Morgunblaðið - 05.03.1998, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 05.03.1998, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1998 29 ERLENT frímerki í dag koma út ný Norðurlandafrímerki Fyrstadagsumslög fást stimptuð á pósthúsum um tand allt. Einnig er hægt að panta þau hjá Frímerkjasölunni. Sími: 580 1052 Fax: 580 1059 Heimasíða: http://www.postur.is/postphil/ PÓSTURINN Öldungadeild Bandaríkjaþings Lítil andstaða við stækkun NATO Washington. Reuters. UTANRÍKISMÁLANEFND öld- ungadeildar Bandaríkjaþings hefur samþykkt aðild Póllands, Ung- verjalands og Tékklands að Atl- antshafsbandalaginu (NATO) og búist er við að deildin leggi blessun sína yfir stækkun bandalagsins síð- ar í mánuðinum. Nefndin samþykkti ályktun um stækkunina með sextán atkvæðum gegn tveimur í fyrrakvöld. Jesse Helms, formaður nefndarinnar, sagði að þessi mikli stuðningur við ályktunina væri til marks um að nefndin bæri fullt traust til nýju lýðræðisríkjanna í Austur-Evrópu og Bill Clinton Bandaríkjaforseti sagði stækkun NATO styrkja bandalagið. Trent Lott, leiðtogi meirihlutans í öldungadeildinni, kvaðst ekki ætla að verða við beiðni ándstæð- inga stækkunarinnar um að at- kvæðagreiðslu deildarinnar yrði frestað þar til í júní. Deildin þarf að samþykkja stækkunina með tveimur þriðju atkvæðanna og bú- ist er við að hún verði samþykkt án mikillar andstöðu. Samkomulag náðist um aðild ríkjanna þriggja að NATO í des- ember en þau geta ekki gengið í bandalagið fyrr en öll þjóðþing NATO-ríkjanna hafa samþykkt stækkunina. Tvö ríki hafa þegar gert það, Kanada og Danmörk. Efasemdir um frekari stækkun Repúblikaninn John Ashcroft og demókratinn Paul Wellstone voru þeir einu sem greiddu atkvæði gegn ályktuninni. Wellstone kvaðst telja að stækkun NATO í austur myndi skaða tengslin við Rússland, einkum eftir að Borís Jeltsín léti af embætti forseta. Nokkrir þingmenn í utanríkis- málanefndinni létu í ljós efasemdir um að rétt væri að stækka NATO frekar eftir inngöngu Póllands, Ungverjalands og Tékklands, eink- um vegna andstöðu Rússa. Rússar hafa lagst gegn því að Eistland, Lettland og Litháen gangi í NATO en Lennart Meri, forseti Eistlands, spáði því í fyrra- dag að aðildarumsókn ríkjanna yrði tekin til „alvarlegi'ar athugun- ar“ á leiðtogafundi bandalagsins í Washington á næsta ári. Reuters EZER Weizman, forseti ísraels, tekur við heillaóskum eftir að hann var endurkjörinn á þingi landsins í gær. 'f tiTM E fe 'K J a S A t P^SpHEL Jerúsalem. Reuters. EZER Weizman var endurkjörinn forseti ísraels á þingi landsins í gær og bar sigurorð af frambjóð- anda sem naut stuðnings Benja- mins Netanyahus forsætisráð- herra. Weizman fékk 63 atkvæði en 49 þingmenn kusu Shaul Amor, for- setaefni Likudflokksins. Sjö þing- menn sátu hjá og einn var ekki við- staddur atkvæðagreiðsluna. Marg- ir fréttaskýrendur höfðu spáð því að Amor fengi meiri stuðning en raun bar vitni eftir snarpa kosn- ingabaráttu á bak við tjöldin. Forsetinn á að sverja embættis- eiðinn að nýju 18. maí og kjör- tímabil hans er fimm ár. Andstæð- ingar Netanyahus sögðu að úrslit- in væru ósigur fyrir forsætisráð- herrann, sem hefur borið kala til Weizmans vegna tilrauna hans til að fá stjórnina til að friðmælast við Palestínumenn. Netanyahu og Weizman komu fram í sjónvarpi eftir kjörið og lofuðu báðir að sættast heilum sáttum. Yasser Arafat, leiðtogi Palest- ínumanna, var fljótur að óska Weizman til hamingju með sigur- inn og þótti það til marks um traustið sem Palestínumenn bera til hans nú þegar friðarviðræðurn- ar liggja niðri. Weizman endurkjör- inn forseti Israels Weizman er 73 ára fyrrverandi orrustuflugmaður og hefur getið sér orð fyrir að vera orðhvatur og skapheitur. Þótt hann njóti mikill- ar lýðhylli hefur hann fengið hina ýmsu hagsmunahópa upp á móti sér með umdeildum yfirlýsingum, m.a. um homma, konur og Biblí- una. Forsetinn er ekki valdamikill en hefur ekki verið hræddur við að láta skoðanir sínar í ljós og reitt marga stjórnmálamenn til reiði, jafnt hægri- sem vinstrimenn. Hann hvatti t.a.m. Yitzliak Rabin, fyrrverandi forsætisráðherra, til að hægja á friðarumleitunum við Palestínumenn eftir mannskæð sprengjutilræði araba og sagði síðan Netanyahu að koma viðræð- unum á skrið eftir að þær sigldu í strand. Ekkja Rabins, Leah, var á með- al stuðningsmanna Amors, sem er Iítt þekktur utan hátæknibæjarins Migdal Ha’emek, þar sem hann hefur verið bæjarstjóri í tuttugu ár. „Ef hæg^: væri að breyta kjafta- vaðli í orku gæti Ezer Weizman flogið sjö sinnum í kringum mars og aftur heim,“ skrifaði ísraelski blaðamaðurinn Yoel Marcus. „Þessi flennikjaftur gegnir samt mikilvægu hlutverki," bætti Marcus við. „Weizman er rétti maðurinn, á réttum stað, á réttum tíma.“ Kaneho GULLIN GEISLADÝRÐ EXCLUSIVE BIO Instanf Natural Golden Glow U Sólarqel með L i r < mmmm GULLNIR KANEBO DAGAR í snyrtivörudeild Hagkaups Kringlunni föstudag og laugardag kl. 12—18. Frú Kiuchi kemur fró Japan til að kynna hina nýju förðunarlínu sem ber í sér geisladýrð sólarinnar. Sölustaðir: Snyrtivörudeild Hagkuups, Kringlunni • Evita Kringlunni • Snyrtistofan Paradis, Rvik. Snyrtivöruverslun Laugarvegsapóteks Snyrtivörudeild Verslunarinnar 17, Laugovegi • Snyrti- og nuddstofan Skólavörðustíg • Snyrlistofun Jóna, Kópavogi • Andorra, Hafnarfirói Gallerý Förðun, Keflavík • Snyrtistofa Ólafar, Selfossi • Apótek Veslmannaeyja • Snyrtivöruverslunin Tara, Akureyri • Húsavíkurapótek
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.