Morgunblaðið - 05.03.1998, Page 44

Morgunblaðið - 05.03.1998, Page 44
44 FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ Styrkveitingar úr minningarsjóði Olafs Valgeirs Einarssonar MINNINGARSJÓÐUR um Ólaf Valgeir Einarsson sjávarútvegs- fræðing, starfsmann Þróunar- samvinnustofnunar Islands, var stofnaður á liðnu sumri. Ólafur var fæddur 3. júní 1952 en hann lést 22. júní 1997. Síð- ustu fimm árin starfaði hann í Windhoek, höfuðborg Namibíu, sem fiskimálaráðgjafi í namibiska sjávarútvegsráðuneytinu. I febrúar sl. voru veittir fjórir styrkir úr sjóðnum til namibískra námsmanna og var upphæð þeirra 60-225 þúsund ísl. kr. Frekari styrkveitingar eru fyrir- hugaðar síðar á þessu ári. Zeppy Ishitile ráðuneytisstjóri afhenti styrkina í sjávarútvegs- ráðuneytinu í Windhoek, að við- stöddum íslendingunum sem þar búa, hjónunum Ingibjörgu G. Haraldsdóttur og Grétari H. Óskarssyni flugmálastjóra og Stefáni S. Kristmannssyni, eftir- manni Ólafs heitins. Ráðuneytis- sljórinn minntist Ólafs í ávarpi sínu, áréttaði ágæti aðstoðar fs- lendinga við Namibíumenn, hvatti námsmenn til dáða og sagði að fylgst yrði með þeim. Stjórn sjóðsins skipa: Asdís Einarsdóttir kennari, ekkja Ólafs heitins, Hrafnkell Eiríksson fiski- fræðingur og Margrét Einars- dóttir sálfræðingur, starfsmaður Þróunarsamvinnustofnunar ís- lands. FRÁ afhendingu styrlganna. Frá vinstri: Grétar H. Óskarsson flugmálastjóri, Brodrick M. Munyunggano styrkþegi, frú Effenberger sem tók við styrknum fyrir hönd sonar sfna, J.J.A. Basson sem tók við styrknum fyrir hönd dóttur sinnar og Stefán S. Kristmannsson, eftirmaður Ólafs Valgeirs. RAOAUQLVSIIMGAR ATVINNU- AUGLÝSINGAR HEKLA Smurstöð HEKLU Starfsmaður á smurstöð HEKLU óskast til starfa nú þegar. Við leitum að duglegum og samviskusömum starfsmanni með ríka þjón- ustulund. Öll starfsaðstaða mjög góð. Sækja skal um starfið á þar til gerðum umsókn- areyðublöðum, sem liggja frammi hjá síma- vörðum HEKLU, Laugavegi 174, 2. hæð. Umsóknarfrestur er til 10 mars nk. Óskum að ráða vana rafvirkja Rafkóp—Samvirki, sími 554 4566. TILK YNMIIMGAR Rangæingar Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, og ísólfur Gylfi Pálmason, alþingismaður, verða með fund um orku- og viðskiptamál í Ásgarði á Hvols- velli föstudaginn 6. mars nk. kl. 20.30. Fundurinn er í tengslum við stjórnmálaskóla SUF, KSFS og FUF í Rangárvallasýslu. Fjölmennið. Fundarboðendur. Aðalfundur Omega Farma ehf. verður haldinn á Hótel Sögu, þingstofu A, föstudaginn 20. mars kl. 14.00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf skv. samþykktum félagsins. Reikningurfélagsins, ásamt dagskrá fundarins og endanlegum tillögum, mun liggja frammi á skrifstofu viku fyrir aðalfund. Stjórn Omega Farma ehf. H F . KÆLISMIÐJAN ■FR0ST Aðalfundur FÉLAGSSTARF Reykjaneskjördæmi Kjördæmisþing laugardaginn 7. mars 1998 Aðalfundur Kælismiðjunnar Frost hf. verður haldinn á Hótel íslandi, Norðursal, Reykjavík, föstudaginn 20. mars 1998 og hefst kl. 14.00. Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf í samræmi við ákvæði greinar 4.06 í samþykktum félags- ins. 2. Tillaga um heimild til handa félagsstjórn til kaupa á eigin hlutabréfum í félaginu. 3. Tillaga stjórnar um breytingar á samþykkt- um félagsins þess efnis að gefa stjórn þess heimild til að hækka hlutafé með sölu nýrra hluta. 4. Önnur mál. Aðgöngumiðar að fundinum verða afhentir, hluthöfum eða umboðsmönnum þeirra, á skrif- stofu félagsins, Fiskislóð 125 í Reykjavík, dag- ana 16. til 20. mars n.k. milli kl. 9 og 16 og á fundarstað. Tillögur, sem hluthafar vilja leggja fyrirfund- inn, þurfa að hafa borist stjórn félagsins, skrif- lega, í síðasta lagi 13. mars n.k. Ársreikningúrfélagsinsfyrir árið 1997, ásamt tillögum þeim, sem fyrir fundinum liggja, verða hluthöfum til sýnis á sama stað frá 15. mars. Reykjavík, 4. mars 1998. Stjórn Kælismiðjunnar Frosts hf. Sérgreina læknar Stjórn Kjördæmisráðs Sjálfstæðisflokksins í Reykjaneskjördæmi býður stjórnumfélaga og fulltrúaráða, sveitarstjórnamönnum, kjör- dæmisráðsfulltrúum og nýjumframbjóðend- um flokksins í kjördæminu til kjördæmisþings laugardaginn 7. mars nk. kl. 9.30 í Félagsheim- ili Kópavogs. Þingstjóri: Sigurrós Þorgrímsdóttir. Dagskrá: Sveitarstjómamál. 09.30 Morgunkaffi. 10.00 Setning. Ávarp formanns fulltrúa- ráðs Kópavogs. 10.15 Framsöguerindi. 11.10 Hópar starfa. 12.45 Léttur hádegisverður. 13.30 Hópar starfa. 16.00 Þingslit. Frummælendur og þátttakendur í hópstarfi: Ellert Eríksson, Gunnar Birgisson, Ingimundur Sigurpálsson, Magnús Gunnarsson og Sigurgeir Sigurðsson. Þinggjald er kr. 1.600. Veitingar innifaldar. SMAAUGLYSINGAR FÉLA6SLÍF Landsst. 5998030519 VIII I.O.O.F. 11 = 178358V2 9. III* Góðtemplarahúsið, Hafnarfirði Félagsvist í kvöld. Byrjum að spila kl. 20.30 stundvíslega. Allir velkomnir. Læknafélag Reykjavíkur boðartil fundar um stöðuna í samningamálum sérfræðinga í Hlíð- arsmára 8, Kópavogi, í dag, fimmtudaginn 5. mars, kl. 20:30. Stjórn LR. \v---J KFUM V Aðaldeild KFUM, Holtavegi Samkoma í kristniboösviku kl 20.30. Ath. samkoman verður é Háaleitisbraut 58. Allir velkomnir. Stangaveiðifélag Reykjavíkur Opið hús föstudaginn 6. mars í sal félagsins á Háaleitisbraut 68 kl. 20.30. Dagskrá: 1. Veiðileiðsögn um eina af perlum Borgar- fjarðar, Langá á Mýrum. Umsjón: Ingvi Hrafn Jónsson. 2. Vísubotnakeppni. 3. Stórhappdrætti, glæsilegir vinningar. Sjáumst hress og takið með ykkur gesti. Skemmtinefndin. Kvöldvaka kl. 20.30 í umsjá Gisti- heimilisins. Allir hjartanlega velkomnir. SAMBAND ÍSLENZKRA KRISTNIBOÐSFÉLAGA Háaleitisbraut 58. Kristniboðsvika. „Ester, Guð frelsar". Upphafsorð og bæn: Baldur Fl. Ragnarsson. Ræðu- maður: Margrét Hróbjartsdóttir. Söngur: Bylgja Dís Gunnarsdótt- ir. Efni: Valdís Magnúsdóttir. Samkoman hefst kl. 20.30 og það eru allir velkomnir. FERÐAFÉLAG <§) ÍSLANDS MÖRKINNI6 -SlMI 568-2533 Aðalfundur F.í verður mið- vikudagskvöidið 11. mars kl. 20.00 í Mörkinni 6. Venjuleg aðalfundarstörf. Sýnið félagsskírteini 1997. Sunnudagsferðir 8. mars: Kl. 10.30 Skcðaganga: Hellis- heiði — Hverahlíð — Þrengsli. Brottför frá BSÍ, austanmegin og Mörkinni 6. Kl. 13.00 Heiðmörk að vetri (nýtt). Skógurinn að vetri/ fræðsluferð með Skógrækt- arfélaginu. Létt ganga. Hægt að hafa gönguskíði. Brottför eingöngu frá Mörk- inni 6. Verð 500 kr, frítt f. börn m. foreldrum. Helgarferð í Tindafjöll á fullu tungli 13. —15. mars. Kynnið ykkur páskaferðirnar. Ferðaáætlun 1998 er komin út en þar er hægt að kynna sér fjöl- breytt úrval ferða. Hún er einnig á heimasíðu fél- agsins: http://www.fi.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.