Morgunblaðið - 05.03.1998, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 05.03.1998, Blaðsíða 28
28 FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1998 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Hyggjast tína eplin með loftskipum HAFIN er smíði á loftskipum hjá Hamilton Airship-fyrirtækinu í Jóhannesarborg í Suður-Afríku og gera fulltrúar þess sér vonir um að áður en öldinni lýkur verði tugir skipa komnir í um- ferð víða um heim. Samsetning fyrsta loftskipsins hefst í næsta mánuði og á það að geta tekið 200 farþega í sæti eða, sé það ætlað til iengri ferða, 50- 80 í koju. Markaðsstjóri fyrirtæk- isins gerir ráð fyrir því að senn verði til mikil eftirspurn eftir loftskipum, ekki síst þegar smíði fyrsta skipsins verður lokið í byijun næsta árs. Burðargeta fyrsta skipsins verður 16 tonn en fyrirtækið ráð- gerir að smíða skip sem borið geta allt að 50 tonn af vörum. Hámarks flughraði er áætlaður 200 kílómetrar á klukkustund en ferðahraðinn verður þó að öllu jöfnu minni, eða á bilinu 100-120 km/klst. Bandaríska geimferðastofnun- in (NASA) og hjólbarðaframleið- endurnir Goodyear hafa reiknað út, að hugsanlega sé markaður fyrir allt að eitt þúsund loftskip á næstu 10 árum. Umhverfismál gera þau að mörgu leyti fýsileg. í Hollandi hafa t.a.m. verið sett lög sem beinlínis hvetja til fiutninga með loftskipum sem leið til að draga úr umferðarþunga á veg- um. Kanadískt skógarhöggsfyrir- tæki hefur þegar lagt inn pöntun fyrir 21 loftskipi sem notuð verða til þess að flytja timbur ft-á svæðum sem engir vegir liggja til. Meðal annarra fyrirtækja sem sýnt hafa skipunum áhuga er al- þjóðleg hótelkeðja sem ráðgerir að stofna fljúgandi hótel. Suður- afrísk bifreiðasmiðja kannar sömuleiðis arðsemi þess að flytja bfla beint frá verksmiðjudyrum til umboða erlendis með farkosti þessarar gerðar. Ávaxtarækt- andi í Höfðaborg á við þann vanda að etja að 30% eplaupp- skerunnar verða eftir í tijánum þar sem ekki verður náð til þeirra með venjulegum stigum. Hefur hann fundið upp tækni til að tína þau úr loftskipum og ráð- gerir að setja upp greiningar- og pökkunarverksmiðju um borð og fljúga uppskerunni beint til inn- flytjenda í Evrópu. „Það fæðast nýjar hugmyndir um notkunarmöguleika loftskipa á svo til hveijum degi,“ segir Anne-Marie Roux, markaðsstjóri fyrirtækisins. Senda N-Kóreu matvæli STJÓRNIN í Seoul í Suður- Kóreu ráðgerir að senda 200 þúsund tonn af matvælum til hinnar sveltandi bræðraþjóðar sinnar í Norður-Kóreu, að sögn embættismanna. Búist er við opinberri tilkynningu og nán- ari tilhögun aðstoðarinnar eftir helgi. Að sögn blaðsins Chosun Ilbo er hugsunin með aðstoð- inni að skapa betra andrúms- loft í samskiptum þjóðanna áð- ur en fyrirhugaðar beinar við- ræður ríkjanna um samskipti þeirra hefjast. Kona verður geimferjustjóri TILKYNNT verður með at- höfn í Hvíta húsinu í Was- hington í dag, að kona hafi í fyrsta sinn verið útnefnd geim- ferjustjóri. Þann heiður hlýtur Eileen Collins, ofursti í banda- ríska flughemum, en hún er frá bænum Elmira í New York-ríki. Hún gekk til liðs við NASA 1990 og fór í sína fyrstu geimferð í júlí 1991, sem að- stoðarflugmaður, en því starfi hafði engin kona áður gegnt. Varð hún fyrst kvenna til að fljúga geimfeiju. Auk ferðar- innar 1991 flaug hún með geimferju í febrúar 1995 og í maí í fyrra, en báðar þeirra voru til móts við rússnesku geimstöðina Mír. Kosið í septem- ber í Bosníu EFNT verður til kosninga í Bosníu 12. og 13. september næstkomandi þar sem kosið verður til embætta forsetanna þriggja sem skipa hið sameig- inlega forsetaráð landsins, þing Bosníu svo og forseta og þing sambandsríkis múslima og Króata og lýðveldis Bosníu- Serba. + Ohreyfðar innstæður KOMIÐ hefur í ljós í framhaldi af sérstakri rannsókn á vegum sænskra stjómvalda, að 649 bankareikningar hafa legið óhreyfðir frá lokum seinna stríðsins en höfuðstóll þeirra nemur sjö miIJjónum króna, jafnvirði 63 milljóna íslenskra. Fulltrúar gyðinga halda því fram, að reikningamir kunni að hafa verið í eigu gyðinga sem létu lífið í útrýmingarbúð- um nasista. Sátt að nást um 35 stundir? FULLTRÚAR franskra vinnuveitenda virðast loks til- búnir til að setjast niður til við- ræðna við stjórnvöld um stytt- ingu vinnuvikunar í 35 stundir og áform stjómar jafnaðar- manna um að reyna draga úr atvinnuleysi. hvað sérfræðingar segja um skjái Ekki taka okkar orð fyrir gæðum ViewSonic skjáanna. Taktu heldur mark á því sem sérfræðingar og lesendur virtustu tölvublaða hafa sagt um gæði þeirra á undanförnum árum. Verðlaunin eru yfir 300 á síðustu þremur árum. Þarf frekari vitnanna við? Kíktu til okkar - sjón er sögu ríkari. VS-P815 Skjárinn fyrir atvinnumennina. Myndgæðin eru frábær. Hentar í alla grafíska vinnu CAD, CAM og myndvinnslu Stærð/sýnilegt er 21720" Dot Pitch 0.25mm Hámarksupplausn 1800x1440 Besta upplausn 1600x1200 Bandvídd 250MHz ViewSonic P815 6/96 FACT U D . . R Preis-/ f Leistungs- * verhöltms: E Sehr l 3/97 gut L ViewSonic PT775 2/97 VS-G771 Stóri skjárinn með litlu fótsporin. Tekursama borðpláss og 14" skjár. Stærð/sýnilegt er 17716" Dot Pitch 0.27mm Hámarksupplausn 1280x1024 Besta upplausn 1024x768 Bandvídd 108MHz ViewSonic P815 4/97 Wlárz1906 ViewSonic 17GA 3/96 ViewSonic P815 6/96 VœwSonk P8I0 zm * r BEST BUY MacUser ViewSonic 17GA 12/95 «« ViewSonic PT810 5/96 VP-140 flatskjárinn. Fyrir þá sem eru í vandræðum með pláss. Tekur aðeins 10% af plássi 14" skjás. 14" raunstærð, mesta upplausn 1024x768 75Hz endurnýjunartíðni PJ-800 skjávarpinn. Góður skjávarpi fýrir allar stærðir fundaherbergja. 30"-300" mynd 800x600 eða 1024x768 550 ANSI lumens Fjarstýrður Sjálfvirk skerpustiling Allar gerðir myndmerkja Tllboðsverð 43.900 stgr. OQ-Q71 Nú geta allir leyft sér að eignast 17" skjá. Við bjóðum þennan stór- skemmtilega skjá á tilboði meðan birgðir endast. Stærð/sýnilegt er 17"/16" Dot Pitch 0.28mm Hámarksupplausn 1280X1024 Besta upplausn 1024x768 Bandvídd 108MHz ViewSonic PC og MAC BOÐEIND Tölvuverslun - Þjónusta Mörkin 6-108 Reykjavík - Sími 588 2061 www.bodeind.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.