Morgunblaðið - 05.03.1998, Blaðsíða 54

Morgunblaðið - 05.03.1998, Blaðsíða 54
FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1998 AÐSENDAR GREINAR MORGUNBLAÐIÐ Vel búid að hesta- mönnum í Reykjavík í SÍÐUSTU viku vai- undirritað- ur samningur, til 15 ára, milli Reykjavíkurborgar og hesta- mannafélagsins Fáks um yfirtöku þess síðarnefnda á rekstri og upp- byggingu Reiðhallarinnar í Víðidal. Með þessari undirskrift rætist langþráður draumur Fáksmanna og reyndar hestamanna allra, um hús sem uppfyllir allar helstu kröf- ur til námskeiða og sýningahalds *^auk þess sem þama skapast mögu- leikar á að sameina alla skrifstofu- tengda starfsemi hestamennskunn- ar undir einu þaki. Þessu til viðbót- ar er hægt að bæta við veitingasölu og þjónusturýmum íyrir ýmiskon- ar starfsemi tengda hestamennsk- unni. Möguleikarnir eru nú allir fyrir hendi eftir gerð þessa nýja samnings og það er því algerlega undir samtökum hestamanna sjálfra komið hvernig þessir mögu- leikar verða nýttir. Rekstur Allur rekstrar- og framkvæmda- kostnaður Reiðhallarinnar verður alfarið á vegum Hestamannafé- lagsins Fáks. Skipuð verður þriggja manna rekstrarstjórn, skipuð tveimur fulltrúum Fáks, þar af formanni og einum fulltrúa Reykjavíkurborgar sem borgar- stjóri skipar. Iþrótta- og tóm- stundaráð Reykjavíkur mun í samningum við Iþróttabandalag Reykjavíkur tryggja styi’kta æf- ingatíma fyrir íþróttastarfsemi í Reiðhöllinni á árunum 1998, 1999 og 2000 þannig að árið 1998 greið- ast 3,5 milljónir króna og síðan 4,0 milljónir króna á ári eftir það. Uthlutun tíma til þessarar starf- semi verður í sam- vinnu rekstrarstjórnar Reiðhallarinnar og IBR. Samkomulag um þetta málefni verður síðan tekið til endur- skoðunar árið 2000. Framkvæmdir Fákur tekur að sér framkvæmdir og end- urbætur á Reiðhöllinni miðað við 55 milljóna króna kostnaðaráætl- un byggingadeildar Borgarverkfræðings og Hestamannafélagsins Fáks frá því í janúar á þessu ári. Að samn- ingstíma loknum verður Reykja- 1111111111 m '//ýi, ,9Plui * * ■ , ■ ■íff'mrf sf, fflt'iSt f .jf í,i * j , i • • i ■ /' , ' ■ '/ : MYND EFTiR STEVEN SPiELBERG MISTAD m > í m si' -V ■ ’j ■! JJr ' -L iWATTHEW McCONAUCHEV ÐBEM WRKS PICTÖBES títHiá in MCiitio* with HBO PiCTUBES “AMISTAD” NICEL HAWTHOKNE DAVIDPAÍMER , PETT POSTLETHWAITE STELLAN SKARJCÍR áHHuEw£S?Sa^ JBMMNUSZKAKn,m ■ SMALIERPARKES LAURIE wonald ““fSTEVENSPIELBERO DEBBIE ALLEN C0UN1LS0N Sri-. ; ‘ www.amis víkurborg eigandi þessara framkvæmda og endurbóta sem gerðar verða í Reið- höllinni á samnings- ■ tímanum. Stefnt er að því að meirihluta þess- ara framkvæmda verði lokið fyrii’ Landsmót hestamannafélaga í Reykjavík árið 2000. Til að ljúka fram- kvæmdum við Reið- höllina leggur borgar- sjóður fram á næstu fjórum árum samtals Óskar um 55 milljónir króna. Bergsson 10 milljónir króna árið 1998, 15 milljónir króna árið 1999,15 milljónir króna árið 2000 og 15 milljónir króna árið 2001. A móti kemur að Hesta- mannafélagið Fákur hefur í hyggju að byggja hesthús við Reiðhöllina fyrir allt að 60-80 hesta og e.t.v. skrifstofubyggingu, fari svo að hagsmunasamtökin kæri sig um slíkt fyrirkomulag. Komi til upp- sagnar samningsins skal Reykja- víkui’borg endurgreiða þann ný- Til að ljúka fram- kvæmdum við Reiðhöll- ina, segir Óskar Bergs- son, leggur borgarsjóð- ur fram á næstu fjórum árum samtals um 55 milljónir króna. framkvæmdakostnað sem Fákur hefur lagt í við hesthús og skrif- stofubyggingu að því tilskildu að húsnæðinu hafi verið við haldið og ástand þess gott að teknu tilliti til slits vegna eðlilegrar notkunar. Draumur verður að veruleika Eins og flestir hestamenn muna var á sínum tíma ráðist í byggingu Reiðhallarinnar af stórhug hug- sjónamanna sem sáu fyrir sér endalausa möguleika slíks mann- virkis fyrir hestamennskuna í land- inu. Því miður hefur draumur þein-a ekki ræstst ennþá, en með tilkomu þessa samnings Reykja- víkurborgar og Fáks hafa skapast möguleikar til þess að láta hinn langþráða draum loksins rætast. Reykjavíkurborg sem nú er eig- andi hússins hefur tryggt fjármagn til að hægt verði að ljúka við húsið, auk þess sem rekstrartekjur eru tryggðar eftir bestu getu. Hesta- mannafélaginu Fáki hefur verið falin öll framkvæmd og ábyrgð verksins. Með samstarfs- og velvilja hvert í annars garð geta hagsmunasam- tök sem tengjast íslenska hestinum látið draum brautryðjendanna ræt- ast. Draum um sannkallaða menn- ingarmiðstöð hestamennskunnar á Islandi. Látum þann draum rætast og til hamingju með áfangann. Höfundur er fráfarandi stjórnar- formaður Reiðhallarinnar í Víðidal. Vor 1998 1 f{ * v\í// W f' -el WARNERS Kringlunni s: 553 7355 -Im j Blað allra landsmanna! - kjarni málsins!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.