Morgunblaðið - 05.03.1998, Page 63

Morgunblaðið - 05.03.1998, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR FIMMTUDAGUR 5. MARZ 1998 63 ORG-ættfræðiþjónustan tekur til starfa Dreifing: Logaland ehf. Gnsobm Ointa Injtction ■ Á síðastliðnu hausti ánafnaði Oddur Helgason handritadeild Landsbókasafns Isiands, Háskóla- bókasafni, ættfræðibókasafn sitt eftir sinn dag. Skilmálar eru þeir að safninu verði ekki sundrað og að það verði tileinkað þeim Eiriki Ei- ríkssyni frá Dagverðargerði í Hró- arstungu og Konráð Vilhjálmssyni frá Hafralæk í Aðaldal. ♦♦♦ LEIÐRÉTT Rangt nafn I GREIN íVelvakanda miðvikudag- inn 4. mars urðu þau leiðu mistök í grein Sjafnar úr Hafnarfirði þar sem hún talar um Góugleði félags- miðstöðvarinnar Vitatorgs að rangt var farið með nafn leynigestsins, en hann var Helgi Hjörvar. Beðist er velvirðingar á mistökunum. Ekki lægst RANGLEGA var sagt í frétt af út- boði 3. áfanga Rimaskóla að íbyggð ehf. hefði átt lægsta tilboðið. Það var Smiðsverk ehf. sem átti lægsta boð. Beðist er velvirðingar á mis- tökunum. 240 þusund Islend- ingar eru á skrá NÝTT fyrirtæki, ORG-ættfræði- þjónusta sf., tók til starfa laugar- daginn 28. febrúar og býður upp á ættrakningar allra íslendinga sem þess óska. Hægt verður að fá út- prentaða alla finnanlega áa oftast milli 4000 og 7000 talsins. Sömuleið- is samrakningu einstakiinga en flestir eru skyldir í 7.-8. lið. Þeir sem standa að ORG-ætt- fræðiþjónustunni eru Oddur Helga- son, ættfræðingur og fyrrum sjó- maður, Reynir Björnsson, ættfræð- ingur og loftskeytamaður, og Guð- mundur Sigurður Jóhannsson, ætt- fræðingur á Sauðárkróki. í frétt frá fyrirtækinu segir m.a.: „Þeir félagar hafa safnað um 240.000 Islendingum lífs og liðnum í gagnagrunninn og tengt þá hvern við annan. Mikil áhersla hefur verið lögð á framættir en þær hafa löng- um reynst erfiðar. Unnið hefur ver- ið úr öllum tiltækum frumheimild- um, s.s. kirkjubókum, manntölum, dómabókum, skuldaskrám, bænda- tölum og legorðsreikningum. Stuðst er við mikinn fjölda handrita s.s. ábúendatöl úr Þingeyjarsýslum, Múlasýslum og Eyjafirði. Það er Guðmundur Sigurður Jó- hannsson sem hefur séð um allar rannsóknir á frumheimildum frá fyrri tímum en Guðmundur hefur getið sér mjög gott orð sem einn al- vandvirkasti ættfræðingur landsins. Hann hefur m.a. verið aðalhöfundur að fimm bindum af Skagfirskum æviskrám og er nú að leggja síðustu hönd á Ættir Austur-Húnvetninga sem Sögufélag Húnvetninga gefur út. ORG-ættfræðiþjónustan hefur haft náið samstarf við fjölda ætt- fræðinga og áhugafólk um ættfræði svo og opinbera aðila. Þar má nefna að Eiríkur Eiríksson frá Dagverð- argerði hefur haft veg og vanda af ættrakningum Austfirðinga og samtarf hefur verið við Þuríði Kri- stjánsdóttur um ættir Borgfirðinga og Kristján Sigfússon um ættir Ey- firðinga. Verið er að vinna að mun víðtækara samstarfi við ættfræð- inga og ættfræðiáhugamenn víða um land.“ Auk ættrakninga aftur í gráa forneskju býður ættfræðiþjónustan upp á innrammaðar ættartölur í sex ættliðum. ORG-ættfræðiþjónustan er til húsa að Hjarðarhaga 26 og verður opið 16-18 alla virka daga. Ánafnaði Landsbókasafni ættfræðisafn sitt Morgunblaðið/Kristinn ODDUR Helgason afhendir Ögmundi Helgasyni forstöðumanni hand- ritadeildar gjafabréfið fyrir ættfræðisafninu. Með þeim á myndinni eru eiginkona Odds, Unnur Björg Pálsdóttir, og Eiríkur Eiríksson. Morgunblaðið/Ámi Sæberg REYNIR Björnsson (t.v.) ræðir við Eirík frá Dagverðargerði við opnun ORG s.l. laugardag. Vissir þú aö fjöldi bóka og vísindagreina hefur verið skrifaður um KYOLIC kaldþroskuðu hvítlauksafurðina af vísindamönnum sem hrifist hafa af gagnsemi hennar. Ennfremur hafa yfir 120 vísindarannsóknir á KYOLIC verið birtar í viðurkenndum tímaritum í líffræði, læknisfræði og næringarfræði. Ef þú gerir þær kröfur til lyfja aö þau séu vel rannsökuö og geri gagn, því ekki að gera sömu kröfur til fæðubótarefna? Það gerum við. http://www.kyolic.com Ék eilsuhúsið mælir meö KYOLIC ŒD HEKLA # tií\ A' 1 felÍÍIMi 'Eyðsla mlöað vlð Jafnan a ksturá 90 km/klst á jafnsiéttu. MITSUBISHI -ímUdummetum! Bensíneyðsla foftmengun Þú getur ekið Mitsubishi Carisma GDl allt að 1000 km á einni tankfyllingu*. Hin glæsilega og rfkulega útbúna Carisma GDl státar af bensínhreyfli með strokkinnsprautun, sem leiðir af sér allt að 20% minni eldsneytiseyðslu. Mitsubishi Carisma einstök bifreið á ótrúlegu verði!

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.