Morgunblaðið - 05.03.1998, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 05.03.1998, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1998 13 Morgunblaðið/ Ami Sæberg I UTANRÍKISMALANEFND eiga sæti níu þingmenn og voru þeir allir viðstaddir á þúsundasta fundi nefndarinnar. Lengst t.v. á myndinni er Helgi Ágústsson, ráðuneytisstjdri utanríkisráðuneytisins, og þá koma nefndarmennirnir Gunnlaugur M. Sigmundsson, Lára Margrét Ragn- arsddttir, Árni R. Árnason, Tdmas Ingi Olrich, Geir Haarde, formaður utanríkismálanefndar, Össur Skarphéðinsson, varaformaður nefndar- innar, Siv Friðleifsddttir, Margrét Frímannsddttir og Kristín Ástgeirs- ddttir. Lengst t.h. er Þdrður Bogason, ritari nefndarinnar. Þúsundasti fundur utanríkismálanefndar Veittur verður aðgang- ur að fundargerðum UTANRÍKISMÁLANEFND AI- þingis hefur samþykkt að sé þess óskað verði veittur að- gangur að fundargerð nefndar- innar séu þrjátíu ár liðin frá fundi nema fundargerðin íjalli um einkamálefni einstaklinga. I slíkum tilvikum skuli ekki heimila aðgang að þeim hluta fundargerðar sem um einka- málefnið fjallar fyrr en að átta- tíu árum liðnum, nema sá er málið varðar veiti samþykki sitt. Getur utanríkismálanefnd sammælst um að veita undan- þágu frá þessari reglu vegna rannsdkna- og fræðistarfa, þó ekki ef fundargerð fjallar um einkamálefni. Samþykkt þessi kemur til framkvæmda 1. októ- ber næstkomandi, en hún var samþykkt á þúsundasta fundi utanríkismálanefndar sem hald- inn var í gær, en fyrsti fundur nefndarinnar var haldinn 16. apríl 1928. Frá fyrstu tíð hefur utanríkismálanefnd verið ríkis- stjórninni til ráðgjafar um utan- ríkismál og í 24. grein þing- skapa er nú ákvæði um að nefndin skuli vera ríkisstjórn- inni til ráðuneytis um meiri- háttar utanríkismál, enda skuli ríkisstjórnin ávallt bera undir hana slík mál, jafnt á þingtíma sem í þinghléum. Ríkir sérstök trúnaðarskylda á nefndarmönn- um í þessu sambandi. Morgunblaðið/Golli SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA Portúgals, Marcelo de Sousa Vasc- oncelo, kynnir sér saltfiskverkun Stakkavíkur í Grindavík ásamt fóru- neyti sínu. Ráðherrann _er vinstra megin á myndinni en lengst til hægri er Hermann Ólafsson, framkvæmdastjdri Stakkavíkur. Sj ávarútvegsráðherra Portúgals kynnir sér ís- lenzkan sjávarútveg SJÁVARÚTVEGSRÁÐHERRA Portúgals, Marcelo de Sousa Vasconcelos, var í opinberri heimsókn hér á landi fyrri hluta vikunnar, en hann hélt af landi brott snemma í morgun. Ráðherrann kynnti sér helztu sjávarútvegsstofnanir í Reykja- vík, heimsótti sjávarútvegs- ráðuneytið og ræddi við Þor- stein Pálsson, sjávarútvegsráð- herra, heimsótti Fiskistofu, Hafrannsóknastofnun, Rann- sóknastofnun fiskiðnaðarins og landhelgisgæzluna. Á þriðjudag fór hann til Eyja og heimsótti þar helztu fisk- vinnslufyrirtækin, en í gær kynnti hann sér starfsemi SIF og Utflutningsráðs íslands, heimsótti saltfiskverkunina Stakkavík í Grindavík og Fisk- markaðinn í Sandgerði og átti að iokum viðræður við Hall- dór Ásgrímsson, utanríkisráð- lierra. FRÉTTIR Fyrrverandi eigandi Gáms-Hringhendu neitar að gryfja með tirgangi sé óleyfíleg Segir urðun með vit- und heilbrigðiseftirlits FYRRVERANDI eigandi Gáms-Hringhendu sem stóð að urðun og losun úr- gangs við Straumsvík á seinasta ári segir, að urðunin hafi verið með vitund heilbrigðisefth-lits Hafnarfjarðarsvæðis. „Embættið vissi vel af þessu en hvort að menn þar gerðu sér grein fyrir umfangi þessara húsa, þrjátíu tveggja hæða blokka af Kefla- víkuflugvelli, get ég ekki sagt til um, enda ekki mitt mál,“ segir Guðjón Þorbjörnsson, fyrr- verandi eigandi fyrirtækisins. Hann segir að umfang verk- efnisins hafi aldrei verið rætt og hafi heilbrigðiseftirlitið ekki spurt um hversu mikið magn úr- gangs yrði flutt af Keflavíkur- flugvelli. Rannsakað fyrir kærumeðferð Guðmundur Einarsson, fram- kvæmdastjóri heilbrigðiseftirlits Hafnarfjarðarsvæðis, segir for- rannsókn standa yfir vegna máls- ins og verði lögð fram kæra að henni lokinni. Ljóst sé að um lög- brot sé að ræða að hans mati en rannsókn miði að því að rök- styðja til hlítar væntanleg kæru- atriði. „Við viljum vanda okkur til að alls réttaröryggis sé gætt og fyrst að búið er að slökkva eldinn í gryfjunni erum við ekki lengur í tímaþröng. Við munum safna saman öllum gögnum og fara ná- kvæmlega yfir stöðu mála án þess að hespa neinu af,“ segir Guðmundur. Hann segir emb- ættið t.d. verða að skoða hvort að eitthvað hafi verið ámælisvert í því hvemig það stóð sjálft að málum og ræða við hlutaðeigandi aðila. „Eitthvað hefur farið úrskeiðis fyi’st þetta gerðist, en hvort það sé sök opinbers eftirlits eða hafi verið ásetningur verður þessi rannsókn að leiða í ljós. Það er ekki rétt að við séum dómarar í eigin máli, en auðvitað skoðum við okkar vinnubrögð. Heilbrigð- iseftirlitið byggir á samvinnu við þau fyrirtæki sem það heimsæk- ir, upplýsingum og fræðslu og í umræddu tilviki teljum við okkur ekki hafa fengið réttar upplýs- ingar. Þessi gryfja kom okkur al- veg í opna skjöldu. Hauginn í hrauninu uppgötvuðum við hins vegar í fyrrasumar, en að flytja þetta efni á víðavang eru ekki nú- tímaleg vinnubrögð," segir Guð- mundur. Samkvæmt upplýsingum frá rannsóknardeild lögreglunnar í Hafnarfirði er beðið eftir form- legri kæru vegna urðunar úr- gangs á svæðinu og í kjölfarið verði málinu vísað til embættis ríkislögreglustjóra, en þar er deild sem fer með rannsóknir er tengjast mengunarmálum. Fékk munnlegt samþykki „Þegar ég tók að mér að flokka þessi efni frá Keflavíkurflugvelli var mitt fyrsta verk að ræða við heilbrigðiseftirlit í Hafnarfirði og athuga hvort ég mætti taka á móti húsunum og flokka þau sundur fyrir neðan skemmuna. Það sem ekki teldist endurvinn- anlegt yrði eftir á svæðinu. Framkvæmdastjóri embættisins samþykkti það að því tilskildu að engin eitur- eða spilliefni væru í ÆV * Hr - INNLENDUM VETTVANGI úrganginum. Samþykki hans var að vísu munnlegt en það er ljóst að embættið vissi vel af því sem ég var að gera allan tímann,“ segir Guðjón. Auk þess hafi hann rætt við bæjarverkfræðing vegna málsins að ósk framkvæmdastjóra heil- brigðiseftirlits í Hafnarfirði og fengið heimild þar einnig. Málm- ur hafi verið tekinn úr úrgangin- um og hann fluttur til Hringrás- ar og Stálsmiðjunnar í Hafnar- firði, auk timburs sem geymt sé í Kapelluhrauni, en annað það sem ekki var hægt að vinna hafi verið skilið eftir á svæðinu. „Þama var grafinn timburúr- gangur sem verður að jarðvegi þegar hann rotnar, ásamt gifs- plötum sem notaðar voru í milli- veggi og loft. Gifs er efni sem myndar kalk í jarðvegi og er talið gott fyrir hann. Þegar ég skoðaði gryfjuna hafði gifsið molnað mik- ið niður og fallið til botns. Þarna eru því engin eftii sem ekki verða að jarðvegi, nema kannski nokkr- ar blikkplötur,“ segir hann. Guðjón kveðst þeirrar skoðun- ar að vandamálið felist einvörð- ungu í eldinum og þeirri mengun og umhverfisspjöllum sem urðu af hans völdum. Aðspurður um þau ummæli heilbrigðisfulltrúa í Hafnarfirði, að eftir að eldurinn kom upp hafi hann greint frá því að í gryfjunni væri einungis gifs og lítilræði af timburögnum kveðst Guðjón líta svo á að efnið í gryfjunni sé aðallega smágert spýtnarusl. Ekki hafi verið í mannnlegu valdi að flokka smæsta úrganginn sökum þess hversu heildarmagnið var mikið. Hins vegar stingi timbrið meira í augu eftir að gifsið molnaði. „Ég fór aðallega á vettvang til að gefa ráð um hvernig haga ætti slökkvistarfi, því þegar ég vann á sorphaugunum í Gufunesi var eina leiðin til að slökkva elda af þessu tagi að kæfa þá með því að ýta möl yfir. Það tókst hins vegar ekki í þessu tilviki og þess vegna varð mengunin jafn mikil og raun ber vitni.“ Magn úrgangs jókst verulega Hann segir að á Keflavíkur- flugvelli hafi verið búið að rífa járn af þökum, pappa og plötur sem voru utan á húsunum. „Upp- haflega ætluðum við að taka á móti timbrinu úr niðurrifinu og engu öðru, en síðan barst fyrir- spurn um hvort eitthvað af gi’unninum mætti koma með. Ég sagði það engu máli skipta því í raun væri hagkvæmt fyrir okkur að fá jarðveg með. Asamt því sem til okkar var flutt komu grunnstykki og jarðvegur að hluta til, þannig að seinustu hlössin sem komu úr hverju húsi voru verulega þung,“ segir Guð- jón. Hann kveðst ekki hafa á tak- teinum tölur um hversu mikið magn í tonnum talið var flutt inn á svæðið og út af því aftur, en skjöl um flutningana séu í hans fórum. Jarðvegurinn sem var umfram upphaflega tilboðið hafi aukið þyngd magnsins verulega. Á sama tíma hafi fýrirtækið þurft að þola ágang sjávar og því hafi hann búið til bogalagaðan vamargarð fyrir neðan skemm- urnar og flokkað efnið á milli hans og bygginganna. „Þegar við söfnuðum úrganginum þama ýtt- um við jafnóðum möl yfir til að mynda vinnuaðstöðu og styrkja vörn gegn sjónum, auk þess sem bílarnir gátu ekki keyrt ofan á timbrinu og því sem eftir var,“ segir hann. Verðmæti sagt 50 milljónir Guðjón kvaðst hafa gert sér grein fýrir að timbrið sem Gám- ur-Hringhenda tók á móti var í svo verulega miklu magni að það væm umtalsverðir fjái-munir í því sem söluvöru fyrir Gmndar- tanga. „Sorpa tætir um 7.000- 8.000 tonn af timbri fyrir Gmnd- artanga á ári en þörf verksmiðj- unnar nemur um 15.000 tonnum. Mismunurinn er fluttur inn með æmum kostnaði. Ég ræddi við Grandartanga um að taka við timbrinu beint og þær viðræður stóðu yfir þegar fyrirtækið fór í þrot. Á meðan þurfti að geyma þennan timburúrgang, enda betra að vinna hann eftir því sem haugurinn yrði stærri. Ég tel verðmæti timburs á svæðinu, miðað við að það sé tætt niður og selt Gmndartanga, vera um 50 milljónir króna.“ Guðjón kveðst hafa rætt við danska aðila um að fá timburtæt- ara leigðan og vinna efnið en íýr- irtækið stöðvaðist áður en málið náði svo langt. „Þegar við hætt- um rekstri vorum við enn að taka við efni frá Keflavíkurflugvelli og höfðum gert svo síðan í október 1996 eða i rúmt ár. Það þurfti meira að segja að snúa tveimur flutningabílum með efni við á hlaðinu þegar heilbrigðiseftirlitið lokaði.“ Guðjón kveðst áætla að fýrirtækið hafi tekið við farmi 500 til 600 stórra flutningabif- reiða á þeim tíma. Aðrir aðilar án leyfis Hafi hann jafnframt rætt við forráðamenn geymslusvæðisins í Kapelluhrauni um að fá að leigja pláss til að geyma timburúrgang og vinna það hugsanlega þar síð- ar. „Það var auðsótt, enda fjölda- margir aðilar sem leigja geymslusvæði þarna og geyma ýmislegt efni án þess að hafa leyfi frá heilbrigðiseftirliti. Ég gerði samning um geymsluna en ákveðið magn varð að vera utan gh'ðingar, enda um 3.000 fer- metrar sem þurfti til þriggja ára og síðan var reiknað með að skila landinu hreinu. Þegar eftirlitið gerði athugasemdir við timbrið í hrauninu svöraðum við og bent- um á að um verðmæti væri að ræða sem stefnt væri að því að vinna. Um svipað leyti lenti Gám- ur-Hringhenda hins vegar í veru- legum erfiðleikum og hætti rekstri skömmu eftir að heil- brigðiseftirlitið í Hafnarfirði lok- aði sorpflokkunarstöðinni 3. des- ember síðastliðinn. Ég benti full- trúa þess á að það væri mjög var- hugavert að loka því við væram að því komnir að velta um koll, en því var ekki sinnt.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.