Morgunblaðið - 05.03.1998, Page 61

Morgunblaðið - 05.03.1998, Page 61
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1998 61 > -i ) w ) » » I » > » > I » > » > » > > > MINNINGAR þau skunduðu á Þingvöll til að fagna hinu nýja lýðveldi. Þau lifðu í ástríku hjónabandi í rúma hálfa öld, voru einstaklega samrýnd og svo miklir vinir að unun var á að horfa. Þau komu fjórum börnum til manns og áttu stóran vina- og kunningjahóp. Amma mín, mig langar með þess- um fátæklegu orðum að þakka þér fyrir allt sem þú hefur gefið mér og ég er þakklát fyrir öll árin sem ég fékk að njóta samveru þinnar, ástar og örlætis. Hver minning um þig er dýrmæt perla sem er og verðui- leið- arijós mitt í lífinu. Það eru þung og tómleg sporin sem afi stígur núna, án lífsfórunaut- ar síns og sálufélaga. En afi minn, ég veit að amma stendur við hlið þér og styður þig á þeirri göngu. Eða eins og skáldið Kahlil Gibran orti: „Skoðaðu hug þinn vel þegar þú ert glaður og þú munt sjá, að aðeins það, sem valdið hefur hi-yggð þinni, gerir þig glaðan. Þegar þú ert sorg- mæddur, skoðaðu þá aftur hug þinn, og þú munt sjá, að þú grætur vegna þess, sem var gleði þín.“ Guð blessi minningu Siggu ömmu. Sigríður Anna (Anna Sigga). Nú ertu dáin, amtna, og kemur aldrei aftur til okkar. Við söknum þín svo mikið. Hver annar gæti bak- að svona frábærar pönnukökur, sem þú varst þekkt fyrir? Hver annar á að taka á móti okkur og bjóða okkur í kaffi á virkum dögum þegar við komum heim úr skólanum? Hver á að spila við okkur, hekla, prjóna og sauma á okkur? Það kemur enginn í staðinn fyrir þig. Auðvitað varstu búin að margsanna hið fornkveðna; „að aldrei fer svangur maður frá Siggu ömmu“. Það er gott að vita að nú ertu á góðum stað. Þú vildir ekki lifa lengi og fara á elliheimili en þetta var alltof snemmt. Þú varst alls ekki orðin gömul, að minnsta kosti ekki hugurinn. Þú íylgdist alltaf svo vel með öllu, vissir allt og mundir allt. Við getum huggað okk- ur við allar minningarnar um þig, sérstaklega úr Skorradalnum. Þú í eldhúsinu, þú að spila, þú að syngja og leiðrétta texta hjá okkur hinum, þú að tína ber, þú í sólbaði, þú skelli- hlæjandi. Við munum aldrei gleyma þér. Þú varst sómakona og glæsi- kona en fyrst og fremst alveg frá- bær amma. Ástrós, Jón, Svana Kristín og Andri. Skin og skúrir skiptast jafnan á í lífi okkar allra. Gleði og sorgir mæta okkur en í misríkum mæli. Mönnum er gefið andlegt og líkamlegt þrek í vöggugjöf, sem þeim ber að bæta og þroska á lífsleiðinni. Þá er ómetan- legt að fá þannig uppeldi í bernsku og æsku, að það marki leiðina og létti gönguna á lífsins brautu. Það er dýrmætt að kynnast sam- ferðafólki, er með hjálpsemi og hlýju styður mann og styrkir á dimmum dögum og er á móti blæs, en fagnar og gleðst af heilum hug, þegar hamingjan ber að dyrum og bjart er og fagurt í sálu og sinni. Heilladísir vörðuðu veginn, er við hjónin kynntumst þeim Sigiíði heit- inni og Reynari íyrir nærfellt 35 ár- um í félagsskap, sem hefur að leið- arljósi m.a. hina dýrmætu þýðingu þess að efla vináttu og kærleiksþel manna á milli. Leiðsögn þeirra og návist, er einkenndist af heilindum og hjálpsemi öll þessi ár, verður vart fullþökkuð. Heimilið var homsteinn þeirra hjóna. Það bar vott um einstaka snyrtimennsku þeirra bæði innan dyra sem utan. Listfengi Siggu gladdi augað hvarvetna. Litríkur, fagur útsaumur prýðir veggi og hús- gögn og gefur hlýjan og vinalegan blæ. Hannyrðir voru hennar yndi. Hún saumaði, prjónaði og heklaði ótaldar flíkur á fjölskyldu sína og vini. Sigga og Reynar voru í senn gest- risin og glaðvær. Þau nutu þess að veita gestum sínum vel. Sigga snill- ingur í matargerð og móttöku gesta. Þau hjónin fengu í vöggugjöf sönggleði og börnin þeirra öll og barnabörn hafa erft þessa náðar- gáfu. Sigga kunni ógrynnin öll af söngljóðum og lögum og gestaboðin þeirra hjóna voru ógleymanleg. Þegar börnin flugu úr hreiðri og létti á heimilisstörfum sat Sigga ekki með hendur í skauti. Hún hafði lært kjólasaum í æsku og var henni því ljúft að taka upp fyrri störf. Hún afgreiddi og leiðbeindi í tískuverslunum hér í borg um ára- fjöld. Hafði næmt fegurðarskyn og hlýlegt viðmót, en hjálpsemi og ein- lægni mótuðu störf hennar. Sjálf var hún ætíð vel klædd og snyrtileg. Sigga starfaði einnig á vegum Rauða ki-ossins sem sjálfboðaliði á sjúkrahúsum, þá er færi gafst til. Góðverk gáfu henni fyllingu í sálu og sinni, því að hún var í senn trúuð og hjartahrein. Störfin fyrir Grens- ássókn voru henni því ljúf. Sigga og Reynar voru samhent hjón. Ræktuðu garðinn sinn af alúð og einlægni bæði í beinum og óbein- um skilningi. Hér í borg var ómæld vinna lögð í það að snyrta og fegra utan dyra. Þetta nægði þó þeim vinnufúsu hjónum ekki. I hinum skjólsæla og fagra Skorradal reistu þau vistlegan sumarbústað og rækt- uðu upp fagran reit. Avöxtur rækt- unarinnar var endurgoldinn með lit- ríkum blómum, gróðri grænum og trjám fógrum. Þegar við bættist fuglasöngur ljúfur var þetta orðinn sannkallaður unaðsreitur. Hér var oft gestkvæmt, bæði skyldmenni og vinir. Ógleymanlegar verða þær gleðistundir, sem við hjónin áttum hjá þeim í þessum fagra reit. Gest- gjafarnir töfruðu fram ljúffengan grillmat. Lagið tekið og sungið sam- an af einlægni og gleði, þar til kvöldsólin til viðar settist og jafnvel lengur á stundum. Þá var Sigga í essinu sínu, brosmild og blíð, er hún fann að við nutum dvalarinnar. Að lokum má ekki gleyma nær ár- legum ferðum okkar hjónanna sam- an til framandi landa, til þess að njóta sólar og sjávar, matar og mannlífs. Nú er skarð íyrir skildi. Sigga okkar horfin til ræktunarstarfa á ódáinsökrum. Þökkum henni af heilum hug sam- fylgdina. Hún var okkur styrkur og stoð í sorg og sút, en sannur gleði- gjafi á góðum stundum. Vottum þér, kæri vinur Reynar, og fjölskyldu þinni allri innilega samúð. Megi björt minning um góða konu verða okkur öllum leiðarljós á lífsins göngu. Inger og Benedikt. Mig langar að minnast tengda- móður minnar í nokkrum orðum. Sigríður Sigfúsdóttir ólst upp á Stóru-Hvalsá í Hrútafirði í stórum hópi systkina. Börnin tóku snemma þátt í heimilisstörfum, 7 ára gömul prjónaði hún vettlinga handa föður sínum og gaf honum í jólagjöf. Skólagangan var stutt, og einn vetur var hún í Reykjaskóla í Hrútafirði. Sigríður minntist oft þessa vetrar. Hún hafði alla burði til mennta þó skólagangan yrði ekki lengri, var skarpgreind, minnug og lagði sig fram um að fylgjast með þannig að hvergi kom maður að tómum kofun- um hjá henni og átti það við um öll svið þjóðlífsins, hvort sem það voru stjórnmál, íþróttir eða annað. Þegar börnin mín fæddust kynnt- ist ég þeirri hlið á henni hvað hún hafði gott lag á bömum. I nærveru ömmu voru þau prúð og undu sér vel. Þar þurfti engin leikföng að gagni, blöð, skriffæri og spil dugðu vel og svo var spjallað. Hún kenndi þeim að teikna fólk á blað og klippa út og búa þannig til „brúður“. Börn- in voru ætíð í fyrirrúmi og hlustað á skoðanir þeirra og athugasemdir af athygli. Sigríði kynntist ég 15 ára gömul. Þá var ég nýkomin til Reykjavíkur og bjó hjá vinafólki í sömu raðhúsa- lengju í Hvassaleiti. Við Elís kynnt- umst á fyrstu vikum skólans og hef- ur henni sjálfsagt þótt við nokkuð ung þó hún nefndi það ekki. Tveim- ur árum síðar bauð hún mér að búa hjá þeim Reynari þegar Elís fór í heimavistarskóla á Bifröst og mat ég það mikils. Hjá þeim í Hvassa- leitinu var trúloftmarveislan okkar haldin og einnig stúdentsveislan mín. Það sem ég tók fyrst eftir í fari Sigríðar var hversu lagið henni var að halda öllu hreinu og snyrtilegu. Þó mikið stæði til og hún væri í stór- bakstri var eldhúsið hreint og strok- ið og öllu afkastað bæði hratt og fumlaust. Á þessum árum starfaði hún í verslun hálfan daginn og var í Kvenfélagi Grensássóknar. Hún saumaði einnig mikið, hafði lært hjá Guðmundi dömuklæðskera í Kirkju- hvoli og síðar starfað hjá Andrési klæðskera, og var flink bæði að sníða og sauma. Hvers konar önnur handavinna lék einnig í höndunpm á henni og hún saumaði út, prjónaði og heklaði. Áður hafði hún einnig fengist við að mála bæði á striga og tau. Á þessum árum voru Reynar og Sigríður búin að koma sér upp sum- arbústað í Skorradal. Við nutum góðs af og fórum með þeim margar ferðirnar í Skorradalinn. Enn fjölg- aði ferðunum með þeim þegar börn- in komust á legg og vildu helst hvergi annars staðar vera. Þar naut Sigríður sín vel í bústaðnum þar sem þau höfðu sjálf lagt hönd á flesta hluti og öllu var svo haganlega fyrir komið. Við fráfall tengdamóður minnar minnist ég hlýju hennar og hjálp- semi og bið að hún megi hvíla í Guðs friði. Steinunn K. Jónsdóttir. Frændi okkar, GUÐMUNDUR ÞORSTEINSSON frá Gaularási, sem lést laugardaginn 26. febrúarsl., verður jarðsunginn frá kirkjunni að Krossi i Austur-Landeyjum laugardaginn 7. mars kl. 14.00. Hjartar Jón Hjartarson, Geir Hjartarson, Ingólfur Þórir Hjartarson, Kristín Guðrún Hjartardóttir. + Innilegar þakkir færum við öllu því góða fólki sem sýndi okkur hlýhug og velvild við andlát og útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, JÓNS ÞORKELSSONAR, Hofgerði 7, Vogum. Sigríður Jónasdóttir, Þurlður Á. Jónsdóttir, Sigurður Ólafsson, Jónas Þ. Jónsson, Inga Ósk Jóhannsdóttir, Ómar Jónsson, Ingibjörg Ragnarsdóttir, Melkorka Sveinbjörnsdóttir, Ingvi B. Jónsson, barnabörn og langafabörn. + Eiginkona mín, AÐALBJÖRG VILFRÍÐUR KARLSDÓTTIR frá Dvergasteini á Húsavfk, andaðist á heimili okkar, Álfaskeiði 96 í Hafn- arfirði, þriðjudaginn 3. mars. Fyrir hönd barna, tengdabarna og barnabarna, Ólafur Halldórsson. + Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, GUÐMUNDUR HELGI GÍSLASON, Völlum, Garði, verður jarðsunginn frá Útskálakirkju laugar- daginn 7. mars kl. 14.00. Guðfinna Jónsdóttir, Marta Guðmundsdóttir, Kjartan K. Steinbach, Ingibjörg J. Guðmundsdóttir, Ólafur Örn Ingólfsson, Jón Guðmundsson, Jónína Margrét Sævarsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Einar ingi Magnússon, Þorleifur St. Guðmundsson, Ingibjörg Sigurðardóttir og barnabörn. Ástkær sonur minn, bróðir okkar og mágur, ÁSGEIR SALBERG KARVELSSON bóndi, Kýrunnarstöðum, Dalasýslu, verður jarðsunginn frá Hvammskirkju í Dölum laugardaginn 7. mars kl. 14.00. Ferð verður frá Breiðfirðingabúð, Faxafeni 14, kl. 7.30, sími 434 1281. Karvel Hjartarson, Hjördís Karvelsdóttir, Hrafnhildur Karvelsdóttir, Bjarni Karvelsson og Magnea Einarsdóttir, Sigríður G. Karvelsdóttir og Þorsteinn Ingimundarson. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN JÓNSDÓTTTIR, Droplaugarstöðum, áður Bárugötu 30, verður jarðsungin frá Fríkirkjunni föstudaginn 6. mars kl. 13.30. Sigurjón Marinósson, Auður Jónsdóttir, Margrét Sigrún Marinósdóttir, Auður Marinósdóttir, Sigurður Þór Magnússon, ömmubörn og langömmubörn. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, FJÓLA JÓNSDÓTTIR, andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur laugar- daginn 28. febrúar. Útförin fer fram frá Höfðakapellu, Akureyri, föstudaginn 6. mars kl. 15.30. Georg Tryggvason, Hersteinn Tryggvason, Bjarki Tryggvason og fjölskyldur. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, TÓMASAR JÓHANNESSONAR, Skólabraut 3, Seltjarnarnesi. Fyrir hönd aðstandenda, Birna Björnsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.