð áfrýjunarnefndar samkeppnismála Kemur sterklega i til greina að fara domstólaleiðina EINAjR S. Einarsson, forstjóri Visa íslands, segir að það komi sterklega til greina að kæra úr- skurð áfrýjunarnefndar samkeppn- ismála um greiðslukortaviðskipti til dómstóla. Hann segir úrskurð- inn vera mikil vonbrigði en hins vegar sé veittur mikilvægur um- þóttunartími sem Visa ísland muni nota til þess að fara yfir málið að nýju, afla gagna og vinna sjónar- miðum um eitt almennt verð fylgi. Frá því sé síðan veittur afsláttur fyrir staðgreiðslu, magn eða við- skiptatryggð líkt og tíðkast hafi hér á landi um 10 ára skeið. „Áíi-ýjunarnefndin klofnaði í af- stöðu sinni og það sýnir hve úr- skurður samkeppnisráðs er umdeil- anlegur og í raun óvandaður, auk þess sem þar er lítið tillit tekið til neytendasjónarmiða. Bæði sam- keppnisráð og meirihluti áfrýjunar- nefndarinnar gera sig seka um aug- Ijósa mistúlkun á lögum að okkar mati, en í 35. grein samkeppnislaga er skýrt tekið fram að þess skuli vera gætt að viðskiptahættir skuli vera sambærilegir hér á landi við það sem almennt gerist í helstu við- skiptaríkjum fslendinga. Greiðslu- kortaviðskipti eru í eðli sínu alþjóð- leg og lúta alþjóðlegum reglum og viðskiptavenjum,“ sagði Einar. Öll meðferð málsins gagnrýniverð Hann sagði að öll meðferð þessa máls væri mjög gagnrýniverð. Bág aðstaða hefði verið veitt til sam- skipta, rökræðna og eðlilegs mál- flutnings gagnvart Samkeppnis- stofnun, svo ekki sé talað um áfrýj- unarnefnd samkeppnismála þar sem aðeins hafi gefist 10 mínútur til andmæla eftir að lögmenn höfðu flutt málið. „Vinnubrögð Samkeppnisstofn- unar og samkeppnisráðs eru átalin í úrskurði áfrýjunarnefndarinnar, ekki aðeins óvönduð vinnubrögð heldur hreinlega brot á stjórn- sýslulögum í sambandi við meðferð málsins. Því hefði mátt ætla að áfrýjunamefndinni þætti sjálfgefið að ógilda ákvörðunina þar sem í ljós hefur verið leitt að ólöglega var að henni staðið og að Sam- keppnisstofnun braut á rétti gerð- arþola. Þess í stað er aðeins látið við það sitja að átelja þessi vinnu- brögð,“ sagði Einar.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.