Morgunblaðið - 06.03.1998, Qupperneq 4
4 FÖSTUDAGUR 6. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Rjúkandi
gangur
í loðnu-
vinnslunni
MIKIÐ af loðnu berst nú til Vest-
mannaeyja enda stutt á miðin
þaðan en góð loðnuveiði var
skammt undan Alviðru, um 15
sjómflum austan við Hjörleifs-
höfða í gær. Þennan myndarlega
reykjarmökk lagði frá fiskimjöls-
verksmiðjunni í Vestmannaeyjum
í gær en hann heyrir nú brátt
sögunni til því nýr mengunar-
vamabúnaður við verksmiðjuna
verður tekinn í notkun í septem-
ber nk. Nokkur loðnuskip fengu
afia úr seinni loðnugöngunni
undan Stokksnesi í gær en þar
var ekki mikið magn á ferðinni
að sögn Þórðar Sigurðssonar,
stýrimanns á Gullbergi VE. Nú
styttist óðfluga í að loðnan
hrygni en í gær var hrognafyll-
ing hennar komin í um 21%.
Öryggisráðstafanir vegna leiks fsraelsmanna og Egypta í handbolta
Einu samskipti leikmanna
verða meðan á ieik stendur
LÖGREGLAN í Reykjavík hefur tekið að sér ör-
yggisgæslu vegna leiks Egypta og Israelsmenna í
handbolta í dag, samkvæmt ósk sem barst frá for-
svarsmönnum síðamefnda liðsins með milligöngu
HSÍ. Einu samskipti liðanna tveggja verða á með-
an leik þeirra stendur.
Jónmundur Kjartansson yfirlögregluþjónn
staðfesti í samtali við Morgunblaðið að lögreglan
hefði ákveðna öryggisgæslu með hendi og væri í
því sambandi fylgt tilteknum vinnureglum, sem
eru trúnaðarmál. Örn Magnússon, framkvæmda-
stjóri HSÍ, segir þær kröfur sem gerðar eru af
hálfu ísraelsmanna hefðbundnar.
FyUsta öryggis gætt
„Þegar ijóst varð að ísraelsmenn kæmu gerðu
þeir vissar varúðarráðstafanir og það gildir einu
hvert þeir fara; þessar ráðstafanir eru alltaf gerð-
ar til að gæta fyllsta öryggis. Lögreglan í Reykja-
vík hefur verið svo vinsamleg að hjálpa okkur við
að uppfylla þau skilyrði sem sett eru, en þar eru
m.a. kvaðir um hótel og fleira. Engar kvaðir þó
sem teljast of strangar."
Jónmundur segir að Israelsmönnum sé sér-
staklega umhugað um að öryggisatriði séu eins og
best verður á kosið, enda annt um að fá að vera í
friði. „Þegar ísraelsmenn léku hér fótboltaleik
fyrir nokkru urðu þeir fyrir lítilsháttar aðkasti ör-
fárra unglinga, sem var kannski ekki alvarlegt, en
mönnum finnst betra að hafa vaðið fyrir neðan
sig,“ segir Jónmundur.
Þá munu liðin ekki dvelja á sama hóteli, ekkd
matast á sama stað og ekki æfa samtímis, þannig að
þau hittast eingöngu meðan á leik þeirra stendur.
„Það er vitað mál að í andrúmsloftinu á milli
þessara þjóða er ákveðin spenna og í stað þess
að taka einhverja áhættu var ákveðið að stilla
málinu upp þannig að liðin þyrftu ekki að hafa
nein afskipti hvort af öðru nema á leiknum sjálf-
um,“ segir Örn. „Með þessu reynum við að koma
í veg fyrir að nokkur vandamál geri vart við sig.
ísraelsmenn segjast hins vegar hafa litlar
áhyggjur á íslandi og þeir telji málið í góðum
höndum.“
Leikur ísraelsmanna og Egypta á að hefjast í
dag klukkan 18.30 í Laugardalshöll. Þá leika
Egyptar við Portúgala á morgun klukkan 14.20 á
sama stað og Israelsmenn etja kappi við íslenska
landsliðið klukkan 16.20. Sömu lið leika á sunnu-
dag, þ.e. ísrael og Portúgal, klukkan 14.20, og ís-
land og Egyptaland klukkan 16.20.
Morgunblaðið/Emil Þór
Viðræður um endurskipulagningu og aukið samstarf samtaka atvinnurekenda
MIKILL meirihluti atvinnurekenda
virðist vera á þeirri skoðun að nauð-
synlegt sé að gera breytingar á
skipulagi samtaka vinnuveitenda, í
átt til aukinnar samþjöppunar eða
samstarfs, samkvæmt könnunum
sem gerðar hafa verið meðal félags-
manna í samtökunum.
Til að mynda sagðist 91% fulltrúa
í Samtökum iðnaðarins á nýafstöðnu
iðnþingi telja breytinga þörf í sam-
starfi atvinnurekenda, m.a. til að
auka skilvirkni í starfsemi þeirra og
þjónustu, samkvæmt upplýsingum
Sveins S. Hannessonar, fram-
kvæmdastjóra Samtaka iðnaðarins.
Áþekkar niðurstöður komu út úr
könnun sem VSÍ gerði meðal beinna
félagsmanna sinna, en samanlagt
mynda þessir félagar um 70% af
VSÍ.
Umræður um breytt skipulag at-
vinnurekendasamtakanna og hugs-
anlega myndun öflugra heildarsam-
taka hafa staðið yfir um skeið, og
voru þessi mál til umræðu á sérstök-
um fundi forystumanna samtaka at-
vinnurekenda fyrr í þessari viku.
Engar niðurstöður liggja enn fyrir
um hvaða leiðir verða famar og hef-
ur enn sem komið er ekki reynt á
hvort samkomulag næst um breyt-
ingar. Meðal þess sem rætt hefur
verið eru möguleikar á sameiningu
VSÍ og Vinnumálasambandsins. Þá
Meirihluti
vill breyta
skipulaginu
hafa fulltrúar Verslunarráðs íslands
og Sambands íslenskra viðskipta-
banka tekið þátt í viðræðunum. Er
stefnt að næsta fundi 23. mars og
gert ráð fyrir að þá liggi fyrir skýr-
ari mynd af því hvaða leiðir verða
famar í skipulagsmálum, skv. upp-
lýsingum Morgunblaðsins.
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdastjóri VSÍ, sagði í gær að á
fundinum hefðu skýrst þeir valkostir
sem eru í stöðunni varðandi breyting-
ar á skipulagi samtaka atvinnurek-
enda. Ákveðið hefði verið að halda
viðræðum áfram og næsti fundur
væri fyrirhugaður að hálfúm mánuði
liðnum. Þórarinn sagði hugsanlega
nauðsynlegt að fá dýpri sérfræðinga-
álit á lagalegum þáttum málsins m.a.
með vísan til þeirra breytinga sem
hafa verið verið gerðar á EES-löggjöf
og fyrirhugað er að gera.
Finnur Sveinbjömsson, fram-
kvæmdastjóri Sambands viðskipta-
banka, segir að bankamir hafi
ákveðið að fylgjast með þessari um-
ræðu. Viðskiptabankamir hafa ekki
verið í samtökum með öðrum at-
vinnurekendum en mynda með sér
hagsmunasamtök í Sambandi við-
skiptabanka. Hafa kjaraviðræður
farið fram á vegum samninganefnd-
ar viðskiptabanka, Seðlabankans og
sparisjóða.
Aðspurður hvort áhugi sé á þvi
meðal bankanna að taka þátt í sam-
starfi eða samruna annarra samtaka
atvinnurekenda sagði Finnur að
bankakerfið ætti mjög sterkar ræt-
ur í ríkiskerfinu vegna þess hve rík-
ið hefði verið stór eignaraðili við-
skiptabanka, en aðstæður væra nú
að breytast. „Menn hafa ef til vill
ekki litið á bankarekstur sem at-
vinnurekstur en ég tel að sá skiln-
ingur fari vaxandi að bankastarf-
semi sé eins og hver önnur atvinnu-
grein. Ríkið hefur markað þá stefnu
að losa um eignarhald sitt í banka-
kerfinu og því er ekki óeðlilegt að
bankamir velti fyrir sér hvort þeir
eigi ekki samleið með öðram at-
vinnurekendum,“ sagði hann.
Ráðgjafar gera úttekt á
verkefnum og skipulagi
Ákveðið var sl. haust að láta gera
úttekt á verkefnum og skipulagi
samtaka atvinnurekenda með það að
markmiði að kanna hvort annað
skipulag geti þjónað fyrirtækjunum
betur. Var fyrirtækið C.I. ráðgjöf
ehf. fengið til að taka verkefnið að
sér og stýrir Bjami Snæbjöm Jóns-
son rekstrarráðgjafi því starfi.
Forsvarsmenn Samtaka iðnaðar-
ins settu í upphafi umræðunnar
fram þá hugmynd að aðildarfélög-
um og beinum aðilum VSÍ verði
skipt upp í fjóra hópa og samtökin
verði í framtíðinni byggð upp af
fjórum stoðum. í þeirri fyrstu væri
flutningastarfsemi og veitinga- og
ferðaþjónusta, Samtök iðnaðarins
væra önnur stoðin, í þeirri þriðju
væra LÍÚ og Samtök fiskvinnslu-
stöðva og fjórða stoðin hefði að
geyma verslun og fjármálaþjón-
ustu.
Málefni fatlaðra til
sveitarfélaga
Yfirfærslu
frestað um
óákveðinn
tíma
ÁKVEÐIÐ hefúr verið að fresta
um óákveðinn tíma yfirfærslu á
málefnum fatlaðra frá ríki til
sveitarfélaga en þau áttu að taka
við þeim málaflokki um næstu
áramót. Að sögn Páls Pétursson-
ar félagsmálaráðherra var
ákvörðunin tekin að ósk Reykja-
víkurborgar og að höfðu samráði
við Samband ísl. sveitarfélaga.
Sagði hann að komandi sveitar-
stjómarkosningar ættu þar
stærstan hlut að máli.
„Sveitarfélögin óskuðu ein-
dregið eftir því að fá málefni
fatlaðra til sín og einnig samtök
fatlaðra,“ sagði Páll. „Við urð-
um við þeim óskum og fórum
að vinna samkvæmt því. Ákveð-
ið var með skilyrtri löggjöf að
færa um næstu áramót málefni
fatlaðra yfir til sveitarfélaga,
þ.e. nærverkefni, en að verk-
efni á landsvísu yrðu áfram hjá
ríkinu eins og t.d. greiningar-
og ráðgjafarstöð."
Sagði hann að síðan hefði
komið ósk frá Reykjavíkurborg
um að fresta yfirtökunni og taldi
hann að þar ættu komandi sveit-
arstjómarkosningar stærstan
þátt. „Sveitarstjómarmenn eru
uppteknir af sveitarstjómar-
kosningunum og í öllu falli verða
engir nýir samningar gerðir
fyrr en nýjar sveitarstjómir era
teknar við í landinu," sagði Páll.
„Við heyrðum úr fleiri áttum að
tíminn væri naumur og ákváð-
um þá að höfðu samráði við
Samband ísl. sveitarfélaga að
skjóta þessu á ffest.“
Áfram unnið að málinu
Sagði Páll að vinna við yfir-
færslu héldi áfram og er verk-
efnisstjóm að störfúm, laga-
nefnd, sem hefur það hlutverk
að fella lög um málefni fatlaðra
inn í lög um félagsþjónustu
sveitarfélaga, kostnaðarnefnd,
sem metur kostnað og semur
við sveitarfélögin um kostnað
við málaflokkinn og loks er út-
tektarhópur, sem á að meta
þörfina. Ráherra sagði að
þrátt fyrir að flutningnum hefði
verið frestað væri hann tilbúinn
ef sveitarfélög eða samtök
sveitarfélaga vildu taka fyrr við
málaflokknum. Minnti hann á
að sveitarfélög í Norðurlands-
kjördæmi eystra, á Höfn í
Homafirði og í Vestmannaeyj-
um hefðu þegar tekið við mála-
flokknum með góðum árangri.